Morgunblaðið - 04.07.1992, Qupperneq 23
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Bráðabirgðalögin
og þjóðarsátt
Aríkisstjórn Davíðs Odds-
sonar hvílir sú siðferði-
lega og pólitíska skylda að
sjá til þess að þær launa-
hækkanir sem Kjaradómur
úrskurðaði á dögunum til
handa nokkrum hópi stjóm-
málamanna og embættis-
manna verði afnumdar og
að þessir hópar fái sömu
launahækkanir og samið
hefur verið um við aðra þjóð-
félagsþegna. Ástæðan fyrir
því er ekki sú að það launa-
stig sem ákveðið var í þess-
um Kjaradómi þurfi að vera
fráleitt i sjálfu sér, heldur
hitt, að miðað við allar að-
stæður í þjóðfélaginu, þróun
kjaramála síðustu rúm tvö
ár og þær fómir sem laun-
þegar almennt hafa tekið á
sig, eru engar siðferðilegar
og pólitískar forsendur fyrir
því að þessir hópar hljóti
slíkar launahækkanir nú.
Upphafleg ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar var sú að
leggja fyrir Alþingi um miðj-
an ágúst lagafrumvarp um
breytingar á lögum um
Kjaradóm og að Kjaradómur
tæki þennan launaúrskurð
að því loknu til ákvörðunar
á nýjan leik. Forsætisráð-
herra sagði í samtali við
Morgunblaðið að engin
trygging væri fyrir því að
sá Kjaradómur lækkaði
launin á ný.
í gærkvöldi ákvað ríkis-
stjórnin að gefa út bráða-
birgðalög sem fela í sér
breytingar á lögum um
Kjaradóm og afmarka á nýj-
an leik með skýrari hætti
svigrúm Kjaradóms til
launaákvörðunar. Sam-
kvæmt bráðabirgðalögunum
ber Kjaradómi að taka tillit
til efnahagsástands og þró-
unar á hinum almenna
vinnumarkaði við ákvörðun
launa þessara starfshópa.
Jafnframt er Kjaradómi falið
að taka launaúrskurð frá því
á dögunum til úrskurðar á
ný fyrir lok þessa mánaðar
og taki hann gildi hinn 1.
ágúst nk.
Með þessari ákvörðun er
ríkisstjómin augljóslega að
koma til móts við þær kröfur
sem settar hafa verið fram
síðustu daga um að þing
verði kallað saman til þess
að fjalla um málið í því skyni
að breyta ákvörðunum
Kjaradóms. Niðurstaða rík-
isstjórnarinnar, að grípa til
bráðabirgðalaga í stað þess
að kalla Alþingi saman,
kemur á óvart með hliðsjón
af álitsgerðum þeirra lög-
fræðinga sem hún kallaði til
og fyrri ummælum. Morgun-
blaðið hefur ítrekað lýst
þeirri skoðun undanfarin
misseri og síðustu daga, að
afnema eigi lagaákvæði um
rétt ríkisstjórna til að gefa
út bráðabirgðalög á þeirri
forsendu að í nútímaþjóðfé-
lagi séu engin vandkvæði á
því að kalla Alþingi sam§m
til fundar með skömmum
fyrirvara.
Hvað sem því líður er ljóst
að ríkisstjórnin hefur laga-
legan rétt til. þess að gefa
út bráðabirgðalög um þetta
efni. Og tæplega geta þeir
sem gáfu út bráðabirgðalög
fyrir tveimur árum um
kjaramál gagnrýnt núver-
andi ríkisstjórn fyrir þessa
ráðstöfun nú. Hitt er ljóst,
að þótt bráðabirgðalögin
setji Kjaradómi ákveðinn og
afmarkaðri starfsramma en
áður felst engin trygging í
þeim fyrir því að nýr launa-
úrskurður Kjaradóms verði
í samræmi við þá þjóðarsátt
sem tekizt hefur frá ársbyij-
un 1990 og nú er í hættu.
Verði hann í samræmi við
aðra kjarasamninga og anda
þjóðarsáttarinnar er það
vandamál sem upp hefur
komið síðustu daga leyst.
Valdi hann nýjum deilum á
þann veg að þjóðarsáttin
verði í hættu mun ríkis-
stjómin standa í svipuðum
sporum og nú. Þess er þó
að vænta að þær miklu um-
ræður sem orðið hafa um
þetta mál að undanfömu
leiði til þess að Kjaradómur
haldi sig innan þess ramma
sem bráðabirgðalögin setja,
þótt það sé alltaf túlkunar-
atriði hvemig meta beri slík
lagaákvæði.
