Morgunblaðið - 04.07.1992, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992
I
4
%
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Fjármálaáhyggjur þínar eru
raunsæjar, enda hefur eyðslan
farið fram úr áætlun. Fjöl-
skyldulífið blómstrar núna og
í kvöld ættirðu að vera heima
í faðmi fjölskyldunnar.
Naut
(20. aprfl - 20. maí) flð?
Þú getur reitt þig á vin í vafa-
máli sem þú hefur áhyggjur
af. Þetta verður góður dagur
til hvers kyns samskipta.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur náð árangri á
ákveðnu sviði, en færð ekki
þau viðbrögð sem þú áttir von
á. Best væri að þú létir öðrum
eftir ákvörðunina um hvort
eða hvenær þeir hrósa þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) »«
Hafir þú látið vandamál sitja
lengi á hakanum, ættir þú að
drífa í að ræða málin vel. Það
mun gera öllum aðilum lífið
léttbærara.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ailt sem tengist handavinnu
ferst þér vel úr hendi í dag.
Þú ert atorkumikill núna og
vinnur vel það sem þú tekur
þér fyrir hendur.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þetta verður frekar daufur
dagur og þér finnst þú misskil-
inn. Ef þú kemur til dyranna
eins og þú ert klæddur, er lík-
legra að aðrir í kringum þig
geri það líka.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú ert sérlega vel liðinn í
vinnu, enda hefurðu verið ein-
staklega skapgóður og þolin-
móður þegar á hefur reynt.
Ólofaðir kunna að hitta vin
þegar líða tekur á kvöldið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú hefur samviskubit vegna
einhvers sem þú sagðir í garð
annars. Rétt væri að hreinsa
andrúmsloftið núna.
Bogmaður
(22. nóv. — 21. desember) m
Þú hefur haft tilhneigingu til
að gera ekki í dag það sem
þú getur gert á morgun. Nú
þarf að taka til hendinni!
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Þú gerir of miklar kröfur til
þinna nánustu og þeir vita
ekki hvaðan á þá stendur veðr-
ið. í dag mun verulega reyna
á umburðarlyndi þitt.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú ert ánægðari með sjálfan
þig en oft áður, enda ertu nú
farinn að heyra gullhamra sem
þú lést áður sem vind um eyru
þjóta. Kvöldið verður
skemmtilegt.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ’*££.
Rómantískur dagur framund-
an hjá þeim sem hafa fest ráð
sitt. Hinir munu kynnast nýrri
hlið á sjálfum sér. Sígild tón-
list og réttur félagsskapur eru
lykilorð kvöldsins.
Stjðmusþána á ad lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra stadreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
SMÁFÓLK
sem líf er í.,
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Suður opnar á grandi og norð-
ur hækkar beint í þtjú, þrátt
fyrir fjórlitinn í spaða.
Norður
♦ K972
VDG8
♦ Á104
♦ K76
Suður
♦ ÁDG10
VK54
♦ D97
♦ Á102
Þar eð keppnisformið er tví-
menningur er það út af fyrir sig
góður árangur að spila 3 grönd
frekar en 4 spaða. Ekki versnar
spilið þegar vestur kemur út
með tígulsexu, fjórða hæsta, og
suður fær fyrsta slaginn á tígul-
níu. En það er ástæðulaust að
sætta sig við 10 slagi baráttu-
laust.
Hvernig er best að reyna við
þann ellefta?
Fyrir utan þann langsótta
möguleika að DG falli í laufi er
besti möguleikinn að endaspila
vestur og fá þannig annan tígul-
slag. En þá verður hann að eiga
hjartaásinn og ekki nema tvö
lauf. Norður ♦ K972 ¥DG8 ♦ Á104 ♦ K76
Vestur Austur
♦ 65 ♦ 843
¥ Á1063 11 ¥972
♦ KG865 ♦ 32
♦ 93 Suður ♦ DG854
♦ ADG10
▼ K54 ♦ D97 ♦ Á102
Ágæt byijun er að spila hjarta
á drottninguna. Vestur er vís
með að dúkka, því hann veit
ekki nema suður sé með Kxxx
í hjarta. Spila síðan spaða á
gosa (eins og um svíningu sé
að ræða) og svo aftur hjarta að
blindum. Dúkki vestur aftur, er
spaðinn tekinn, tveir efstu í laufi
og hjarta spilað.
Þessi spilamennska er auðvit-
að ekki áhættulaus, sem gerir
toppinn þeim mun ánægjulegri.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Ólympíumótinu í Manila kom
þessi staða upp í skák þeirra H.
Han (2.270), Tyrklandi, sem hafði
hvítt og átti leik og O. Moussa,
Sameinuðu Arabísku furstadæm-
unum. Svartur var búinn að tefla
glæsilega sóknarskák, en lék síð-
ast 21. — DEg4 — e2??, í staðinn
fyrir 21. — Df3+, 22. Kgl - e3
og eftir það getur hvítur gefist
upp.
Fyrir einskæra tilviljun á hvítur
nú stórglæsilegan leik sem þving-
ar fram óveijandi mát og tryggir
honum algerlega óverðskulduðan
sigur: 22. Rf6+ og vesalings
Moussa gafst upp, því hann verð-
ur mát á áttundu reitaröðinni.
T.d. 22. - gxf6, 23. Hgl - Kf8,
24. Db8+ og mátið blasir við.
Þetta ólán dró allan mátt úr aröb-
unum og Tyrkir sigruðu þá 4-0.