Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992 Rykgrímur fyrir allar aðstæður ÁRVÍK ÁRMÚU 1 - REYKJAVÍK - SlMI 667222 -TELEFAX 687295 Verð fra „31.120,- ál VSK j UMBOÐS- OG HEILDVERSL UNIN BlLDSHÖFÐA 16SIMI672444 TELEFAX672580 VÁKORTALISTÍ Dags. 26.5.1992. NR. 83 5414 8300 0362 1116 5414 8300 2890 3101 5414 8300 2717 4118 5414 8300 2772 8103 5414 8301 0407 4207 5421 72** 5422 4129 7979 7650 5412 8309 0321 7355 5221 0010 9115 1423 Ofangreind kort eru vákort, sem taka ber úr umferð. VERÐLAUN kr. 5000.- fyrir þann, sem nær korti og sendir sundurklippt til Eurocards. /? ---a B v- -------- KREDITKORTHF. Ármúla 28, ^ 108 Reykjavík, sími 685499 j fc>lk í fréttum Hin hlióin Þrjú leikrit Monika ★ Marbendill ★ Marflóin eftir Erling E. Hallðórsson; iást hjá Eymundsson og í M&M. Um Marbendil: í leikritinu komu líkf og í lífinu fyrir ougnablik full df glamri merkingarlausra orða. En þegar hitnaði í kolunum þó brunnu setn- ingar af vörum og áheyrandinn varð ungur af nýrri reynslu. Um Marflóna: Verk Erlings eru...augnabliksmyndir er lýsa er best lætur ofan í hyldýpi mannssálarinnar, gjarna í hæðnistón. Mbl. Ólafur M. Jóhannesson. Pöntunarsími: 95-13359. LeÍkliStarstÖÍÍO. ÍÞRÓTTIR Bandarísk íþróttahelja að verða eyðni að bráð FUNDAHÖLD Norrænir kvikmyndaleikstjórar Stjóm norrænna kvikmyndaleikstjóra kom saman til fundar er kvik- myndahátíðin var haldin í Cannes á dögunum og var þessi mynd tekin við það tækifæri. Frá vinstri talið í aftari röð: Daniel Bergman frá Svíþjóð, Oddvar Bull Tuhus frá Noregi, Hrafn Gunnlaugsson, Juuha Khomi frá Finnlandi, Kristín Jóhannesdóttir og Friðrik Þór Friðriksson. í fremri röð frá vinstri: Ebbe Preiser frá • Danmörku, Unni Straume frá Noregi og Berit Nielsen frá Noregi. LESTRARKEPPNI Að lesa meira og meira — meira í dag en í gær Vorverkin í grunnskólunum eru mörg. Nú á vordögum var efnt til skemmtilegrar lestra- keppni; Les-leikni ’92, í Tjarnar- skóla. Lestur unglinga virðist vera á undanhaldi og því þótti tilvalið að hvetja nemendur, með einum eða öðrum hætti, til að lesa. Lestrarkeppnin stór í fjórar vik- ur og fólst í því að nemendur áttu að lesa „hver í kapp við annan“. Eftir að lokið var við lestur tiltek- innar bókar var hún skráð og síð- an reiknað út hversu lesturinn gæfí mörg stig. Að lokum gaf némandinn skriflega umsögn um bókina. Lesnu bækurnar hrönnuð- ust upp og nemendur sáust lesa sér til skemmtunar við öll möguleg tækifæri. Flestir reyndust hafa talsvert gaman af og margir lestr- arhestar komu í leitirnar. Að fjór- um vikum liðnum var hver nem- andi búinn að lesa að meðaltali fjórar bækur, nokkuð gott það. Sigurvegarinn í lestrarkeppninni reyndist vera Vilhelmína Eva í 9. bekk. Hún las hvorki meira né minna en 19 bækur. I öðru sæti var Kristín Ösp einnig í 9. bekk, en hún las 13 bækur. Á meðal bókanna sem þær stöllur lásu má nefna: Þrúgur reiðinnar, I dular- Sigurvegararnlr í leskeppninni, t.v Kristín Ösp og Vilhelmína Eva. gervi, Vini á vegamótum, Mundu mig ég man þig o.fl., o.fl. Sá bekk- ur sem reyndist hafa samanlagt hakkað í sig flestar bækurnar var þó 8. bekkurinn. Sigurvegararnir í Les-leikni ’92 fengu viðurkenningar fyrir frá- bæran árangur. Stefnt er að því að endurtaka Les-leikni