Morgunblaðið - 22.09.1992, Síða 27

Morgunblaðið - 22.09.1992, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1992 27 Japanski kommúnistaflokkurinn Sviptu 100 ára gamlan félaga heiðurstitlinum Tókíó. Reuter. JAPANSKI kommúnistaflokkurinn hefur svipt 100 ára gamlan félaga, Sanzo Nosaka, heiðursformannstitli fyrir að svíkja einn flokksfélaganna í hendur Stalíns árið 1938, að því er upplýst var í gær. árinu 1928. Nosaka segir í bréf- unum, að hugsanlegt sé, að Ymamoto sé njósnari fyrir jap- önsk stjómvöld. Kenzo Yamamoto var tekinn af lífi árið 1939. í fréttatilkynn- ingu Kommúnistaflokks Japans segir, að hann hafi aldrei verið njósnari og staðhæfíngar í sjálf- sævisögu Nosakas um að hann hafí reynt eins og hann framast gat að bjarga lífí Yamamotos séu rangar. Akvörðunin um að svipta gamla manninn heiðurstitli sín- um verður formlega afgreidd á næsta flokksþingi. Þegar Nosaka skrifaði fyrr- nefnd bréf, dvaldist hann í útlegð í Bandaríkjunum og tók þátt í neðanjarðarstarfsemi, sem fólst í að lauma kommúnískum áróð- ursritum inn í Japan. Árið 1946 sneri Nosaka til Japans sem hetja. Hann varð þingmaður og var auk þess kjör- inn í miðstjórn kommúnista- flokksins, sem þá var nýlega orðinn löglegur í landinu. For- maður miðstjórnarinnar varð hann árið 1958. Evrópubandalagið Grænfriðungar vilja umhverfisvæna ' Nosaka, sem gekk í Kommún- istaflokk Japans árið 1922, árið sem flokkurinn var stofnaður, var handtekinn og fangelsaður og varð að sæta útlegð árum saman fyrir málstaðinn. Eftir síðari heimsstyijöldina varð hann virtur þingmaður og var formað- ur miðstjórnar flokksins í aldar- fjórðung. Þegar hann lét af störf- um árið 1982, var hann kjörinn heiðursformaður. En nú hefur Nosaka verið ýtt út í kuldann. Komið hefur í ljós, að einn af flokksfélögunum var ranglega sakaður um njósnir og lét fyrir það líf sitt frammi fyrir aftökusveitum Stalíns. Samkvæmt fréttatilkynningu flokksins komu tvö sendibréf Nosakas frá árinu 1938 og 39 í leitirnar í Moskvu fyrir skemmstu, þegar aðgangur opn- aðist að skjalasafni Kommúni- staflokks Sovétríkjanna. í bréf- unum nefnir hann Kenzo Yama- moto, sem um þær mundir átti sæti í stjórn Alþjóðasambands kommúnista, Comintem, fyrir hönd japanskra kommúnista, og hafði búið í Sovétríkjunum frá sjávarútvegsstefnu Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Umhverfisverndarsamtök Grænfriðunga hafa skorað á aðildarriki Evrópubandalagsins (EB) og framkvæmdastjórn að taka sjávarút- vegsstefnu EB til gagngerrar endurskoðunar í þeim tilgangi að gera hana vistvænni. Talsmenn Grænfriðunga benda á að stefnan hafí beðið fullkomið skipbrot og ekki verði komið í veg fyrir frekara hrun fískistofna án þess að endurskoða markmið henn- ar. Það meginmarkmið að banda- lagið verði sjálfu sér nægt um sjáv- arafurðir gangi aldrei upp og leiði til ofuráherslu á veiðiheimildir utan bandalagsins. Grænfriðungar gagnrýna jafnframt harðlega að hvergi er minnst á umhverfisþætti í þeirri umræðu sem fer fram um endurskoðun stefnunnar um þessar mundir. Talsmenn Grænfriðunga segja að sjávarútvegur innan EB sé í úlfa- kreppu ofveiði og