Morgunblaðið - 22.09.1992, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 22.09.1992, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1992 Athugun á orkusölu til Hollands Engir samningar undirritaðir eða skuldbindingar um fjárframlög •• - segir Markús Orn Antonsson, borgarstjóri Á FUNDI borgarstjórnar á fimmtudag kom fram gagnrýni á borgar- stjóra vegna leyndar sem hvílt hafi yfir viðræðum hans við Hollend- inga um hugsanlega orkusölu til Hollands og byggingu verksmiðju í Reylqavík til að framleiða sæstreng. Umræðan í borgarstjórn var framhald umræðu sem fram fór í borgarráði á þriðjudag, en þar var viljayfirlýsing borgarstjóra, um að kanna grundvöll á samstarfi við Hollendinga rædd. I bókun borgarráðsmanna Sjálfstæðisflokks- ins sem þar var lögð fram segir að engir samningar hafi verið undir- ritaðir eða skuldbindingar um fjárframlög borgarinnar. I bókun fulltrúa minnihlutans er harðlega átalið að borgarfulltrúar hafi feng- ið fyrstu fréttir af athuguninni i fjölmiðlum. Jafnframt lagði Sigrún Magnúsdóttir Framsóknarflokki fram fyrirspurn til borgarstjóra um ástæðu þess að Reykjavíkurborg legði fé í sérstaka hagkvæmniathug- un á virkjunum og hvort það væri ekki hlutverk Orkustofnunar og Landsvirkjunar, en borgin er eigandi að 45% í Landsvirkjun. Borgarstjóri gerði grein fyrir við- ræðum við hollenska aðila um möguleika á orkusölu til Hollands og byggingu verksmiðju í Reykjavík til að framleiða sæstreng, á fundi borgarráðs á þriðjudag. Fulltrúar minnihlutaflokkanna lögðu fram bókun þar sem þeir átelja harðlega að jafn viðamikið mál eins og aðild borgarinnar að undirbúningi að hagkvæmnisathugun á sölu á raf- ma'gni um sæstreng skuli fyrst hafa borist þeim til eyma í fjölmiðlum, nær tveimur mánuðum eftir að borgarstjóri hafi undirritað viljayf- irlýsinguna. „Greinilegt er að borg- arstjóri treystir borgarfulltrúum ekki til að fara með viðkyæm trún- aðarmál, þótt fjöldi embættismanna hafi haft vitneskju um málið allt frá upphafi. Vantraust borgarstjóra á kjömum borgarfulltrúum er að okkar mati ámælisvert," segir í bókuninni. í bókun sjálfstæðismanna segir að það hafí verið að ósk hollensku aðilanna að málið yrði ekki tekið upp til pólitískrar umræðu og al- mennrar umíjöllunar meðan það var á undirbúningsstigi. „Engir samn- ingar hafa verið undirritaðir. Engar skuldbindingar hafa verið gerðar um fjárframlög Reykjavíkurborgar til verkefnisins." Borgarstjóri hafi eingöngu undirritað viljayfírlýsingu um að kannaður verði grundvöllur til samstarfs við Hollendinga er meðal annars taki til hugsanlegrar verksmiðju sem reist yrði í Reykja- vík til að framleiða sæstreng til orkuútflutnings. „Til slíkrar undir- ritunar hefur borgarstjóri umboð og var leitað sérstakrar staðfesting- ar lögfræðinga borgarinnar þar um. Leiði undirbúningsvinnan sem nú fer fram til þess að fyrir liggi til- laga að samkomulagi um hag- kvæmnisúttekt verður hún að sjálf- sögðu lögð fyrir borgarráð og borg- arstjórn til afgreiðslu," segir í bók- uninni. í fyrirspurn Sigrúnar Magnús- dóttur til borgarstjóra, kemur fram að atvinnuskopun í borginni sé já- kvæð og að bygging sæstrengs- verksmiðju gæti verið skref í þá átt en hún óski eftir ítarlegri greinar- gerð borgarstjóra um málið og svör við nokkrum spurningum. Spurt er hvaða ástæða sé til að borgin leggi fjármuni í hagkvæmniathuganir