Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 54
54
MOEGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992
16 500
TI IE
Prince oi Tmt s
ÞRIÐJUDAGS-
TILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 350 A
STRÁKANA í HVERFINU
OGKRÓK.
OÐUR TIL HAFSINS
NICK NOLTE, BARBRA STREI-
SAND f STÓRMYNDINNI, SEM
TILNEFND VAR TIL SJÖ
ÓSKARS VERÐLAONA.
MYNDIN ER GERÐ EFTIR
METSÖLUBÓK RITHÖFUNDARINS
PATS CONROY.
„Afar vel gert og leikið stórdrama um við-
kvæm tilf inningamál og uppgjör f ólks við
f ortíðina. Nolte er f irnasterkur að vanda."
★ ★★Vz SV. MBL.
„THE PRIHCE OF TIDES “ EX HáG/EflAMYND MEB
AFBURBA LEIKURUM, SEM UHKEHDUR GÖÐRA
KVIKMYHDA JETTU EKKI AB L&TA FRAM HiA
SÉR FARA!
Leikstjóri: Barbra Streisand.
Sýnd kl. 4.45,6.55,9.10 og 11.30.
*
KRÓKUR STRÁKARNIR
DUSTIN HOFEMAN, ÍHVERFINU
TULIA ROBERTS OG i^v f*
BOB HOSKINS.
Sýnd kl. 5 og 9.
S^lM 1 wjjxmsma Sýnd kl. 11.30.
Bönnuð innan 16 ára.
BÖRN
Sýnd kl.7.30ísalB.
10. sýningarmán.
mm
Bannfæringarárin í Hollywood
Úr myndinni Grunaður um sekt.
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Grunaður um sekt („Gu-
ilty By Suspicion"). Leik-
stjóri og handritshöfund-
ur: Irwin Winkler. Aðal-
hlutverk: Robert De Niro,
Annette Bening, George
Wendt, Patricia Wettig,
Sam Wanamaker og
Martin Scorsese. 1991.
Grunaður um sekt er að
líkindum fyrsta bíómyndin
síðan „The Front“ sem tek-
ur á kommúnistaveiðunum
í Hollywood er leiddu til
þess að fjöldinn allur af
hæfileikaríku fólki, sem á
einhvem hátt var bendlað
við kommúnisma i fortíð
eða nútíð, hrökklaðist frá
vinnu í kvikmyndaborginni
og átti hvergi höfði að halla
í sínu fagi. Að ekki hafi
verið gerðar nema tvær bíó-
myndir (eitthvað er til af
sjónvarpsmyndum) um
þessa sögulegu tíma virðist
benda til að málið sé enn
viðkvæmt í kvikmynda-
borginni.
Sem ekki er skrítið ef
marka má þá lýsingu sem
Grunaður um sekt gefur um
atburði sem leiða til þess
að mikilsmetinn kvikmynd-
aleikstjóri fellur í ónáð og
er í raun flæmdur frá Holly-
wood. Robert De Niro leikur
hann af þeirri vandvirkni
og einbeitingu sem er hans
vörumerki. David Merrill
heitir leikstjórinn og er nýj-
asta stjarnan í stéttinni;
súperframleiðandinn Darryl
F. Zanuck ber hann á hönd-
um sér og Bogart vill gera
með honum mynd. Allt er í
lukkunnar velstandi þar til
góður vinur hans nefnir
nöfn frammi fyrir óamer-
ísku nefndinni, til að halda
vinnunni, og þ. á m. hans.
í Ijós kemur að Merrill hafði
mætt á tvo eða þijá fundi
vinstrisinna 12 árum áður
og ef hann nefnir ekki nöfn
þeirra sem hann þá um-
gekkst fær hann að fjúka.
Engin auðveld leið er í
stöðunni: Ef hann gefur upp
nöfn er hann hreinsaður en
getur ekki lifað með sjálfum
sér, ef hann gerir það ekki
verður hann að gefa líf sitt
upp á bátinn. Hann velur
síðari kostinn og er fljótur
að hrapa, ferillinn glæsilegi
fer í vaskinn, hann missir
eignir og fær hvergi vinnu.
Allt í einu er hann orðinn
eins og bráðsmitandi pest,
allir forðast hann. Glæpur-
inn: Hann vill ekki gefa upp
nöfn.
Grunaður um sekt er
býsna áhrifarík úttekt á
ástandinu í Hollywood
bannfæringarárin í kring-
um kommúnistaveiðamar í
landinu. Þó að leikstjórinn
og handritshöfundurinn,
Irwin Winkler (hann er af-
kastamikiil framleiðandi en
þetta er fyrsta myndin sem
hann leikstýrir), einbeiti sér
að ofsóknaræðinu sem veið-
arnar skapa í Hollywood-
samfélaginu gæti sögusvið-
ið verið hvar sem er og í
raun hvenær sem er og því
á myndin erindi. En Holly-
wood var valið af sérstökum
ástæðum; með því að ráðast
gegn „rauðu hættunni" í
stjörnusamfélaginu fékkst
ómetanleg auglýsing fyrir
andstæðinga kommúnista.
Winkler lýsir því vel
hvernig óttanum er haldið
við með hótunum, vinum er
miskunnarlaust snúið gegn
vinum, undirferlið gerir
menn að skepnum, það
skapast ofsóknaræði þar
sem enginn getur treyst á
annan, við tekur útskúfun
og mannorðsmissir þess
sem ekki kjaftar og stöðug-
ar njósnir frá hendi FBI.
