Morgunblaðið - 04.07.1992, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 04.07.1992, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992 25 Ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins lokið: Hvalveiðiþjóðirnar íhuga nú allar úrsögn úr ráðinu Glasgow. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni blaðamanni Morgunblaðsns ÞAÐ var langt frá því að ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðsins í Glasgow endaði í sátt og samlyndi í gær. Norðmenn lýstu því yfir að þeir myndu skoða mjög vel á næstunni hvort þeir yrðu áfram í ráðinu og Japanir sögðust myndu íhuga það sama. Og fiskimálastjóri Færeyja lýsti því yfir að hann myndi mæla með þvi við færeysku ríkisstjórnina að Færey- ingar slitu tengsl sín við ráðið en þeir eiga aðild að þvi gegnum Dani. Það var von að formaður hvalveiðiráðsins, Mexíkaninn Fleischer, tal- aði um kalt loftslag þegar hann sleit fundinum um leið og hann skamm- aði fulltrúana fyrir að sýna lítinn samvinnu- og samningavilja. Á lokadegi ársfundarins í gær samþykkti hvalveiðiráðið kvótareikn- ireglur vísindanefndar ráðsins, en jafnframt að taka þær ekki í notkun fyrr en allir þættir svonefndrar endurskoðaðrar veiðistjómunaráætl- unar væru tilbúnir. Ýmsar þjóðir sátu raunar hjá þegar greidd voru atkvæði um tillöguna, á þeirri for- sendu að ekki væri óhætt að sam- þykkja reiknireglumar fyrr en öll álætunin væri tilbúin. Breytingartillaga frá Norðmönn- um og Japönum um að taka reikni- reglumar í notkun nú þegar var felld, en hefði hún verið samþykkt hefði verið hægt að biðja hvalveiðiráðið um að reikna út hrefnukvóta á Norð- ur-Atlantshafi og í Suðurhöfum. Jan Arvesen, aðalfulltrúi Norð- manna, var ómyrkur í máli um þessa niðurstöðu en Norðmenn mættu mjög fjandsamlegu viðmóti á árs- fundinum eftir að norska ríkisstjóm- in tilkynnti á mánudag að atvinnu- hrefnuveiðar hæfust næsta ár, hvað sem ráðið segði. Þannig var samn- ingaviðræðum innan ráðsins um við- unandi meðferð á veiðistjómunar- reglunum slitið eftir tilkynningu Norðmanna. Arvesen sagði að Norðmenn hefðu komið til fundarins í þeirri einlægu von að endurskoðuðu veiðistjórnun- arreglumar yrðu samþykktar og þeim hrint í framkvæmd varðandi hrefnustofna á Norður-Atlantshafi og í Suðurhöfum. Það hefði ekki gerst heldur hefði skyndilega komið upp á borðið hugtakið veiðistjómará- ætlun, eftir að veiðistjómunarregl- umar voru tilbúnar, og ýmis ný skil- yrði fyrir hvalveiðum hefðu verið sett, eins og krafa um mannúðlegar veiðiaðferðir. Hann vitnaði m.a. í leiðara breska blaðsins The Times í vikunni, þar sem sagði að ísland og Norðmenn gætu með réttu sakað meirihlutann í hvalveiðiráðinu um að breyta leikreglunum þegar leikurinn væri hálfnaður. Því yrðu Norðmenn að íhuga mjög vandlega hvort þeir ættu að vera áfram í ráðinu. Arvesen vildi ekki svara spumingu um hvort hann myndi mæla með úrsögn við norsku ríkisstjómina. Japanir fengu talsvert vægari meðferð en Norðmenn á ársfundin- um. Til dæmis var orðalagi ályktun- artillögu um áætlaðar vísindaveiðar Japana breytt verulega á fundinum í átt til sjónarmiða Japana. Shima, aðalfulltrúi Japana, var þó einnig þungorður í garð hvalveiði- ráðsins og sakaði það, eins og Arves- en, um að beita brögðum til að koma í yfirlýsingunni segja Bandaríkin að umhverfisráðstefna Sameinuðu þjóðanna hafi í yfirlýsingu tekið þá afstððu að allar auðlindir sjávar ætti að vernda og nýta á sjálfbæran hátt, hvort sem væri í úthöfunum eða inn- an efnahagslögsögu einstakra ríkja. í þeirri yfirlýsingu sé hins vegar tek- ið fram, að sjávarspendýr séu sér- í veg fyrir að hvalveiðar úr sterkum stofnum. Shima sagði að Japanir