Af þessum sökum er eðli-
legt að bíða hins nýja úr-
skurðar sem Kjaradómi bera
að kveða upp skv. bráða-
birgðalögunum. 0g vona það
bezta.
Vilborg Lárusdóttir (í miðið), þriggja ára afmælisbam í gær, aðstoð- Forseti þakkar Guðmundi Guðjónssyni fyrir áletraðan stein, er hann
ar hér forseta við gróðursetningu í Garðalundi. smíðaði og henni var færður að gjöf.
Heimsókn forseta íslands á Akranes og í Borgarfjarðarhérað:
Dagar eins og þessi
verða ógleymanlegir
- segir Vigdís
Finnbogadóttir
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, hóf í gær heim-
sókn sína á Akranes og í Borgar-
fjarðarhérað. Morgunblaðið
fylgdist með forsetanum á ferð
hennar um héraðið, en margir
staðir voru heimsóttir og forsetan-
um hvarvetna vel fagnað. „Dagar
eins og þessi verða ógleymanleg-
ir,“ sagði forseti í samtali við
Morgunblaðið. „Það hjálpast allt
að — veður, náttúrufegnrð og fólk
í hátíðarskapi, sem nýtur þess að
taka á móti gestum og sýna það
besta sem það á. Þegar fólk sýnir
það besta sem það á, verður það
svo sterkt og svo reist, því það
er hreykið af því að eiga slíkar
gersemar til að sýna,“ sagði for-
seti. Gert verður víðreist um hér-
aðið i dag og á sunnudag, en þá
lýkur heimsókninni.
Rúnar Guðjónsson sýslumaður og
Jón Einarsson, prófastur í Saurbæ
og formaður héraðsnefndar, tóku á
móti forseta við Botnsskála, og lítil
stúlka, íris Björg Þorvaldsdóttir,
færði forsetanum blómvönd. Eftir
að hafa spjallað við gesti hélt for-
seti í Vatnaskóg. Þar hitti hún fyr-
ir 92 drengi í sumarbúðum KFUM,
en nú er 70. árið sem þær eru starf-
ræktar. Gróðursetti forseti þijár
birkihríslur með drengjunum.
Þá var haldin guðsþjónusta í
Hallgrímskirkju, þar sem séra Jón
Einarsson prédikaði. Að messu lok-
inni var móttaka og léttur hádegis-
verður framreiddur í félagsheimil-
inu Hlöðum. Kirkjukórar Saurbæj-
arhrepps sungu undir stjórn Krist-
jönu Höskuldsdóttur.
Að hádegisverði loknum heim-
sótti forseti Fannahlíð, þar sem
rekið er dagheimili fyrir börn í sveit-
inni. Fékk hún aðstoð barnanna við
gróðursetningu. Forseti heimsótti
einnig kirkjuna í Innra-Hólmi, sem
er aldargömul í ár, en í henni er
altaristafla máluð af Jóhannesi
Sveinssyni Kjarval.
Forsetinn kom til Akraness í blíð-
skaparveðri, og mætti henni mikill
mannfjöldi við Leyni. Skólahljóm-
sveit Akraness lék og Steinunn Sig-
urðardóttir, forseti bæjarstjómar,
flutti ávarp, en Akraneskaupstaður
heldur nú upp á hálfrar aldar af-
mæli sitt.
Lokaáfangi Höfða, dvalarheimilis
aldraðra á Akranesi, var nýlega
tekinn í notkun, og vígði Vigdís
Finnbogadóttir bygginguna að
mui^uiiuiouiu/ rvincu
Fjöldi barna fagnaði forseta við komu hennar í Garðalund, svæði Skógrækarfélags Akraness.
aflokinni skoðunarferð um hana.
Ásmundur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Höfða, bauð forseta velkom-
inn. Þá hélt Jóhannes Ingibjartsson,
formaður stjómarinnar, ræðu, og
sagði þá meðal annars að með
lokaáfanganum væri nú fymi fyrir
72 vistmenn í stað 48-50 áður.
Auk þess myndi öll þjónustuaðstaða
batna við stækkunina, en flutningi
í nýju álmuna yrði að fullu lokið í
haust.
