Morgunblaðið - 04.07.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.07.1992, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992 Minning: Bjöm Guðmundsson, Vestmannaeyjum Fæddur 24. júní 1915 Dáinn 24. júní 1992 Kallið kom — eins og svo oft — óvænt, er Bjöm Guðmundsson, ný- kominn heim til Eyja í stutta heim- sókn, lést á 77 ára afmælisdegi sín- um, 24. júní sl. Fyrir tveim ámm hélt hann fjöl- skyldu og vinum meiri háttar af- mælisfagnað, sem okkur verður lengi minnisstæður. Þar var Bjöm hrókur alls fagnaðar og minnist ég varla í annan tíma, að hafa séð hann svo glaðan um árabil. Greinilegt var síðustu mánuði að Bjöm gekk ekki heill til skógar. Er ég heimsótti hann í maí í nýju stórfallegu íbúðina hans í Hraunbæ 103, sem hann bjó í síðustu mánuð- ina, viðurkenndi hann í fyrsta skipti að hann væri lasinn. Bjöm var ekki sú manngerð að kvarta. Níu ára gamall stóð hann við hlið móður sinnar og fjögurra systkina er faðir hans dmkknaði í hörmulegu sjóslysi við Eiðið rétt fýrir jólin, 16. desember 1924. Með Guðs hjálp og góðra manna tókst móður hans að koma barna- hópnum til manns. Má með sanni telja slíkt til afreka, en þetta gerð- ist því miður allt of oft. Tíð sjólsys við Eyjar — með ólýsanlegum sorg- um og erfíðleikum. Bjöm var bráðger, harðduglegur og fylgin sér. Honum tókst að nema við Samvinnuskólann og varð fljót- lega sjálfstæður atvinnurekandi og umsvifamikill í verslun og síðar útgerð og fískvinnslu. Við Eyjamenn minnumst að um árabil var fastur punktur í tilver- unni að koma við á Bjössabar og sækja Moggann til Bjössa og Tryggva en saman unnu þeir bræð- ur um áratugi að verslunarrekstri með góðum árangri. Bjöm var einn af fáum, er ég þekki, sem sagði tæpitungulaust að hann væri að fást við þetta og hitt til að græða. Hann gaf Jítið fyrir það að einhveijir væm að slíku af hugsjónaástæðum. Bjöm var heppinn í framkvæmd- um sínum og sá sér og sínum vel farborða með mikilli elju og þraut- seigju. Hann vildi ekki reisa sér hurðarás um öxl — og þótti í seinni tíð, er hann hafði gott yfirsýn yfir sviðið, að sumir ætluðu sér um of, í trausti þess að hægt væri að velta vandanum á undan sér. Hann var mikill sjálfstæðismað- ur, í þess orðs fyllstu merkingu. Treysti á eigin dug og hyggjuvit. Um árabil var hann í forystusveit flokksins í héraði og vann óeigin- gjamt starf, m.a. ritstjóri Fylkis um langt skeið. Hann var vel ritfær og rithönd hans var sérlega fögur. Bjöm var um árabil í bæjarstjóm, tillögugóður og hagsýnn. Það átti ekki fyrir honum að liggja að láta að sér kveða á iandsvísu þótt okkur mörgum fyndist hann eiga fullt er- indi með sína yfírgripsmiklu þekk- ingu og dýrmætu reynslu, ekki hvað síst í málum sjávarútvegsins. Bjöm var um langt skeið formaður í sam- tökum útvegsmanna og Báta- ábyrgðarfélaginu. Hann var félags- málamaður og stundaði þau störf eins og annað af áhuga og með- fæddri skyldurækni. Hann var skemmtilegur fundarmaður sem hvarvetna vakti verðskuldaða eftir- tekt með hnyttni og skondnum framgangsmáta. Er margs að minnast frá löngum samstarfsferli, sem nú er af alhug þakkað fyrir. Stærsta lífslán Bjöms var eigin- kona hans, Siguijóna Ólafsdóttir, Jóna frá Görðum, eins og hún var gjaman kölluð, einstök öðlings- kona, hvers manns hugljúfí. Þau