Morgunblaðið - 04.07.1992, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992
Vorstofiiinn í Stóru
Laxá búinn að vera?
Morgunblaðið/gg
Stiginn dans á Fossbreiðu í Laxá í Kjós. Laxinn hafði krækt lín-
unni um stein úti í ánni og þá var frumsaminn sannkallaður ár-
ballett til að bjarga málum.
LÍTIÐ hefur veiðst í Stóru Laxá
í Hreppum enn sem komið er
og sumum lýst ekkert á hversu
illa veiði hefur byrjað í Soginu.
Laxá hefur verið skömminni
skárri, en nær árvisst er að í
ánni veiðist vel í opnun, svo
fremi sem skilyrði leyfa. Þetta
vorið var allt eins og best varð
á kosið, en samt gerðist það að
eriginn lax veiddist í opnun og
það var ekki fyrr en nokkrir
dagar voru liðnir af veiðitíman-
um að menn fóru að verða varir
svo orð væri á gerandi.
Eyþór Sigmundsson kokkur og
útgefandi með meiru, er með
slyngari Stóru-Laxármönnum,
hefur veitt í ánni á öllum tímum
vertíðar í áratugi. Hann var í opn-
un á efsta Svæðinu ásamt harðdug-
legum hópi veiðimanna og gengu
þeir og reyndu allt veiðisvæðið án
þess að sjá neitt kvikt. „Þarna er
þó yfirleitt besta veiðin í opnun
og skilyrðin voru óvenjulega góð.
Það var bara enginn lax,“ sagði
Eyþór í samtali við Morgunblaðið.
Hann taldi sig meira að segja hafa
ástæðuna á reiðum höndum. Vor-
ganga Stóru Laxár hafi verið
hreinsuð upp með netaveiði.
Þannig er mál vexti, að Veiðifé-
lag Ölfusár og Hvítár fékk leyfi
til að setja niður tilraunanet við
Selfoss undir eftirliti Veiðimála-
stofnnnnar. Var ætlunin m.a. að
kanna laxagöngur fyrir lögboðinn
veiðitíma á svæðinu, en hann hefst
20. júní. Eyþór sagði í samtalinu,
að afli þessarar tilraunaveiði hefði
verið 200 laxar og hefði hann fyr-
ir því öruggar heimildir. Og ekki
nóg með það. „Þar fyrir utan veit
ég til þess að ýmsir bændur á
svæðinu lögðu sjálfir net sín í júní,
enda engin gæsla á svæðinu fyrr
en frá og með 20.júní. Hvergi er
veiði þeirra skráð, auk þess sem á
svæðinu er nokkuð af silunganet-
um sem heimilt er að leggja. í þau
veiðist alltaf nokkuð af laxi, það
er opinbert leyndarmál.
Þeir aðilar sem vildu forvitnast
um göngur á vatnasvæðið fyrir 20.
júní hefðu sem hægast getað
hreinlega spurt silungsveiðibænd-
urna, sem hafa áratugareynslu af
-þessum veiðum og geta svarað
greiðlega. Það hefði verið nær að
gera það í stað þess að þurrka út
vorstofn Stóru Laxár sem er dýr-
mætasti stofninn á svæðinu og sá
stofn sem heldur uppi veiði í ánni
allt sumarið. í ánni er einnig haust-
stofn, en mjög algengt er að hann
renni sér ekki inn í ána fyrr en á
síðustu dögum vertíðarinnar og
stundum meira að segja eftir að
henni lýkur. Hann hefur þá verið
að gaufa í jökulvatninu við Iðu og
víðar,“ sagði Eyþór Sigmundsson.
Hér og þar...
