Morgunblaðið - 04.07.1992, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992
29
Jón Egilsson
Selalæk - Minning
Fæddur 31. júlí 1908
Dáinn 23. júní 1992
Mínir vinir fara pld,
feigðin þessa heimtar köld.
(H.J.)
Þegar mér var tilkynnt lát vinar
míns Jóns á Selalæk, þá hvarflaði
hugur minn til Hóla í Hjaltadal. Þar
sáumst við fyrst haustið 1935 er
við hófum nám í bændaskólanum
þar. Töluverð breyting varð á Hól-
um það haust, þegar Steingrímur
Steinþórsson varð búnaðarmála-
stjóri og Kristján Karlsson var skip-
aður skólastjóri, en hann var áður
ráðunautur Búnaðarsambands Suð-
urlands með búsetu í Gunnarsholti.
Nemendur þennan vetur voru um
40 og þar af nokkru fleiri í yngri
deild. Aldursforseti í okkar deild
var Jón Egilsson og var hann að
heita mátti jafngamall skólastjóran-
um. Þeir þekktust vel og þarna
voru líka margir Sunnlendingar,
sem allir höfðu kynnst unga skóla-
stjóranum, sem náði fljótt tökum á
stjóm skólans.
Vel var okkur byijendum tekið
af eldri-deildungum, sem þekktu
allar reglur skólans, sem þeir
kenndu okkur fljótt og vel, svo við
gætum hagað okkur skikkanlega.
I skólahúsinu bjuggu flestir kennar-
ar skólans, starfsfólk hans og allir
þeir sem störfuðu á búi staðarins.
Hver fjölskylda hafði sitt heimili í
þessu stóra húsi, en í reynd var
þetta eitt stór, mannmargt heimili,
þar sem allir tóku þátt í bæði störf-
um og leik. En það þurfti stjóm
og hún var góð og byggðist á sam-
starfi, sem var lærdómsríkt fyrir
okkur nemendurna.
Hólastaður er sérstakur, þar em
fjöllin há og tignarleg, Hjaltadalur-
inn grasigróinn upp í hlíðar og það
má segja að þar sé oftast veður-
blíða og að þar „drjúpi smjör af
hveiju strái“. Þá prýðir Hóladóm-
kirkja staðinn og vemdar hann, svo
hann má heita helgur. Þar finnst
mér gæta áhrifa presta og biskupa
og þá ekki síst Guðmundar Arason-
ar, er fékk nafnið Guðmundur góði.
Skólinn, staðurinn og umhverfið
gat ekki dásamlegra verið og skildi
mikið eftir þegar út í lífsbaráttuna
kom.
Jón Egilsson var vel til forystu
fallinn og varð strax foringi okkar
í öllum þeim málum sem snertu
heill og hag okkar. Hann hafði þá
þegar mikla starfsreynslu bæði á
sjá og landi, því ungur fetaði hann
í fótspor feðra sinna. Þegar skólan-
um lauk eftir fyrri veturinn var
hann kjörinn matarstjóri skólans
ásamt tveimur öðrum nemendum
eldri deildar. Öll forysta í þessum
málum hvíldi á Jóni. Hann kynnti
sér verðlag á mat- og hreinlætis-
vörum hjá verslunum í Skagafirði
og tókst að ná mjög hagkvæmum
innkaupum, gegn skilvísri greiðslu
sem staðið var við. Einnig samdi
hann við bændur um kaup á stór-
gripum, svo oftast var til nýmeti.
Arangurinn af þessu varð sá að
fæðiskostnaður á nemanda var að-
eins 90 aurar á dag, níutíu aurar,
og hafði lækkað um 30 aura frá
vetrinum áður. Fæðið var kjarnmik-
ið og gott og myndarbragur á öllu.
Samstarf þeirra, sem fóru með þessi
mál, gat ekki betra verið. Þetta
sýnir og lýsir hugsunarsemi og trú-
mennsku Jóns, sem tókst í sam-'
vinnu við aðra að spara skólafélög-
um sínum mikil útgjöld, því þetta
var á þeim árum sem aurarnir höfðu
gildi.
