Morgunblaðið - 25.07.1992, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1992
13
Gangandi fólk með hvítan staf
og farþegar strætisvagna
eftir Arnþór
Helgason
Á þessu votviðrasama og kalda
sumri sem líður senn í aldanna skaut
hef ég stundum notað tækifærið og
gengið á milli þeirra tveggja staða
sem mér er ætlað að stunda vinnu
á, Blindrabókasafns íslands í
Hamrahlíð 17 og Hátúns 10 þar sem
eru skrifstofur Öryrkjabandalags
íslands. Er einkum hægt að velja
tvær leiðir á vegferð þessari, að
halda norður Stakkahlíð, beygja
vestur Barmahlíð og þaðan norður
Lönguhlíð yfir Miklubraut, Háteigs-
veg og eftir Nóatúni að Laugavegi,
sveigja austur á bóginn og fara yfir
hann á gönguljósum skammt frá
sjónvarpinu.
Hin leiðin liggur norður Stakka-
hlíð yfir Miklubraut og áfram eftir
Stakkahlíðinni upp á Háteigsveg,
vestur hann að Nóatúni og þaðan
eins og lýst var hér að framan. Ég
vel oftast seinni leiðina. Umferð bif-
reiða er þar minni og mengun því
af skornari skammti en við Löngu-
hlíðina.
Nú er það svo að stafkörlum eins
og mér miðar seint áfram með hvít-
an staf í hendi. Stundum hefur mér
að vísu dottið í hug að hafa hann
gylltan til þess að líkjast jólasveinin-
um í vísunni sem Friðrik Bjarnason
samdi lagið góða við og leikið var
fyrir Steingrím Hermannsson í heið-
ursskyni austur í Kína. En Hvíti staf-
urinn er nú einu sinni viðurkennt
einkennistákn blindra og gyllti staf-
urinn jólasveinanna sem sumir hafa
fundið margt líkt með stjórnmála-
mönnum vorum. Það tekur mig rúm-
an hálftíma að paufast þessa leið
milli vinnustaðanna en vafalaust
yrði ég fljótari í ferðum þyrfti ég
ekki að gæta mín og vera í mjög
spenntri stöðu til þess að vera viðbú-
inn að mæta hindrunum af ýmsu
tagi sem fyrirfinnast á gangstéttum.
Gangstéttirnar eru grafnar sundur
þegar vorar, en skurðirnir eru sem
betur fer varðir svo að sjaldan falla
menn ofan í þá. Þó er aðalástæðan
fyrir því að ekki hljótast meiðsl af
sú, að þeir sem stika áfram og beita
fyrir sig hvíta stafnum fara sér
hægt og geta því fremur stöðvað sig
ef hætta er framundan.
Þá er það plagsiður margra Reyk-
víkinga að koma bifreiðum sínum
svo kyrfilega fyrir á gangstéttum
að eigi verður komist fram hjá þeim
nema með því að fikra sig út á ak-
brautina í þann darraðardans sem
þar er. Bifreiðastjórar sem koma
aðvífandi eru oftast tillitssamir þeg-
ar slíkt ber að höndum. En þessir
hvítu stafir sem lenda undir stuður-
um kyrrstæðra bifreiða á gangstétt-
um þola það illa og eyðileggjast.
Þannig lendum vér stafkarlar í hin-
um mestu vandræðum þegar vér
höldum göngunni áfram með keng-
bogið prik sem lætur illa að stjórn.
Þriðjudaginn 7. júlí var veður
gott í Reykjavík og ég ákvað að
ganga úr Hamrahlíðinni yfir í Há-
tún. Á leiðinni sótti fortíðin á mig.
Ég rifjaði upp með sjálfum mér að
þetta væri ekki fyrsta rigningarsum-
arið sem ég upplifði. Árið 1962 gat
rignt heil ósköp þótt góðviðri kæmi
á milli. Þá var vélskipið Skaftfelling-
ur að hefja sitt síðasta siglingatíma-
bil, síldin veiddist við Norðurland og
strætisvagnasamgöngur í Reykjavík
voru betri en nú og farþegar fleiri.
