Morgunblaðið - 04.07.1992, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992
43
HANDKNATTLEIKUR
Bjarkl SlgurAsson hefur verið óheppinn varðandi meiðsl.
Bjarki frá í tvo
til þijá mánuði
Eins marks tap, 19:18, gegn Spánverjum ífyrsta leik
BJARKI Sigurðsson, landsliðs-
maður í handknattleik úr Vík-
ingi, meiddist á hné eftir 20
sekúndna leik gegn Spánverj-
um rétt utan við Madríd í gær
og verður f rá æfingum og
keppni ítvotil þrjá mánuði.
Spánverjar unnu 19:18 eftir að
staðan hafði verið 10:10 íhálf-
leik.
Spánverjar byrjuðu með boltann
og skoruðu eftir liðlega tvær
mínútur. Þá kom Bjarki inná, en
20 sekúndum síðar gerðist óhappið.
„Við vorum rétt að byija fyrstu
sóknina," sagði Bjarki við Morgun-
blaðið í gærkvöldi. „Ég fékk slæma
sendingu fyrir aftan mig og teygði
mig í boltann. Við það missti ég
jafnvægið og hægri fótleggurinn
flæktist á milli fóta eins Spánveij-
ans, sem var að fara í hraðaupp-
hlaup. Mér fannst eins og verið
væri að snúa fótlegginn af mér og
sársaukinn var töluvert meiri en
þegar krossböndin fóru í hinu hnénu
fyrir tæplega tveimur árum.“
Þegar var farið með Bjarka á
sjúkrahús, hnéð myndað í bak og
fyrir og kom í ljós að sin undir
hnéskelinni hafði slitnað. Hann var
settur í spelkur og á að reyna að
koma honum heim í dag. „Það er
mikilvægt að komast í uppskurð
sem fyrst og er stefnt að aðgerð-
inni á mánudag," sagði Bjarki og
bætti við að verst hefði verið að
strákamir hefðu tapað leiknum.
Góður vamarleikur
Að sögn Geirs Sveinssonar, fyrir-
liða landsliðsins, léku bæði lið mjög
góðan vamarleik og því hefði sókn-
arleikurinn ekki náð að blómstra.
íslenska liðið komst í 14:10 í byijun
seinni hálfleiks, en Spánveijarnir
jöfnuðu og náðu tveggja marka
forystu, 19:17. íslendingar minnk-
uðu muninn og fengu tækifæri til
að jafna, vom með boltann síðustu
40 sekúndurnar, en dæmið gekk
ekki upp.
„Við getum verið sáttir við leik
okkar,“ sagði Geir, „en það er orð-
ið frekar þreytandi að tapa fyrir
Spánveijum með einu marki. Þetta
er þriðji leikurinn í röð sem fer
19:18 og sá fjórði, sem þeir vinna
með minnsta mun.“
Sigmar Þröstur Óskarsson og
Gunnar Andrésson hvíldu að þessu
sinni. Guðmundur Hrafnkelsson
byijaði i markinu og varði alls sjö
skot, en Bergsveinn Bergsveinsson
varði Qögur skot.
Mörk íslands: Júlíus Jónasson
6/1, Valdimar Grímsson 4/1, Geir
Sveinsson 3, Héðinn Gilsson 2,
Gunnar Gunnarsson 1, Konráð
Olavson 1 og Sigurður Bjamason 1*
ísland leikur gegn Noregi í dag
og síðan gegn Portúgal á morgun.
Liðið verður áfram í æfíngabúðum
a'Spáni fram í miðja næstu viku
en tekur síðan þátt í móti í Þýska-
landi um aðra helgi.
FRJALSIÞROTTIR / MEISTARAMOTIÐ
Lofaþvíaðná
ólympíulágmarkinu
- segir Sigurður Einarsson spjótkastari
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
NM STÚLKNA í DANMÖRKU
Holland - fslands......................4:1
- Hjördís Slmonardóttir.
Markvorður íslenska liðsins fékk að líta rauða
spjaldið eftir þijátíu minútna leik.
4. DEILD
Austri-KSH........................... 1:1
Viðar Siguijðnsson - ívar Ingimarsson.
Leiknir F. - Neisti D..................fr.