Jón var fæddur 31. júlí 1908 á
Stokkalækk á Rangárvöllum, sonur
Egils Jónssonar bónda þar og konu
hans Þuríðar Steinsdóttur. Hann
þótti snemma tápmikill og vandist
ungur öllum heimilisstörfum. Síðar
var hann í verkamannavinnu til sjós
og lands og alls staðar eftirsóttur.
Hann var myndarlegur í sjón og
raun, stjómsamur, ákveðinn, fé-
lagslyndur, hagsýnn, greindur vel
og glöggur á aðalatriði í hveiju
máli, rökvís ræðumaður, stálminn-
ugur, traustur og heiðarlegur. Bú-
höldur ágætur, framkvæmdamaður
og framfarasinnaður. Hann taldi sig
hafa haft mikið gagn af skólanám-
inu á Hólum, enda námsmaður
ágætur, en ýmsum fannst hann
ekki þurfta á bændaskóla að halda.
Jón átti alla tíð heima í Rangár-
vallahreppi. Þar var hans starfs-
vettvangur og honum voru falin
mörg störf, eins og eftirfarandi
upptalning sýnir: Hann var í stjórn
Búnaðarfélags Rangárvallahrepps í
nær 40 ár og formaður þess í alda-
fjórðung. Deildarstjóri Rangár-
vallahrepps hjá Sláturfélagi Suður-
lands frá 1945 og sláturhússtjóri
SS á Hellu frá 1962-1970 og odd-
viti um skeið. Hreppstjóri frá 1950
og alla tíð á meðan lög leyfðu.
Búnaðarþingsfulltrúi frá 1966-
1978.
Mörg fleiri opinber störf féllu í
hlut Jóns, þótt hér séu ekki talin.
Hann naut fyllsta trausts allra sem
honum kynntust og var mikils met-
inn í bændastétt.
Aðalstarf Jóns var bóndastarfið,
sem var honum hugleikið og hans
óskadraumur í æsku var að eignast
góða jörð. Þegar hann kom frá
Hólum beið hans æskuunnustan
Helga kennari Skúladóttir GUð-
mundssonar frá Keldum og konu
hans Svanborgar Lýðsdóttur. Þau
giftust skömmu síðar, hófu búskap
í Gunnarsholti og bjuggu þar í 9
ár og komu þar fjárhagslega fyrir
sig fótum. Ábúðin þar var ekki til
frambúðar, því Gunnarsholti var
ætlað annað hlutverk.
Árið 1945 er stórbýlið Selalækur
til sölu og þá kaupa þau jörðina og
flytja þangað vorið 1946. Framan
af öldinni bjó þar Sigurður, föður-
bróðir Helgu, og eftir hann sonur
hans Gunnar alþm. Selalækur er
ágæt jörð, um 500 ha að stærð og
ræktunarland ágætt: gijótlaust,
þurrt og grasgefið. Húsakostur þar
var allur með myndarbrag, en far-
inn að eldast. Ennþá stendur þar
myndarlegt steinhús, byggt árið
1908.
Framtíðin blasti þarna við þess-
um ungu hjónum. Þá skeði það í
ársbyijun 1947 að Helga lést. Þá
voru börnin orðin 5 og öll ung að
árum. Helga var kennaramenntuð,
listræn og mikilhæf kona.
Jón hugsaði nú sjálfur um börnin
næstu árin, en haustið 1951 kvænt-
ist hann Ólöfu Bjarnadóttur frá
Böðvarsholti í Staðarsveit, Snæ-
fellsnesi, Nikulássonar og konu
hans Bjamveigar Vigfúsdóttur.
