Morgunblaðið - 26.05.1992, Síða 49
49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992
og samstarfsmenn um langan tíma
og þau kveðja hann í einlægri þökk.
Halldór Asgrímsson.
í fáum orðum langar mig að
minnast tengdaföður míns, félaga
og vinar, Oskars Guðnasonar á
Höfn. í fáum orðum því að sjálfum
hugnaðist honum ekki ofhlað eða
mærð og enn síður óverðskuldað lof.
Stráklingur vissi ég einhver deili
á Óskari bílstjóra, uppkominn þekkti
ég Óskar verkstjóra og síðar hrað-
frystihússtjóra og síðar átti ég eftir
að flytjast inn á yndislegt heimili
hans og konu hans, Kristínar
Björnsdóttur, sem verðandi tengda-
sonur. Vinátta og kynni hafa síðan
haldist óslitið þar til leiðir nú skilj-
ast.
Ef lýsa ættí einhverjum eðliskost-
um Óskars kemur mér fyrst í hug
fádæma fyrirhyggja og rökleg
skipulagning verka í sroáu og stóru.
Hann var einnig verklaginn með
afbrigðum og afkastamaður í besta
lagi enda vel að manni hvað líkams-
burði snerti. Allt þetta hefði þó ekki
dugað til ef ekki bættist við að hug-
ur fylgdi máli sem löngum verður
þyngst á metunum.
Þegar ég las yfír drög Óskars að
minningu um ferð, sem hann efndi
til árið 1932, en þá fór hann með
farþega frá Höfn til Reykjavíkur,
sunnanlands, á bíl sínum, Ford-
vörubíl eins og hálfs tpnns. Ég vissi
að á þeim tíma voru á þessari leið
a.m.k. 15 vatnsföll, stór og smá
óbrúuð, bjóst því við að sjá nokkuð
ævintýralega lýsingu á vatnabrasi
og jafnvel svaðilförum. En því fór
íjarri. Fram kemur að vísu að ferð-
in var nokkuð erfið en það sem upp
úr stendur er í rauninni lýsing á
þeirri höfðinglegu gestrisni sem
ferðalangar nutu á leið sinni. Þetta
var verklag Óskars Guðnasonar.
Óskar átti eftir að eiga marga
bíla og ferðaðist mikið um landið,
byggðir þess og ekki síður óbyggð-
ir. Hann unni landi okkar heitt og
minni hans á örnefni og landslag
var með ólíkindum. Störf hans á
unga aldri gáfu líka tilefni til kynna
á landinu, ungur var hann smala-
drengur í Dilknesi og á Viðborði og
síðar við vegagerð m.a. í Berufirði
og á Snæfellsnesi.
Þótt hugur Óskars stæði til
mennta á unga aldri varð skóla-
gangan ekki löng. Erfiðisvinna kall-
aði að og á árum kreppu leyfði efna-
hagur ekki mikinn tilkostnað. En
símenntun, sem nýlega er farið að
nefna á nafn, reyndist Óskari dijúg-
ur kostur enda var hann lestrarhest-
ur mikill svo sem verið hafði Guðni
faðir hans, en hann held ég hafi
haft eitthvert mesta lestrarþol sem
ég hef kynnst hjá nokkrum manni.
Óskar var meiri fagurkeri en
margan gat grunað sem ekki þekkti
hann náið. Hann sótti mikið mynd-
listarsýningar enda bróðir hans og
mágur, þeir Svavar Guðnason og
Höskuldur Bjömsson, virtir mynd-
listarmenn og hann var kunnugur
fieiri listamönnum, s.s. Jóhannesi
Kjarval. Kona Öskars, Kristín
Björnsdóttir, var tónelsk og lék á
hljóðfæri og studdi Óskar hana við
það hugðarefni svo sem það safn
nótnabóka, sem hann dró að, ber
glöggt vitni. Sjáifur var hann mikill
ljóðaunnandi og sparaði ekki að
læra þau kvæði sem mest höfuðu
til hans.
Störf Óskars tengdust löngum
fiskverkun og verkstjórn. Ungur
flutti hann ís úr Hoffellsjökli á bíl
sínum í gamla íshúsið á Höfn og
átti síðar, um miðja öldina, eftir að
stjórna tæknivæddi frystihúsi og
fiskiðjuveri Kaupfélags Austur-
Skaftfellinga. í því sambandi sendi
kaupfélagið hann í fróðleiksferð um
þessa hluti til Evrópu og Bandaríkj-
anna. Óskar lagði sig líka mjög fram
í sambandi við hafnarmál Hornfírð-
inga og mun hafa reynst þar betri
en enginn.
