Morgunblaðið - 09.08.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
VELVAKAIVIÐI SÚNNUtFÁGUR 9. ÁGÚST 1992 C 21
BEÐIÐ EFTIR STRÆTO
Athugasemdir um málfar
Frá Auðuni Braga Sveinssyni:
Fyrir nokkrum vikum ritaði ég stutt
lesendabréf í Morgunblaðið, sem
birtist nokkuð fljótt. - Fjallaði það
um ástkæra, ylhýra málið okkar,
sem því miður er oft illa með farið.
Væntanlega ekki með vilja, en
vegna vanþekkingar. í fyrrnefndu
bréfi benti ég á að persónufornafn-
ið „það“ væri ofnotað hjá allt of
mörgum. Tilfærði ég nokkur dæmi
því til sönnunar og gerðist svo djarf-
ur að benda á betri notkun þessa
fornafns. Oft væri það óþarft, eink-
um í upphafi setninga.
Nýlega leit ég yfir dagblað eitt
um eina viku, og dvaldist einkum
við minningargreinarnar. Því miður
eru margar þeirra af vanefnum
gerðar, hvað málnotkun snertir.
Setningar of langar og endurtekn-
ingar tíðar. Verst er þó ofnotkun
þessa fyrrgreinda fornafns: það.
Eg tilfæri hér nokkrar setningar,
eins og þær komu fram í dagblað-
inu.
1. „Það er nauðsynlegt fyrir fólk
hvar sem er á landinu að gæta
að eignum sínum og bílum.“
Betra: Nauðsynlegt er fyrir
fólk ... o.s.frv.
2. „Það var fyrir réttum tíu árum,
að hópur Siglfirðinga lagði land
undir fót.“ Betra: Fyrir réttum
tíu árum lagði hópur Siglfirð-
inga land undir fót.
3. „Það liggur engum svo mikið
á, að hann megi ekki vera að
því að lifa.“ Betra: Engum ligg-
ur svo mikið á, að mega ekki
vera að því að lifa.
4. „Það var einmitt. á sama tíma
og myndlistarmenn rífa sig
lausa frá einstefnu og ofríki
Parísarskólans, að hugtakið
módernismi varð til.“ Betra:
Einmitt á sama tíma og mynd-
listarmenn rifu sig lausa frá
einstefnu og ofríki Parísarskól-
ans, varð hugtakið módernismi
til.
5. „Það er mikils virði á lífsleið-
inni að kynnast góðu fólki.“
Betra: Mikils virði á lífsleiðinni
er að kynnast góðu fólki.
6. „Það var á sameiginlegum
vinnustað, sem ég kynntist J.“
Betra: Ég kynntist J á sameig-
inlegum vinnustað.
7. „Það er líka mikilvægt að
drekka ekki frá sér skynsem-
ina.“ Mikilvægt er líka að
drekka ekki frá sér skynsem-
ina.
8. „Það eru margar góðar minn-
ingar, sem vakna.“ Margar
góðar minningar vakna. Óþarft
virðist að hafa setningar sem
allra lengstar.
9. „Það var þá, sem ég ákvað að
ég skyldi halda áfram að læra
að leika betri tennis.“ ... Þá
ákvað ég að halda áfram að
læra að leika betri tennis . . .
Sautján orð verða að tólf!
10. „Það er ástæða til að nefna
greinina um Sigurð Nordal sér-
staklega.“ ... Astæða er til að
nefna greinina um, o.s.frv.
11. „Það liggja engar augljósar
ástæður til þessara auknu vin-
sælda.“ Engar augljósar
ástæður liggja til þessara
auknu vinsælda.
12. „Það eru þjóðir af norrænu
kyni, sem eru virkastar í þeirri
baráttu." .. .Þjóðir af norrænu
kyni eru virkastar, o.s.frv.
13. „Það var franski greifinn
Goheaneau sem fyrstur kom
með kenninguna um gildi hins
norræna kynstofns í bók sinni
„Um misjafnt gildi mann-
flokka“, sem út kom árið
1853.“ . . . Franski greifinn G
kom fyrstur með kenninguna
um gildi hins norræna kyn-
stofns, o.s.frv.
14. „Það má spyija, hvers vegna
alltaf þurfi að spilla allri gleði
með fyrirfram áhyggjum.“ . ..
Spyrja má, hvers vegna,
o.s.frv.
Frá Valdimar Elíassyni:
Eitt vinsælasta umræðuefnið í þjóð-
félaginu við hátíðleg tækifæri t.d.
nálægt kosningum, er mjög kröpp
kjör hinna lægt launuðu, svo
skrautleg sem þau eru. Við um-
ræðuvettvang sem þennan eru allir
í slíkum ham, að halda mætti að
nú loksins eigi að taka til hendinni
og lagfæra misréttið og ósóman.
En þegar frá líður, þá fellur bara
allt í sama farið.
Margir úr þessum láglaunahópi
hafa samt með þrautseigju áorkað
að koma sér upp íbúð og jafnvel
einhverri mynd af bíl. Síðan er
framundan hörð barátta við skuld-
aklafann og ástandið spennist upp.