Ólöf er mannkostakona, búkona
og húsmóðir ágæt. Þau voru sam-
hent hjónin og þeim búnaðist ágæt-
lega. Álltaf stækkaði búið og hefur
það lengi verið með myndarlegustu
og stærstu búum landsins. Fram-
kvæmdir hafa verið miklar í ræktun
og byggingum. Þeirra börn era 5,
svo alls era böm Jóns 10.
Það var ekki svo lítið verk, eða
hitt þó heldur, að ala upp 10 börn
og kosta þau í skóla. Öll eru systkin-
in myndarleg og dugandi fólk.
Böm Jóns og Helgu era:
Skúli bóndi á Selalæk og slátur-
hússtjóri á Selfossi. Þuríður Eygló,
gift Braga Haraldssyni húsasmið,
Sauðárkróki. Egill, verkstjóri Vest-
mannaeyjum, kvæntur Sjöfn Guð-
mundsdóttur. Svanborg, gift Sæ-
mundi Ágústssyni bónda, Bjólu.
Böm Jóns og Ólafar eru:
Bjarni, bóndi Selalæk, kvæntur
Kristínu Bragadóttur. Bjarnveig,
gift Ármanni Ólafssyni, bónda,
Vesturholtum. Bára, gift Árna Guð-
mundssyni, rafvirkja Hellu. Þórir,
bóndi Selalæk, kvæntur Guðnýju
Sigurðardóttur. Viðar, trésmiður,
Hvolsvelli, kvæntur Jónu Ámadótt-
ur. Barnabörn Jóns era 33 og 1
barnabarnabarn.
Fjórir synir Jóns eru bændur í
Rangárvallahreppi og 3 þeirra búa
á Selalæk og 2 dætur hans eru
húsfreyjur í sveit.
Jón var fyrirhyggjusamur og
framsýnn. Þegar heilsan fór að bila,
hætti hann að búa og synir hans
tóku við á Selalæk. Hann naut þess
að fylgjast með og sjá hversu mynd-
arlega þeir hafa staðið að ræktun
og byggingum. Vel fylgdist hann
með öllum barnahópnum og með
ráðum og dáð hjálpaði hann, þegar
á þurfti að halda, enda umvafinn
hlýju á heimili sínu. Eins lengi og
heilsan leyfði var hann í myndar-
lega, gamla húsinu á Selalæk, en
synir hans þrír búa hver í sínu húsi
þar skammt frá. Staðurinn er glæsi-
legur í sjón og raun.
Á sl. ári varð Jón að fara á
sjúkrahúsið á Selfossi. Þar varð
hann að vera eftir það. í hárri elli
var hann jafn stæltur og forðum á
Hólastað.
Góður drengur er genginn. Að
leiðarlokum er margs að minnast
og margt að þakka. Innilegar þakk-
ir fyrir allt. Ég hugsa til Hóla.
Blessuð sé minning hans. Innilega
samúð vottum við hjónin eiginkonu,
bömum og öðram aðstandendum.
Ásgeir Bjarnason.
Laugardaginn 4. júlí verður gerð
frá Keldnakirkju á Rangárvöllum
útför Jðns Egilssonar fyrrv. bónda
og hreppstjóra á Selalæk. Hann
lést í sjúkrahúsinu á Selfossi eftir
langa vanheilsu 83 ára gamall. Með
Jóni er genginn einn framtakssam-
asti og harðduglegasti maður í
bændastéttinni.
Jón var fæddur og uppalinn á
Stokkalæk á Rangárvöllum. Hann
lauk námi frá bændaskólanum á
Hólum árið 1937. Sjómennsku mun
hann hafa stundaði á tímabili, með-
al annars á toguram. Hann hóf
búskap í Gunnarsholti á Rangár-
völlum en keypti jörðina Selalæk í
sömu sveit árið 1946 og bjó þar
upp frá því.
Jón var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Helga Skúladóttir kennari
frá Keldum. Hún dó árið 1947 frá
fimm börnum þeirra hjóna. Árið
1951 kvæntist hann eftirlifandi
konu sinni, Ólöfu Bjamadóttur frá
Böðvarsholti á Snæfellsnesi, þau
áttu einnig saman fimm böm.
