Morgunblaðið - 25.07.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.07.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1992 21 þurfti að kenna og aðstoða á ýmsa lund. Af miklum hagleik og natni smíðaði hann mér margs konar leik- föng, sem ég sé enn fyrir mér, og voru sum þeirra glæsileg og vönduð; eru þau enn eftirminnilegri fyrir það að á þeim tímum var fátt til fanga um þess háttar munaðarvöru í versl- unum. Fyrir allnokkrum árum sagði Haukur skilið við málaraiðnina og sneri sér að öðrum og ólíkum starfs- vettvangi, sem varð honum afar hugleikinn. Hóf hann nú skrifstofu- störf á saumastofunni Vöku á Sauð- árkróki; keypti hann það fyrirtæki nokkru síðar, ásamt Sigurði Frosta- syni, og starfaði þar síðan sem fram- kvæmdastjóri til dauðadags. Hefur sú vara, sem þar er framleidd, vakið athygli fyrir smekkvísi og vandaðan frágang. í banalegu Hauks var hug- ur hans mjög bundinn við framtíð fyrirtækisins og hag starfsfólksins, en starfsemi af þesu tagi hefur — svo mikilvæg sem hún er — reynst afar áhættusöm. Ég tel mig geta mælt fyrir munn fleiri er ég segi, að sjaldan hafí ég komið á vinnu- stað, er bauð af sér öllu betri þokka en saumastofan Vaka. Hæfileikar Hauks Stefánssonar voru margþættir og umtalsverðir, þótt eigi væri honum gjarnt að halda þeim á loft. Áhugasviðið var einnig afar víðtækt framan af árum þótt síðar færðust áhugamálin í fastari en um leið þrengri farveg. Hann var listelskur frá unga aldri og hafði einkum áhuga á myndlist; var hann reyndar sérlega listfengur, manna drátthagastur og jafnframt oddhag- ur. Á yngri árum teiknaði hann vel og mikið. Fer alls ekki á milli mála, að hann hefði hæglega getað lagt fyrir sig dráttlist, með góðum árangri, ef hugur hans hefði staðið einbeittur til þeirra hluta. Hvers kyns hönnun lék honum alla tíð í höndum, enda nýttust honum þá verkhyggindi með listfenginu. Ég minnist þess t.d., að fyrir mörgum árum gerði hann fullkomnar vinnu- teikningar af fallegri einkaflugvél, sem hann hugðist sjálfur smíða, og mun sú teikning hafa hlotið sam- þykki flugmálayfirvalda. Stundum greip hann til fíngerðra smíða, sem báru hagleik hans gott vitni, en stað- næmdist sjaldan lengi við þau verk- efni. Hann var listaskrifari og gat brugðið fyrir sig skrautritun. Líklegt er, að listfengi Hauks hafí á stundum fengið einhveija útrás í húsamálun- inni og þá ekki síður við framleiðslu vandaðs tískufatnaðar úr íslenskri ull, auk þess sem hann fékkst við leiktjaldamálun um skeið, en ekki orkar þó tvímælis, að honum hefði getað orðið mun meir úr þessum hæfileikum sínum hefði hann öðlast nauðsynlega þjálfun og síðar fengið starfsvettvang á því sviði. Haukur var mjög bókelskur og las mikið, enda bjó hann alla tíð að góðum bókakosti. .Fyrr á árum var lestrarefni hans nokkuð sundurleitt og af ýmsum sviðum, þó einna helst fagurbókmenntir, en með tímanum beindist lesturinn í vaxandi mæli að ritum um flugmál, svo sem brátt verður vikið að. Ætíð hafði hann áhuga á þjóðlegum efnum og þess má vel minnast hér, að hann átti frumkvæði að því, að Hannes Pét- ursson skáld bjó til útgáfu úrval rit- aðs máls eftir föður hans, Stefán Vagnsson (Úr fórum Stefáns Vagns- sonar, Reykjavík 1976). Haukur unni ferðalögum og naut þess mjög að kynnast framandi stöð- um. Á ég þá fyrst og fremst við utanlandsferðir, sem hann fór marg- ar um dagana og sem voru honum kært umræðuefni, en minna fór hann um hér innanlands og undi sér að jafnaði best á heimaslóðum. Meðal þeirra landa, er hann hreifst mjög af, var Frakkland, en þangað fóru þau hjónin nokkrum sinnum, ýmist með