Kristín og Óskar eignuðust sex
börn, Guðna, Lovísu, Birgi, Knút,
Ólöfu Auði og Margréti Kristínu.
Kristín Björnsdóttir, kona Óskars,
lést árið 1972 og Knútur, sonur
þeirra, fórst í flugslysi árið 1973.
Líf Óskars var þannig sambland
ljúfrar hamingju og þungbærra
rauna. Þeim tók hann með stillingu
og æðruleysi.
Hér hefur verið getið nokkurra
þátta úr lífshlaupi Öskars Guðna-
sonar og er þó mest ótalið það sem
hann var sínum nánustu — óþreyt-
andi í hjálpsemi sinni og röskleika
svo börnum, tengdabörnum sem
barnabörnum. Sem betur fer höfð-
um við tækifæri til að þakka það
meðan hann var enn lífs.
Mig langar að síðustu að minnast
þess er ég kom í Sólgerði, heimili
þeirra Kristínar, Óskars og barna
þeirra, til að eignast nýja fjölskyldu.
Þær minningar tengjast með öðru
ljúfsemd Kristínar og röskleika at-
hafnamannsins Óskars. Annir voru
miklar en gott atlæti var ekki spar-
að. Þökk sé þeim.
Hallgrímur Sæmundsson.
*
Þórður O. Þorvalds-
son - Kveðja
Fæddur 26. febrúar 1934
Dáinn 15. maí 1992
Fallinn er frá fyrir aldur fram
Þórður Ólafur Þorvaldsson, lög-
reglumaður í lögregluliði Hafnar-
ijarðar. Það voru okkur mikil sorg-
artíðindi er frétt barst 15. maí að
hann væri látinn. Höfðum við félag-
ar hans fylgst með ferð hans til
London til að leita sér lækninga en
þetta var önnur ferð hans til að
gangast undir skurðaðgerð vegna
illvígs hjartasjúkdóms og fór hann
fyrir nokkrum árum í sama til-
gangi. Fréttir bárust um að allt
hefði gengið vel og kom Þórður
heim og var lagður inn á Landspítai-
ann þar sem hann vonaðist eftir að
vera útskrifaður sama dag og hann
lést. Þórður hélt utan 1. maí og er
hann kom að kveðja vinnufélaga
sína 30. apríl var skrafað í léttum
dúr yfir kaffibolla, að hann hefði
valið sér 1. maí til að fara til Lond-
on og má segja að það hafi verið
sérstakur hátíðisdagur í huga Þórð-
ar sem var vinstrisinnaður. Ófáir
morgnar bytjuðu á því að rætt var
um stjórnmál og var hann mjög
rökfastur í skoðunum er hann túlk-
aði stjórnmálaskoðanir sínar. Þórður
fór utan ásamt Karólínu, konu sinni,
og eldri dóttur þeirra, Sigurlínu, ög
með þeim var Fjóla sem hafði farið
út með honum í fyrri aðgerðina og
var greinilegt að honum vgr styrkur
í þessu samferðafólki sínu.
Með fráfalli Þórðar er genginn
einn af traustari mönnum sem starf-
að hafa í lögregiuliði Hafnarfjarðar
en hann gat ekki unnið vaktavinnu
í nokkur ár vegna hjartasjúkdóms.
Honum hafði verið falið starf sem
fólst í skráningu á slysum og um-
sjón með útgáfu skotvopnaleyfa og
sóttu menn um að komast á skot-
vopnanámskeið hjá honum. Þetta
starf vann Þórður af háttvísi og trú-
mennsku eins og öll þau störf sem
honum voru lögð í hendur og þjón-
ustulund var honum í blóð borin.
Þórður hóf störf hjá Lögreglunni
í Hafnarfirði 1. júní 1972 og vann
áður hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
og á sínum yngri árum hjá Eimskip-
um. Þórði var í blóð borið að teikna
og mála myndir. Hann hafði fyrir
nokkrum árum komið sér upp hús-
vagni sem hann hafði fengið aðstöðu
fyrir á Laugarvatni og hafði hann
átt margar góðar stundir þar með
fjölskyldu sinni á liðnum sumrum.
