Morgunblaðið - 04.07.1992, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.07.1992, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992 Umdeildur kjaradómur eftir Pál Pétursson Misræmi í launaþróun Fátt eða ekkert hefur komið meira róti á hugi landsmanna á síðari árum en Kjaradómur sá er féll fyrir skemmstu. Sú umræða er mjög tilfínningaþrungin og er það e.t.v. að vonum, þeim sem nýlega fengu 1,7% kauphækkun blæðir í augum að sjá dæmda launahækkun til nafngreindra ein- staklinga allt að 97%. Þá má ekki gleyma því að fjöldi ríkisstarfs- manna lækkar verulega í launum og þeir una auðvitað illa við sinn skerta hlut og ýta undir óánægju almennings, þeir vilja óbreytt ástand. Forsenda Kjaradóms var eins og allir ættu að muna að lækka suma þá sem taka laun sam- kvæmt kjaradómi en hækka aðra á móti þannig að útgjöld ríkissjóðs breyttust ekki vegna dómsins. Ekki orkar tvímælis að niður- staða Kjaradóms hefur skapað vandræðaástand í þjóðfélaginu og úr því verður að bæta með ein- hveijum hætti. Launþegar sætta sig ekki við annað og í kjölfarið fylgja vafalaust harðvítugar vinnu- deilur, verði ekkert að gert. Verkefni Kjaradóms Kjaradómur er skipaður að meirihluta af Hæstarétti og skal lögum samkvæmt ákveða launa- kjör tilgreindra opinberra starfs- manna sem ekki njóta samnings- réttar um starfskjör sín eða verk- fallsréttar. Núgildandi lög um Kjaradóm voru sett í fjármálaráð- herratíð Þorsteins Pálssonar og eru nr. 92 frá 31. desember 1986. Að baki lagasetningar um Kjaradóm lá sú hugsun að koma upp óháðum sjálfstæðum dómstóli sem ákvæði tilgreindum opinber- um starfsmönnum laun. Alþingi ákvað t.d. áður launakjör þing- manna og ráðherra. Það sætti mik- illi gagnrýni almennings og því var horfið að því ráði að fela Kjara- dómi að ákveða laun alþingis- manna og ráðherra. í 6. gr. laga nr. 92 frá 1986 er dómendum gert skylt að gæta „innbyrðis samræm- is í launum þeim sem hann ákveð- ur“ ... „og að þau séu á hverjum tíma í samræmi við laun í þjóðfé- laginu hjá þeim sem sambærilegir geta talist með tilliti til starfa og ábyrgðar.“ 'MxM'í FLÍSAR 1 mWlék ll! iíp3 Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 yAYARUD XJöföar til 11 fólks í öllum starfsgreinum! Ekki verður á móti því mælt að á undanförnum árum hefur Kjara- dómi gengið illa að fara eftir þess- ari forskrift laganna. Mikið mis- ræmi hefur skapast innbyrðis milli rauntekna þeirra sem taka laun samkvæmt Kjaradómi m.a. vegna nefndalauna og ómældrar yfír- vinnu sumra. Það er ekki réttlátt að margir starfsmenn ráðuneyt- anna hafi hærri laun úr ríkissjóði en ráðherrarnir. Sama gildir um starfsmenn stofnana hins opin- bera. Ég tel ekki rétt að forstjóri ríkisspítalanna hafi miklu hærri laun en heilbrigðisráðherra og svona mætti lengi telja. Ekki tekur betra við ef gerður er samanburður á samræmi launa Kjaradómsþola annarsvegar og stjómenda einkafyrirtækja á al- mennum markaði eða forystu- manna ýmissa félagasamtaka hinsvegar. Ég tel rangt að forseti ASÍ hafí tvöföld laun félagsmála- ráðherra, framkvæmdastjóri