ferðahópi eða á eigin vegum. Fyrir nokkrum árum hittist svo á, að ég og kona mín dvöldumst nokkra daga í París á sama tíma og Haukur og Minnie gistu borgina; áttum við þar saman góðan tíina og duldist ekki hve Haukur naut sín vel í þess- ari heimsborg, enda heimsvanur. Þessar stundir rifjaði hann upp með mér eigi löngu fyrir dauða sinn og fann ég glöggt hve endurminningin um þessa daga ornaði honum. Allt frá æskuárum hafði Haukur brennandi áhuga á flugmálum. Á ungum aldri hafði hann hug á að leggja fyrir sig atvinnuflugmennsku en örlögin ætluðu honum aðra starfsbraut. Einkaflugmannsprófí iauk hann hins vegar og tók einnig þátt í svifflugi á Sauðárkróki síðar meir. þar var hann alla tíð í fremstu röð flugáhugamanna og vænti ég þess, að þar megi lengi sjá ummerki áhuga hans og kunnáttu. Hvatti hann og örvaði aðra til dáða í þess- um efnum. Hann beitti sér m.a. fyr- ir því, að á sumrin voru haldnir „flugdagar" á Sauðárkróki, sem mikla athygli vöktu í hópi íslenskra flugáhugamanna — og jafnvel einnig erlendra. Hafði hann lengi náin sam- skipti við ýmsa flugáhugamenn, bæði hér á landi en jafnframt erlend- is, einkum á Bretlandi. Dæmi eru þess, að hann fengi kunnáttumenn á þessu sviði til að leiðbeina áhuga- mönnum á Sauðárkróki eða sýna listir sínar þar. Er vafalaust mörgum minnisstætt, er hann fékk breska kunnáttumenn í loftbelgjaflugi til að sýna kúnst sína á Sauðárkróki, á óvenjuhátíðlegum flugdegi, er þar var haldinn sumarið 1988. Var sá flugdagur Hauki á allan hátt sér- stakt gleðiefni. Við þetta sama tæki- færi hafði hann m.a. forgöngu um veglega sýningu í Safnahúsi Skag- firðinga, er helguð var minningu dr. Alexanders Jóhannessonar, prófess- ors og háskólarektors, sem var einn hinn helsti forystumaður í flugmál- um íslendinga fyrr á öldinni, en Alexander ólst upp á Sauðárkróki og fæddist á bænum Gili í Borgar- sveit þar skammt frá. Má með sanni segja, að Haukur hafi látið sig minn- ingu dr. Alexanders miklu varða og ástæðulaust er að í gleymsku falli, að hann bar fyrstur manna fram tillögu um það, opinberlega, að flug- vellinum á Sauðárkróki yrði form- lega gefíð nafnið „Alexandersflug- völlur“ (sjá ágæta grein Hauks um það efni í Morgunblaðinu 9. janúar 1976), en á fyrrnefndum flugdegi 1988 staðfesti samgönguráðherra að lokum þá nafngift. Svo sem vænta mátti fór Haukur m.a. oftar en einu sinni á hinar nafnkunnu flug- sýningar sem haldnar eru í Farn- borough í Englandi og flugsögusöfn heimsótti hann í nokkrum löndum, m.a. Bretlandi og Frakklandi, enda var honum flugsagan einkar hug- leikin þótt hugurinn væri samt eigi síður bundinn við nýjustu tækniþró- un og framtíðarsýn. Við iðkun þessa áhugamáls síns kynntist Haukur að sjálfsögðu fjölda góðra manna og veit ég, að hann verður mörgum þeirra minnisstæður. í framhaldi af því, sem nú var sagt um þetta hjart- ans mál Hauks, skal þess einnig getið, að um áratuga skeið safnaði hann að sér miklu efni — einkum erlendum bókum og tímaritum — um flugmál og kynnti hann sér þetta fræðiefni af gaumgæfni. Þykir mér ólíklegt að margir hafí þeir verið hér á landi, sem betur hafí verið að sér en hann á ýmsum þeim sviðum, sem þetta heimildasafn tók til, né heldur átt sambærilegt safn. Haukur hafði um dagana marg- vísleg afskipti af félagsmálum á sín- um heimaslóðum. Auk félagsstarfa að flugmálum, m.a. í Flugklúbbi Sauðárkróks og Svifflugfélagi Sauð- árkróks, átti hann árum saman sæti í stjórn Iðnaðarmannafélags Sauðár- króks og starfaði í nefndum á vegum þess félags. Sat hann stundum þing og ráðstefnur, sem þeim málefnum tengdust. Af öðrum