á orkusölu til Hollands, þar sem slíkt sé á verksviði Markaðsskrifstofu Landsvirkjunar og iðnaðarráðu- neytisins. Jafnframt hvaðan borg- arstjóra komi heimild til að lofa fjár- framlögum til verkefna sem hvorki borgarráð eða borgarstjórn hefur verið gerð grein fyrir. Á fundi borgarstjórnar á fímmtu- dag var borgarstjóri gagnrýndur fyrir þá leynd sem hvílt hefði yfir viðræðunum. Sigrún Magnúsdóttir sagði að henni hefði nánast á götu- horni, verið boðið að fá trúnaðar- skjalið. „Þetta mikla trúnaðarplagg sem búið er að halda leyndu fyrir borgarráði í tvo mánuði er að þvæl- ast um borgina," sagði Sigrún. Guðrún Zoega, Sjálfstæðisflokki, gagnrýndi einnig málsmeðferðina og sagðist undrast af hveiju slík leynd hafí þurft að hvíla yfir mál- inu. Þá gagnrýndi hún efni málsins og sagðist í því sambandi telja að betra væri að bíða og sjá hvað kæmi út úr könnunum Markaðs- skrifstofunnar og Landsvirkjunar. „í þriðja lagi tel ég að borgin eigi ekkert erindi inn í svona samninga og athuganir, ekki fyrr en á miklu seinni stigum ef það kæmi í ljós að þetta gæti reynst áhugaverður kostur," sagði Guðrún. Markús Orn Antonsson, borgar- stjóri, sagðist hafa kannað það hjá lögfræðingum borgarinnar áður en viðræður við Hollendingana hófust, hvort honum væri heimilt að eiga frumkvæði að slíkum viðræðum. Þegar ljóst hefði verið að svo væri hefði hann hafið viðræðurnar ásamt nokkrum embættismönnum borgar- innar. Hann sagði að þó borgarráð og borgarstjóri færu með fram- kvæmdavald í borginni fæli það ekki í sér að borgarstjóri aðhefðist ekkert nema að fylgja eftir fyrir- framgerðum samþykktum borgar- ráðs eða borgarstjórnar. Brids Umsjón Arnór G. Ragnarsson Vetrarmitcell B.S.Í. Fyrsta kvöld Vetrarmitcell var í Sigtúni 9, föstudagskvöldið 18. sept- ember. 18 pör mættu til leiks og efstu pör urðu: N/S: Oli Bjöm Gunnarsson - Eyjólfur Magnússon 268 Höskuldur Gunnarsson - Þórður Sigfússon 260 Ámína Guðlaugsdóttir - Bragi Erlendsson 225 A/V: Elín Jónsdóttir - lilja Guðnadóttir 276 FriðrikJónsson-RúnarHauksson 226 Bemódus Kristinsson - Þórður Bjömsson 224 Vetrarmiteell verður spilaður með sama sniði og í fyrravetur, eins kvölda mitcell keppni og hefst kl. 19 í Sig- túni 9. Allir velkomnir. SKráning á staðnum. Bridsdeild Víkings Vetrarstarfið hefst í kvöld með eins kvölds tvímenningi. Spilað er í Víkinni og hefst spilamennskan kl. 19.30. Félagar fjölmennum strax á fyrsta spilakvöld vetrarins. Bridsfélag Breiðfirðinga Átján pör spiluðu michell-tvímenn- ing sl. fimmtudag og urðu úrslit þessi: Norður/suður: Gísli Steingrimsson - Sigurður Steingrimsson 268 AlbertÞorsteinsson-KristóferMagnússon 233 SveinnÞorvaldsson-PállÞórBergsson 226 Austur/vestur: Matthías Þorvaldsson—Ljósbrá Baldursdóttir 261 Eyþór Hauksson - Bjöm Svavarsson 237 Þorleifur Þórarinsson - Jóhannes Laxdal 228 R AÐ/A UGL YSINGAR Sinfóníuhljómsveit íslands óskar eftir að ráða í stöðu starfsmannastjóra sem fyrst. Viðkomandi þarf að eiga auðvelt með mann- leg samskipti og hafa áhuga á sígildri tónlist. Umsóknarfrestur er til 1. október nk. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu hljóm- sveitarinnar í Háskólabíói og í síma 622255. KENNSLA Raddbeiting - söngur Langi ykkur að fá leiðsögn þá er ég til í að hjálpa ykkur. Nú er að drífa sig. Upplýsingar í síma 36084, Svanhildur. Málverkauppboð Gallerí Borg heldur málverkauppboð á Hótel Sögu sunnudaginn 4. október nk. Verk, sem bjóða á upp, þurfa að berast eigi síðar en mánudaginn 28. september nk. BORG listmunir - sýningar - uppboð, Pósthússtræti 9, 101 Reykjavík. Sími 24211. Pósthólf 121-1566. Fax 624248. Innkaupastofnun ríkisins, f.h. Bókaútgáfu Menningarsjóðs, óskar eftir kauptilboðum í útgáfurétt, bókalager og prentfilmur útgáf- unnar. Tilboðsgögn eru seld á skrifstofu vorri í Borg- artúni 7, Reykjavík, á kr. 1.500,- Kauptilboð verða opnuð á sama stað kl. 11.00 f.h. þann 1. október 1992 í viðurvist viðstaddra bjóðenda. IIMIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISIIMS ________BORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK_ Barnakór í Seljakirkju Fyrirhugað er að stofna yngri og eldri barna- kór í Seljakirkju. Viðtöl vegna inntöku verða í kirkjunni mið- vikudaginn 23. september nk. Yngri kór 7-8 ára börn kl. 17.30-18.30. Eldri kór 9-12 ára börn kl. 16.30-17.30. Kórstjórar Seljakirkju. Samband veitinga- og gistihúsa heldur aðalfund á Hótel KEA, Akureyri, 5. og 6. október nk. Þátttaka óskast tilkynnt í síma 27410 eða 621410. IIFIMDAIIUK Aðalfundur Heimdallar Aðalfundur Heimdallar, félags ungra sjálf- stæðismanna I Reykjavík, verður haldinn í Valhöll, Háaleitisbraut 1, fimmtudaginn 24. september kl. 20.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Heiðursgestur Markús Örn Antonsson. Ath. Skrlfleg framboð til stjórnar og for- manns skulu hafa borist stjórn félagsins á skrifstofu þess fyrir kl. 20.00 í kvöld, þriðjudag 22. september. I.O.O.F. Rb. 1 = 1429228 - F.L. FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533 FerAir um næstu helgi 1. Laugardagur 26. sept. kl. 09: Hagavatnsskáli 50 ára. Skemmtileg afmælisferðað Hagavatni. Áhugavert land- svæði, sem alltof fáir þekkja. Það þarf að skrá sig f ferðina á skrifstofunni, Mörkinni 6, sími 682533. 2. Sunnudagur 27. sept. kl. 10.30. Þjóðleið 8: Heiðar- vegur-Ólafsskarðsvegur-Geita- fell. 3. Sunnudagur27. sept. kl. 13. Fjölskyldudagur í Heiðmörk. Gönguferðir, söng- ur, leikir, pylsugrill. Nánar auglýst síðar. Munið helgarferðirnar 25.-27. sept. 1. Landmannalaugar-Jök- utgil. 2. Fjailahjólaferð á Land- mannalaugasvæðinu í sam- vinnu við (slenska fjallahjóla- klúbbinn; tilboðsverð. 3. Þórs- mörk-Langidalur. Brottför kl. 20. Pantið tfmanlega. Ferðafélag Islands. KFUM/KFUKog SÍK Samkoma í kvöld kl. 20.30 í Kristniboðssalnum, Háaleitis- braut 58. Ræðumaðurverðursr. Berisha Hunde frá Eþíópíu. Upp- hafsorð og bæn: Anna Lúðvíks- dóttir. Hljómsveitin „Góðu frétt- irnar" leikur. Allir eru velkomnir á samkomuna. Sálarrann- sóknafélag íslands hefur sitt 74. starfsár. Skrifstofa félagsins er opin alla virka daga frá kl. 9-17. Símar skrifstofu eru 18130 og 618130. Miðlarnir Þórunn Maggý Guð- mundsdóttir og Zena Davies starfa í október á vegum félags- ins. Miðar í einkatíma hjá þeim verða seldir á skrifstofu félags- ins, Garðastræti 8, 25. septem- ber kl. 13. Þriggja kvölda slökunar- og fræðslunámskeið verða haldin í vetur og hefst það fyrsta 6. október. Leiðbeinandi er Anna Herskind. Bókanlr á námskeiðin eru hafnar. Stjórnin. Hljómplötur frá 7. og 8. áratugnum óskast keyptar. T.d. Icecross, Pelican, Náttúra, Svanfríður, Trúbrot o.fl. Vel borgað fyrir góð eintök. Uppl. í síma 17087. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.