áttu ástríka samleið í 40 ár. Var það Birni og fjölskyldunni mikill harmur er Jóna lést langt um aldur fram fyrir 10 árum. Böm þeira eru Kristín, Ijósmóðir, gift Ólafí G. Sigurðssyni, lögg. end- urskoðenda, Aslaug, fóstra, og Guðmundur, lögmaður, kvæntur Önnu Sigurðardóttur. Öll eru þau búsett í Reykjavík. Niðjum Bjöms sem eru mesta atgervisfólk eins og þeir eiga kyn til, sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Sömu- leiðis Tryggva, sem einn lifír systk- ini sín, og hans fjölskyldu. Þau og við öll höfum fyrir mikið að þakka og biðjum Alföður að gefa dánum ró, hinum líkn er lifa. Eftirminnilegur persónuleiki er kvaddur í þökk og virðingu. Jóhann Friðfinnsson. Kveðja frá fulltrúaráði sjálf stæðisfélaganna í Vestmannaeyjum. Með andláti Bjöms Guðmunds- sonar fyrrverandi útgerðarmans og kaupmanns, er fallin frá einn af þeim mönnum sem tóku mestan þátt í uppgangi útgerðar og físk- vinnslu í Vestmannaeyjum. Á langri starfsævi kom Bjöm víða við í at- vinnulífí Eyjanna, fyrst við almenn störf, síðar við verslun og útgerð og fískvinnslu. Eins og oft gerist hjá duglegum og stórhuga mönnum tók Bjöm að sér ýmis störf í félagsmálum, jafnt í stjómmálum sem á öðmm vett- vangi. Hér verður einkum minnst starfa hans í félagsmálum, fyrir Sjálfstæð- isflokkinn og byggðarlagið. Aðeins 18 ára var Bjöm kosinn formaður Félags ungra sjálfstæðis- manna í Vestmannaeyjum. Var hann fyrst formaður 1933-1935 og tók síðar að sér formennsku á nýjan leik 1946-1948. Árið 1946 var hann kosinn í bæjarstjóm Vestmanna- eyja og sat þar í tvö kjörtímabil eða til 1954. Árið 1966 var Bjöm kjör- inn á ný til setu í bæjarstjóm til loka kjörtímabils 1970. Þá var Björn formaður fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Eyjum árið 1964- 1970 og frá 1975-1978. Einnig var Bimi falin formennska í kjördæmis- ráði Sjálfstæðisflokksins á Suður- landi 1975-1977 og átti auk þes ssæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokks- ins á sama tíma. Bjöm Guðmundsson átti ákaf- lega létt með að færa hugsanir sín- ar í letur og skrifa góðan og kjam- yrtan texta. Fljótlega eftir að farið var að gefa út flokksblaðið Fylki í Vestmannaeyjum um 1950, kom hann þar að málum. Var hann rit- stjóri Fylkis í mörg ár, síðast árið 1978. Þá var hann fréttaritari Morgunblaðsins í áratugi. Bjöm var -á margan hátt mjög sérstakur maður. Hann var oft umdeildur í stjómmálum en þar stóð hann og féll með sínum ákvörð- unum. En einstakur áhugi hans á félagsmálum og mikill kraftur í fé- lagsstarfí og blaðaútgáfu, þegar hann var í forystu, einkenndu störf hans. Björn var formfastur í félags- störfum og vildi hafa hlutina í lagi. Gilti það jafnt í öllum hans störfum hvort sem um var að ræða félags- mál eða annað. Þegar Bjöm nálgaðist sjötugsald- urinn ákvað hann að draga sig að mestu út úr þeim annasömu störf- um sem hann hafði gegnt. Þau rúm- lega sjö ár sem liðin em síðan, notaði hann meðal annars til þess að ferðast. Hugurinn var ávallt bundinn við Vestmannaeyjar og sjávarútveginn. Til marks. um áhuga hans má nefna að í maí sl. slóst hann í för með fískvinnslu- mönnum til Jótlands til þess að kynna sér danskan sjávarútveg. Þrátt fyrir að Björn væri fluttur frá Vestmannaeyjum fyrir nokkrum árum kom hann reglulega