Einn anginn af svartnætti þessa
fólks er óregla, sem oftast setur
allt á annan endann. Þegar hér er
komið er bara hugsað um líðandi
stund, en ekkert hugsað um afleið-
ingamar. Sé íbúðin í hljóðbæru fjöl-
býli, þá er allt í voða, því friðhelgi
lögheimilisins tryggir að enginn
má skipta sér af vígvellinum þó
allt nötri og skjálfi.
Slíkt ástand til lengdar, getur
smám saman spillt heimilislífi ná-
grannanna endanlega, því alltaf er
reynt að afsaka og fyrirgefa, til að
fá einhvetja friðarpásu.
15. „Það hefur alltaf verið erfitt
að vera einstæð móðir.“ . . .
Alltaf hefur verið erfitt að vera
einstæð móðir.
16. „Það er gott að eiga samvisku-
sama embættismenn." ... Gott
er að eiga samviskusama emb-
ættismenn.
17. „Það má að vísu segja.“ .. .
Segja má að vísu.
18. „Það er margt forvitnilegt, sem
getur að líta“ . .. Margt for-
vitnilegt getur að líta. Þarna
■ má spara þijú orð!
19. „Það verður að horfast í augu
við það, að vinnuafl er auð-
lind.“... Horfast verður í augu
við, að vinnuafl er auðlind. —
Verum stuttorð og gagnorð!
20. „Það er enginn staður í Nýja
Testamentinu, sem greinir frá
því að Kristur hafí breytt um
tilbeiðsludag frá laugardegi til
sunnudags." Trúlega hefur
höfundurinn ætlað að orða
setninguna á þessa leið: Enginn
staður í N.T. greinir frá því, að,
o.s.frv.
AUÐUNN BRAGI SVEINSSON
Hjarðarhaga 28, Reykjavík.
Ekkert þýðir að tala við lögregl-
una, því hún hefur mjög takmarkað
athafnaleyfí vegna friðhelgarinnar.
Jafnvel þótt svefnlausir og stjarfír
einstaklingar leiti á náðir lögregl-
unnar, þá er ætíð höfðað til að
meta þurfi hvert einstakt tilfelli og
útkoman úr því mati er þá gjarna:
- Því miður, þetta er ekki okkar
mál.
Ef fólkið í þessu dæmigerða fjöl-
býli ætla sér að reyna að leysa
málið, þá getur það orðið vanda-
samt ef húsnæðið er á vegum
stjórnar verkamannabústaða. Þá
þorir fólk ekki annað en halda að
sér höndum vegna þess að réttur
eigandi hefur flúið ástandið og leig-
ir bara draslið út.
í þessum hamingjusama velferð-
arkerfi okkar er því til fólk sem
verður að notast við bómul i eyrun
og jafnvel svefnmeðul sem einu
lausnina til að komast gegnum nótt-
ina, því enginn hlustar af alvöru á
kvartanir og enn færri vilja koma
nálægt málinu til lausnar. Fólk
verður því bæði langþreytt og von-
laust. Þökk sé friðhelgi lögheimilis-
ins.
VALDIMAR ELÍASSON
Nýbýlavegi 74, Kópavogi
Um friðhelgi
lögheimilisins
KÖFUNARNÁMSKEIÐ!
Lærið köfun á stórskemmtilegum og persónulegum nám-
skeiðum í ágúst og september. Allur tækjabúnaður og ís-
lenskar kennslubækur fylgja námskeiðunum.
Farið verður í skoðunarferðir neðansjávar og skoðað merki-
legt dýralíf. Þátttakendur útskrifast með NAUI alþjóðlegt
köfunarskírteini. Hringið og fáið upplýsingar í síma 25755
kl. 8-18 og 672576 eftir kl. 18 og um helgar.
Héraðsskólinn Núpi
Nám í 10. bekk og 2ja ára framhaldsdeild
á almennu bóknámssviði, íþróttabraut,
uppeldisfræðibraut og viðskiptabraut.
Fornám fyrir áramót.
Mjöggóð aðstaðatil
íþrótta og félagsstarfa
í skemmtilegu
umhverfi.
Upplýsingar í símum
94-8236,94-8241 og
94-3855 (Pétur).
Skólastjóri
Bókhalds-og
rekstramám
72 klst.
Byrjar 14. september
Námið er hnitmiðað og sérhannað með þarfir atvinnulífs-
ins í huga. Markmið námsins er að útskrifa nemendur með
víðtæka þekkingu á bókhaldi og færslu tölvubókhalds.
Aðalnámsgreinar:
• Hlutverk bókhalds, bókhaldslög
• Bókhaldsæfingar og reikningsskil
• Viðskiptamannabókhald
• Launabókhald
• Virðisaukaskattur
• Raunhæft verkefni - afstemmingar og uppgjör
• Tölvubókhald - Opus Allt
Ef þú vilt auka þekkingu þína á bókhaldi, styrkja stöðu þína á
vinnumarkaðinum, starfa sjálfstætt og/eða geta notað bók-
hald sem stýritæki í eigin fyrirtæki, þá er þetta nám fyrir þig.
Viðskiptaskólinn býður uppá litla hópa, einungis reynda leið-
beinendur, bæði dag- og kvöidskóla, sveigjanleg greiðslukjör.
Sérstakt grunnnámskeið haldið 7.-10. september.
Takmarkaður fjöldi á hvert námskeið.
Innritun þegar fiafin.
Viðskiptaskólinn
Skólavörðustfg 28, Reykjavík
Sími 61 41 62