Morgunblaðið - 04.07.1992, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.07.1992, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992 Ættannót í Kelduhverfi breyttist í „veðramót“ Ilraunbrún, Kelduhverfi. AFKOMENDUR Signrgeirs Sig- urðssonar komu saman að Lundi í Öxarfirði, helgina 27. og 28. júni, en hann bjó síðast á Meiða- völlum í Kelduhverfi. Sigurgeir var giftur Kristbjörgu Þórarinsdóttur og áttu þau saman 6 börn. Auk þess átti Sigurgeir eina dóttir fyrir hjónaband. Að Lundi hittust afkomendur Hólmfríðar f. 1873, Sigurrósar f. 1878, Sesselju f. 1882 og Ingvars f. 1889. Níels f. 1892 á tvo syni á lífi á Akureyri en þeir treystu sér ekki til að koma. Eina dóttur, Jó- hönnu f. 1875 misstu þau hjónin í æsku. Afkomendur Jóns sem fæddist árið 1884 komu hinsvegar saman að Tóvegg í Kelduhverfi en þar bjó Jón sinn búskap ásamt konu sinni Halldóru Jónsdóttur. Afkomendur þeirra Jóns og Halldóru eru um það bil 10. Hópamir komu svo saman í fé- lagsheimilinu Skúlagarði á laugar- dagskvöld, spjölluðu saman, sungu og stigu svo dans við harmoniku- undirleik. Eins og gefur að skiljá eru afkomendur, en þeir eru um það bil 300, dreifðír um allt land, og jafnvel víðar. Þessvegna var slegið upp tjöldum til að hýsa þetta , fólk, en þessa helgi var úrhellisrign- ing og hiti nálægt frostmarki. Veðr- ið setti auðvitað ýmislegt úr skorð- um og á sunnudagsmorgun talaði enginn lengur um ættarmót eða niðjamót. Þeir töluðu hinsvegar um„veðramót“. Þeir afkomendur sem búa hér í Keiduhverfi vilja koma á framfæri þökkum til þeirra sem lögðu á sig að koma lengra að í rigningu og jafnvel snjókomu og þeir vona að veðrið verði bara betra næst. - Inga. Frá æfingu slökkviliðs Eyjaijarðarsveitar. Morgunblaðið/Benjamín Eyjafjarðarsveit: Slökkviliðið á æfingn SLÖKKVTLIÐ Eyjafjarðarsveitar var kallað á æfingu síðastliðið þriðjudagskvöld. Kveikt var í gömlu timburhúsi á Jódísarstöðum. Komu tveir menn frá slökkvilið- inu á Akureyri með fullkominn brunabíl, sem Brunavarnir Eyja- fjarðar eiga, á staðinn. Fengu liðs- menn þjálfun og kennslu í meðferð á slöngum, en sækja þurfti vatn niður í áveituskurð allnokkra vega- lengd frá húsinu. Þá fór fram sýnikennsla í slökkvi- störfum. Alls eru 27 menn í slökkviliði Eyjafjarðarsveitar. Liðs- stjóri er Guðmundur Jón Guð- mundsson, Holtsseli. Benjamín Morgunblaðið/Rúnar Þór Prins í álögum ? Starfsfólki í Blómaskálanum Vín í Eyjafjarðarsveit brá nokkuð í brún nú í vikunni er það skyndilega sá lítið kvikindi sem líktist froski stökkva af borði einu og niður á gólf. Upphófst mikill eltinga- leikur og tókst um síðir að ná þessum óvænta gesti niður í glerkrukku. Dýrið er greinilega af froskaætt, brúnleitt og um það bil 4 sentímetrar að lengd. Það hefur að líkindum komið inn í land- ið með blómasendingu frá Hollandi. Hollenskur sundlaugarvörður að Hrafnagili skoðaði froskinn, en kannaðist ekki við þessa teg- und, en væntanlega fæst bráðlega úr því skorið hverrar ættar dýrið er. Ekki hefur fengist staðfest hvort starfsstúlkur blómaskál- ans ætli að kanna hvort um sé að ræða prins í álögum með því að smella á hann kossi. Benjamín Morgunblaðið/Rúnar Þór Verkalýðsfélögin mótmæla úrskurði Kjaradóms „ÚRSKURÐUR kjaradóms er eins og blaut tuska í andlit þeirra sem fengu 1,7% launahækkun í síðustu kjarasamningum,“ sagði Kristín Hjálmarsdóttir, for- maður Iðju, félags verksmiðjufólks, á fundi stjóma og trúnaðarmannaráða verkalýðsfélaga á Akureyri og Eyjafirði, sem' haldinn var í Alþýðuhúsinu á Akureyri í gærkvöld. Með fundinum vildu stjómir og trúnaðarmannaráð verkalýðsfélaganna fá tæki- færi til að láta í ljós skoðun sína á stöðu mála eftir úrskurð kjaradóms sem nýlega féll og mótmæla honum. í ályktun sem samþykkt var á fundinum er úrskurði kjaradóms mótmælt og skorar fundurinn á ríkisstjóm að kalla Alþingi