trúnaðarstörfum Hauks má einnig nefna, að hin síð- ari árin var hann iðnfræðslufulltrúi á Norðurlandi vestra. Fyrir mörgum árum var hann einnig um sinn fram- kvæmdastjóri Alþýðuhússins á Sauðárkróki. Hann mun hafa verið einn • af stofnfélögum Lionsklúbbs Sauðárkróks og um árabil starfaði hann í Leikfélagi Sauðárkróks og málaði þar leiktjöld ásamt vini sínum og starfsbróður, Jónasi Þór Pálssyni. Haukur Stefánsson var um margt dulur maður og fjarri fór því að hann flíkaði tilfínningum sínum eða áhyggjum. Sumum þótti gæta ein- þykkni í fari hans, sem má vera rétt að nokkru marki; víst er a.m.k. að hann skipti ógjarnan um skoðun á mönnum eða málefnum eftir að hann hafði komist að niðurstöðu, þá venjulega eftir rólega íhugun. í framkomu var hann hægur og frem- ur hlédrægur, en bak við rólegt fas hans bjuggu skapsmunir, sem síst af öllu voru léttvægir en hins vegar vel tamdir. í öllu var hann hið mesta prúðmenni. Þótt nokkurs þunga gætti á stundum ef á móti blés eða honum þótti réttu máli hallað — þó að mörg orð hefði hann eigi um — var skaphöfn hans öfgalaus og við- mótið að jafnaði ljúfmannlegt og sannarlega átti hann margar gleði- stundir í hópi vina og vandamanna og var þá sjálfur gleðigjafí. Trygg- lyndur og einlægur var hann vinum sínum og dýrmætt var að eiga hann að vini. Yfirbragð Hauks var bjart og drengilegt, svipfallið í senn góð- legt og greindarlegt. Helstríð sitt, sem var þungt en stutt, bar hann hetjulega. Hann andaðist á Land- spítalanum í Reykjavík en fær nú hvíld í skagfírskri mold, í vígðum reit á hæðum yfír Sauðárkrókskaup- stað þaðan sem útsýni er mikið og vítt um héraðið fagra sem hann unni og þar sem hann átti sterkar rætur ætternis, uppeldis og starfs. Blessuð sé minning hans. Páll Sigurðsson. Kveðja frá Lionsmönnum. Hann barst ekki mikið á. Hann var ekki með málskraf úr ræðustóli á fundum. Hann kvað ekki dóma yfír mönnum eða málefnum — eða því sem klúbbfélagarnir gerðu — eða gerðu ekki. En hann var á sinn hógværa og hljóðláta hátt einn af þeim mönnum sem var kjölfestan í starfi Lionsklúbbs Sauðárkróks. Hans vettvangur var fyrst og fremst í nefndum og stjórn klúbbsins, en þar gegndi hann á sínum ferli tíðum þýðingarmiklum störfum. Þrátt fyr- ir þá litlu mynd sem hér var dregin upp, var hann þar ráðagóður og útsjónarsamur og hafði skoðanir á því sem gera átti og gera þurfti. Átti hann oftar en ekki þá hvað stærstan hlut að því að taka ákvarð- anir — og hrinda þeim í fram- kvæmd. Þar nutu sín ekki síst hinir óvenjulegu listrænu hæfíleikar sem hann bjó yfír í svo ríkum mæli. Ógleymanlegar eru okkur ýmsar teikningar og skreytingar sem hann var aðalhöfundur að, t.d. í tengslum við árshátíðir. Þar kom líka svo vel fram hans einstaka kímnigáfa — oft í léttu gríni um félagana. í minni okkar eru líka önnur árshátíðar- verkefni, t.d. þegar var sett upp u.þ.b. klukkutímadagskrá þar sem fluttir voru allir söngvarnir úr leik- ritinu kunna: „Þið munið hann Jör- und“ og tengdir saman með töluðu máli og verkið sviðsett. Handrit, stjóm og uppfærslan öll fýrst og fremst verk Hauks. Þá lá hann ekki á liði sínu þegar fjáröflunarverkefni voru á döfínni og munaði þeim mun meira um hann í hópnum sem verk- efnin voru stærri og viðameiri. Við minnumst t.d. þess tíma sem klúbb- félagar tóku að sér að mála togara Útgerðarfélags Skagfírðinga í fjár- öflunarskyni. Þetta gerðum við í nokkur ár — og þar var Haukur fremstur í flokki þeirra sem skipu- lögðu og stjórnuðu því verki. ' Undirritaður á Hauki sérlega þakklætisskuld að gjalda. Þegar mál réðust svo að ég yrði umdæmis- stjóri Lionsumdæmis 