Við þetta tilefni hlaut forseti að
gjöf áletraðan stein, gerðan af hjón-
unum Guðmundi Guðjónssyni og
Rafnhildi Ámadóttur. Um leið og
forseti óskaði viðstöddum til ham-
ingju með afmæli kaupstaðarins
minntist hún heimsóknar sinnar á
dvalarheimilið fyrir tíu áram, og
gat hún þess sérstaklega að sér
þætti eldri kynslóðinni verðugur
sómi sýndur með byggingarfram-
kvæmdum sem þessum. Þá lék
Rósa Guðmundsdóttir, elsti nem-
andi Tónlistarskóla Akraness,
nokkur lög á píanó, en hún er 75
ára. Að loknu ávarpi forseta bæjar-
stómar söng Kór eldri borgara und-
ir stjóm Jensínu Waage við undir-
leik Ásdísar Ríkharðsdóttur.
í Jaðarsbakkalaug setti forseti
Aldursflokkameistaramót íslands í
sundi, og að því loknu lá leiðin í
Skógræktarfélag Akraness. Voru
þar reiddar fram veitingar fyrir
bæjarbúa og lítil stúlka, Vilborg
Lárasdóttir, er átti þriggja ára af-
mæli þann dag, aðstoðaði forseta
við gróðursetningu birkitrés. Gísli
Einarsson bæjarfulltrúi tilkynnti að
því búnu þá ákvörðun bæjarstjómar
að lundurinn þar sem gróðursetn-
ingin fór fram skyldi frá þeim degi
nefnast Vigdísarlundur.
„Þetta er sérlega ánægjulegur
dagur,“ sagði Gísli. „Veðrið er gott,
og það stafar yndislegri útgeislun
af forsetanum okkar,“ sagði hann.
í ræðu Stefáns Teitssonar, for-
manns Skógræktarfélagsins, kom
fram að félagið er hálfrar aldar
gamalt á þessu ári, en fyrstu plönt-
umar vora gróðursettar í Garða-
lundi, sem daglega er kallaður
Skógræktin, á lýðveldisárinu 1944.
Forseti sagði í ávarpi sínu að sér
þætti það ganga kraftaverki næst
hve miklu væri hægt að áorka í
uppgræðslu landsins, sem Garða-
lundur bæri glöggt vitni.
Eftir heimsóknina í Garðalund
afhjúpaði forseti áletraðan minnis-
varða um séra Hannes Stephensen,
prófast í Görðum, en þar stóð kirkja
allt til ársins 1896, er hún var rif-
in. Sr. Þórir Stephensen, staðar-
haldari í Viðey, hélt ræðu við þetta
tækifæri. Sr. Hannes var fyrsti al-
þingismaður Borgfírðinga og um
langt skeið varaforseti og síðar for-
seti Alþingis, en í minnisvarðann
hefur verið höggvið slqaldarmerki
sr. Hannesar.
Að aflokinni heimsókn á hafnar-
svæðið og í fyrirtækið Harald Böð-
varsson hf., þar sem Haraldur Stur-
laugsson forstjóri annaðist mót-
töku, var haldið á Jaðarsbakkavöll.
Þar heilsaði forseti leikmönnum
meistaraflokks ÍA í knattspymu og
úrvalsliðs KSÍ, þar sem leikur lið-
anna var að hefjast. Lítill hnokki,
Sigurmon Sigurðsson, færði forseta
blómvönd í „ÍA-litunum“.
Að því búnu var haldið á listsýn-
ingu í Tónlistarskólanum í umsjón
Guðrúnar Geirsdóttur, en um kvöld-
ið var móttaka í sal Fjölbrautaskóla
Vesturlands fyrir sveitarstjómar-
menn og gesti bæjarstjómar Akra-
ness.
-GL.
Davíð Oddsson um setningu bráðabirgðalaganna:
Mikíð lá á vegna ólg-
unnar 1 þjóðfélaginu
Einhugur í ríkisstjórninni um málið, segir Jóhanna Sigurðardóttir
Morgunblaðið/KGA
Ráðherrarnir Jóhanna Sigurðardóttir, Davíð Oddsson og Friðrik Sophusson kynna niðurstöðu ríkisstjórnar-
innar á Þingvöllum í gærkvöldi. Þetta var 100. fundur ríkissljórnar Davíðs Oddssonar og jafnframt einn
sá lengsti, en fundurinn stóð í 9 klukkustundir.