Ástandið virtist mér því harla gott
að öðru leyti en því að nú fúnar
Skafti gamli uppi í slipp í Vest-
mannaeyjum og strætisvagnakerfið
er nær óhæft til nokkurs hlutar,
enda hafa forráðamenn SVR engan
skilning á því hvað almenningssam-
göngur eru og ferðast vafalítið aldr-
ei með vögnunum.
Á leið minni urðu fyrir mér nokkr-
ar bifreiðar sem ég sneiddi hjá á
gangstéttum borgarinnar. Þó varð
eitt sinn árekstur og varð mér þá
hið sama fyrir og Kjartani Ólafssyni
er hann brá deigu sverði sínu við fót
sér til þess að rétta það. Ég átti
einnig nokkur samskipti við vinnu-
tæki múrara skammt frá Háteigs-
kirkju sem stóð þar á miðri.gang-
stétt. Segir ekki frekar af ferð minni
þar til ég kem upp í Öryrkjabanda-
lag, en þá var prik mitt ónýtt og
verður væntanlega fleygt þegar tími
gefst til. Ég fagnaði því að hafa
nýlega fengið nýtt prik hjá Sjónstöð
íslands og átti því varaprik, en sjón-
stöðin er nú lokuð vegna sumarleyfa
og því fátt um bjargir.
Fijálsir vegfarendur
Fyrir nokkrum árum stofnuðu
nokkrir einstaklingar samtökin
Fijálsa vegfarendur sem gáfu út
límmiða til þess að líma á bifreiðar
sem hafði verið lagt upp á gangstétt-
ir. Bitnaði herferð þessi einkum á
Reykvíkingum en hefði mátt fara
víðar því á Seltjarnarnesi og í Kópa-
vogi er þessi siður tíðkaður og Akur-
eyringar eru einna verstir. Lögregl-
an var ekki ánægð með framtak
þetta og kvartaði við mig, en ég
hafði verið kjörinn talsmaður sam-
takanna. Ég bar því við að eigi
væri hægt að stöðva herferð þessa
því búið væri að dreifa rúmlega
10.000 límmiðum og ég vissi eigi
hveijir hefðu tekið við þeim. Reiði
þeirra bílstjóra sem urðu fyrir því
að valda gangandi vegfarendum
óþægindum og fá límmiða á fram-
rúðuna í staðinn var mikil og urðum
vér talsmenn samtakanna fýrir
nokkrum óþægindum.
Eftir gönguferðina þriðjudaginn
7. júlí hugsaði ég að nú væri tími
kominn til róttækra aðgerða. Sakn-
aði ég nú þess að vera formaður
fjölmennra heildarsamtaka og verða
að sitja á strák mínum. Ég ímynd-
aði mér hvað gerast myndi ef ég
Arnþór Helgason
„Maðurinn, Arnþór
Helgason, formaður
Oryrkjabandalags Is-
lands, bar því við að
hann hefði orðið fyrir
hnjaski af völdum bif-
reiða sem lagt hefði
verið á gangstéttum.“
tæki mig til, gengi með klaufhamar
og skeytti skapi mínu á þeim bifreið-
um sem á vegi mínum yrðu um gang-
stéttir. Eftirfarandi frétt gæti þá
birst í útvarpinu:
Lögreglan handtók óðan niann í
Reykjavík í dag, er hann gekk ber-
serksgang og eyðilagði fólksbifreið-
ar sem á vegi hans urðu. Maðurinn,
Arnþór Helgason, formaður Ör-
yrkjabandalags íslands, bar því við
að hann hefði orðið fyrir hnjaski af
völdum bifreiða sem lagt hefði verið
á gangstéttum. Talið er að Arnþór
hafl valdið tjóni sem skiptir hundruð-
um þúsunda. Hann hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald og verður
gert að sæta geðrannsókn.
