Morgunblaðið - 22.09.1992, Síða 7

Morgunblaðið - 22.09.1992, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTBMBER 1992 7 Jarðsig í Grundarfirði Grundarfirði. í SVOKÖLLUÐUM Grundarbotni við Grundarfjörð hafa um 5.000 rúmmetr- ar af jarðvegi horfið, Um er að ræða 400 m langan, 7 m breiðan og að meðaltali 2 m djúpan skurð sem mynd- ast hefur meðfram vegarkafla sem liggur upp að réttum Eyrarsveitar. Skurður þessi var ekki þarna í fyrra- haust og enginn veit hvernig hann hefur orðið til. Þegar starfsmenn Eyrarsveitar hugð- ust lagfæra réttarveginn nú fyrir skömmu gengu þeir fram á þennan skurð. Grundarbotn er talinn vera gamall sjávar- botn og er þar þykkt lag af sjávarmöl en ofan á því er u.þ.b. metra þykkt mold- arlag og grassvörður efst. Hefur grass- vörðurinn og moldin og 1 m þykkt lag af möl sópast burt á þessum 400 m langa kafla, en engin leið er að sjá hvert þess- ir 5.000 rúmmetrar hafa farið, því ekki eru sjáanleg nein merki um að jarðvegur- inn hafi runnið úr skurðinum eftir yfir- borði jarðar. Dettur mönnum helst í hug að holrúm hafi verið undir þessu svæði og þangað hafi jarðvegurinn runnið. Þetta eru þó eingöngu vangaveltur leikmanna, því að sérfræðingar hafa ekki enn skoðað þetta. Gamlir menn í sveitinni segja eftir öfum sínum að á þessu svæði hafi stór- fljót runnið neðanjarðar hér áður og fyrr- meir, en hvort svo er enn er með öllu óvíst. - Hallgrímur Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon Skurðurinn, þar sem jarðsig hefur orðið í Grundarfirði. Drengurinn á myndinni heit- ir Björn Þór Þorsteinsson. 0,l%hækkun á húsaleigu og bygging- vísitölu VÍSITALA byggingarkostnaðar eftir verðlagi um miðjan septem- ber reyndist vera 188,9 stig sam- kvæmt útreikningum Hagstof- unnar og hækkar um 0,1% frá því í ágúst. Þessi vísitala gildir fyrir október 1992. Vísitala byggingar- kostnaðar hefur hækkað um 1% síðastliðna 12 mánuði, en síðustu þijá mánuði hefur vísitalan hækk- að um 0,2% og samsvarar það um 0,6% hækkun á ári. Hagstofan hefur jafnframt reikn- að launavísitölu fyrir september- mánuð 1992 miðað við meðallaun í ágúst síðastliðnum, og er vístalan 130,2 stig, eða óbreytt frá fyrra mánuði. Samsvarandi launavísitala sem gildir við útreikning greiðslu- marks fasteignaveðlána er einnig óbreytt og er því 2.848 stig í októ- ber 1992. Leiga fyrir íbúðarhúsnæði og at- vinnuhúsnæði sem samkvæmt samningum fylgir vísitölu húsnæðis- kostnaðar eða breytingum meðal- launa hækkar um 0,1% frá og með 1. október, og reiknast þessi hækkun á þá leigu sem er í september 1992. Leiga helst síðan óbreytt næstu tvo mánuði, þ.e. í nóvember og desem- ber. Bóluefnið ekki notað hérlendis ÓLAFUR Ólafsson landlæknir vill taka fram vegna frétta í fjölmiðlum um aukaverkanir MMR-bóluefnisins að sú teg- und af þessu bóluefni sem hér um ræðir hafi ekki verið notuð hérlendis. Bóluefni þetta er gefið gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt. Fréttir hafa verið um aukaverkanir samfara notkun þessa bóluefnis í Englandi en landlæknir segir að þar sé um aðra tegund af þessu efni að ræða en notuð hefur verið hér á landi. Stýrimenn samþykktu Atkvæðagreiðsla um kjarasamn- ing fyrir stýrimenn á farskipum milli 'Stýrimannafélags íslands annars vegar og Vinnuveitendasambands íslands og Vinnumálasambands Samvinnufélaganna hins vegar, sem undirritaður var 1. september 1992, er lokið og hafa atkvæði verið talin. Atkvæðu greiddu 60 félagar eða 48,4%. Atkvæði féllu þannig að já sögðu 48 og nei sögðu 12. TIL ÞJÓNUSTU REIDUBÚNIR: KRISTJAN OSKARSSON ÆGIR ÁRMANNSSON STEINAR BIRGISSON ELLERT STEFÁNSSON JÓN HEIÐAR PÁLSSON GUNNAR ÓLAFSSON JÓHANN ÁKI BJÖRNSSON SVEINN ÁKI LÚÐVÍKSSON MAGNÚS ÓLASON (A 2 á töhíum og tölvubúnaði 24. og 25. september í Borgartúni 6 Fulltrúar frá Innkaupastofnun ríkisins og Tæknivali verða á sta&num. Sýningin verður opin frá kl. 1 3-17. 26. september er lokadagur pantana i 3. hluta rikissamnings Tæknival bý&ur ríkisstofnunum, sveitarfélögum landsins, starfs- mönnum ríkis og bæja, kennurum, nemendum á háskólastigi og framhaldsskólum vildarkjör á tölvum og tölvubúnabi. Pantanir vegna 3. hluta þurfa að berast í síðasta lagi 26. september n.k. til Agnesar Vilhelmsdóttur hjá Innkaupastofnun ríkisins, Borgartúni 7, sími 91-26844, fax 91-626739. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS ya Tæknival SKEIFAN 17- V (91) 681665, FAX: (91) 680664 A FRAMTIÐINA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.