hnignandi físki- stofna án þess að bent hafí verið á nokkra leið út úr kreppunni. Ljóst sé að engin breyting verði á ef grundvallaratriðum stefnunnar verði ekki breytt. Leggja verði meiri áherslu á umhverfísþætti í stefn- unni og hún byggð á því að raska sem minnst lífríki sjávar en ekki byggt eingöngu á efnahagslegum markmiðum sem iðulega séu til skamms tíma. Talsmenn samtakanna lýstu sér- stökum áhyggjum vegna þeirrar áherslu sem lögð er á það innan EB að afla veiðiheimilda innan lög- sagna annarra ríkja. Grænfriðung- ar vara við þessari þróun sem sé í rauninni einungis útflutningur á vandamáli sem EB verði að leysa. Nú þegar stundi floti EB rányrkju bæði á úthöfunum og í lögsögum ríkja sem gerðir hafí verið samning- ar við. í tillögum sem Grænfriðungar hyggjast kynna fyrir framkvæmda- stjórn EB er gert ráð fyrir að vernd- un fískistofna og umhverfisins í sjónum verði sett á oddinn. Græn- friðungar telja að þróa verði tölvu- líkön sem taki mið af þeim upplýs- ingum sem liggja fyrir á hveijum tíma um ástand fískistofna og al- mennt ástand sjávar. Þrátt fyrir mikla óvissu og takmarkaðar upp- lýsingar megi með því móti a.m.k. tryggja að verstu kostirnir verði útilokaðir sem eigi alls ekki við þegar heildaraflamagn er ákveðið á póhtískum forsendum eins og nú sé. Samkvæmt tillögum Grænfrið- unga á það alltaf að vera í verka- hring þeirra sem hafa fjárhagslegan ávinning af veiðum að sýna fram á að fískistofnar séu ekki í hættu. -----*—♦—«--- Skordýra- eitur í Stolitsnaja Prag. Reuter. Oleyfilegt magn skordýraeit- urs hefur fundist í rússneska vodkanu Stolitsnaja sem selt er í Tékkóslóvakíu. Heilbrigðisyfir- völd þar í landi hafa sökum þessa bannað sölu á vodkanu. Að sögn Höskuldar Jónssonar forstjóra ÁTVR hefur Stolitsnaja ekki fengist hérlendis í langan tíma og þar af leiðandi þurfí ekki að bregðast við þessum fréttum frá Tékkóslóvakíu nú. Hann segir að áformað sé að ÁTVR fái þessa vodka-tegund í framtíðinni frá Dan- mörku. Þeir muni hinsvegar fylgj- ast grannt með þessum fregnum frá Tékkóslóvíku enda líti þeir al- varlegum augum á ef vara frá þeim reynist gölluð. SJÓÐSBRÉF5 Mjög öruggur sjóður sem eingöngu fjárfestir í ríkistryggðum skuldabréfum. VlB Arsávöxtun uinfrnm wröhólgu s.l. 6 mán. VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sírrii 68 15 30. l¥ress í 33 ár Hressingarleikfimi kvenna og karla Haustnámskeið heQast fimmtudaginn 24. september nk. Kennslustaðir: Leikfimisalur Lauearnesskóla oe Góðfúslega leitið upplýsinga hjá okkur STALGRINDARHÚS Getum boðið mjög vönduð stálgrindarhús frá Finnlandi. Húsin eru samþykktaf Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins og henta m.a. vel sem hlöður, gripahús, vélageymslur, reiðhallir og iðnaðarhúsnæði.. Einnig getum við boðið stálbita ásamt þakjárni á mjög hagstæðu verði. UMBOÐ/SALA: HEKLA LAUGAVEG1174 SÍMI695500 VERÐDÆMI: Stærð:: 1 1.20 x 12.40= 138m2 — 11.20 x24.40=273m2 — 14.20 x24.40=346m2 — 20.20 x 40.40=816m2 Kr. Kr. Kr. Kr. 1.025.000 1.540.000 1.932.000 4.975.000 SALA: Eyrarvegi 37 800 Selfoss Sími 98-22277

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.