vildu vinna áfram innan hvalveiðiráðsins en kröf- ur í Japan um að fara úr ráðinu yrðu enn háværari eftir þennan ársfund. Og við fréttamenn sagði Shima að afstaðan til hvalveiðiráðsins yrði skoðuð mjög vandlega á næstunni. Framtíð ráðsins óviss Það er því ekki að furða, þótt ýmsir telji að hvalveiðiráðið sé að leysast upp. Guðmundur Eiríksson formaður íslensku sendinefndarinnar er til dæmis ekki í vafa um að á þessum fundi hafi komið 5 ljós að hvalveiðiráðið sé búið að vera sem stofnun. í samtali við Morgunblaðið nefndi hann þijá þætti því til sönnun- ar. í fyrsta lagi hefði úrsögn íslands haft mun meiri áhrif en búist hefði verið við. f öðru lagi væri óvænt til- kynning Norðmanna um hrefnuveið- ar og viðbrögð ráðsins við henni sem þýddi í raun að verið væri að ýta Norðmönnum út úr ráðinu. Og í þriðja lagi væri ljóst að náttúruvemd- arsamtök gætu ekki lengur treyst á að geta stjómað fréttaflutningi um hvalamál, sem sæist best af því að umfjöllun í breskum íjölmiðlum um þennan ársfund hefði verið hlutlaus eða frekar jákvæð í garð íslands. Guðmundur sagði að umhverfis- málafundur SÞ í Ríó hefði haft mjög mikil áhrif í þessu sambandi. Þar hefði verið fjallað um alvöru um- hverfísvandamál, sem ekki hefðp komist almennilega til umræðu vegna gerfimála eins og hvalamáls- ins. Ríki sem sköpuðu þessi alvöru- vandamál gætu notað hvalveiðar sem eins konar græna fjarvistarsönnun til að sýna fram á að þau væru umhverfissinnuð. Bandaríkjamönnum hefur verið mjög umhugað um að halda ráðinu saman og John A. Knauss aðalfull- trúi Bandaríkjamanna í ráðinu vildi ekki viðurkenna að það hefði veikst á þessum ársfundi, heldur hefði það þvert á móti styrkst. „Okkur þykir miður að íslendingar skyldu ganga úr ráðinu en Norðmenn hafa ekki gengið úr því og ég vona að þeir verði þar áfram. Ég held að þessi ályktun (um endurskoðuðu veiði- stjómunaráætlunina) muni hjálpa þeim að vera áfram inni. Þar er tek- ið sérstaklega fram hvaða reglum þeir verði að lúta ætli þeir að hefja veiðar. Ég tel þessa ályktun þvi hafa verið jákvætt skref, og það sé betra að hafa samþykkt hana en ekki,“ sagði Knauss við Morgunblaðið. mál, og sjálfbær nýting hvala þýði ekki að nauðsynlegt sé að veiða þá. „Við trúum því að nýting hvala, sem ekki felur í sér veiðar, svo sem hvalaskoðun, sé eitt besta dæmið um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlindar. Bandaríkin benda Alþjóðahvalveiði- ráðinu á stóraukið gildi lifandi hvala. Hvalaskoðun, sem skipulögð er um Hann sagðist aðspurður telja að ályktunin staðfesti þann grunn sem hægt væri að byggja veiðikvóta á og hann vonaði að ef íslendingar hæfu hvalveiðar á ný myndu þeir fara eftir þeim veiðikvótum sem ályktunin gæfi til kynna. „Sú stað- reynd að Alþjóðahvalveiðiráðið hefur samþykkt þetta ætti að hafa áhrif á ákvarðanir íslendinga og Norð- manna um hvaða hvali þeir veiða, hve marga og undir hvaða kringum- stæðum," sagði Knauss. Náttúruvemdarsamtök hafa einn- ig lýst þeirri skoðun, að ársfundurinn hafi styrkt ráðið heldur en hitt. „Nið- urstaða fundarins er sú, að Norð- menn hafa einangrast mjög en em enn þá í ráðinu. íslendingar hafa staðfest eigin einangrun með því að ganga úr ráðinu og hafa enga laga- lega eða pólitíska möguleika til að hefja hvalveiðar að nýju. Ég held að það hafi verið óskhyggja hjá íslend- ingum og Norðmönnum að telja að þeir gætu sundrað ráðinu. Það er til dæmis engin vísbending um að Jap- anir séu á leið út og raunar er alls ekki víst a$ það myndi ganga af ráðinu dauðu heldur. Það eru 37 ríki í ráðinu," sagði Ámi Finnsson tals- maður Grænfriðunga. En þegar Morgunblaðið spurði Jan Arvesen hvort hann teldi að hval- veiðiráðið þyldi úrsögn Norðmanna svaraði hann: „Það em þijár þjóðir sem vilja veiða hvali. Islendingar, Norðmenn og Japanir. Þriðjungur þeirra er þegar genginn úr ráðinu og ef ein þessara þjóða til viðbótar gengur úr því em ‘A famir út. Og ef allar þijár fara verður eftir vina- legur klúbbur þjóða sem taka við skipunum umhverfisverndarsam- taka.