RÍKISSTJÓRN Davíðs Odds-
sonar tilkynnti klukkan 20,30 í
gærkvöldi í ráðherrabústaðnum
á Þingvöllum, að loknum níu
klukkustundalöngum fundi, að
sett yrðu bráðabirgðalög um
Kjaradóm. Með lögunum er
Kjaradóini falið að úrskurða á
ný um laun opinberra starfs-
manna samkvæmt nýjum laga-
skilyrðum sem fela í sér að
framvegis tekur Kjaradómur
mið af aðstæðum og horfum í
launamálum og þjóðarbúskap
er hann fellir úrskurði. Sam-
kvæmt lögunum mun úrskurður
Kjaradóms frá 26. júlí sl. um
allt að 90% hækkun launa gilda
þar til nýr úrskurður hefur ver-
ið kveðinn upp í síðasta lagi 31.
júlí nk.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að þar sem Kjaradómur taldi
ekki vera laga- eða efnisskilyrði til
að endurskoða sína afstöðu þrátt
fyrir að sá úrskurður hefði miklar
afleiðingar, hefði ríkisstjórnin tekið
þá ákvörðun að beina því til forseta
Islands að bráðabirgðalög yrðu sett
til að skapa þessi laga- og efnisskil-
yrði þannig að Kjaradómur geti
kveðið upp nýjan úrskurð eigi síðar
en 31. ágúst nk. Tillagan hefði
verið kynnt forseta íslands sem
féllst á að gefa út bráðabirgðalög.
Efnis- og lagagrundvöllur fyrir
hendi
Forsætisráðherra sagði að Ijóst
hefði verið í yfirlýsingum aðila
vinnumarkaðarins og annars staðar
að þeim samningum sem í gíldi eru
yrði rift ef engin breyting yrði á
úrskurði Kjaradóms. „Okkur þykir
sýnt að nauðsynlegt sé að breyta
niðurstöðunni hratt vegna þess að
þær áhyggjur sem við lýstum í bréfi
til Kjaradóms hafa reynst réttar.
Við sögðum þar að gæti skapað
mikinn óróa og upplausn á vinnu-
markaði ef úrskurður Kjaradóms
stæði óbreyttur. Efnisrök voru ekki
fyrir hendi að mati Kjaradóms. Nú
er efnis- og lagagrundvöllur fyrir
hendi og þess vegna er hægt að
kveða upp úrskurði sem eru meira
í takt við það sem hefur verið að
gerast í þjóðfélaginu en þessir úr-
skurðir voru,“ sagði forsætisráð-
herra. Hann sagði að með bráða-
birgðalögunum væri fært til fyrra
horfs því ákvæði um Kjaradóm að
úrskurðir hans taki mið af ástandi
í þjóðfélaginu, sem fellt var út í tíð
ríkisstjórnar Steingríms Hermanns-
sonar. „En jafnframt til viðbótar
er sett inn í lögin að hugað sé að
samræmi, ekki eingöngu á milli
annarra launa heldur við aðra kja-
rasamninga og kjaraþróun í land-
inu.“
Langt þóf hefði orðið á þingi
Davíð sagði að brýna nauðsyn
hefði borið til að setja bráðabirgða-
lög. Þeir sem hefðu sett fram óskir
um að þing kæmi saman hefðu
haft mismunandi leiðir í huga sem
erfitt hefði verið að ná samstöðu
um. „Alþýðubandalagið vildi setja
launalög, afnema Kjaradóm og
ákveða laun þingmanna, embættis-
manna og ríkisstjórnar með lögum,
Kvennalistinn vildi kalla saman
þingið en jafnframt í engu breyta
neinu Kjaradómi, talsmenn Fram-
sóknarflokksins hafa talað um að
slíkar breytingar gætu átt sér stað
í áföngum. Það var Ijóst að þetta
hefði orðið langt þóf. Nú lá á, því
það er mikil ólga í þjóðfélaginu, sem
við spáðum að myndi verða, og það
kom glöggt fram á útifundinum á
Lækjartorgi," sagði sagði forsætis-
ráðherra.
í máli hans kom fram að ekki
væri með lögunum verið að segja
Kjaradómi fyrir verkum. Eingöngu
væru sett þau lagaskilyrði að dóm-
urinn yrði að vera í samræmi við
það sem er að gerast í þjóðfélag-
inu. Talið hafi verið óhugsandi að
setja bráðabirgðalög sem næmu
úrskurð Kjaradóms úr gildi og það
væri ekki gert. Þeir lögfræðingar
sem hefðu fjallað um málið áður
hefðu komist að því áliti að ekkert
sé því til fyrirstöðu að þessi lög séu
sett. „Það er ekki um það að ræða
að ríkisstjómin setji lög um að taka
rétt af einhveijum tilteknum aðilum
heldur er Kjaradómi falið að úr-
skurða á nýjan leik,“ sagði forsæt-
isráðherra.