Veiði hófst fyrir viku síðan á Arn-
arvatnsheiði, en í heild séð hefur
veiði ekki gengið vel enn sem kom-
ið er og má sjálfsagt kenna um
miklum kulda sem verið hefur á
hálendinu um nokkurt skeið. Ný-
lega byijaði þó að hlýna verulega
og má búast við því að veiði g}æð-
ist. Helst hefur verið veitt í Úlfs-
vatni, Arnarvatni litla og Arnar-
vatni stóra og hafa sumir fengið
dálítinn afla, en sem fyrr þola vötn-
in illa slæm veður, þau pískast upp
og gruggast. Þó búið sé að opna
inn úr hefur færð verið slæm og
mikil drulla í slóðinni, sérstaklega
eftir að yfir Norðlingafljót er kom-
ið.
Það er farinn að veiðast lax á
nokkrum svæðum sem hafa ekki
byijað allt of vel. Fyrir stuttu fékk
veiðihópur til dæmis 3 laxa í Miðá
í Dölum og sá talsvert, þannig að
ljóst *var að ganga hafði komið í
ána.
Á Gíslastöðum í Hvítá í Árnes-
sýslu hafa veiðst nokkrir laxar og
sagði Jón Gunnar hjá SVFR að
það væri í sjálfu sér prýðilegt í
ljósi þess að sárafáir veiðidagar
seldust á svæðið í upphafi veiði-
tímans.
23 punda hængur veiddist á sil-
ungasvæðinu í Vatnsdalsá fyrir
skömmu. Hann veiddist í Bríkarhyl
og annar 19 punda veiddist á
Stóranesi. Það hefur áður gerst
að silungasvæðið slær laxasvæðið
í ánni út með stærstu laxana.
Heildarveiðin af svæðinu hefur
hins vegar verið rýr vegna veðurs,
en fer hríðbatnandi.
j30ára
FASTEIQNA
MIDSTOÐIN
SKIPHOLTI 50B
Mj
IIAUS! VMU«"**
TIAUSI
S 6220301
Raðhúsá
Til sölu vel staðsett og snyrtilegt 64 fm raðhús á Torre-1
viga-svæðinu, um 90 km sunnan við Benedorm.
Húsið selst með öllu innbúi. Verð 2,5 millj.
Upplýsingar veitir Elías, sími 622030 eða 679456.
011 01 Q7A LÁRUS VALDIMARSS0N framkvæmdastjori
L I I JU'LIO/U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. loggiltur fasteignasali
Nýjar eignir á söiuskrá:
Úrvalsíbúð við Ofanleiti
Endaibúð 4ra herb. 104 fm. 3 góð svefnherb. Sérþvottahús. Tvennar
svalir. Bilsk. með geymslurisi. Langtímalán kr. 5,9 millj. Eign f sérflokki.
í gamla góða Vesturbænum
Ný endurbyggð 3ja herb. neðri hæð 99,3 fm nettó skammt frá höfn-
inni. i kj. fylgir rúmgott geymslu- og föndurherb. Eignarlóö. Þríbýli.
Langtímalán kr. 5 millj. Eign f sérflokki.
Ný og glæsileg við Næfurás
Mjög stór 2ja herb. fb. á 1. hæð. Parket. Sérþvhús. Svalir á suöur-
hlið. Útsýni. 40 ára húsnlán kr. 2,4 millj. Laus strax.
Hveragerði - einbýlishús - eignaskipti
Gott timburhús 117,4 fm nettó vel meðfarið á ræktaðri lóð við Borgar-
heiði. 4 svefnherb. Bílskúr með geymslu 29,3 fm. Eignaskipti möguleg.
Glæsilegt endaraðhús - eignaskipti
Steinhús 158,3 fm, að mestu ný endurbyggt. Kjallari er undir húsinu.
Sérbyggður bílskúr um 22 fm. Endahús með blóma- og trjágarði í
syðstu röð í Fellahverfi. Eignaskipti möguleg.
Ásvallagata - Tryggvagata
2ja herb. kjíb. við Ásvallagötu með sérhita og glæsil. einsherbergis
íbúð ílyftuhúsi viðTryggvagötu. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga.