109 B 1984- 1985, var aldrei á því vafí að ég veldi hann sem minn nánasta sam- starfsmann. Var hann umdæmisrit- ari það árið — enda átti hann sinn þátt í að mál skipuðust á þennan veg. Hann reyndist góður sam- starfsmaður, traustur og ráðhollur og átti dijúgan þátt í að mér tókst þó að skila þessu verkefni af mér. Þegar „maðurinn með ljáinn“ fer um vitum við dauðlegir menn aldrei hvar hann ber niður næst. Um það tjóir ekki að fást. Þegar vinimir og félagamir falla er hinsvegar ómet- anlegt að eiga um þá slíkar minning- ar sem við Lionsmenn eigum um Hauk Stefánsson. Við sendum eftir- lifandi eiginkonu, Minnie Leósdótt- ur, og öðmm aðstandendum innileg- ar samúðarkveðjur. Jón Karlsson. Friðfríður Jóhanns- dóttir - Minning Fædd 20. mars 1923 Dáin 15. júlí 1992 Með fáeinum orðum langar mig til að kveðja elskulega ömmu mína, Friðfríði Jóhannsdóttur, er andaðist þann 15. júlí síðastliðinn. Mér brá ónotalega við fregnina um andlát hennar þó svo að hún kæmi ekki á óvart þar sem amma hafði lengi átt við veikindi að stríða. En þegar ein- hver manni nákominn hverfur frá þyrlast oft minningamar upp. Ég ri^aði upp heimsóknimar til ömmu og afa í Hjaltadalinn hér áður fyrr. Hvemig amma tók alltaf á móti okk- ur síkát og brosandi út að eyrum og smitandi hláturinn í ömmu rak alltaf á burt alla ferðaþreytu. Ég minnist þess líka hvemig hún svæfði okkur á kvöldin með því að fara með bæn- ir eða Ijóð fyrir okkur en amma hafði unun af ljóðum og kvæðum og kunni ógrynnin öll af þeim. Efst í minningunni er þó lífsgleðin og kátinan sem ávallt geislaði af henni. Amma var mikil útivistarmann- eskja og þrátt fyrir að veikindin væru farin að hamla henni þvi að fara í langar gönguferðir þá kvaddi hún mig í síðustu heimsókn minni hjá henni með þeim orðum að ég yrði endilega að koma aftur norður í haust og fara með henni í berja- tínslu. En dauðinn sigraði fyrr en nokkurn grunaði og amma verður ekki með í beijatínslunni í haust nema þá í minningunni þar sem hún þeysist á milli beijaþúfnanna hress og brosandi eins og henni var einni lagið. Ég kveð ömmu með söknuði og votta þér elsku afí mína dýpstu sam- úð sem og öðrum aðstandendum og vinum Fríðu ömmu. Birgitta Guðrún. Góður nágranni er sem fjölskyldu- meðlimur og þannig var tilfinning mín gagnvart Friðfríði frá Hlíð í Hjaltadal, sem var að ljúka dvöl sinni hér á jörð og verður til moldar borin á Sauðárkróki í dag. Henni kynntist ég strax og ég flutti að Hrafnhóli en hún bjó þá á næsta bæ sem var mikil gæfa fyrir mig og fjölskyldu mína. I þessu nábýli vorum við í 27 ár og fjölskyldur okkar tengdust óslítanlegum böndum. 1 öllum af- mælum og stórhátíðum voru boð á milli bæjanna svo og í hversdagsleika var mjög náin samstilling. Friðfríður Jóhannsdóttir var fædd 20. mars 1923 að Brekkukoti (nú Laufskálum) í Hjaltadal. Hún var lagleg, rösk, greind og hláturmild, en föst fyrir á meiningu sinni í hví- vetna og traust. Að öllum konum ólöstuðum var hún sú hreinlátasta sem ég hef kynnst. Það var sem óhreinindi tolldu hvorki við heimili hennar né í hugskoti. Gift var hún eftirlifandi manni sínum, Guðmundi Ásgrímssyni frá Hlíð, og voru þau hjónin systkinaböm, samrýnd og samtaka í einu og öllu. Þau eignuð- ust fímm mannvænleg böm sem em: Jóhann Birgir, Ásgrímur Sigurvin, Guðrún Hólmfríður, Margrét Frið- rika og Guðmundur Gísli. Er eldur eyddi að mestu heimilinu á Hrafnhóli haustið 1979 reyndust vinir okkar margir og er aldrei full- þakkað Skagfírðingum og öðmm rausn þeirra og ekki bmgðust Hlíðar- hjón þá frekar en endranær. Er við fluttum til Akureyrar 1980, fluttu