saman til fundar strax, til að taka á málinu, en geyma það ekki fram í miðjan ágúst. „Verði dómur kjaradóms látinn standa gerir fundurinn kröfu til þess að allt launafólk fái sömu hækkun og embættismennirnir og heitir á alla launþega að fylgja þeirri kröfu eftir af hörku,“ segir í ályktun frá fundinum. Ferðaþjónusta í Rauðuskriðu í Aðaldal: Hæð með sjö herbergj- um byggð ofan á húsið KOLBRÚN Ulfsdóttir og Jóhannes Haraldsson á Rauðuskriðu í Aðaldal tóku fyrir skönunu í notkun nýja aðstöðu fyrir ferða- menn, en þau byggðu eina hæð ofan á hús sitt auk þess sem þau reistu vistlegan skála sem verður til afnota fyrir ferðamenn. Með tilkomu viðbótarhúsnæðis geta þau Kolbrún og Jóhannes tekið á móti mun fleiri gestum en áður, en síðustu tvö ár hafa þau haft tvö herbergi sem leigð voru ferðamönnum. Kolbrún og Jóhannes fluttu að Rauðuskriðu árið 1987, en hófu að reka ferðaþjónustu árið 1990 og höfðu þá til umráða tvö her- bergi í húsi sínu. Ferðamanna- straumur jókst mjög á milli ára, þannig að þau tóku þá ákvörðun að byggja hæð ofan á íbúðarhúsið. „Það fylgir enginn fullvirðisréttur jörðinni, þannig að við urðum ann- að hvort að fara út í þetta eða flytja héðan,“ sagði Jóhannes. Á hæðinni eru 7 tveggja manna herbergi, salemi og sturtur, þá er setustofa í suðurenda hússins og þaðan liggur stigi niður í glerskála. í skálanum er að- staða til að bera fram mat og þar er einnig setustofa. í tilefni af því að þessi nýja aðstaða hefur verið tekin í notkun verður í sumar boðið upp á afslátt af vikudvöl og einn- fremur er ellilífeyr- isþegum boðið upp á afslátt. Gestum sem dvelja að Rauðu- skriðu gefst kostur á að nýta sér hross þeirra hjóna til útreiðatúra og sagði Kolbrún að á svæðinu umhverfis bæinn væri mikið um góðar og skemmti- legar leiðir, m.a. í Ystafellsskóg, Fossselsskóg eða út í Aðaldals- hraun. Þá væri ekkert því til fyrir- stöðu að fólk kæmi á eða með eig- in hesta, en aðstaða til að taka á móti hrossum væri hin ákjósanleg- asta. Ferðaþjónustan og hrossaræktin fara vel saman og nefndi Kolbrún að Þjóðveijar sem dvöldu hjá þeim hefðu endað heimsókn sína á því að kaupa af þeim hross. íslendingar eru í vaxandi mæli famir að nýta sér dvöl hjá ferða- þjónustubændum og vænta þau Kolbrún og Jóhannes þess að unnt verði að ná betri nýtingu á gistiað- stöðunni yfír vetrarmánuðina. Upplagt sé fyrir fólk af svæðinu að dvelja þar yfír helgi, en m.a. sé gæsa- og ijúpnaveiði góð í nám- unda við bæinn. Beijalönd séu og mikil í næsta nágrenni og einnig gætu snjósleðamenn bmgðið sér í Flateyjardal eða á önnur snjóþung svæði sem em innan seilingar. Þau Kolbrún og Jóhannes eru með margvíslegar hugmyndir um uppbyggingu ferðaþjónustu á pijónunum, „Við ætlum ekki að láta hér staðar numið. Næsta vetur ætlum við okkur að útbúa fullkom- ið eldhús, sem krafist er til að fá Morgunblaðið/Rúnar Þór Hjónin Kolbrún Ulfsdóttir og Jóhannes Haraldsson í skálanum sem þau hafa reist, en þau reka ferðaþjónustu að Rauðuskriðu í Aðaldal. vínveitingaleyfí svo við getum bor- ið fram vín með mat,“ sögðu þau hjónin. ♦ ♦ ♦ Bæjarráð: Laun bæj- arfulltrúa og nefnda óbreytt BÆJARRÁÐ Akureyrar sam- þykkti á fundi í gær að launa- hækkun til bæjarfulltrúa og nefndarmanna bæjarins komi ekki til framkvæmda að sinni. Sigurður J. Sigurðsson, formaður bæjarráðs, sagði að laun bæjarfull- trúa og nefndarmanna Akureyrar- bæjar tækju mið af þingfararkaupi, en ákveðið hefði verið á bæjarráðs- fundi í gær að bíða með allar ákvarð- anir varðandi launahækkanir þar til Kjaradómur hefði kveðið upp nýjan úrskurð. „Við ætlum að bíða með að taka ákvarðanir um breytingar á launum bæjarfulltrúa og nefndarmanna þar til þetta liggur ljóst fyrir,“ sagði Sig- urður. Ferðaþjónustuskálinn er á efri hæð íbúðarhúss- ins á Rauðuskriðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.