Það leiðir af líkum, að ekki hafi
verið setið auðum höndum á þessu
stóra heimili á Selalæk, því mikils
hefir þurft við að framfleyta þessum
barnahóp. Þar hefir þó ekkert skort
á, því öll era bömin nýtir þjóðfélags-
þegnar sem bera sterk einkenni
ætternis síns og þess uppeldis er
þau hafa notið.
Ég kynntist ekki Jóni fýrr en
eftir að þau Ólöf systir mín hófu
búskap. Mér er minnisstætt frá
þeim tíma er hann fýrst kom hér
vestur, allur framgangsmáti hans
sem einkenndist af hispursleysi og
einbeitni en jafnframt af ljúf-
mennsku og fölskvalausri um-
hyggju.
Þegar komið er að Selalæk dylst
engum að þar hefír enginn meðal-
maður haldið um stjómvölinn. Víð-
lend tún blasa við og reisulegar
byggingar fyrir fólk og fénað.
Fyrirhyggja var Jóni í blóð borin
og hann mun hafa átt dijúgan þátt
í því að koma málum þannig fyrir
að afkomendur hans nytu áfram
þeirrar uppbyggingar sem orðin er
á jörðinni. Því er það, að nú búa
synir hans þrír á Selalæk góðum
búum og hafa hver um sig reist sér
íbúðarhús á jörðinni. Það era því
fullar líkur á að merki athafna-
mannsins verði haldið þar á loft enn
um sinn.
Auk mikillar umsvifa í búskap
komst Jón ekki hjá því að taka að
sér margháttaða forystu fýrir sveit
sína og hérað. Hann var lengi
hreppstjóri Rangárvallahrepps og
oddviti um skeið. Fulltrúi hjá Slát-
urfélagi Suðurlands, í stjóm Mjólk-
urbús Flóamanna, búnaðarþings-
fulltrúi og mörgum fleiri trúnaðar-
störfum sinnti hann meðan heilsa
leyfði.
Að leiðarlokum er mér efst í
huga þakklæti til Jóns fyrir alla
tryggð, vináttu og umhyggju á liðn-
um árum. Veit ég að þar mæli ég
fyrir munn alls venslafólksins fyrir
vestan.
Kæra systir, við hjónin vottum
þér, börnunum og Ijölskyldum
þeirra innilega samúð.
Þráinn Bjarnason.
jHeöður
a
morgun
ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks Áskirkju er minnt á
guðsþjónustu í Laugarneskirkju
sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00.
Kammerkórinn Stemma frá Finn-
landi syngur við messuna. Organ-
isti Kjartan Sigurjónsson. For-
söngvari Svala Nielsen. Pretur sr.
Jakob Ág. Hjálmarsson.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl.
14.00. Prestur sr. Jakob Á. Hjálm-
arsson. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson. Bátsferð úr Sundahöfn kl.
13.30.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðsþjón-
usta kl. 10.00. Sr. Baldur Sigurðs-
son.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og
barnastund kl. 11.00. Sr. Karl Sig-
urbjörnsson. Samleikur á þrjú selló
og orgel. Sellóleikarar: Judith Jam-
in, Sebastian vanEck og Inga Rós
Ingólfsdóttir. Hörður Áskelsson
leikur á orgel. Þriðjudag: Fyr-
irbænaguðsþjónusta kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson. Kvöldbænir
og fyrirbænir í kirkjunni á miðviku-
dögum kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Vegna sumarleyfa
Guðspjall dagsins: Lúk. 15.:
Hinn týndi sauður.
starfsfólks Langholtskirkju er
minnt á guðsþjónustu í Bústaða-
kirkju, sunnudag kl. 11. Sóknar-
nefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Ingólfur
Guðmundsson. Heitt á könnunni
eftir guðsþjónustu. Barnagæsla.