VSI miklu hærri en forsætisráðherra, framkvæmdastjóri LIU tvöföld laun sjávarútvegsráðherra, fram- kvæmdastjóri Stéttarsambands bænda hærri en landbúnaðarráð- herra og forseti borgarstjórnar Reykjavíkur miklu hærri en forseti Alþingis, svo nokkur dæmi séu tekin. um sínum en hinn sem býr við sæmilegt efnahagslegt öryggi. Tilraun til leiðréttingar Ég tel að dómendur í Kjaradómi hafí eftir atvikum reynt að gæta fyrirmæla laganna og úrskurðað samkvæmt bestu vitund, bæði hvað varðar innbyrðis samræmi milli kjaradómsþola og reynt að nálgast samræmi við það sem tíðk- ast á almennum vinnumarkaði. Þó er augljóst að þjóðfélagsleg áhrif dómsins eru óheppileg og grípa verður til gagnaðgerða. Auðvitað hefði Kjaradómur get- að náð innbyrðis samræmi með þeim hætti að úrskurða forseta Islands, sem ætti að vera hæstur ríkisstarfsmanna, 1,7% hækkun og raða síðan í samræmi við það, hækka einhveija lítillega en stór- lækka aðra. Þetta hefði þó ekki nægt til að ná samræmi milli Kjaradómsþola og almenna mark- aðarins. Páll Pétursson Lagabreyting óþörf Það hefur verið bent á að við lagasetninguna 1986 hafí fallið út setningin sem stóð í eldri lögum um að „hafa hliðsjón af afkomu- horfum þjóðarbúsins". Engu máli skiptir hvort þessi setning stendur í lögunum. Dómendur í Kjaradómi eiga að þekkja íslenskar þjóðfé- lagsaðstæður og sjá til þess að laun „séu á hveijum tíma í sam- ræmi við laun í þjóðfélaginu hjá þeim sem sambærilegir geta talist með tilliti til starfa og ábyrgðar“ eins og segir í gildandi lögum. Ekki efa ég að Kjaradómur þekkir nýgerða kjarasamninga. Vilji ríkisstjórnin ekki Kjaradóm sem starfar samkvæmt nýlegum lögum getur hún lagt hann niður með atbeina Alþingis. Tæki þá lög- gjafínn væntanlega sjálfur að sér að ákveða laun þeirra sem búið hafa við Kjaradómslaun „á grund- velli pólitískra sjónarmiða" eins og Eiríkur Tómasson hrl. getur um í álitsgerð er hann hefur skrifað fyrir ríkisstjórnina. Þessi leið er líka slæm. Flaustursleg viðbrögð ríkisstjórnar Hófsama launastefnu Æskilegt er að gæta hófs um launagjöld allra opinberra starfs- manna en hættulegt getur orðið að hafa dómara, löggjafa eða handhafa framkvæmdavalds með mikið lakari kjör en þeim standa til boða hjá félagasamtökum eða einkafyrirtækjum. Af því leiðir fyrr en síðar að skortur verður á hæfum mönnum til að annast fram- kvæmdavaldið, löggjafar- eða dómsstörf. Þá er efnalegt sjálf- stæði mjög mikilvægt þeim sem þessi störf annast og maður í pen- ingavandræðum er að öðru jöfnu opnari fýrir mútum eða að láta annarleg sjónarmið ráða ákvörðun- Viðbrögð ríkisstjórnarinnar hafa verið flaustursleg. Fyrst sendu þeir Kjaradómi bréf og vildu láta hann éta dóminn ofan í sig. Því neitaði Kjaradómur auðvitað, enda er hann sjálfstæður dómstóll og á ekki og má ekki taka við fyrirmæl- um frá einum eða neinum. Síðan datt ríkisstjóminni í hug að setja bráðabirgðalög. Sú leið var auðvitað ófær. Fyrir ári síðan voru möguleikar ríkisstjórna til setningar bráðabirgðalaga nánast afnumdir. Alþingi situr allt árið og