Morgunblaðið - 22.09.1992, Page 32

Morgunblaðið - 22.09.1992, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1992 Afhending sjúkranuddbaðs frá Lionsklúbbi Mosfellsbæjar. Talið frá vinstri: Karl Loftsson, Asdís Hauksdóttir, forstöðumaður dval- arheimilisins, Páll Guðjónsson, Sigsteinn Pálsson, Halldór Krist- insson, Róbert B. Agnarsson bæjarstjóri, Magnús Sigsteinsson, Halldór Runólfsson, Magnús Pálsson og Björn Ástmundsson. Afhending lyftubaðstóls frá Kvenfélagi Lágafellssóknar. Talið frá vinstri: Svava Ámadóttir, Margrét Ólafsdóttir, Valgerður Magnús- dóttir, Ása Einarsdóttir, Fríða Bjarnadóttir, Róbert B. Agnarsson bæjarsljóri, Sigrún Sigtryggsdóttir og Ingunn Árnadóttir. Mosfellsbær Nýbygging við dvalarheimili aldraðra að Hlaðhömrum ANNAR áfangi dvalarheimilis aldraðra í Mosfellsbæ var formlega tekinn í notkun 9. ágúst sl. Þann dag fögnuðu íbúar Mosfellsbæjar einnig fimm ára afmæli bæjarins og af því tilefni gátu bæjarbúar gert sér dagamun víðs vegar um bæinn. Nýbygging við dvalarheim- ilið bætir úr brýnni þörf fyrir húsnæði aldraðra í Mosfellsbæ. Yfír eitt hundrað gestir voru viðstaddir opnun dvalarheimilis aldraðra að Hlaðhömrum í Mos- fellsbæ. Róbert B. Agnarsson bæj- arstjóri bauð gesti velkomna og stjómaði samkomunni. Páll Guð- jónsson, formaður byggingar- nefndar dvalarheimilisins,_ rakti byggingarsögu hússins. í máli Páls kom m.a. fram að nýbygging- in hefði á núvirði kostað um 200 milljónir króna. Þar em 14 ein- staklings- og hjónaíbúðir, en í 1. áfanga dvalarheimilisins voru fyrir 6 íbúðir. Stór hluti nýbyggingar- innar er sameiginlegt rými, sem nýtast mun til margvíslegrar þjón- ustu við aldraða, tómstundaiðkun- ar og samkomuhalds. Sr. Jón Þor- steinsson, sóknarprestur í Mos- fellsbæ, vígði húsið. Kór aldraðra flutti ættjarðarlög við undirleik Páls Helgasonar, stjórnanda kórs- ins. Fulltrúar Kjalarness- og Kjós- arhrepps fluttu dvalarheimilinu kveðjur, en hrepparnir em sam- starfsaðilar Mosfellsbæjar um dvalarheimili aldraðra. Að athöfn lokinni bauð bæjarstjóm Mosfells- bæjar gestum upp á kaffiveitingar. Margar veglegar og góðar gjaf- ir bámst dvalarheimilinu í tilefni af opnun nýbyggingarinnar. Lions- klúbbur Mosfellsbæjar færði heim- ilinu setbað með vatnsnuddi. And- virði gjafarinnar er 679 þúsund krónur og aflaði klúbburinn þess fjár með sölu blóma, sem ræktuð era í Reykjadal í Mosfellsbæ á vegum klúbbsins og sjálfboðavinnu við Lágafellskirkju á vegum sókn- amefndar. Kvenfélag Lágafells- sóknar færði heimilinu lyftubað- stól. Andvirði gjafarinnar er 177 þúsund krónur og aflaði kvenfélag- ið þess fjár með kaffisölu og þorra- blótshaldi í Mosfellsbæ. Áður hafði Kaupfélag Kjalarnesþings fært dvalarheimilinu fé til kaupa á hljóðfæri í tilefni af 40 ára af- mæli Kaupfélagsins. Keypt var píanó af gerðinni Samick sem kost- aði 260 þúsund krónur. Höggmynd var afhjúpuð utan við dvalarheimilið að Hlaðhömrum 17. júní sl. Höggmyndin kallast Stúlka með ljós og er eftir lista- manninn Guðmund Einarsson frá Miðdal. Hún er gjöf fjölskyldu listamannsins til Mosfellsbæjar. Myndin er úr jaspis og er í fullri