Vafalaust yrði samúð bifreiðaeig-
enda með þessum bijálaða manni
lítil. Svo illa gæti að vísu farið að
nafns míns yrði ekki getið í fréttinni
heldur sagt að blindur maður hefði
verið handtekinn eða staðinn að
verki og þá myndi reiði bifreiðaeig-
enda snúast gegn hópi blindra Is-
lendinga. En hvort er nú meiri geð-
veila fólgin í því að missa stjóm á
skapi sínu og vinna á bifreiðum sem
valda hættu eða koma þessum bif-
reiðum þannig fýrir að þær valdi
bæði meiðslum og skaða?
Árið 1979 skrifaði ég lofgrein um
íslendinga og samskipti mín við fólk
á förnum vegi. Sú lofgrein stendur
enn fyrir sínu því að enga þjóð kann
ég betur við en hina íslensku. Þó
eru þar á meðal óræstiskvistir sem
spilla hag samborgara sinna með
skeytingarleysi sínu. Borgaryfirvöld
ýta undir þessa óræstishegðun með
því að gera samgöngukerfi borgar-
innar þannig úr garði að það nýtist
sárafáum og illa þeim er kjósa að
nýta það. íslendingar spýja nú álíka
miklum gróðurhúsaáhrifaefnum út í
andrúmsloftið og aðrar þjóðir. Það
sem veldur minni mengun hér á landi
er fámennið og dreifbýli, en þar sem
mikil umferð er á litlu svæði og
þéttbýlt eins og í Reykjavík er illt
að anda að sér andrúmsloftinu.
Þegar vér sjáum fram á minnk-
andi þjóðarframleiðslu um tíma er
lag að reyna að hagræða í þjóðarbú-
skapnum. Ein hagræðingin gæti
fólgist í að endurskoða samgöngu-
kerfi Reykjavíkurborgar og sveitar-
félaga í nágrenni hennar þannig að
bæjarhverfi tengdust betur með tíð-
um ferðum. Með tíð og tíma færi
þannig að borgaryfírvöld högnuðust
á slíkri aðgerð því viðhald gatna
minnkaði og andrúmsloftið batnaði.
Það þýðir lítt að velta fyrir sér nýjum
samgöngutækjum ‘ ef leiðakerfi
strætisvagnanna verður ekki endur-
skoðað og ferðum fjölgað.
Höfundur er formaður
Öryrkjabandlags íslands
JAZZ?
Árið 1933 fæddist blökkustúlka í Norður-Karólínufylki í Bandarikjun-
um. Hún var skirð Eunice Waymon. Hún lagði stund á píanóleik,
þótti mjög efnileg, sótti um styrk til framhaldsnáms við Curts Instit-
ute í Fíladelfíu, en var hafnað vegna litarháttarins. Það o.fl. gerði
þessa ungu stúlku að þeirri Ninu Simone sem svo margir dá í dag.
Það er kaldhæðnislegt en sennilega stöndum við aðdáendurnir í
þakkarskuld við þetta hróplega ranglæti.
eftir Kristin Helgason
Hvar værum við stödd, sauðsvart-
ur almúginn, ef við nytum ekki hand-
leiðslu sérfróðra manna þar sem
þekking okkar þrýtur? Vísast færi
margur maðurinn að reyna að draga
eigin ályktanir án þess náttúrlega
að hafa til þess vit eða getu. Þann
veginn var nærri komið fyrir mér
um daginn. Ég var í hópi þeirra
tæpu þúsund áheyrenda sem að
kvöldi 4. júní fylltu Háskólabíó til
að hlýða á Ninu Simone og tríó henn-
ar; Leopoldo Flemming, sem af hár-
fínu næmi skreytti músíkina klingj-
andi slagverki auk þess að klappa
þar til gerðum trommum af list-
fengi; AI Shackman, afbragðs gítar-
hljómborðs- og víbrafónleikara sem
frúin titlaði eitthvað í áttina að tón-
stjóra sínum og síðast en ekki síst
trommuleikaranum Paul Robinson
sem ég sannfærðist um að væri besti
trommuleikari í heimi (og þó víðar
væri leitað).