og þá er auðvitað markmiðið að slá út fyrri met lestrarhestanna. eim fjölgar sem falla í valinn fyrir eyðni og þekktum per- sónum fjölgar að sama skapi í réttu hlutfalli. Fyrir skömmu kom það reiðarslag yfír bandaríska alþýðu, að einn ástsælasti íþróttamaður þeirra er nú að fara á lokastig sjúk- dómsins. Ekki er um Magic Johnson að ræða, körkuknattleiksgoðið sem kom fram fyrir skjöldu og játaði smit, en hann er enn einkennalaus. Sá sem um ræðir er Arthur Ashe, tennisleikari, sem raunar er fyrir all nokkru hættur að slá bolta. Engu að síður er hann ein af mestu íþróttahetjum Bandaríkjanna frá sjöunda og áttunda áratugnum. 1968 vann hann opna bandaríska meistaramótið og 1975 varð hann fyrsti og enn sem komið er, eini blökkumaðurinn til að vinna Wimbledonkeppnina, er hann sigr- aði Jimmy Connors í úrslitum. Ashe gekkst undir hjartaskurð- aðgerð árið 1983 og fékk þá meng- að blóð. 1988 fannst HlV-veiran í líkama hans og síðan hefur hann freistað þess að láta á engu bera, „einfeldlega vegna þess að það kemur engum þetta við,“ sagði hann, er fískisagan flaug loks síðla vetrar. Hann var þá komin með einkenni lokastigs alnæmis og sagðist svo sem hafa getað átt von á því að einhver gerði pressunni viðvart. Hann hélt loks fréttamann- afund þar sem hann sagði allt af létta, „til að koma í veg fyrir kjafta- sögur,“ eins og hann orðaði það sjálfur. Á fundinum las hann frétta- tilkynningu, en gat ekki lokið lestr- inum vegna geðshræringar og eiginkona hans Jeanne tók blaðið úr höndum hans og las síðustu lín- urnar. Ashe lagði á það þunga áherslu að ekkert hefði verið bogið við líferni sitt, rótin hefði verið mengað blóð sem hann þáði sem hjartasjúklingur. Ashe viðurkenndi að hafa sagt ósatt um líkamlegt ástand sitt nokkrum sinnum síðustu misseri, „til þess að vernda fjöl- skyldu mína,“ sagði hann, en hann á 5 ára stúlkubarn, Camera Ashe, með konu sinni. Ashe segist enn fremur telja að ekki taki því lengur að sýta orðinn hlut, heldur að spila rétt úr þeim spilum sem eftir eru á hendinni. Skoðun alls blóðs blóð- gjafa hafi ekki hafist fyrr en 1985 og því sé ekki við neinn að sakast og sjálfsagt hafi blóðgjafinn sem um ræðir gefíð blóð í góðri trú á sínum tíma. Ashe var spurðu hvernig á því hefði staðið að hann fór í eyðnipróf á sínum tíma, hvað hefði bent til þess að nauðsyn væri á slíku. Hann svaraði því skilmerkilega, sagði að hann hefði mætt í sjónvarpsviðtal á CBS árið 1988 og er hann hefði ætlað að sveifla hægri handleggn- um til áhersluauka á orð sín hefði hann sér til hryllings uppgötvað að handleggurinn var allur dofinn og óhreyfanlegur með öllu. Daginn eftir hefði hann verið drifinn í rann- sókn og þá hefði komið í ljós að Ashe er nú 48 ára gamall og tekinn að horast eins og jafnan er lokastig eyðni heldur innreið sína. Hér les hann fréttatilkynningu um ástand sitt með Jeanne frú sína sér við hlið. hann var með taugaígerð nokkra sem oft er undanfari eyðni. Blóðprufa var því óumflýjanleg og óttuðust menn það versta og ekki að ástæðulausu, enda hefði komið á daginn að hann var smitaður. 1975 varð Ashe fyrsti og enn sem komið er, eini blökkumaðurinn til að vinna Wimbledonkeppnina í tennis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.