líkamsstærð. Skömmu fyrir vígslu nýbyggingarinnar var höggmynd- inni komið fyrir á endanlegum stað norðan heimilisins, þar sem hún stendur á náttúrusteini. Stúlka með ljós er áhrifamikið og fallegt verk sem verður augnayndi öllum vegfarendum sem þarna eiga leið um. (Fréttatilkynning) Stúlka með ljós eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal er gjöf ættingja hans til Mosfellsbæjar. Höggmyndin stendur við dval- arheimili aldraðra að Hlaðhöm- rum í Mosfellsbæ. Eru þeir að fá 'ann Búðardalur Nemendum fjölgar í grunnskólanum svona. Skólinn hér hefur haft sam- starf við sveitaskóla á Vesturlandi og verður einnig svo í vetur. Skólastjóri grunnskólans er Þrúður Kristjánsdóttir. - Kristjana Morgunblaðið/Kristjana R. Agústsdóttir Nemendur Grunnskólans í Búðardal við setningu skólans. tala því ekki alveg í höfn. Ljóst er þó að þetta er miklu meiri veiði en í fyrra, er heildarveiðin var aðeins 681 lax. Það var, eins og í Víðidaln- um, þriðja lélega sumarið í röð, en veiðin í sumar er með því mesta sem komið hefur á land á einu sumri. Þó sögðu sérfræðingar við ána í sumar að aldrei hefði komið veruleg ganga í ána, það hefði verið að reytast fiskur í ána stans- laust og góð gönguskilyrði í Flóðinu hefðu gert að verkum að fiskurinn safnaðist ekki saman f Hnausa- streng eins og algengt er, heldur dreifði sér fljótt og vel um alla á. Urmull veiddist af silungi í ánni, mest góð sjóbleikja. Margir 20 til 23 punda laxar veiddust í Vatns- dalsá. Gott í Miðfirði Veiði er nú lokið í Miðfjarðará og lokahollið veiddi 52 laxa sem er til marks um veiðibatann. Loka- tölurnar em milli lv300 og 1.400 laxar, en áin rétt skreið yfir 1.000 laxa í fyrra. Þarna er því einnig um góðan bata að ræða. Tveir rúm- lega 20 punda fiskar vom stærstir í sumar, en mikið veiddist af 11 Mikill veiðibati í Húnavatnssýslum Lokatölur úr laxveiðiánum streyma nú inn og ljóst er að helstu árnar í Húnavatnssýslum hafakomið vel út í sumar. Rífandi gott sumar í Víðidalnum Alls veiddust 1.520 laxar í Víði- dalsá í sumar og er það feikna fjör- kippur frá síðasta sumri, en þá veiddust aðeins 655 laxar og var sumarið það þriðja magra í röð. Þessi lokastaða er ekki síst athygl- isverð þegar það er skoðað að óvenjulega vond skilyrði vom til veiða mikinn hluta veiðitímans, rok og kuldi. Mikið veiddist einnig af vænni sjóbleikju í ánni. Stærstu laxamir voru 23 punda, en margir 20 til 22 punda komu einnig á land. Einnig mikill bati í Vatnsdalsá Vel á ellefta hundrað laxar veiddust í Vatnsdalsá, en skráning í ánni er í þrennu lagi og endanleg / Búðardal. GRUNNSKÓLINN var settur 7. september sl. Nemendur eru heldur fleiri en siðasta vetur, verða 75 á þessu skólaári. Við skólann starfa átta kennarar og er starfslið skólans mjög stöðugt og litlar breytingar á milli ára. Grunnskólinn hefur eingöngu fag- menntaða kennara við störf og hef- ur svo verið um árabil. Skólahúsið er rúmgott og vel að skólanum búið. Ýmsar aðgerðir eru í gangi til þess að mæta niðurskurði í tíma- kvóta, samkennsla hefur verið auk- in og fyrirkomulagi í lengd kennslu- eininga breytt. Samstarf verður