NESKIRKJA: Messa kl. 11.00. Org-
el- og kórstjórn Reynir Jónasson.
Guðmundur Óskar Ólafsson. Mið-
vikudag: Bænamessa kl. 18.20.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Helgi-
stund kl. 11 í umsjá sóknarnefnd-
ar. Organisti Þóra Guðmundsdótt-
ir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 árdegis. Sr. Þór Hauksson
annast guðsþjónustuna. Organisti
Violeta Smid. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Sigurður
Pálsson. Organisti Daníel Jónas-
son. Sr. Gísli Jónasson.
FELLA— og Hólakirkja: Guðsþjón-
usta kl. 20.30. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Organisti Guðný M.
Magnúsdóttir. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Ferming og altarisganga. Fermd
verða: Guðlaugur Mímir Brynjars-
son, Túnbrekku 13, Ólafsfirði og
Tinna Hrund Ómarsdóttir, Borgar-
holtsbraut 30, Kópavogi. Organisti
Stefán R. Gíslason. Ægir Fr. Sigur-
geirsson.
SELJAKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta
kl. 20. Organisti Kjartan Sigurjóns-
son. Molasopi eftir guðsþjón-
ustuna. Laugardag 4. júlí: Guðs-
þjónusta í Seljahlíð kl. 11. Sóknar-
prestur.
SAFNKIRKJAN Árbæjarsafni:
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Þór Hauksson. Organisti Sigrún
Steingrímsdóttir.
FRÍKIRKJAN Rvík: Guðsþjónusta
kl. 14.00. Miðvikudag 8. júlí morg-
unandakt kl. 7.30. Orgelleikari Pa-
vel Smid. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA Landakoti: Messa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa
kl. 14 og ensk messa kl. 20. Laugar-
daga messa kl. 14 og ensk messa
kl. 20. Aðra rúmhelga daga messa
kl. 18.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Messa
kl. 11. Laugard. kl. 14. Fimmtudaga
kl. 19.30. Aðra rúmhelga daga
messa kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelfía.
Almenn samkoma kl. 20. Ræðu-
maður Kristinn Ásgrímsson. Lind-
blomhjónin kveðja. Kaffi að sam-
komunni lokinni. Barnagæsla.
KFUM/K: ALmenn samkoma í
kristniboðssalnum kl. 20.30.
Ræðumaður Ástráður Sigursteind-
órsson.
VEGURINN, kristið samfélag: Al-
mennar samkomur kl. 16.30 og
20.30. Nk. miðvikudag kl. 18. Bibl-
íulestur sr. Halldórs S. Gröndal.
B ESSASTAÐAKIRKJA: Kvöldguðs-
þjónusta kl. 20.30. Einleikur á
sembal, Helga Ingólfsdóttir. Sr.
Bragi Friðriksson.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Morgunsöngur kl. 11. Sr. Gunnþór
Ingason.
VIÐISTAÐASÓKN: Guðsþjónusta í
Víðistaðakirkju kl. 11. Guðsþjón-
usta á Hrafnistu kl. 13. Kór Víði-
staðasóknar syngur. Organisti Úl-
rik Ólason. Sr. Sigurður Helgi
Guðmundsson.
KAPELLAN St. Jósefsspitala:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
kl. 18.
KARMELKLAUSTUR. Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga kl. 8.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Messa kl.
14. Organisti Einar Örn Elnarsson.
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
KAÞÓLSKA kapellan Kefiavik:
Messa kl. 16.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Kór kirkjunnar syngur.
Organisti Siguróli Geirsson. Sökn-
arprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa
kl. 11 með sumarbúðafólki og
messa kl. 17. Organisti Hilmar Örn
Agnarsson. Sóknarprestur.
NJARÐVÍKURPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Y-Njarðvíkurkirkju
kl. 20.30. Sr. Baldur Rafn Sigurðs-
son.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Ingunn Guð-
mundsdóttir. Sóknarprestur.