hægt er að kveðja það til lög- gjafarstarfa hvenær sem er. Heim- ild til bráðabirgðalaga er einungis fyrir hendi ef þjóðarvoða ber að höndum svo sem í styijaldará- standi eða náttúruhamförum. Næst kom upp sú hugmynd að kveðja Alþingi saman og breyta lögunum um Kjaradóm. Sú hug- mynd nýtur fylgis verkalýðshreyf- ingar og var áréttuð á fjölmennum útifundi í Reykjavík 2. júlí. Þessi „Þá er eftir ein leið ennþá fyrir ríkisstjórn- ina. Hún er að taka aft- ur að mestu hinar miklu hækkanir sem Kjara- dómur ákvað í formi hátekjuskatts. Með því ynnist það að lagfæra stöðu ríkissjóðs jafn- framt því að jafna kjör í þjóðfélaginu.“ leið er einnig gölluð. Hvar endar það ef ríkisstjórn rýkur til og breyt- ir lögum um dómstóla ef henni mislíka uppkveðnir dómar. Leggja verður áherslu á sjálfstæði dóm- stóla. Ég tel t.d. að ekki komi til mála ð breyta iögum um Hæsta- rétt eða endurskipuleggja hann þótt hann dæmdi öðruvísi en ríkis- stjórn vildi. Þá væri búið með rétta- röryggið í landinu. Hátekj uskattur Þá er eftir ein leið ennþá fyrir ríkisstjórnina. Hún er að taka aftur að mestu hinar miklu hækkanir sem Kjaradómur ákvað í formi hátekjuskatts. Með því ynnist það að lagfæra stöðu ríkissjóðs jafn- framt því að jafna kjör í þjóðfélag- inu. Þetta væri hægt að gera með hækkandi skattþrepum t.d. á það sem væri yfir 200 þúsund kr. raun- tekjur á mánuði og innheimtist árið eftir. Næðist þá til hárra raun- tekna hvarvetna í þjóðfélaginu. íslendingar búa við lægri tekju- skatt en flestar nágrannaþjóðir. Finnar eru t.d. komnir í 70% skatt á meðan hann er um 40% hér. Ég tel að vel komi til greina að boða Efnahags- og viðskiptanefnd og Fjárlaganefnd Alþingis til funda þótt Alþingi væri ekki kallað sam- an strax. Þingnefndirnar gætu metið stöðuna og kannað áhrif valkosta, vilji ríkisstjórnin á annað borð hafa samráð við stjórnarand- stöðuna í þessum vanda. Höfundur er formaður þingflokks Framsóknarmanna Til stuðnings Kjaradómi eftir Jón Steinar Lög um Kjaradóm kveða á um, að við úrlausn mála skuli Kjaradóm- ur gæta innbyrðis í launum þeim sem hann ákveður að þau séu í samræmi við laun í þjóðfélaginu hjá þeim sem sambærilegir geti talist með tilliti til starfa og ábyrgðar. Ekki er á því nokkur vafí, að Kjara- dómur fór eftir þessum fyrirmælum við þá ákvörðun, sem hann tók 26. júní sl. Á sama hátt er ljóst, að ákvörðun dómsins hefði ekki orðið í samræmi við fyrirmæli laganna ef launakjör þeirra embættismanna, sem dómurinn ákveður, hefðu verið látin haldast óbreytt. Kjaradómur hlýtur núna gagnrýni fyrir að hafa farið að lögum. Hann hefði sjálf- sagt komist hjá þeirri gagnrýni með því að bijóta gegn þeim. Það eru fullkomlega eðlileg sjón- armið að baki ofangreindum Iaga- fyrirmælum um ákvarðanir Kjara- dóms. Um er að ræða ákvarðanir um launakjör manna í æðstu emb- ættum á vegum ríkisins, sem eru í þeirri stöðu, að ekki kemur til greina að launakjör þeirra séu ákveðin með kjarasamningum. Varla er nokkur maður andvígur því, að innbyrðis samræmis sé gætt í launum þeirra, eða hvað? Og