Hann fékk þessa skinnstrengdu
hólka og pjáturdiskana til að flytja
áheyrendum allan tilfinningaskal-
ann, frá blíðasta hvísli upp í reiðiösk-
ur, allt eftir efninu, auk taktfestunn-
ar að sjálfsögðu (sem svo margir
kollegar hans virðast telja það eina
sem þeim beri að standa áheyrendum
skil á auk ómælds hávaða). Tilþrif
hans í „Three penny opera“ gleym-
ast mér seint. Állur þótti mér flutn-
ingur og samleikur hópsins með slík-
um snilldarbrag að þar yrði vart
bætt um betur, og konsertinn í heild
einhver sá besti sem ég hef notið.
Þijá galla get ég þó tíundað. I. Ég
saknaði frekari einleiks frúarinnar á
hljóðfærið því þó það sé fjarri mér
að vanþakka hinn ágæta söng Sim-
one er það þó fyrst og fremst henn-
ar óvenju fágaði píanóleikur (stíil)
sem heillað hefur mig áratugum
saman. II. Stýrimaður hávaða keyrði
tónlistina nokkrum sinnum út yfir
bjögunarmörkin (en e.t.v. verður ekki
hjá slíku komist á fremstu bekkjun-
um séu engar ráðstafanir gerðar til
jöfnunar hljómflutnings um salinn).
Þessi ungi maður með derhúfuna við
mögnunarstjómborðið var þó hógvær
miðað við marga sína líka sem bein-
línis tryllast á takkaborðinu og virð-
ast helst stefna að því með gífur-
legri hávaðamengun að flæma áheyr-
endur út sem fyrst. Þriðji gallinn
skrifast ekki á reikning frúarinnar
heldur var hann klisjukenndur og
fremur ófrumlegur jazz Reykjavíkur-
kvartettsins í byijun tónleikanna.
Ekki svo að skilja að þarna væru
ekki hinir ágætustu spilarar heldur
vantaði mig þessa fágun og neistann
(sem vonlaust er að lýsa með-orðum)
sem skilur á milli snilldarinnar og
meðalmennskunnar. Best féll mér
framlag bassaleikarans, þá sjaldan
heyrðist til hans fyrir trommuleikar-
anum, dugnaðarpilti, sem meðhöndl-
aði trommusettið eins og þar færi
svarinn flandmaður í fleiri ættliði og
hann ætti þessa einu kvöldstund til
að jafna um hann. En vonandi nær
þessi ungi maður að halda kraftinum
en hemja hvatvísina með tímanum.
Svona hefðu skoðanir mínar orðið til
frambúðar ef Guðjón nokkur Guð-
mundsson hjá Mogganum hefði ekki
komið vitinu fyrir mig daginn eftir.
Umfjöllun hans var stutt og afdrátt-
arlaus. Mér hafði einfaldlega skjátl-
ast hrapallega, að vísu ekki einsöml-
um, því eins og Guðjón segir „hlaut
hún (Simone) fádæma góðar viðtökur
áheyrenda“. í gagnrýni á lagaval
segir hann: „rétt eins og á sviðinu
væri risastór glymskratti með alls
konar tónlist en ekki skapandi lista-
maðud'. Þetta hefði ég ekki uppgötv-
„Hvar værum við stödd,
fáfróður almúgi, ef við
hefðum ekki sérfræð-
inga til að leiða okkur
á hálum vegum visk-
unnar?“
að af sjálfsdáðum, en nú sé ég auðvit-
að að það útilokar að um skapandi
listamann sé að ræða ef borið er
niður í meira en einum stíl. „Ekki
örlaði á einleiksköflunum, hvorki hjá
Simone sem einnig lék á píanó, né
hjá undirleikurum hennar" ... Þama
brást mér aftur bogalistin. Ég hafði
í einfeldni minni verið hæstánægður
með þá einleikskafla sem ég heyrði
(m.a. langt forspil A1 Shackman á
víbrafón í einu verkinu) og hvergi
saknað hefðbundins kvótakerfis
klisjujazzins.