til Eyja og var hann þar staddur þegar kallið kom. Eiginkonu sína Sigurlaugu Ólafs- dóttur missti hann fyrir rúmlega tíu árum eftir um fjörutíu ára farsælt hjónaband. Þau _ eignuðust þrjú böm, Kristínu, Áslaugu og Guð- mund. Á kveðjustund minnast sjálf- stæðismenn í Vestmannaeyjum Bjöms Guðmundssonar með þakk- læti. Hann átti mikinn þátt í upp- byggingu bæjarfélagsins með þátt- töku sinni í atvinnurekstri og fé- lagsmálum. Við fæmm ástvinum hans innilegar samúðarkveðjur og óskum þeim Guðs blessunar. Arnar Sigurmundsson, formaður. Sjálfstæði var ríkasti þáttur hans, þessa sérstæða athafnaskálds sem sigldi lífssjóinn af hispursleysi og stóískri ró. Bjöm Guðmundsson, útvegsbóndi í Vestmannaeyjum, var svipmikill persónuleiki, hvort tveggja í senn í fasi og framkomu. Hann var einn af þessum eftir- minnilegu mönnum sem samferða- menn muna og svo víðfeðm var persónulandhelgi hans að líklega muna margir hann fremur sem hluta af landslagi, umhverfínu í heild, en smærri atvikum. Það er sjaldan logn við Stór- höfða, en þar mætast stálin stinn í norðan garra og sólskinsdögunum sem fljúga úr suðurátt og alltaf er kvika við Stórhöfðatá. Þannig var Bjöm Guðmundsson útvegsbóndi og athafnamaður, hann var mikillar náttúm og allra veðra en fyrst og fremst var hann vinur vina sinna, samkvæmur sjálfum sér, framsýnn og hikaði ekki við skoðanir á mönn- um og málefnum þótt hann færi oft ótrúlega mildilega með miðað við brimið í blóði hans. Svo förum við á lundaballið í haust, sagði hann við mig fyrir fáum vikum þegar við röbbuðum saman yfír slatta af svartfuglseggj- um. Hann kunni svo vel að meta hlunnindi náttúmnnar á heimaslóð- inni, því einmitt úr þeim farvegi var velgengni hans sprottin. Fátækur drengur byijaði hann að safna úr- gangslifur og alla tíð síðan sýndi hann mikla útsjónarsemi í þeim verkum sem hann tók sér fyrir hendur hvort sem var kaup- mennska, útgerð eða fískvinnsla. Þótt vindar blási hvað glaðast á Stórhöfða er þar samt sem áður sú veðurathugunarstöð þar sem hæst- ur mælist hiti á landinu. Björn Guðmundsson var viðkvæmur og sérstaklega hlýr í hjarta, enda spannaði hugur hans víðáttur tilver- unnar þar sem hann krafðist svara um mannanna verk. Innst inni var þessi athafnamaður ljóðrænn penni og oft hafði hann á orði sem gam- all fréttaritari Morgunblaðsins að blaðamaðurinn í honum væri það sem kitlaði hann mest. Það var í raun synd að sínar bækur skyldi hann skrifa í huganum en ekki á þrykk, því hann var frábær sögu- maður, hnittinn í orðum og fléttað- ist þar saman kaldhæðni, húmor og þekking. Bjöm var nýtinn maður og passa- samur, því það hafði skóli reynsl- unnar kennt honum, en honum lán- aðist einstaklega vel að feta þann veg að taka áhættu athafnaseminn- ar og hafa vaðinn fyrir neðan sig eins og bjargveiðimenn orða það. En hann naut þess líka þegar stund- ir gáfust að vera gamli góði Eyja- peyinn, sletta úr klaufunum og bregða á leik og þá var alveg sama hvort hann kom með nokkra kassa af bjór fyrir bjórtíð á íslandi inn á ritstjóm Morgunblaðsins síðla dags undir helgi og skenkti blaðamönn- um eða leigði eina hæð á Hótel Sögu á þingi útvegsbænda til þess að Eyjamennimir og gestir þeirra gætu sungið og skemmt sér nætur- langt án þess að kvartanir bærust vegna