tæp- ast eru menn andvígir því að við- miðun um launakjör þeirra sé höfð af þeim sem sambærilegir geta tal- ist með tilliti til starfa og ábyrgð- ar. Þar er helst sá annmarki á, að erfítt er að fínna slíkar hliðstæður. „Og ef krafan um að Alþingi komi saman og ógildi dóminn felur það í sér að fyrra ástandi verður komið á, þá er verið að krefjast þess að leynimakkið og auk- asporslurnar séu tekn- ar upp aftur í stað þeirra eðlilegu vinnu- bragða, sem felast í lagaákvæðunum um Kjaradóm og þar með ákvörðun dómsins frá 26. júní sl.“ annars staðar, því að flest þau störf, sem Kjaradómur fjallar um eru ábyrgðarmestu störfin, sem fyrir- fínnast með þjóðinni. Ef þau störf eru launuð sýnu lakar en önnur ábyrgðarstörf leiðir það einfaldlega til þess að hæfír menn sækjast ekki eftir þeim störfum sem mestu skipta fyrir þjóðina. Það er því augljós nauðsyn á að hafa þarna hæfilega hliðsjón. Kjaradómur stóð frammi fyrir því, að i framkvæmd gilti ekkert innbyrðis samræmi milli embætt- anna. Og það sem aflaga fór staf- aði af því, að með alls kyns auka- greiðslum, sem aldrei hafa farið mjög hátt, var búið að leggja launa- kerfí þeirra embætta, sem dómur- Jón Steinar Gunnlaugsson inn fjallar um, í rúst. Undirmenn voru komnir langt fram úr yfír- mönnum í launum vegna sérstakra greiðslna fyrir það sem þeir eiga að gera í vinnunni. Ráðuneytisstjór- ar voru t.d. að mun með hærri laun en ráðherrar og dómarar á héraðs- dómsstigi. Þeir sem mesta ábyrgð- ina bera lágu eftir í launum m.a. vegna þess að þeir hafa ekki sömu möguleika og hinir til að afla sér viðbótartekna með alls kyns sporsl- um og aukagreiðslum. Jafnframt var Ijóst, að launakjör þeirra, sem starfa annars staðar en hjá ríkinu í ábyrgðarmiklum stöð- um, voru miklu hærri en laun æðstu embættismanna ríkisins. Nægir þar að nefna ýmsa forystumenn hjá launþegasamtökum og samtökum vinnuveitenda, stjórnendur sveitar- félaga o.fl. Kjaradómur tók því rétta ákvörðun og lögunum sam- kvæmt, þegar hann ákvað að laga þetta og skera upp herör gegn leyni- makkinu og aukagreiðslunum, sem í reynd höfðu umturnað launakerfi hinna æðstu embættismanna. Nú er þess krafíst að Alþingi komi saman og ógildi niðurstöðu Kjaradóms. í því felst í reynd krafa um að Alþingi ákveði með lögum hvaða laun æðstu embættismenn ríkisins og dómarar skuli hljóta fyr- ir störf sín. Slíkar aðferðir við ákvarðanatöku um þetta eru afar óheppilegar, svo ekki sé meira sagt, enda hafa menn áðúr gefist upp á þeim. Það sjá allir að miklu betra er að láta hlutlausan úrskurðaraðila ákveða þetta eftir lögfestum mæli- kvarða, heldur en að alþingismenn ákveði launin, m.a. hjá sjálfum sér. Og ef krafan um að Alþingi komi saman og ógildi dóminn felur það í sér að fyrra ástandi verður komið á, þá er verið að krefjast þess að leynimakkið og aukasporslurnar séu teknar upp aftur í stað þeirra eðlilegu vinnubragða, sem felast í lagaákvæðunum um Kjaradóm og þar með ákvörðun dómsins frá 26. júní sl. Höfundur er hæstaréttarlöginadur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.