GOLF
Meistaramót klúbbanna:
Staðan í meistaraflokkum nokkurra klúbba
þegar leiknar hafa verið 54 holur, en keppni
lýkur f dag:
Golfklúbbur Reykjavíkur
Karlar:
Sigurður Hafsteinsson..70 76 78 224
Tryggvi Pétursson.......74 77 78 229
Siguijón Arnarsson......74 79 76 229
Konur:
RagnhildurSigurðardóttir.,74 79 81 284
Svala Óskarsdóttir.......85 82 90 257
Herborg Amarsdóttir......83 88 88 259
Golfklúbburinn Keilir
Karlar:
Guðm. Sveinbjömsson......66 64 68 198
Björgvin Sigurbergsson...72 61 69 202
Tryggvi Traustason.......67 71 67 205
Úlfar Jónsson............73 67 66 206
Konur:
Þórdís Geirsdóttir.......75 76 79 230
Anna J. Sigurbergsd......86 88 81 255
Kristín Pálsdóttir.......87 85 87 259
Golfklúbbur Akureyrar
Karlar:
Sigurpáll G. Sveinsson...78 71 77 226
Þorleifur Karlsson.......75 76 79 230
Björgvin Þorsteinsson....80 79 72 231
Konur:
Ámý L. Árnadóttir........95 86 86 267
Erla Adolfsdóttir........92 89 89 270
Jónína Pálsdóttir:.......93 86 93 273
Golfklúbbur Suðurnesja
Karlar:
Sigurður Sigurðsson......78 72 77 227
Páll Ketilsson...........77 82 78 237
Helgi Þórisson...........79 84 81 244
Konur:
Karen Sævarsdóttir.......82 85 76 243
Gerða Þorsteinsdóttir ....*...92 90 85 267
Jóna Gunnlaugsdóttir.....98 92 88 278
RutÞorsteinsdóttir.......90 96 95 281
Golfklúbbur Ness
Karlar:
JónHaukurGuðlaugsson...69 74 68 211
Hjalti Nielsen..........72 76 74 222
Vilþjálmur Ingibergsson.73 74 76 223
Konur:
Sigrún E. Jónsdóttir...94 96 101 291
Anna Einarsdóttir.....100 105 106 311
SteindóraSteingrímsd..l02 106 103 311
Golfklúbbur Vestmannaeyja
Karlar:
Þorsteinn Hallgrímsson..69 72 75 216
Júlíus Hallgrímsson.....70 73 77 220
HaraldurJúlíusson.......70 76 76 222
Konur:
Sjöfn Guðjónsdóttir.....87 86 83 256
JakobínaGuðlaugsdóttir....83 88 96 267
SigurbjörgGuðnadóttir...87 97 91 273
Tennis
Presta varð undanúrslitum karla á Wimble-
donmótinu í gær vegna rigningar og verða
leikimir í dag sem og úrslitaleikur kvenna.
„ÉG lofa því að ná lágmarkinu,
svo framarlega sem ég fæ gott
veður. Ég hef margoft kastað
yfir áttatíu metrana á æfingum
en hef verið í vandræðum með
atrennuna á mótum. En ég hef
trú á að í þetta sinn gangi allt
upp,“ segir Sigurður Einars-
son, spjótkastari sem verður í
eldlínunni i Mosfellsbæ þar
sem 66. Meistaramót íslands
verður haldið C dag og á morg-
un.
Augu flestra koma líklega til
með að beinast að spjótkast-
keppninni sem hefst kl. 15:30 í
dag. Þar verða Einar Vilhjálmsson,
Sigurður Einarsson og Sigurður
Matthíasson á meðal keppenda.
Einar hefur þegar tryggt sér réttinn
til að keppa í Barcelona en nafnarn-
ir eru báðir að falla á tíma, þeir
þurfa að kasta yfir 80 metra fyrir
þann 10. júlí til að vinna sér rétt
til keppni á Ólympíuleikunum.
Vésteinn Hafsteinsson fær verð-
uga keppinauta í kringlukastinu á
morgun því að Norðmennimir Sven
Inge Valvik og Olav Jensen taka
þátt í mótinu. Vésteinn er sá eini
þeirra sem þegar hefur náð lág-
markinu en Norðmennirnir hafa
kastað skammt frá því að undan-
förnu.
