Morgunblaðið - 22.09.1992, Side 2
2661 H3ÖM3T433 ,SS HUOAGTJlQIH<í QIQAJÖVIUDHOM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1992
Morgunblaðið/Agúst
Fyrsta síldin kom á land í Neskaupstað
FYRSTA síldin sem veiðist á þessari vertíð barst til
Neskaupstaðar í gærdag. Það var Þðrshamar GK
sem kom með um 150 lestir sem hann fékk í einu
kasti á Papagrunni. Síldin var stór og falleg. Fituinni-
hald reyndist 17-18%. Hún verður flökuð og söltuð
fyrir Norðurlandamarkað. Einnig er ætlunin að
frysta hluta af sfld þessari í beitu. Á síðustu vertíð
barst fyrsta síldin til Neskaupstaðar mánuði seinna
en nú eða 21. október. Börkur NK kom til hafnar
í dag og skipti um nót og hélt síðan á síldarmiðin
en þar voru fjórir aðrir bátar að veiðum þegar Þórs-
hamar fékk sfldina. Agúst.
/ Grundarbotni við Grundarfjörð
hafa um 5.000 rúmmetrar af jarð-
vegi horfíð 7
Hafið
í dag
Jarðsig
Súsanna Svavarsdóttir skrifar um
uppfærslu Þjóðleikhússins á leikriti
Olafs Hauks Símonarsonar 14
Skordýrœitur í vodka___________
Óleyfilegt magn skordýraeiturs
hefur fundist í rússneska vodkanu
Stolitsnaja 27
Leiðari________________________
Hvert nú, Evrópa? 28
Landsbankinn
hafnar viðskipt-
um að óbreyttu
Á FUNDI sem þingmenn Norðurlandskjördæmis vestra áttu með
tveimur bankastjórum Landsbankans í gærdag um rækjuvinnsluna
Meleyri hf. á Hvammstanga kom fram að Landsbankinn mun ekki
taka Meleyri í afurðalánaviðskipti aftur að öllu óbreyttu. Hinsvegar
mun Landsbankinn reiðubúinn til viðræðna við forráðamenn Meleyr-
ar og mun Guðmundur Tr. Sigurðsson stjórnarformaður Meleyrar
eiga fund með bankastjórunum í fyrramálið.
íþróttir
► Aðeins selt í sæti á HM-leik-
inn gegn Grikklandi - Margir
knattspyrnumenn á faraldsfæti
- Eyjólfur frá í tvær vikur -
Nýliðarnir efstir í handboitanum
Rækiuvinnslan Meleyrí á Hvammstanga
Morgunblaðið/Júlíus
Aðalleikvángurinn flóðlýstur
KVEIKT var á nýju flóðljósunum á aðalleikvanginum í Laugardal í
gærkvöldi, en 38 ljóskastarar eru á hveiju hinna fjögurra mastra.
Þau verða fyrst notuð í landsleik í knattspyrnu 7. október nk.
Þorski úr Barentshafi
landað til vinnslu í Ejfjum
Vestmannaeyjum.
FRYSTIHUSIN í Vestmannaeyjum hafa keypt 187 tonn af frystum
og hausskornum þorski úr Barentshafi af rússneskri útgerð. Fiskin-
um var landað úr togara frá Murmansk í Eyjum í gær.
Fimmtán hringanna voru saman
í einum kassa. Þeir voru skreyttir
með rúbín- og safírsteinum og út-
söluverð hvers þeirra er 7.900 kr.
Níu hringar voru saman í öðrum
kassa og var útsöluverð þeirra frá
19-115 þúsund kr.
Hringamir voru í glerskáp sem
festur er á vegg verslunarinnar og
voru engar læsingar á skápnum.
Afgreiðslustúlka verslunarinnar
var ein að störfum og var að af-
greiða viðskiptavin þegar hún sá
tvo menn koma inn. Hún sá þá
skoða sig um en veitti þeim ekki
frekari athygli. Þegar hún hafði
lokið við að afgreiða viðskiptavin-
inn tók hún eftir því að mennirnir
voru famir út úr versluninni og
hringarnir í skápnum voru horfnir.
Rannsóknarlögregla ríkisins fer
með rannsókn málsins.
Vinnslustöðin kaupin tvo þriðju
þorsksins og ísfélagið þriðjung.
Úlfar Steindórssón fjármálastjóri
Vinnslustöðvarinnar sagði í gær að
fiskurinn virtist vera ágætur, en
nokkuð misstór. Hann vildi ekki
gefa upp kaupverðið og sagði að
eftir væri að taka út gæði og meta
fiskinn. Vinnslustöðin ætlar að láta
hluta aflans í vinnslu í saltfiskpökk-
unarverksmiðju sinni en nota hinn
hlutann í frystingu þegar lítið er
um hráefni.
Úlfar sagði að framhald þessara
viðskipta færi eftir því hvemig
þetta hráefni kæmi út í vinnslunni
en þeir og seljendurnir vildu skoða
málið áfram. Grímur
vilji af hálfu bankastjóranna að
ræða þetta mál við forráðamenn
Meleyrar og kanna hvort hægt
væri að finna flöt á málinu.
Guðmundur Tr. Sigurðsson segir
að staða fyrirtækisins verði mjög
erfið komi Landsbankinn ekki að
nýju inn í þessi viðskipti og atvinna
þeirra 50-60 manna sem vinna hjá
fyrirtækinu verði í mikilli hættu.
Skuldir Meleyrar nema nú um 200
milljónum króna og eignir á móti
nema svipaðri upphæð. Ástæða
þess að Landsbankinn lokaði fyrir
afurðalánaviðskipti Meleyrar er að
í ljós kom í sumar að fyrirtækið
hafði farið 20-25 milljónir króna
framyfir veðheimildir sínar í bank-
anum miðað við birgðir, að sögn
Guðmundar.