HÉR fer á eftir í heild texti
bráðabirgðalaganna sem ríkis-
stjórnin ákvað á fundi í gær að
setja vegna úrskurðar Kjara-
dóms:
„Forseti íslands gjörir kunnugt:
Fjármálaráðherra hefur tjáð mér
að brýna nauðsyn beri til að breyta
nú þegar lögum um Kjaradóm frá
nr. 92 frá 1986 með síðari breyting-
um vegna tveggja úrskurða sem
Kjaradómur kvað upp hinn 26. júlí
sl. Nauðsynlegt sé að breyta þeim
laga- og efnisreglum sem niður-
stöður Kjaradóms hvila á þannig
að það taki mið af stöðu og afkomu-
horfum þjóðarbúsins og almennum
launabreytingum í kjarasamning-
um annarra launþega í landinu. Á
Alger eining í ríkisstjórninni
Fram kom í máli Jóhönnu Sig-
urðardóttur félagsmálaráðherra að
algjör eining hefði ríkt um þetta
mál innan ríkisstjórnarinnar. „Ég
treysti því að þessi nýja forskrift
sem Kjaradómi er gefin verði til
þess að launabreytingar hjá þeim
hópi sem Kjaradómur ákveður laun
fyrir, verði í samræmi við þær
launabreytingar sem hafa verið
ákveðnar í kjarasamningum.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði að „Það starf sem rík-
isstjórnin ákvað að hefja 31. júní,
að undirbúa almennar breytingar á
löggjöfinni um Kjaradóm, verður
haldið áfram, vonandi með tilhlutan
allra stjómmálaflokka sem eiga
þingfulltrúa. Það starf tekur að
sjálfsögðu lengri tíma, en ég von-
ast til þess að þegar þing kemur
saman að þá liggi fyrir nýtt frum-
varp um Kjaradóm," sagði fjár-
málaráðherra.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
þessu ári hefur tekist að treysta
stöðugleika í efnahagslífi þjóðar-
innar. Ein mikilvægasta forsenda
þess stöðugleika felist í kjarasamn-
ingum þorra launafólks um hófleg-
ar launahækkanir. Afar brýnt sé
að varðveita þennan stöðugleika
og þá samstöðu sem náðst hafi til
að mæta þeim áföllum sem þjóðar-
búið hafi orðið fyrir. Niðurstöður
Kjaradóms frá 26. júlí sl. tefli þess-
um árangri í mikla tvísýnu. Stað-
festing þessa kom meðal annars
fram í yfirlýsingum aðila á vinnu-
markaði. Fyrir því era hér með
sett bráðabirgðalög samkvæmt 28.
grein stjómarskrárinnar á þessa
leið:
1. grein. Við sjöttu grein laga
nr. 92 1986 um Kjaradóm með síð-
sagði að það hefði verið þrautalend-
ing að setja með bráðabirgðalögum
nýjar efnisviðmiðanir og lagareglur
fyrir Kjaradóm til að byggja sínar
ákvarðanir á. Hin brýna nauðsyn
fyrir bráðabirgðalögunum hefði fal-
ist í mati á viðbrögðum á vinnu-
markaðnum og hættunni á því að
sá stöðugleiki og samstaða um
hvemig taka eigi á þeim miklu
áföllum í þjóðarbúinu bresti. „Það
er að mörgu leyti verið að færa inn
í lögin ákvæði sem efnislega voru
í lögunum um Kjaradóm fram til
ársins 1986. Það er athyglisvert
að meðal annars samtök opinberra
starfsmanna, sem nú vilja fá breyt-
ingar á úrskurði Kjaradóms, börð-
ust á sínum tíma gegn þessum
ákvæðum í Kjaradómslögum. Þeir
töldu þau óþörf og óhentug sínum
málstað. Ég tel að ríkisstjórnin
hafi hreinsað sitt borð og gert sitt
til að skapa tiltrú og traust á því
að hún meini það sem hún segi um
mikilvægi þess að halda aftur af
launabreytingum," sagði iðnaðar-
ráðherra.
ari breytingum bætast tvær nýjar
málsgreinar svohljóðandi: Enn-
fremur skal Kjaradómur við úr-
lausn mála taka tillit til stöðu og
þróunar kjaramála á vinnumarkaði
svo og efnahagslegrar stöðu þjóð-
arbúsins og afkomuhorfa þess. Telji
Kjaradómur ástæðu til að gera sér-
stakar breytingar á kjöram ein-
stakra embættismanna eða hópa
skal þess gætt að það valdi sem
minnstri röskun á vinnumarkaði.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Akvæði til bráðabirgða. Kjara-
dómur skal svo fljótt sem verða
má og eigi síðar en 31. júlí 1992
kveða upp nýja úrskurði á grund-
velli þessara laga. Gildistaka hinna
nýju úrskurða skal miðast við 1.
ágúst 1992.“
Texti bráðabirgðalaganna