þau frá Hlíð til Sauðárkróks og hafa búið þar æ síðan. Ég og fjölskylda mín þökkum Fríðu samfylgdina og biðjum Guð að blessa minningu hennar og ást- vini. Fjóla Kr. ísfeld. í dag laugardaginn 25. júlí verður til moldar borin Friðfríður Jóhanns- dóttir tengdamóðir mín kær eða Fríða eins og hún var ávallt kölluð. Hún andaðist á Sjúkrahúsi Skagfirð- inga, Sauðárkróki, miðvikudaginn 15. júlí eftir stutta legu. Fríða fæddist og ólst upp í Brekku- koti, nú Laufskálum í Hjaltadal, Skagafirði, hún var yngst barna þeirra hjóna Jóhanns Guðmundsson- ar bónda, Brekkukoti, og konu hans Birgittu Guðmundsdóttur. Fríða ólst upp við leik og störf í Brekkukoti eins og gerðist í þá daga og gekk í bamaskóla. Veturinn 1943-1944 sat hún Kvennaskólann á Blönduósi. 21. september 1941 giftist hún eftirlif- andi manni sínum Guðmundi Ás- grímssyni fæddum 17. maí 1913. Guðmundur er frá Hlíð í Hjaltadal og þar bjuggu þau hjónin til ársins 1980 og komu fimm bömum á legg. Þótt jörðin væri lítil komust þau hjón í ágæt efni á þessum árum enda fjöl- skyldan ákaflega samhent um bú- skapinn. Börn þeirra Fríðu og Guðmundar eru: Jóhann Birgir sölumaður, fædd- ur 1. febrúar 1942, kona hans er Erla Davíðsdóttir, þau búa í Reykja- vík og eiga þrjú börn. Ásgrímur Sig- urvin leigubilstjóri, fæddur 4. apríl 1945, kona hans er Þórhildur J. Sæmundsdóttir, þau búa í Reykjavík og eiga tvö böm. Guðrún Hólmfríður hjúkranarfræðingur og ljósmóðir, fædd 29. desember 1955, hún á einn son, barnsfaðir Guðrúnar er Jón Stef- ánsson, hún býr í Reykjavík. Mar- grét Friðrika rekur bókhaldsskrif- stofu, fædd 7. júní 1959, maður hennar er Kári Sveinsson, þau búa á Sauðárkróki og eiga saman tvö börn. Guðmundur Gísli rafvirki, fæddur 14. apríl 1966, kona hans er Thelma Knútsdóttir, þau búa í Reykjavík. Þegar ég kynntist Fríðu höfðu þau hjónin bragðið búi og flutt til Sauðár- króks og var mér strax tekið opnum örmum á þvt heimili enda þau hjón bæði mikið sóma fólk. Fríða var þjarkur til allrar vinnu og í sveitinni hafði hún yndi af umhirðu skepna enda glögg á fé og natin. Hún unni náttúra landsins og hafði gaman af að ferðast um landið. Fríða var ótrú- lega létt á fæti og mikill göngugarp- ur fram á síðustu ár. Hún var vel gefin og hélt minninu þrátt fyrir veikindi sín, kunni mikið af vísum og gat þulið heilu kvæðabálkana ef því var að skipta. Hún var staðföst í trúnni og trúði á annað tilverustig. Á árinu 1986 tók heilsu Fríðu mjög að hraka en í ágúst það ár fékk hún heilablæðingu og lá milli heims og helju á Borgarspítalanum, ég átti ekki von á eftir að hafa heim- sótt hana þar, að hún kæmist aftur á fætur. En Fríða af sinni alkunnu þrautseigju og festu lét ekki bugast og var komin á fullt skrið áður en nokkum varði og enn bættist við áfall í desember 1991 og annað í maí 1992 en hún komst enn heim og brosti bara að klaufaskapnum i sjálfri sér þegar henni fipaðist. Fríða var ávallt vel studd af bónda sínum sem annaðist hana síðustu árin og sá um heimili þeirra. Það eru ekki allir sem fá hinstu bón sína uppfyllta eins og segja má um Fríðu. Hún hafði oft orð á því dagana áður en hún veiktist síðast, að hana langaði að fara til Akureyrar og það varð úr að sonur hennar og tengdadóttir, j Gísli og Thelma, fóru með þau hjón- 3 in til tveggja eftirlifandi systra henn- ar og vinafólks á Akureyri, en dag- * inn eftir veiktist Fríða og komst ekki * til meðvitundar eftir það. Kæri tengdafaðir, ég veit að þú í sorgum ‘ þínum verður styrkur sem hingað , til. Megi Guð vera með þér. Kári Sveinsson. 7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.