------» ♦ »-----
Viðræður við
Shevardnadze
EDÚARD Shevardnadze, forseti
Georgíu, mun hafa stutta viðdvöl
hér á landi í dag. Hann ræðir
þá við Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og Jón Baldvin Hanni-
balsson utanrikisráðherra.
Shevardnadze er á leið til New
York til viðræðna við bandaríska
ráðamenn. Flugvél hans á að milli-
lenda á Keflavíkurflugvelli síðdegis
og mun Shevardnadze hitta ís-
lenzku ráðherrana að máli í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar.
Pálmi Jónsson þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins segir að þingmenn-
imir hafí viljað ræða við banka-
stjóra Landsbankans um þann
vanda sem við væri að etja á
Hvammstanga og athuga þá mögu-
leika sem til væm í þessari stöðu
um áframhaldandi fyrirgreiðslu.
Sverrir Hermannsson og Halldór
Guðbjamason sátu fundinn af hálfu
bankans. Pálmi segir að greinilega
hafi komið fram að bankinn sé ekki
tilbúinn, að öllu óbreyttu, að halda
áfram afurðalánaviðskiptum við
Meleyri. En jafnframt kom fram
Hollendingar staðfesta áform
um sæstrengsverksmiðju hér
Hagkvæmnisathuganir vegna sæstrengs hefjast væntanlega í október
YFIRVOLD í Hollandi hafa mik-
inn áhuga á umhverfisvænni
orku frá íslandi og eru ánægð
með þá viljayfirlýsingu sem gerð
hefur verið á milli þriggja hol-
lenskra orkufyrirtækja, Reylga-
víkurborgar og Islenskra sæ-
strengja hf. Líkt og áður hefur
komið fram í Morgunblaðinu
byggist yflrlýsingin m.a. á því
að kanna skuli hvort hagkvæmt
sé að flytja orku frá Islandi í
gegnum sæstreng til HoIIands og
að reist verði verksmiðja til
kapalframleiðslu í Reykjavík. Að
sögn Piet Wijnen, sem er upplýs-
ingafulltrúi verkefnisins í Hol-
landi, hafa hollensku fyrirtækin
þrjú, NKF Kabel, EPON og
PGEM, áhuga á að samningur
um hagkvæmnisathugun náist og
munu vera ánægð með að ís-
lenskir aðilar séu fúsir til sam-
starfs. Wijnen staðfesti að m.a.
væri áformað að byggja kapal-
verksmiðju í Reykjavík en gert
er ráð fyrir að slík verksmiðja
geti skapað um 400 atvinnutæki-
færi.
„Kapall frá íslandi til Hollands
myndi vera um 1.800 km og nauð-
synlegt er að byggja verksmiðjuna
á íslandi. Mér skilst að það sé mikil-
vægt fyrir íslenskt efnahagslíf þar
sem slík verksmiðja myndi skapa
atvinnu og styrkja efnahagslífið,"
sagði Wijnen í samtali við Morgun-
blaðið. Að undanfömu hafa þessar
hugmyndir verið kynntar fýrir ráða-
mönnum í Hollandi og í gær voru
þær fyrst kynntar fyrir fjölmiðlum
í Hollandi.
NKF Kabel er stórt kapalfram-
leiðslufyrirtæki, EPON er orku-
. framleiðslufyrirtæki fyrir austur-
og norður-Holland og PGEM er
orkudreifingarfyrirtæki í héruðun-
um Gelderland og Flevoland í Hol-
landi, þar sem alls búa um 2 milljón-
ir manna. Árleg velta þessara
þriggja fyrirtækja er um 120 millj-
arðar króna og hjá þeim em um
5.000 starfsmenn.
í fréttatilkynningu sem send var
til fjölmiðla í Hollandi í gær segir
frá viljayfirlýsingunni sem gerð
hafi verið. í tilkynningunni kemur
fram að í hagkvæmnisathugun
þurfi að kanna þijá meginþætti.
Byggingu vatnsaflsstöðva með
1.000 MW-afli á íslandi, flutning á
raforkunni til Hollands með há-
spennukapli á sjávarbotni og einnig
þurfí að kanna byggingu sæ-
strengsverksmiðju í Reykjavík til
að framleiða þessa kapla.
Gert er ráð fyrir að fyrri hluti
hagkvæmnisathugunar hefíst um
miðjan október en ljúki fyrir ára-
mót. Þá verður tekin ákvörðun um
hvort athuguninni verður haldið
áfram og ef svo verður þá mun
hagkvæmnisathugun að fullu verða
Skartgriparán
Hringnm
fyrir hálfa
millj. stolið
24 gullhringum að verðmæti
um 550 'þúsund kr. var stolið
skömmu fyrir hádegi sl. laugar-
dag úr skartgripaverslun Jóns
Sigmundssonar á Laugavegi.
Hringarnir voru í sýningarkassa
inni í versluninni og svo virðist
sem þjófarnir hafí teygt sig eft-
ir skartgripunum.
lokið á næsta ári. Eins og áður
hefur komið fram í Morgunblaðinu
er gert ráð fyrir að heildarkostnað-
ur við hagkvæmnisathugun verði
um 100 milljónir króna, Hollending-
ar greiði 80% þess kostnaðar en
Reykjavíkurborg 20%. Ef hag-
kvæmnigathuganir reynast jákvæð-
ar er gert ráð fyrir að hollenskir
neytendur fái aðgang að umhverfis-
vænni raforku á árunum 2005 til
2010.