Morgunblaðið - 04.07.1992, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992
27
Afmæliskveðja:
Njörður Snæhólm
Kæri vinur og afi, til hamingju
með afmælið. Ég vona að þú virðir
þessar línur við mig og verðir ekki
reiður er þú lest þær í Mogganum,
blaði allra landsmanna. Vissulega
fer það vel að skrifa til þín á þess-
um vettvangi því í raun ert þú löngu
orðinn þjóðareign.
Ég tel það óþarfa að tíunda störf
þín gegnum árin en mig langar
með þessum fátæklegu línum að
þakka þér fyrir þau 25 ár sem við
höfum átt samleið. Við höfum átt
fjöldann allan af góðum samveru-
stundum og í minningunni sakna
ég þeirra en hugga mig við það
að fjölmargar eru eftir og til þeirra
hlakka ég eins og fleiri.
Manstu eftir því þegar við báðir
vorum yngri og ákváðum að verða
ríkir á augabragði? Við settumst
niður í nokkurn tíma og ræddum
þessi áform okkar og eftir nokkrar
rökræður komumst við að þeirri
niðurstöðu að gullleit væri vænleg-
asti kosturinn til að öðlast skjót-
fenginn auð. Ég var svona um 5
ára en þú 55 og við vissum það
báðir, höfðum reyndar vitað það
lengi, að gull væri að fínna í Ésj-
unni og þangað fórum við. Ég man
ekki hvor okkar var æstari er und-
ir Esjuna kom en þegar við fundum
læk, sem var déskoti gulilegur,
tóku leikar að æsast. Þú hélst til
í læknum miðjum en ég á bakkan-
um, við öllu búinn. Ríkir urðum við
ekki en einn mola höfðum við þó
upp úr krafsinu. Þú veist, að ekki
er ennþá fullreynt með þennan
læk, en gull er í Esjunni, það vitum
við báðir.
Mér er einnig minnisstætt hvern-
ig þú náðir að plata ofan í mig
soðnar kartöflur en á þeim hafði
ég megnan viðbjóð. Við matarboðið
tókst þú diskinn minn og spurðir:
„Eigum við ekki að smíða flug-
skýli úr matnum?" Fyrir mér var
ekkert því til fyrirstöðu að leika
með matinn með þér og enn þann
dag í dag borða ég helst ekki soðn-
ar kartöflur nema þær séu stappað-
ar saman við ýsu og hrúgað upp í
flugskýli á disknum.
En ævintýrin voru oftar rosa-
legri í kringum þig, það vissu allir.
Oft var spurt: „Er afí þinn Njörður
leynilögga?" „Nei,“ sagði ég, „hann
er rannsóknarlögreglumaður."
Sandgerði:
Færeysk gnðsþjónusta
VOGUR á Suðurey er vinabær Sandgerðis og er kirkjukórinn Ljóm-
ur þaðan nú staddur hér á landi í söng- og skernmtiferðalagi. Kór-
inn mun meðal annars koma fram í Langholtskirkju, Hafnarfirði
og Grindavík en sunnudaginn 5. júlí nk. kl. 14 verður færeysk messa
í Hvalnesskirkju. Messugjörð verður í höndum sóknarprests í Vogi
á Suðurey og mun kirkjukórinn Ljómur frá Vogi syngja við messuna.
Kl. 17.00 sama dag verða í sam-
komuhúsinu í Sandgerði sameigin-
legur tónleikar kirkjukórs Hval-
nesskirkju og kórsins frá Vogi.
Efnisskrá tónleikanna verður
blönduð, íslensk og færeysk söng-
lög. Þá er í för með Ljómi færeysk-
ur dansflokkur sem mun sýna þjóð-
dansa í tengslum við tónleikana.
Eftir messu verður kaffisamsæti
fyrir kórana á vegum M-nefndar í
Sandgerði.