haft við Leikskólann í Búðardal um gæslu yngstu nemendanna sem em hér í skólaakstri og reynt á allan hátt að haga tímatöflu nemenda þannig að hún verði samfelld. Eins og undanfarna tvo vetur verður sundkennslunni lokið fyrir áramót en nemendur frá Búðardal sækja sundkennslu að Laugum og hentar því betur að haga þessu til V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill! Borgarstjórn Tillögu um umbætur í at- vinnumálum vísað til borgarráðs TILLÖGU Nýs vettvangs um að borgarsljórn samþykki auk- afjárveitingu til atvinnuskap- andi framkvæmda á þessu ári, var vísað til borgarráðs til nán- ari skoðunar á fundi borgar- sljórnar á fimmtudagskvöld. Kristín Á. Ólafsdóttir, sem flutti tillöguna, sagði atvinnuástandið í Reykjavík það alvarlegt að borgarstjórn bæri að bregðast við með því að auka fram- kvæmdir frá því sem ákveðið hefði verið í fjárhagsáætlun yf- irstandandi árs. Tillagan gengur út að að borgar- stjórn nýti 500 milljón króna auka- fjárveitingu til fjögurra verkefna, hjúkrunarheimilis fyrir aldraða, leikskóla, skólahúsnæðis í Grafar- holts- og Borgarholtshverfum og loks í framkvæmdir í þágu aukins umferðaröryggis, annars vegar til að leggja mislæg gatnamót á Kringlumýrarbraut/Miklubraut og hins vegar í undirgöng undir Miklubraut við Rauðagerði. Jóna Gróa Sigurðardóttir, Sjálf- stæðisflokki, sagði tillöguna al- mennt ágæta en þó væri nauðsyn- legt að binda sig ekki við ákveðin atriði. Jóna Gróa lagði til að tillög- unni yrði vísað til borgarráðs til nánari athugunar og var það sam- þykkt samhljóða. -----♦ ♦ «----- Slátrun hafin í Búðardal Búðardal. SAUÐFJÁRSLÁTRUN hófst 14. september hjá Afurðastöðinni í Búðardal. Slátrað mun verða 28.000 fjár. Unnið hefur verið að hagræð- ingu í rekstri afurðastöðvarinnar * og reynt að ná niður sláturkostn- aði sem hefur þótt nokkuð mikill. Vegna þessa verður færra fólk við vinnu nú en undanfarin haust, 70-80 manns, að mestu leyti heimafólk. Unnið verður fjóra daga í viku og mun sláturtíðin þess vegna standa lengur en venjulega, eða fram í október. - Kristjana til 18 punda löxum. Fremur lítið var af sjóbleikjunni að þessu sinni, þó komu skot af og til. Þrefalt í Sandá Sandá hafði gefið um 300 laxa fyrir nokkru og var veiði ekki lok- ið. Allt síðasta sumar var veiðin aðeins 100 laxar og aðeins 81 lax sumarið 1990, þama hefur því aukningin orðið vemleg. Að sögn Stefáns Á. Magnússonar, sem gjör- þekkir Sandá, hafa skilyrði til veiða seinni hluta sumars verið afleit og því sé aldrei að vita hvað hefði getað veiðst við aðrar og betri kringumstæður. „Við vomm þarna fyrir skömmu og það hafði rignt sleitulítið í þijár vikur. Þetta var orðið eins og eitthvert vatnaland. Heimafólkið man ekki aðra eins tíð. Við ætluðum að veiða klaklax í kistur, höfðum tvær með okkur, en önnur skolaðist langt niður með á og brotnaði í spón, en hinni kom- um við aldrei út vegna vatnselgs. Þrátt fyrir þetta fékk hópurinn okkar 10 laxa á fjómm dögum, en þetta var eins og júníveiði í stór- flóðum, laxinn var að taka í harða- landi,“ sagði Stefán.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.