Það var gæfa hveijum manni að
kynnast Þórði því þar fór einlægur
og góður lögreglumaður sem ekki
hafði sig mikið í frammi og sinnti
öllu því sem honum var falið að
gera. Nú hefur Þórður farið í sitt
lokaútkall og viljum við félagar
Þórðar í lögregluliði Hafnarfjarðar
biðja algóðan' guð að styrkja fjöl-
skyidu hans á erfíðum sorgartímum.
Hvíli vinur minn í friði.
Gissur Guðmundsson,
formaður Lögreglufélags
Hafnarfjarðar.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför
JÓNS GÍSLASONAR,
Álftröft 7,
Kópavogi.
Halldór Gíslason, Sigurborg Jakobsdóttir,
Gunnþóra Gísladóttir,
Stefán Gíslason.
BLÓM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
t
Innilegar þakkir til allra, sem vottuðu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁGÚSTU EBENESERSDÓTTUR,
Hlff, ísafiröi,
áður til heimilis á Brunngötu 12.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Fjórðungssjúkrahússins
á ísafirði.
Halldóra Þorláksdóttir,
Sigurður Þorláksson,
Guðmundína Þ. Hestnes,
Jón Þorláksson,
Gísley Þorláksdóttir,
Guðjón Sigtryggsson,
Elísabet Guðbjartsdóttir,
Sverrir Hestnes,
Sigurbjörg Kristinsdóttir,
Kristinn Öri
barnabörn og barnabarnabörn.
Jrn Jónsson,
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÓLÖF HELGA FERTRAMSDÓTTIR
frá Nesi í Grunnavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 27. maí kl. 13.30.
Þeir, sem vildu minnast hennar, eru
beðnir að láta Slysavarnafélag íslands
njóta þess.
Guðbjörg Halidórsdóttir,
Gunnar Haildórsson,
Ólafur Halldórssön,
Ingólfur Halldórsson,
Margrét Halldórsdóttir,
Ragnheiður Halldórsdóttir,
Pétur Pétursson,
Álfhildur Friðriksdóttir,
Margrét Reimarsdóttir,
Anna Dóra Ágústsdóttir,
Gústaf Gústafsson,
Ingólfur Konráðsson,
Guðrún Björnsdóttir,
barnabörn og fjöiskyldur þeirra.
t
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORKELL GUÐMUNDSSON
frá Jörfa,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
sem lést sunnudaginn 24. maf, verður jarðsunginn frá Akranes-
kirkju föstudaginn 29. maí kl. 11.00.
Snjólaugur Þorkelsson,
Ása Valdimarsdóttir, -
Guðmundur Valdimarsson,
Þorkell Valdimarsson,
Valdis Valdimarsdóttir,
Halldór Snjólaugsson,
Ástþór Snjólaugsson,
Katrín Snjólaugsdóttir
Jónfna Halldórsdóttir,
Eyjólfur Harðarson,
Rósa Mýrdal,
Eygló Harðardóttir,
Hjalti Njálsson,
Jónfna Oskarsdóttir,
Eyrún Jensdóttir,
og barnabörn.
t
Faðirokkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓSKAR GUNNLAUGSSON,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni
í Reykjavík miðvikudaginn 27. maí
kl. 13.30.
Soffía Óskarsdóttir,
Margrét Óskarsdóttir,
Viðar Óskarsson,
Ragnar Óskarsson,
Gunnlaugur Óskarsson,
Hjördfs Oskarsdóttir,
Árni Heiðar,
Gunnsteinn Sigurðsson,
Sigrföur Friðþjófsdóttir,
Sigrfður Stefánsdóttir,
Lovísa Hermannsdóttir,
Ronnie Walker,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls
eiginmanns míns, föður okkar og sonar,
HANNESAR NORDALS MAGNÚSSONAR.
Ásta Valdimarsdóttir,
Guðrún Margrét Hannesdóttir,
Valdimar Kristinn Hannesson,
Guðrún Margrét Þorsteinsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við and-
lát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÞORKELS HALLDÓRSSONAR,
Sæmundargötu 6,
Sauðárkróki.
Ósk Þorkelsdóttir,
Örn Þorkelsson,
Erna Þorkelsdóttir,
Katrfn Þorkelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Óskar Karlsson,
Aðalbjörg Valbergsdóttir,
Hjálmar Jónsson,
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og jarðarför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
INGÓLFS GÍSLASONAR
frá Vestmannaeyjum,
Eskihlíð 14a,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Stefánsdóttir,
Steinunn Ingólfsdóttir,
Vigfús Ingólfsson,
Gísli Ingólfsson, Linda Hannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.