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Ritstjórar héraðsfréttablaðsins Snæfellsnes þær Þórunn Inga Einars-
dóttir og Ragnheiður Gunnarsdóttir t.h.
Stykkishólmur:
Nýtt héraðsfréttablað
er ber heitið Snæfellsnes
Stykkishólmi.
HLEYPT var af stokkunum 25. júnf sl. í Stykkishólmi nýju héraðs-
fréttablaði, Snæfellsness. Útgefendur, ritstjórar og ábyrgðarmenn eru
Ragnheiður Gunnarsdóttir og Þórunn Inga Einarsdóttir og auk þeirra
starfar sem blaðamaður Elínborg Sturludóttir.
„Nú,“ sögðu strákarnir í hverfinu,
„en hann er aldrei í neinum löggu-
búningi." „Það er rétt,“ sagði ég,
„en hann er í nákvæmlega sömu
vinnu og Kólombó í sjónvarpinu."
Þetta þótti strákunum rosalegt.
Nei, það var ekki ónýtt að geta
státað af afa eins og þér. Fyrir
písl eins og mig var það í raun líf-
snauðsynlegt því að hrekkjusvínin
vissu að ekki gekk að lúskra á ein-
hverjum sem ætti fyrrverandi
stríðshetju úr norska flughernum
fyrir afa sem nú væri lögreglufor-
ingi sem eltist við misyndislýð ís-
lands. Og virðing ráðandi afla í
hverfinu varð alger þegar það kvis-
aðist út að undirritaður hefði farið
með flestum „Kólombóum" lands-
ins í leit að vísbendingum sem
gætu komið að gagni í ákveðnu
sakamáli. Hrekkjusvínin sátu hljóð
í kringum mig með augu eins og
undirskálar þegar ég lýsti gangi
málsins - „æsispennandi, milljón
felustaðir, talstöðvar, skýrslur -
og auðvitað vorum við allir vopnað-
ir,“ sagði ég og hrekkjusvínin trúðu
ekki sínum eigin eyrum og urðu
eins og fískar í andlitinu, opnuðu
og lokuðu munninum, alveg gáttuð.
En nóg um þessar æskuminning-
ar okkar! Ég má til með að minna
þig á nokkuð sem þú hefur oft
brýnt fyrir mér á mörgum sam-
verustundum okkar en það er að
segja sannleikann, hversu óþægi-
legur sem hann kann að vera. Það
er auðvitað skiljanlegt að viðhorf
þitt til sannleikans sé svona sterkt
því það hefur verið þitt meginstarf
í áratugi að finna út sannleikann
með rannsóknum eða með viðræð-
um við fólk. Ég hef aldrei hitt neinn
sem sagt hefur þig ljúga. Þú hefur
einnig ætíð sagt mér að það eigi
alltaf að koma fram við fólk sem
jafningja og tala við það með virð-
ingu og virða skoðanir þess. Ég
verð að viðurkenna að þetta reyn-
ist flestum erfitt en engu að síður
rétt og gott viðhorf til mannlegra
samskipta og þér til sóma.
Ein mesta speki, sem þú hefur
kennt mér, er spekin um það hvem-
ig forða megi bömum frá því að
ljúga. Þú sagðir að besta leiðin til
að kenna barni að ljúga væri sú
að skamma það fýrir játningu
synda sinna. Ef bamið er tuktað
fyrir sannleikann byijar það að
ljúga til að losna við skammir,
sagðir þú alltaf. Þetta er að mínu
mati heimspeki sannleikans, heim-
speki þín.
Fyrir hönd fjölskyldunnar óska
ég þér til hamingu með 75 ára
afmælið.
Þinn vinur,
Jón Kristinn Snæhólm.