Á söluskrá óskast - traustir kaupendur
í Fossvogi og nágrenni: 2ja-3ja herb. íb. óskast. Ennfremur gott rað-
hús helst á einni hæð.
Sérhæðir: I Hlíðum, Stóragerði, Hvassaleiti, Vesturborginni eða á
Nesinu. Margskonar eignaskipti möguleg.
Húseign: i gamla Austurbænum, gamla miðbænum, Vesturhorginni
og Skerjafirði. Má þarfnast endurbóta.
Mikil útborgun f boði. Margskonar eignaskipti möguleg._
ALMENNA
Opiöídag kl. 10-16
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
FASTEIGNASAL AH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 647. þáttur
Axel Sigurðsson í Reykjavík
skrifar umsjónarmanni vin-
gjarnlegt og vandað bréf og
þakkar þessa pistla hér í blað-
inu, þá sem hann segist alltaf
lesa sér til ánægju og fróðleiks.
Umsjónarmaður færir bréfritara
þakkir sínar á móti. Axel segir
'm.a. svo:
„Hin seinni ár hefir mjög auk-
ist flutningur til íslands á fram-
andi ávöxtum úr ýmsum heims-
homum og ekki eiga þeir sér
íslenskt heiti, sem von er. Á
þessu sviði er þó sem innflytj-
endur og verslanir hafi sett
metnað sinn í að finna á' þá ís-
lensk nöfn, sem sjá má á spjald-
merkingum og í kynningarbækl-
ingum. Þetta er vel, og svo fljótt
er brugðist við að kaupendur
kynnast jafnfljótt hinum nýja
ávexti og íslensku nafni hans.
Ein er sú nafngift, sem fljótt
komst í umferð og virtist falla
fólki vel í geð, enda nafnið fal-
legt og höfðar til hinna háleitari
tilfinninga. Þetta er nafnið ást-
araldin sem á ensku heitir
passion fruit.
Þó gremst mér ákaflega í
hvert sinn er ég sé eða heyri
þetta fallega nafn nefnt, vegna
þess að það er byggt á vanþekk-
ingu, bæði á enskri tungu og
þeirri sögu, sem á bakvið ligg-
ur. Á ensku hefir orðið passion
fleiri en eina merkingu, sbr.
orðabækur. Ein þeirra á við písl-
arsögu Krists og þjáningar Hans
á krossinum. Vanþekkingin felst
í að vita ekki að ávöxturinn vex
á klifurjurt, af ætt, sem grasa-
fræðingar nefna passiflorace-
ae. Margar þeirra blómstra fal-
legum blómum (flores passion-
is), sem í orðabók Menningar-
sjóðs eru kölluð píslarblóm eða
passíublóm. Hlutar blómsins
þóttu líkjast písiartækjum
Krists, þyrnikórónunni og nögl-
unum, en krónublöðin og bikar-
blöðin, samtals tíu, áttu að tákna
postulana ef Pétri var sleppt
vegna afneitunarinnar og Júdasi
vegna svikanna. Himinblár litur
krónublaðanna vísar til skikkju
Maríu meyjar. Að blómstrun lok-
inni myndast svo aldinin eftir
sínu náttúrulögmáli og bíða
nafns í samræmi við sögu sína.
Eins og þú getur nærri er til-
efni þessa bréfs uppástunga,
sem þú birtir í 643. þætti þínum
í Morgunblaðinu, að kalla passi-
on fruits brímaber.
Samkvæmt ofansögðu á það
jafn illa við og ástaraldin og —
ef röksemdir mínar eru látnar
liggja milli hluta — er ljótara
orð, og höfðar til ívið lægri hvata
en ástaraldin. Auk þess eru ald-
inin venjulega á stærð við gæs-
ar- og álftaregg, sem ekki sam-
ræmist hugmyndum íslendinga
um beijastærð. (Réttlætis vegna
verður þá að viðurkenna að
ávöxturinn myndast á sama hátt
og flest ber.)