lífsnautnarinnar. Björn var mikill spjallari og hafði snarpa þörf fyrir að fá útrás fyrir skoðanir sín- ar til skoðanaskipta. Það var skemmtilegur stíll. Genginn er góður vinur og höfð- ingi. Megi góður Guð varðveita hann og gefa styrk eftirlifandi vin- um og vandamönnum. Það verður ekki dónalegt á slóðum eilífðarinnar að mæta Bimi Guðmundssyni, Bjössa á Barnum, eins og hann var löngum kallaður í hjarta Vest- mannaeyja. Athafnamaðurinn sem markaði mikilvæg spor í sögu lands og þjóðar fer nú á æðri vegum þar sem hindranir hljóta að vera fáar fyrir háar hugsanir athafnaskálds- ins og sjálfstæðisins. Árni Johnsen. Það voru okkur þungbær tíðindi að afi okkar hefði gengið á vit feðra sinna. Hann sem hafði verið svo hress allt fram á síðustu stundu og, að okkur fannst, ekkert breyst í áranna rás og það var kannski í stíl við hans lífshlaup að hann skildi við þennan heim í heimsókn í fæð- ingabæ sínum, Vestmannaneyjum, þar sem rætur hans lágu og hjarta hans sló, þann dag sem hann varð sjötíu og sjö ára. Þegar við rifjum upp minningar um afa okkar kemur margt skemmtilegt .upp í hugann enda átti hann auðvelt með að sjá spaugi- legu hliðina á flestum hlutum. Hann var óvenjulegur maður, fordóma- laus og sjálfstæður, og virtist ekki lúta þeim lögmálum sem við hin stjórnumst af daglegu lífí. Það er líka sammerkt með þeim minning- um sem við eigum um hann hve óútreiknanlegur, sérlundaður og hreinlega fyndinn hann var á sinn hispurslausa hátt. Fátt virtist hon- um óviðkomandi og eins og ekkert væri sjálfsagðara hóf hann ósjaldan samræður við bláókunnugt fólk á fömum vegi um lífíð og tilveruna, og fór þá ekki í manngreinarálit. Síðan fræddi hann okkur bræðuma um hvers hann hefði orðið vísari í könnun sinni á mannlífinu með ein- hveijum hnyttnum og litríkum sög- um af venjulegu fólki, fólki eins og honum. Samt ber okkar saman um að hann hafí verið óvenjulegur maður. Hann var þeirrar skoðunar að hamingja lífsins kæmi innan frá en væri ekki sótt í prjál veraldlegra gæða. Fyrir okkur var hann sem klettur í hafínu, tryggur og traustur með stórt hjarta og með báða fætur á jörðinni. Afí var mikill á velli og mikill í lund en umfram allt var hann heill, sannur sjálfum sér og öðmm. Þegar við horfumst í augu við að það sem við eitt sinn áttum er horfíð sjónum okkar, verður okkur tíðrætt um tilgang lífs og dauða. Sá sem við minnumst hér hefði lík- lega bent okkur á að velta okkur ekki upp úr slíkum þankagangi þar sem engin haldgóð svör væri að fínna. Það er ógjömingur að koma orð- um að þeim hugsunum og tilfinn- ingum sem um hugann reika þegar við kveðjum afa okkar hinsta sinni. En eitt vitum við að hann mun verða með okkur og minning hans lifa í hugum okkur um ókomna tíð. Björn og Sigurður Ólafssynir. Þegar Stýrimannaskólinn í Vest- mannaeyjum var stofnaður 1964 stofnuðu bræðurnir Bjöm Guð- mundsson útgerðarmaður og Tryggvi Guðmundsson kaupmaður sjóð til þess að styðja efnalitla nem- endur við skólann. Sjóðurinn ber heitið Minningarsjóður hjónanna Áslaugar Eyjólfsdóttur og Guð- mundar Eyjólfssonar sjómanns frá Miðbæ í Vestmannaeyjum, það vom foreldrar þeirra. Oft á undanfömum árum hefur Björn komið á skólaslit og gefíð fé í sjóðinn og á 75 ára afmæli sínu 24. júní 1990 gaf hann stórt til