Meðal efnis þessa fyrsta tölublaðs
er grein um Fjórðungsmót vest-
lenskra hestamanna haldið á Kaldár-
melum, en þessi mót hófust 1980,
sagt frá sjómannadeginum á útgerð-
arstöðum hér í sýslu, sagt frá höfn-
inni í Ólafsvík, grein um fijálsíþrótta-
völl á Hellissandi og farandbikar sem
skipstjórinn á Breiðafjarðarfeijunni,
Baldur Hörður Gunnarsson, tók á
móti úr hendi Hilmis Snorrasonar
skólastjóra Slysavamarskóla sjó-
manna, en þessi bikar er veittur ár-
lega til skipa þar sem öryggisbúnað-
ur er góður og til áhafnar sem þykir
standa sig vel hjá skólunum. íþrótt-
afréttir eru úr sýslunni o.fl. Góðar
myndir prýða blaðið og er það mjög
vandað og vel gengið frá.
í forystugrein segir m.a.: „Héraðs-
fréttablaðinu Snæfellsnesi er ætlað
að flytja fréttir af því sem efst er á
baugi hveiju sinni og til þess að svo
megi verða treystum við á gott sam-
starf við lesendur."
í viðtali við ritstjóra sögðu þær
að blaðið ætti að verða góður tengi-
liður allra sveitarfélaga sýslunnar og
vettvangur til að ræða ýmis aðkall-
andi mál.
Ritstjómin hefur komið sér vel
fyrir og hefur fengið mjög sæmilegt
húsnæði með síma og tækjum. Þar
er efninu niðurraðað og yfírfarið eins
og á hinum stærri blöðum. Bjartsýn-
in er í öndvegi og það er vissulega
þörf fyrir svona blað og vonandi
kunna lesendur að meta þessa tilraun
og gera blaðið enn stærra og áhrifa-'
meira.
Hugmyndin er að blaðið Snæfells-
nes komi út vikulega á fimmtudögum
og fyrsta tölublaðið var sent á hvert
hús og bæ í sýslunni, ókeypis til
kynningar. Einnig verða teknar aug-
lýsingar í blaðið. Prentun er öll hin
vandaðasta á blaðinu og það prentað
í Prentsmiðjunni í Stykkishólmi. Það
fer vel af stað og óskar fréttaritari
því góðs gengis.
- Árni.
♦ » 4------
Baraafræðsla
á Þingvöllum
í JÚLIMÁNUÐI verður um helgar
efnt til fræðsluferðar fyrir börn
í Þjóðgarðinum á Þingvöllum.
Inágrenni tjaldsvæða verða famar
stuttar gönguferðir, farið verður í
leiki, náttúran skoðuð og rætt um
það sem fyrir augu ber. I þinghelg-
inni verða einnig á dagskrá fræðslu-
ferðir. Gengið verður um þingsvæðið,
búðarsvæðið og Þingvallastað. Lögð
verður áhersla á sögufræðslu.
Tímasetningar verða auglýstar á
tjaldsvæðunum.
(Fréttatilkynning frá Idóðgarðsverdi)
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
BorgarfjörOur: Rafstofan Hvítárskála.
Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaöarhóli 25.
Grundarfjörður: Guöni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
BúOardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
ísafjörOur: Póllinn hf., AÖalstræti 9.
Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
Sauðárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
SiglufjörOur: Torgið hf., Aöalgötu 32.
'Akureyri: Sír hf., Reynishúsinu, Furuvöllum 1.
Húsavík: öryggi sf., GarÖarsbraut 18a.
Þórshöfn: NorÖurraf, Langholti 3.
NeskaupstaOur: Rafalda hf„ Hafnarbraut 24.
ReyOarfjörOur: Rafnet, BúÖareyri 31.
EgilsstaOir: Raftækjav. Sveins GuÖmunds., Kaupvangi 1.
BreiOdalsvfk: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43.
Vestmannaeyjar: Tréverk hf„ Flötum 18.
Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
Selfoss: Árvirkinn hf„ Eyrarvegi 29.
GarOur: Raftækjav. Siguröar Ingvarssonar, HeiÖartúni 2.
Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.