“ Deilt um þýðingu NAMMCO Á mánudaginn verður Norður-Atl- antshafssjávarspendýraráðið (NAMMCO) formlega stofnað í Fær- eyjum. Skiptar skoðanir em unfhvort þessi stofnun geti á löglegan hátt stjómað hvalveiðum í Norður-Atl- antshafi en Guðmundur Eiríksson svaraði slíkri spumingu játandi á fréttamannafundi. Menn hafa einnig lýst efasemdum um hvort í raun sé samstaða innan NAMMCO um að það fjalli í framtíð- inni ekki eingöngu um seli og smá- hvali heldur öll sjávarspendýr á svæðinu, þar á meðal skíðishvali eins og hrefnu. Þannig lýsti Lars Emil Johanson forsætisráðherra Græn- lendinga því yfir í blaðaviðtali í vik- unni að hann styddi ekki fyrirætlan- ir Norðmanna um atvinnuhrefnu- veiðar þar sem það kynni að bitna á hvalveiðum Grænlendinga. En Guðmundur Eiríksson sagði, að þessi viðbrögð Johansens hefðu ekki verið óeðlileg í ljósi þess að hvalveiðiráðið úthlutaði Grænlend- ingum reglulega veiðikvóta sem fmmbyggjum og þeir vildu ekki að allan heim, veltir meir en 300 milljón dölum (um 18 milljörðum króna) árlega og á síðasta ári tengdust um 4 milljónir manna nýtingu hvala, sem ekki tengdust veiðum," segir síðan í yfirlýsingu Bandaríkjamanna. í yfirlýsingunni kemur fram að þetta sé ekki ný stefna heldur hafi ýmsar samþykktir Alþjóðahvalveiði- ráðsins síðustu ár gengið í sömu átt. Og þessi starfsemi muni aukast til hagsældar fyrir mörg samfélög við sjávarsíðuna. neitt gerðist sem breytti því. Hins vegar væri ljóst að hvalvemdunar- sinnar stefndu að því að tekið yrði fyrir þessa kvóta. Auk þess væri hrefnustofninn nýtanlegur og Græn- lendingar ættu ekki sífellt að þurfa að betla veiðikvóta af hvalveiðiráðinu á þeim forsendum að þeir væru frum- byggjar. „Við erum að tala um langtíma- áætlun og Grænlendingar hafa stað- fest að stefna þeirra sé óbreytt, hvað sem Johansen hefur sagt i þessu við- tali. Og staða NAMMCO hefur styrkst verulega við atburðina í hval- veiðiráðinu þessa viku,“ sagði Guð- mundur. En Ámi Finnsson sagðist ekki sjá að íslendingar gætu stundað hval- veiðar innan NAMMCO, - þar sem samtökin yrðu aldrei viðurkennd á alþjóðlegum vettvangi. NAMMCO fékk þó stuðning í gær þegar Japanir lýstu því yfir að þeir hefðu í hyggju að stofna svipuð sam- tök við Kyrrahaf og Suðurskautið, sem ættu að fjalla vísindalega um sjávarvistkerfið í heild og stjóma veiðum á smáhvölum og seinna meir á hrefnu. Japanir hefðu rætt þetta við þjóðir á svæðinu og fengið já- kvæðar undirtektir. Ákveði íslendingar að veiða hvali innan NAMMCO gætu þeir átt yfir höfði sér viðskiptaþvinganir af hálfu Bandaríkjamanna, á sama hátt og þegar íslendingar veiddu hvali í vís- indaskyni. Þegar John A. Knauss var spurður hver hann teldi að yrðu við- brögð Bandaríkjastjómar við hval- veiðum íslendinga sagðist hann ekki telja þörf á að vera með getsakir um eitthvað sem ekki hefði gerst. En ýmsir viðmælendur Morgunblaðsins sögðust telja að íslendingar þyrftu frekar að hafa áhyggjur af aðgerðum náttúmvemdarsamtaka en Banda- ríkjastjórnar ef þeir hæfu hvalveiðar. Herferð gegn grindadrápi Töluverður áróður hefur verið rek- inn gegn Færeyingum í Glasgow, vegna grindhvalaveiða þeirra, en nokkur bresk smáhvalavemdarsam- tök íhuga að heíja herferð gegn færeyskum sjávarafurðum hætti Tæreyingar ekki grindadrápi. Á fimmtudag vom 84 