Ef þú fellst á þessar röksemd-
ir mínar vona ég að þú vekir á
þeim athygli í þætti þínum, svo
mér verði hlíft við frekara hug-
arangri.“
Umsjónarmaður ítrekar þakk-
ir til bréfritara fyrir þessar skil-
merkilegu upplýsingar. Hann
heldur að uppástungan um
brímaber hafi kannski fremur
verið gerð í gamni en alvöru.
★
„Daginn eftir að við komum
(mánudaginn 1. september), fór
prinsinn suður á Álftanes og til
Hafnarfjarðar. Var í þeirri för
margt stórmenni, og slæddist
ég í flækju þeirra. Höfðu þeir
allstaðar góðar viðtökur sem
ætlandi var; stóðu víða sjampan-
íavínsstaupin fleytifull á borð-
um, þegar út var gengið, (og
var það) heldur af því, að vel
væri veitt en illa væri drukkið.“
(Tómas Sæmundsson, Fjölnis-
maður, 1807-1841.)
★
Áslákur austan kvað:
Skammt ég fékk að skygpast upp í Loft,
þótt skundaði ég til þess upp í loft;
ég hélt ég upp í hann sæi,
þar sem út af hann lægi
öndverður og opinn upp í loft.
★
Og þá er hér framhald af bréfi
Daníels Daníelssonar á Selfossi,
sjá síðasta þátt: „I mínu móður-
máli tekur sögnin að langa yfir- j
leitt með sér forsetninguna til,
t.d. langa til e-s. Fáeinar undan-
tekningar sýnast mér vera á
þessu svo sem ef á eftir sögn-
inni fer atviksorð sem táknar
átt eða stefnu: Langa upp, langa
út, langa suður o.s.frv.
Mér virðist sem það heyri til
undantekninga, að forsetningin
til sé notuð með umræddri sögn.
„Mig langar að biðja þig...“
„Mig langar að fara“ o.s.frv.
hljómar daglega í eyrum og það
úr munni hinna lærðustu manna.
í mínum huga hljómar þetta sem
barnamál.
Þá er ekki örgrannt um að
þessi sama forsetning sé felld
niður á eftir fleiri sögnum. Þann-
ig heyrði ég nýlega komist svo
að orði í ljósvakafjölmiðli: „Eg
treysti mér ekki að segja“ í stað
„ég treysti mér ekki til að segja“
svo sem ég mundi sagt hafa.
Þú kvartar undan óvenju
miklum fjölmiðla-ambögum um
helgar. Því miður finnst mér sem
virku dagarnir séu lítt skárri.
Þó var það um helgi (16/5) sem
ég las eftirfarandi í Morgunblað-
inu og var þó ekki í amböguleit:
„Stolið úr kirkju í Stykkis-
hólmi:... þeir, eða sá sem þjófn-
aðinn framdi hafði komist inn
um hurð!“ — „Gorbatsjov . . .
hefur í ferð sinni reynt að afla
Gorbatsjov-stofnuninni. . . fé“
— ekki fjár!
Læt svo staðar numið og
þakka ómetanlegt framlag til
verndar íslenzkri tungu. Kær
kveðja.“
Umsjónarmaður þakkar bréf-
ið og lofið, þó að úr hófi sé.
★ '
Hlymrekur handan kvað:
Þetta er velferðarverðmætum hágætt,
sagði Villi, og mér finnst það ágætt,
hjá Bensa og Kó
hérna suður með sjó,
„en samt er hitt ekki fágætt".
P.s. í næstsíðasta þætti varð
mara að „maga“ í vísulok úr
Guðrúnarhvöt og komma lædd-
ist inn í 2. braglínu miðlimrunn-
ar. Beðist er velvirðingar á
þessu.