Yrðu menn settir á hinn
alræmda svarta lista var
útilokað að þeir gætu unnið
í Hollywood. Til að losna
varð að gefa upp nöfn.
Meðfram aðalsögunni
gefur myndin athyglisverða
lýsingu á kvikmyndaborg-
inni Hollywood og hvernig
innviðir hennar virka.
Margt í henni vísar beint
til bannfæringaráranna.
Sam Wanamaker fer með
lítið hlutverk lögfræðings
en Wanamaker varð á sín-
um tíma að flýja Hollywood
vegna skoðana sinna. Merr-
ill fær um tíma vinnu við
bíómynd sem svipar mjög
til vestrans fræga „High
Noon“, sem er allegóría um
kommúnistaveiðarnar og
lýsir. samstöðuleysi í litiu
bæjarfélagi gegn utanað-
komandi ofsókn.
Annette Bening leikur
ágætlega fyrrum eiginkonu
Merrills, George Wendt
(Staupasteinn) er góður
einnig sem áhyggjufullur
vinur leikstjórans en það
vottar fyrir ofleik hjá
Patriciu Wettig (Á fertugs-
aldri), hvers líf hrynur í
rúst eftir að eiginmaður
hennar kjaftar í nefndina.
Leikstjórinn Martin Scor-
sese kemur fram í litlu hlut-
verki leikstjóra sem leggur
á flótta til Bretlands og er
frábær í hlutverkinu.
ISTÆRSTA BÍÓIÐ ÞAR SEM
ALLIR SALIR ERU FYRSTA
FLOKKS
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 300 Á ALLAR MYNDIR NEMA KONU SLÁTRARANS
Taugatrillirinn
KONA SLÁTRARANS REFSKÁK
STÓRGÓÐ GAMANMYND!
HÚN SÉR FYRIR ÓORÐNA HLUTI, MEÐAL
ANNARS AÐ DRAUMAPRINSINN SÉ Á
NÆSTA LEITI.
STÓRSKEMMTILEG ÁSTARSAGA!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
STÓRMYNDIN
STEIKTIR GRÆNIR TÓMATAR
★ ★ ★G.E. DV.
„Refskák er æsileg afþreying allt til
lokamínútnanna." S.V. MBL.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.10.
Bönnuð innan 16 ára.
UTLI
SNILLINGURINN
★ ★★AI.MBL.
Sýnd kl. 5.05, 7.05, I
9.05 og 11.05.
HAIRHÆLAR
Sýnd kl. 7.05 og 11.05. Síðustu sýningar.
Árbæjarkirkja.
Dagiir aldraðra
í Arbæjarsókn
HALDINN _ verður dagur
aldraðra í Árbæjarkirkju á
uppstigningardag, 28. maí,
og hefst hann með guðs-
þjónustu kl. 14. Allt eldra
fólk í söfnuðinum er sér-
staklega boðið velkomið til
guðsþjónustunnar.
Að lokinni messu verður
farið niður í safnaðarheimili
kirkjunnar og veislukaffi
drukkið í boði Soroptimista-
kvenna, er af mikilli rausn
standa fyrir veitingum á þess-
um degi. Pétur Sigurgeirsson
biskup mun ávarpa samkomu-
gesti, sönghópur úr Árbæjar-
skóla syngur undir stjórn Ás-
laugar Bergsteinsdóttur og
auk þess verður almennur
söngur undir stjórn kirkju-
organistans, Sigrúnar Stein-
grímsdóttur. Um leið verður
sýning á þeim munum er eldra
fólkið hefur unnið í opna hús-
inu á miðvikudögum í vetur.
Getur þar að líta marga fal-
lega og nytsama muni sem
vert er að sjá.
Ég hvet sem flesta til þess
að koma til kirkju á upp-
stigningardag, hátíðisdegi
aldraðra. Verið hjartanlega
velkomin.
Guðmundur
Þorsteinsson.
Vikunámskeið fyr-
ir sjúkraþjálfara
FÉLAG íslenskra sjúkraþjálfara hefur fengið hingað til
lands DMSc Gertrud Roxendal sjúkraþjálfara til þess að
halda vikunámskeið fyrir sjúkraþjálfara dagana 1.-5. júní
nk.
Gertrud hefur kennt við
Háskólann í Lundi um allangt
skeið en rekur nú „Skandinav-
iska institutet för
kroppskánnedom" og útskrif-
ar þaðan þerapista og kenn-
ara.
Þann 29. maí nk. mun hún
halda fyrirlestra sem bera
yfirskriftina „The Body Ego
and Body Awarness Therapy,
a new treatment approach".
Fyrirlestrarnir verða haldn-
ir í fyrirlestrasal geðdeildar
Landspítalans 3. hæð og eru
frá kl. 13-17 og eru opnir
öllum faghópum heilbrigðis-
stétta á meðan húsrúm leyfir.
VITASTIG 3 t1D|
SÍMI623137 ’JdL
Þriðjud. 26. maí. Opið kl. 20-01
TÓNLEIKAR
KRISTBJÖRG SÓLMUNDARDÓTTIR
& MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR
leika lög frá ýmsum löndum
HLJOMSVEITIN BURKNI:
Margrét Sigurðardóttir, söngur
Ragnar Emilsson, gítar
Páll Hermannsson, gitar
Eiður Alfreðsson, bassi
Hafsteinn Ingimundarson, trommur
Aðgangur kr. 200,-
PÚLSIIMN
nýtt blóð!