grindhvalir drepnir í Funningfirði og fulltrúar umhverfisvemdarsamtakanna vom á staðnum, tóku myndir og sýndu þær á fréttamannafundi í Glasgow í gær. Þar hvatti Alan Thomton formað- ur Environmental Investigation Ag- ency til. alþjóðlegrar viðskiptaher- ferðar gegn Færeyingum ef þeir hættu ekki grindadrápi, og beindi því sérstaklega til Evrópubandalags- ins að kaupa ekki sjávarafurðir af Færeyingum. Kjartan Hoydal fískimálastjóri Færeyinga sagði á öðmm blaða- mannafundi, að fjórðungur af allri kjötneyslu Færeyinga væri grind- hvalur. Ef þeir ættu að hætta þeirri neyslu yrðu þeir væntanlega að flytja inn „verksmiðjuframleitt" kjöt frá Bretlandi. Umhverfisvemdarsamtökin gagn- rýna sérstaklega aðferðirnar sem notaðar em við grindadrápið og telja þær grimmdarlegar og ómannúðleg- ar. Hoydal sagði að sífellt væri verið að vinna að endurbótum á aðferðun- um en ávallt væri séð um að grinda- dráp væri í samræmi við færeysk lög um veiðar á villtum dýmm. Alþjóðahvalveiðiráðið samþykkti sérstaka ályktun um grindadráp þar sem Danir vom beðnir um að gefa ráðinu skýrslu um aðferðir við dráp- ið og taka þátt í áætlun um mannúð- legar veiðiaðferðir. Danir mótmæltu ályktuninni harðlega og töldu hana nánast móðgun við sig, þar sem þeir hefðu þegar gefið ráðinu ýtarlega skýrslu um veiðiaðferðimar og ekk- ert benti til þess að aðferðir við dráp- ið væm ómannúðlegar. En tillagan var samt sem áður samþykkt með talsverðum meirihluta. Yfirlýsing frá Bandaríkjunum: Skynsamleg nýting hvala getur falist í hvalaskoðunarferðum Glasgow. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, blaðamanni Morguublaðsins í YFIRLÝSINGU á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í gær, sögðu Bandaríkin að ýmis nýting hvala, sem ekki fæli í sér veiðar, væri eitt besta dæmið um skynsamlega eða sjálfbæra nýtingu á sjávarauðlind. Gott skíðafæri í Kerlingafjölhun Skíðaskólinn í Kerlingar- fjöllum hefur hafíð starf- semi sína. Lokið er nú þeg- ar þremur ' unglinganám- skeiðum og helgamám- skeiðum og almenn nám- skeið taka við út allan júlí og ágúst. Gott skíðafæri er nú í Kerlingafjöllum, nægur snjór og útlit fyrir gott „skíðasumar“. Frystihús Amess á Stokkseyri: Humri fyrir tæpa miUjón kr. stolið BROTIST var inn í frystihús Ámess hf. á Stokkseyri í fyrri- nótt og þaðan stolið um 800 kg af hiunri að verðmæti tæp- lega miiyón krónur. Lögreglan á Selfossi telur að innbrot þetta sé tengt öðru innbroti þessa nótt í verslunina Radíó- rás á Eyrarvegi þar sem hyóm- flutningstækjum að verðmæti um 300.000 krónur var stolið. Þorgrímur Óli Sigurðsson rann-* sóknarlögreglumaður á Selfossi segir að ekki sé vitað hvemig inn- brotsmennirnir komust inn í frysti- húsið en eftir að þeim tókst það sprengdu þeir upp hengilás sem var á frystiklefa þess. Úr klefanum tóku þeir síðan 800 kg af humri í tvenns konar pakkningum, ann- arsvegar 1 kg skrautpakkningum merktum fyrirtækinu og hinsvegar 1,5 kg pakkningum með orðinu „hótel" skrifuðu utan á. Þorgrímur óli segir að þeim hafi verið tilkynnt um stuldinn klukkan 6 í gærmorgun er starfs- fólk mætti í vinnu hjá Ámesi. Engin ummerki önnur en hengilás- inn hafí verið að finna um innbrot- ið og ekki hafi öðru verið stolið en humrinum. Lögreglan telur að innbrotið tengist öðm innbroti sem framið var á Eyrarvegi sömu nótt og segir Þorgrímur að rannsókn þeirra geri ráð fyrir að um sömu menn hafi verið að ræða í báðum tilfellum. Hann vill beina því til fólks að það hafí samband verði það vart við eitthvað sem varpað gæti ljósi á innbrotin tvö. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíóum Moggans!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.