Morgunblaðið - 04.07.1992, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.07.1992, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992 11 Norrænt þing um ilia meðferð á börnum: Alvarleg og áleitin samviskuspuming - segir Hulda Guðmundsdóttir for- maður undirbúningsnefndar BARNIÐ í brennidepli er yfirskrift norræns þings um vanrækslu á börnum og fyrirbyggjandi aðgerðir sem haldið verður í Reykjavík 4. - 6. ágúst. Þetta er í fimmta sinn sem Norðurlandaþjóðirnar halda slíkt þing í samvinnu við alþjóðleg samtök um þetta málefni. Búist er við því að þijú til fjögur hundruð manns sæki þingið sem fer nú fram í fyrsta sinn hérlendis og er Hulda Guðmundsdóttir yfirfélags- ráðgjafi á geðdeildum Borgarspítalans formaður undirbúningsnefnd- ar. ' „Því miður verður að staðhæfa að það er mun algengara en fólk gerir sér almennt ljóst að börn í samfélagi okkar og á Norðurlönd- unum sæti illri meðferð“, segir Hulda. „Á þinginu verður ekki ein- ungis fjallað um beint ofbeldi. 111 meðferð getur verið fólgin í ýmsu öðru en beinum verknaði gagnvart barninu og á þinginu verður fyrst og fremst fjallað um vanrækslu og forvarnir. Afskiptaleysi í samskipt- um við börn getur valdið sárum þjáningum og haft alvarlegar lík- amlegar, félagslegar og sálrænar afleiðingar. 111 meðferð á börnum vekur áleitnar og alvarlegar sam- viskuspurningar sem allir standa frammi fyrir, bæði almenningur og stjórnyöld." Hulda segir að nágrannalöndin standi okkur framar hvað varðar rannsóknir á umfangi þessa vanda- máls og því sé fengur að því að fá hingað sérfræðinga til að fjalla um málefnið. Auk erlendu gestanna * Arsreikningar Reykjavíkur samþykktir: Skiptar skoðanir um ágæti fj ármálastj órnar ÁRSREIKNINGAR Reykjavíkurborgar fyrir árið 1991 voru sam- þykktir á fundi borgarsljórnar í fyrrakvöld með 12 samhljóða at- kvæðum. Skiptar skoðanir komu fram á fundinum um ágæti fjármál- astjórnar borgarinnar. Fulltrúar Nýs vettvangs, sem greiddu at- kvæði með reikningunum, óskuðu bókað að með samþykktinni væru þeir ekki að leggja blessun sína yfir stöðu borgarsjóðs heldur að samþykkja reikningana sem gilda heimild um fjármálastöðu borgar- innar. Fulltrúar minnihlutaflokkanna sögðu ársreikningana bera því vitni að mjög hefði sigið á ógæfuhliðina í fjármálum borgarinnar-hin síðari ár. Fjármálastjórn hennar væri allt annað en traust og staða borgar- sjóðs og ýmissa fyrirtækja færi versnandi. Markús Öm Antonsson, borgar- stjóri, sagði íjárhagsstöðu borgar- Borgarstjórn: SKÓLAMÁLARÁÐ Reykjavíkur undirbýr nú tilraun með starf- rækslu heilsdagsskóla sem byggja myndi á fjármagni, sem nú er varið til reykvískra skóla- barna, svo sem í hefðbundnu skólastarfi, iþrótta- og tómstund- astarfi, rekstri skóladagheimilis og vinnuskólans. Auk þess sem verið er að kanna mögulegt sam- starf við einkaskóla, til dæmis á sviði tónlistar, dansmenntar, heimspeki, tungumála og fleira. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvaða skólar taki þátt í til- rauninni. Þessar upplýsingar komu fram í svari Árna Sigfússonar, formanns Skólamálaráðs, við fyrirspum Guð- rúnar Ágústsdóttur á fundi borgar- stjórnar í fyrrakvöld. Árni sagði að umræða um heils- dagsskóla hefði staðið yfir í skóla- málaráði undanfama fimm mánuði. Hann sagðist hafa unnið að því ásamt starfsmönnum Skólaskrif- stofu, ÍTR og stjórnar Dagvistar barna að kanna grundvöll fyrir slíkri samnýtingu húsnæðis og fjár- muna í tengslum við þessa umræðu. Hann sagði að niðurstöður lofuðu góðu. Haft hafi verið samband við nokkra skólastjóra og kannaður áhugi þeirra á að taka þátt í slíkri tilraun. Formleg ákvörðun um hvaða skólar taki þátt í umræddri tilraun verði tekin þegar frekari Hulda Guðmundsdóttir munu nokkrir íslendingar flytja fyr- irlestra á þinginu og um einstök málefni verður fjallað í smærri hóp- um. „Með þinghaldinu gemm við okk- ur vonir um að fá gleggri mynd af þeim raunveruleika sem börn í sam- félaginu búa við og eins þeim leiðum sem færar eru til þess að bæta aðbúnað þeirra", segir Hulda. „Vandamál barnanna koma til kasta fagfólks og stjórnenda innan heilbrigðis- félags- mennta- og dómskerfisins hvort sem okkur líkar betur eða verr. Það er ákaflega mikilvægt að fagfólk og stjórnvöld vinni saman að raunhæfum aðgerð- um til úrbóta og þingið er kjörinn vettvangur fyrir báða aðila til að auka þekkingu sína á þeim raun- veruleika sem sum börn í samfélagi okkar búa við,“ sagði Hulda. innar afar sterka. Hrein eign borg- arsjóðs og fyrirtækja hans væri um 104 milljarðar króna eða sem sam- svaraði rúmri 1 milljón á hvern íbúa. Skuldir borgarsjóðs og fyrirtækja hans væru um 61 þúsund krónur á hvern íbúa, langt fyrir neðan það sem þekktist hjá öðrum stórum sveitarfélögum. Starfræksla heils- dagsskóla undirbúin upplýsingar liggi fyrir um ýmsa þætti verkefnisins. Ákvörðun um flármögnun sagði hann að byggðist fyrst og fremst á að samnýta það fjármagn sem nú þegar væri varið á vegum Reykja- víkurborgar og ríkis til skóla-, tóm- stunda- og dagvistarstarfs. Borgarráð: 600 þúsund vegna list- skreytingar í Hagaskóla BORGARRÁÐ hefur samþykkt, að veita fyrirheit um 600.000 króna fjárveitingu vegna list- skreytingar í anddyri Hagaskóla. Sljórn Listskreytingasjóðs ríkis- ins hefur ákveið að veita 1,5 milljón til skreytingarinnar með því skilyrði að framlag komi einnig úr borgarsjóði. í erindi Björns Jónssonar skóla- stjóra Hagaskóla, til borgarráðs, kemur fram að sótta hafi verið um fjárveitingu úr Listskreytingasjóði ríkisins til útfærslu og uppsetningar á skreytingu Jóhönnu Bogadóttur í aðalanddyri skólans. Skreytingin er úr steindu gleri í gluggum og mósaik á veggjum. Áætlaður kostn- aður er 2,1 milljón. Fjrir börnin Full búð affallegum þýskum vörum Gott veró StaÖgreiðsluafsláttur. Opiö laugardaga kl. 10-14. x&z bamafataversliui, Skólavörðustíg 6b, gengt Iðnaðarhúsinu, sími 621682. Góð viðbrögð við ferð um Heimsklúbbsins * 70 manns vildu Italíuferð MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi fréttatilkynning frá Heimsklúbbi Ingólfs: „Gæðin í fyrirrúmi er markmið Heimsklúbbs Ingólfs og ljóst er að ferðirnar vekja athygli og eftir- spurn. Ferðaskrifstofan auglýsti í Morgunblaðinu 1. júlí nokkur sæti laus vegna forfalla í Lista- og óperuferð til Ítalíu í ágúst og voru viðbrögðin slík að rúmlega 70 manns spurðust fyrir um ferðina og seldust sætin strax upp, en nú hefur verið ákveðið að bæta 10 sætum við. Æ fleiri leita fyrirgreiðslu Heimsklúbbsins við ferðir sínar á fjarlægari slóðir. Einstaklingar kaupa farseðla og þjónustu á ráð- stefnur í öðrum heimsálfum, hópar