Það hefur einkennt meistaramót
síðustu ára að margir af bestu
fijálsíþróttamönnum landsins hafa
verið fjarverandi. Hið sama er ekki
upp á teningnum núna. Flestir af
sterkustu frjálsíþróttamönnum
munu sýna hæftii sína á Varmár-
veilinum. Aðeins Þórdís Gísladóttir
hástökkvari og tugþrautarmennirn-
ir Jón Amar Magnússon og Ólafur
Guðmundsson verða ekki með.
Yfirlýsing frá Þórdísi Gísladóttur
ÞÓRDÍS Gísladóttir, hástök-
kvari, sendi Morgunblaðinu
eftirfarandi yfirlýsingu:
Undirrituð hefur unnið að því
hörðum höndum undanfama
mánuði að ná lágmarki til keppni
í hástökki kvenna á Ólympíuleik-
unum í Barcelona, 1,90. Mitt
besta stökk á þessu keppnistíma-
biii, 1,86, er aðeins íjórum sentí-
metmm (2%) frá lágmarki.
Þrátt fyrir þessa stöðu hefur
undirrituð enga hvatningu fengið
frá stjóm Frjálsíþróttasambands
íslands og því síður fjárhagslegan
stuðning meðan aðrir afreksmenn
í fijálsíþróttum sem eiga lengra
í land með að ná lágmörkum til
keppni á ÓL. hafa hlotið allskyns
fyrirgreiðslu, hvatningu og fyár-
hagslegan stuðning.
Undirbúningur minn hefur
kostað gífurlega vinnu, tíma og
fjármuni sem ég sé ekki eftir. Ég
held ótrauð áfram og læt ekkert
gott tækifæri ónýtt til að reyna
að bæta við mig þeim tveimur
prósentum sem upp á vantar að
ná lágmarkinu og til að leggja
mitt af mörkum til þess að a.m.k.
ein íslensk kona verði meðal þátt-
takenda í frjálsíþróttakeppninni á
ÓL. í Barcelona.
Frestur til að ná lágmörkum
fyrir ÓL. rennur út 10. júlí. Meist-
aramót íslands í frjálsíþróttum
4.-6. júlí er að mínu mati ekki
eins heppilegur vettvangur til að
reyna við ÓL. lágmark í hástökki
kvenna og þau alþjóðlegu mót {
Svíþjóð sem undirrituð hefur
fengið boð um að taka þátt í 3.
júlí, 6. júlí og 9. júlí.
Undirrituð hefur því ákveðið
að taka ekki þátt í M.í. í fijáls-
íþróttum að þessu sinni, en vill
þess í stað leggja sitt af mörkum
til fijálsíþrótta á íslandi með því
að beijast til þrautar við ÓL. lág-
markið.
Virðingarfyllst
Þórdís Gísladóttir.
KNATTSPYRNA
LIÐ 8. UMFERÐAR
Úrvalsliðið sigraði
ÚRVALSLIÐ KSÍ sigraði ÍA 4:1
í vináttuleik sem haldinn var á
Akranesi í gærkvöldi ftilefni
hálfrar aldar kaupstaðaraf-
mælis bæjarins.
I irvalsliðið var sterkari aðilinn í
fyrri hálfleik og þeir Gunnar
Skúlason og Hörður Theodórsson
skoruðu sitt markið
Sigþór hvor fyrir hlé. Held-
Eiríksson Ur lifnaði yfir leik
Skagamanna S síðari
hálfleik þegar
gömlu kempumar Kari Þórðarson
skrífarfrá
Akranesi
og Ámi Sveinsson komu inná ásamt
yngri piltum. Úrvalsliðið komst þó
í 3:0 með marki Indriða Einarsson-
ar um miðbik hálfleiksins en Sigur-
steinn Gíslason minnkaði muninn
fyrir ÍA skömmu síðar. Einar Þór
Daníelsson átti síðasta orðið fyrir
gestina með marki á lokamínútun-
um og lokatölur því 4:1.
Oft brá fyrir þokkalegum leik-
köflum hjá báðum liðum en greini-
legt var að leikmenn vom þreyttir
eftir erfiða deildarleiki að undan-
fömu.
GOLF
Einar fór holu í höggi
Einar Guðlaugsson, flugstjóri, fór holu í höggi á Nesvellinum í fyrra-
kvöld. Hann sló glæsilegt högg með 5-járni á 6. braut, sem er par 3
og 148 metrar, og niður. Einar hefur ekki áður farið holu í höggi.