hans. Margir nemendur skólans hafa undanfarin ár fengið styrki úr sjóðnum og hefur það ábyggilega bjargað miklu hjá þeim, sem em orðnir heimilisfeður meðan á nám- inu stendur. Hinn 16. desember 1924 fórst Guðmundur Eyjólfsson í miklu sjó- slysi við Eiðið í Vestmannaeyjum. Þá var Bjöm aðeins níu ára gam- all, elstur fimm systkina. Gamall vinur Björns sagði undirrituðum að Bjöm hafí þá og meðan móðir hans lifði reynst henni mjög vel. Hann hafí nánast strax farið að vinna heimilinu af miklum dugnaði. Lengi vel höfðu strákar í Vestmannaeyj- um stundað lifrartínslu á bryggjun- um, hirt alla þá lifur sem kreistist fram úr fískinum, þar sem hann lá í kösum. Bjöm stundaði lifrartínsl- una af kappi og seldi afurðina í bræðslu. Hann krakaði líka upp físka sem fallið höfðu í sjóinn og seldi. Vinur hans sagði líka að Bjöm hafí afhent mömmu sinni allan af- rakstur þessa erfíðis, aldrei keypt sér einn bijóstsykursmola, hvað þá meir. Fleiri spjót hafði hann úti til þess að afla heimilinu tekna. Áhugi hans og dugnaður fyrir velferð fjöl- skyldunnar vöktu aðdáun nágranna og vina. Ég held að þetta hafí síðan ein- kennt Bjöm alla tíð, sjálfsbjargar- viðleitni og mikill dugnaður í öllum stöfum, og stofnun sjóðsins, til að styrkja efnalitla nemendur í Stýri- mannaskólanum í Vestmannaeyj- um, var hugsjón af lífí og sál. Hann braust í sárri fátækt til náms í Samvinnuskólanum. Að því loknu varð hann forstjóri Samkomuhúss Vestmannaeyja í stuttan tíma. Enn í dag er hér í Eyjum minnst á dugn- að hans þar. Síðar varð kaup- mennska og útgerð hans starf. Hann átti bátana Björgu, Sídon og Árna í Görðum, og í verslununum var matvara, gjafavara, fatnaður, snyrtivömr o.fl. Hann vann langan vinnudag í fyrirtækjunum og hafði ábyggilega alla þræði á eigin hendi. Hann efnaðist líka vel sem betur fer. Allt var það fyrir eigin dugnað og áræði. Sama fólkið starfaði hjá honum ámm saman bæði á sjó og landi svo þar hefur verið gott að vera. Bjöm kom ótrúlega víða við í félagsmálum. Hann sat í bæjar- stjórn Vestmannaeyja fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Var í stjórn og for- maður Útvegsbændafélags Vest- mannaeyja lengur en_ nokkur ann- ar, sama var um ísfélag Vest- mannaeyja, sem var orðlagt fyrir- myndarfyrirtæki á hans stjórnar- formannsárum. Það var og er eitt af stærstu fískvinnslufyrirtækjum landsins. Hann var líka lengi í stjóm og stjómarformaður Bátaábyrgða- félags Vestmannaeyja. í stjórn Landssambands íslenskra útvegs- manna og víðar í forystu sjávarút- vegs og kaupmennsku. Og hann var fréttaritari og umboðsmaður Morg- unblaðsins í Eyjum í mörg ár. Allt komst hann þetta fyrir eigin dugnað og verðleika. Kynni okkar Bjöms voru mest í sambandi við sjóðinn þeirra bræðra í Stýrimannaskólanum. Hann bar hag hans mjög fyrir bijósti. Stöðugt að hugsa leiðir honum til styrktar. Hann virkilega vildi verða efnalitl- um sjómönnum að liði og mennta þá til skipstjórnarstarfa. Fátt taldi hann Eyjunum mikilvægara en að þar væri myndarlegur Stýrimanna- skóli, og vildi veg hans sem mest- an. Kom oft í heimsókn til okkar og hélt ræðu yfir strákunum, og skýrði stöðu útgerðar og fiskvinnslu hveiju sinni. Barlómur og lélegur rekstrargrundvöllur voru ekki í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.