Síðar segir: „Raunar varþað ákaf-
lega villandi af hálfu Listahátíðar-
nefndar að láta sem um djasstónleika
væri að ræða — ekki veit pistlahöf-
undur hvað þetta var“.
Að vísu stendur í kynningarriti
Listahátíðar: „og eins og gerist með
framúrskarandi listamenn er erfitt
að flokka hana undir ákveðna stefnu,
ákveðinn stíl. Hún leikur jazz, blús,
þjóðlagatónlist, soul, gospel, sveita-
og trúarsöngva" og......tekur þá tón-
list sem höfðar til hennar, gerir úr
henni sína eigin tónlist og gæðir
hana sínum eigin persónulega stíl“.
Nina Simone, sem á rúmlega 40
ára tónlistarferil (jazz m.m.) að baki,
og bróðurpartinn með meiri og minni
heimsfrægð, sagði auk heldur frétta-
manni sjónvarps að hún myndi flytja
sitt lítið af hveiju á tónleikunum.
Það er því vel mögulegt að suma
konsertgesti hafi grunað hvað í
vændum var, en engu að síður hlýtur
það að hafa verið óviðurkvæmilegt
af Listahátíðamefnd að villa um fyr-
ir mér og plata mig á tónleika Ninu
Simone undir yflrskini jazzins fyrst
Guðjón segir það. Ég hélt líka að
ástæðan fyrir því að ég fór ekki að
hlusta á Jon Hendricks væri að ég
hef aldrei hrifíst neitt sérstaklega
af honum, en þökk sé Guðjóni að
mér er nú ljóst að það stafar af því
að hann var auglýstur undir Rúrek
en ekki Listahátíð. Ekki jók það held-
ur sjálfsálitið að sjá svart á hvítu
um djasskvartett Reykjavíkur að
„þar var tónlistarlegur metnaður í
fyrirrúmi“ og „frábær flutningur
góðrar djasssveitar“ þótt mér þætti
vissulega ánægjulegt að takmörkuð
hrifning mín yfir þeim skyldi vera
misskilningur.
Einnig segir Guðjón:
„Það var lýsandi dæmi um ríkj-
andi smekkleysi á þessum tónleikum
að áheyrendur stóðu upp í lok tón-
leikanna og hylltu þessa söngkonu í
þeim tilgangi að fá hana til að syngja
dægurklisjuna My Baby...“
Og ég sem hélt að ég hefði, í hrifn-
ingu, verið að klappa fyrir óviðjafn-
anlegum flutningi þessarar tæplegu
sextugu svörtu konu og tríósins sem
með henni spilaði, auðvitað í voninni
um að fá meira að heyra. Ég vissi
hreinlega ekki að ég hefði verið að
klappa upp dægurklisjuna „My baby
just cares for me“ en hafði heldur
ekkert út á það að setja (hefði kosið
ýmislegt annað frekar, en frúnni láð-
ist að leita ráða hjá mér).
Ég segi enn og aftur, hvar væmm
við stödd, fáfróður almúgi, ef við
hefðum ekki sérfræðinga til að leiða
okkur á hálum vegum viskunnar?
Guðjón á miklar þakkir skilið fyrir
að leiðrétta kompás smekkvísinnar
hjá konsertgestum Háskólabíós þetta
júníkvöld.
1
Höfundur er kortagerðarmaður
og ómcnntaður tónlistarunnandi.