á leið á ráðstefnur í Austurlöndum hafa látið skipuleggja ferðir sínar um Kína og Malasíu, hópur hjúkr- unarfræðinga er nýkominn úr ævintýraferð til Tælands og hópur ungra íþróttamanna er á leið til Bomeo í heimsmeistarakeppni, svo éitthvað sé nefnt. Heimsferðir klúbbsins halda áfram með haustinu en þá stendur til boða stærsta ferðin til Filipps- eyja, Japans, Tævan og Tælands. Sú ferð er í september og stendur í 3-4 vikur. Nokkur sæti eru enn laus í þá ferð og einnig Suður-Afr- íkuferðina í október, en margir hafa heillast af fegurð þess lands og nú er ferðin farin á aðalblóma- tíma ársins, þegar fegurð gróðurs- ins er mest. Vakin er athygli á, að vegna annarra verkefna Heims- klúbbsins er ekki gert ráð fyrir að þessar ferðir verði endurteknar í náinni framtíð. Vegna slæmra frétta af starf- semi ferðaskrifstofa að undan- fömu finnst Heimsklúbbi Ingólfs rétt að fram komi að farþegar þurfa ekkert að óttast í sambandi við ijárhagsstöðu Heimsklúbbsins. Heimsklúbburinn skuldar engum, hann staðgreiðir öll viðskipti, af- koma hans er góð og viðskipti vaxandi, allar tryggingar í lagi og að baki honum standa verulegar eignir og eigið fé. Vænst er viður- kenningar IATA á næstunni, og verða umsvif Heimsklúbbsins þar með aukin með haustinu.“ (Fréttatilkynning) -----»-♦.4---- Borgarstjórn: Viðræður um hús Morgun- blaðsins und- ir bókasafn BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum á þriðjudag að ræða við Árvakur hf. um inöguleikann á að aðalsafn Borgarbókasafns Reykjavíkur verði staðsett í hús- næði Morgunblaðsins að Aðal- stræti 6. Borgarstjórn sam- þykkti þessa meðferð málsins á fundi sínum á fimmtudag. Á fundi menningarmálanefndar Reykjavíkur sem haldinn var 25. júní sl. var samþykkt samhljóða að beina þeim tilmælum til borgar- ráðs að teknar yrðu upp viðræður við Árvakur hf. um möguleika á staðsetningu aðalsafns Borgar- bókasafnsins í húsnæði Morgun- blaðsins. Borgarráð samþykkti samhljóða að verða við tilmælunum og á fímmtudag staðfesti borgar- stjóm þá samþykkt. Borgarstjórn: Tillögu um áskorun á ríkisstjórn vísað frá Tillögu Guðrúnar Ágústsdóttur um að borgarstjórn samþykkti að skora á ríkisstjórnina að kalla saman þing nú þegar til að afnema þá launahækkun sem fælist í dómi kjaradóms, var vísað frá á fundi borgarstjórnar í fyrrakvöld. Guðrún sagði að með samþykkt tillögunnar yrði tekið undir kröfu verkalýðshreyfmgarinnar og væri hún eðlilegt framhald og í fullu samræmi við tillögxi forseta borgar- stjómar um að borgarstjórn hafnaði viðmiðun við dóm kjaradóms. í bókun frá borgarfulltrúm Sjálf- stæðisflokks kom fram að talsmenn ríkisstjórnar hefðu þegar lýst því yfir, að Alþingi yrði kallað saman til að breyta lögum um kjaradóm, þegar unnið hefði verið undirbún- ingsstarf, sem óhjákvæmilega myndi taka nokkurn tíma. Með vís- an til þess væri tillögu borgarfull- trúa Alþýðubandalagsins vísað frá. ARKITEKT RÁÐLEGGUR UM LITVAL í MÁLARANUM Valgerður Matthíasdóttir arkitekt veitir viðskiptavinum Málarans ókeypis ráðgjöf um litaval í málningu og viðarvöm fimmtudag og föstudag klukkan 13-18 og laugardag klukkan 10-13. Verið velkomin í Málarann og þiggið ókeypis ráðgjöf Valgerðar. liS. Grensásvegi 11 Sími 81 35 00 Málarinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.