Morgunblaðið - 22.09.1992, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1992
Fischer virðist óstöðvandi
___________Skák_______________
Karl Þorsteins
BOBBY Fischer lauk fyrri ein-
vígishlutanum gegn Borís
Spasskí með glæstum sigri í
elleftu einvígisskákinni í Sveti
Stefan. Viðureignin var mjög
skemmtilega tefld af beggja
hálfu og skákin líklega sú best
teflda í öllu einvíginu hingað
til. Fischer hefur teflt með
gríðarlegum krafti í síðustu
skákum og hefur yfirburða-
stöðu í einvíginu nú þegar
gert verður viku hlé á tafl-
mennsku og einvígisstaðurinn
færður til Belgrad. Fischer
hefur hlotið fimm vinninga en
Spasski tvo og fjórum skákum
hefur lokið með jafntefli. Sá
telst sigurvegari í einvíginu
sem fyrr sigrar í tiu skákum.
Með þijú töp í röð á bakinu
þarf ekki að undra þótt sjálfs-
traust Spasskís hafi beðið hnekki.
Spasskí stýrði hvítu mönnunum í
tíundu einvígisskákinni og hóf
taflið sem fyrr með því að leika
drottningarpeðinu fram um tvo
reiti. Fischer svaraði með nimzo-
indverskri vöm sem hann hefur
ekki beitt fyrr í einvíginu, enda
virðist hannn leggja áherslu á að
koma andstæðingi sínum á óvart
í byrjanavali líkt og í einvíginu í
Reylq'avík 1972. Spasskí valdi
hvassa leið sem heimsmeistarinn
Garrí Kasparov hefur stundum
notað, m.a. t.d. þess að leggja
sjálfan Spasskí að velli á skák-
móti í Linares fyrir rúmum tveim-
ur árum. Fischer var hins vegar
öllum hnútum kunnugur og kom
með nýjan leik í fjórtánda leik.
Spasskí virtist brugðið því í stað
þess að vinna peðið til baka með
skemmtilegum möguleikum á
báða bóga kaus hann að veijast
í endatafli með mislitum biskup-
um og báðum hrókunum með peði
minna. Sú ákvörðun var gagnrýnd
af skáksérfræðingum, ekki síst
þar sem öll spenna hvarf af borð-
inu. Spasskí mat á hinn bóginn
stöðuna rétt, jafnteflismöguleikar
hans voru betri en vinningsmögu-
leikar andstæðingsins og með
mjög góðri vamartaflmennsku
tryggði Spasskí skiptan hlut og
um jafntefli var samið eftir 68
leiki. Þá hafði Fischer raunar
teygt sig mjög langt í vinningstil-
raununum, fómað m.a. skipta-
mun, en þegar báðir keppendur
höfðu vakið upp drottningar sætt-
ist hann loks á jafntefli.
Tíunda einvígisskákin:
Hvitt: Borís Spasskí
Svart: Bobby Fischer
Nimzo-indversk vörn
I. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rc3
- Bb4, 4. Dc2 - d5, 5. cxd5 -
exd5, 6. Bg5 - h6, 7. Bh4 -
c5, 8. dxc5 — Rc6, 9. e3 — g5,
10. Bg3 - Da5
Spasskí lék sjálfur 10. Re4 í
skák gegn Kasparov í Linares
árið 1990. Áframhaldið varð þá
II. Rf3 - Df6, 12. Bb5 - Rxc3,
13. Bxc6+ — bxc6?, 14. a3 — g4,
15. Be5! og hvítur náði betri stöðu.
11. Rf3 - Re4, 12. Rd2 - Rxc3,
13. bxc3 - Bxc3, 14. Hbl -
Dxc5
Þótt það hljómi undarlega þá
hefur peðsdrápið ekki sést fyrr í
kappskák. Áður hefur verið leikið
14. a6, en eftir 15. Bd6 — Be5,
16. Bxe5 — Rxe5, 17. Be2 stend-
ur hvítur betur að vígi. Eitt höfuð-
einkenni á taflmennsku Fischers
var ætíð ósérhlífni hans við að
taka lið af andstæðingnum og það
virðist ekkert hafa breyst í tutt-
ugu ára einsemd!
15. Hb5 - Da3, 16. Hb3 -
Bxd2+, 17. Dxd2 - Da5,18. Bb5
Það hefði mátt baula á Spasskí
fyrir þennan leik. í stað þess að
tefla stöðuna eftir 18. Dxa5 —
Rxa5, 19. Hb5 - b6, 20. Hxd5 -
0-0 með fæmm á báða bóga,
afræður hann að veijast í enda-
tafli með mislitum biskupum þar
sem jafnteflisfærin em meiri en
sigurmöguleikar Fischers.
18. - Dxd2+, 19. Kxd2 - Bd7,
20. Bxc6 - Bxc6, 21. h4 - Ke7,
22. Be5 - f6, 23. Bd4 - g4, 24.
Hcl - Ke6, 25. Hb4 - h5, 26.
Hc3 - Hhc8, 27. a4 - b6, 28.
Kc2 - Be8, 29. Kb2 - Hxc3,
30. Bxc3 - Hc8, 31. e4!
Það verður ekki af Spasskí
skafið að hann teflir vörnina mjög
vel. Uppskipti em honum í hag,
jafnvel þótt biskupinn verði að
hörfa af d4 reitnum.
31 - Bc6, 32. exd5 - Bxd5, 33.
g3 - Bc4, 34. Bd4 - Kd5, 35.
Be3 - Hc7, 36. Kc3 - f5, 37.
Kb2 - Ke6, 38. Kc3 - Bd5, 39.
Kb2 — Be4, 40. a5 — bxa5, 41.
Hb5 - a4, 42. Hc5 - Hb7+, 43.
Ka3 - a6, 44. Ka4 - Bd5, 45.
Kxa5 - Ke5, 46. Kxa6 - Hb3,
47. Hc7 - Ke4, 48. Hh7 - Hxe3,
49. fxe3 - Kxe3, 50. Hxh5 -
Be4
Fischer hefur leitað allra leiða
í vinningstilraununum og tók
mikla áhættu með skiptamuns-
fóminni þar sem nú hefst mikið
kapphlaup um hvor keppandinn
komi peði fyrr upp í borð.
51. Hh8 - Kf3, 52. He8 - Kxg3,
53. h5 - Bd3, 54. Kb6 - f4,
55. Kc5 - f3, 56. Kd4 - Bf5,
57. Hf8 - Kf4, 58. h6 - g3, 59.
h7 - g7, 60. h8D - glD, 61.
Kc4 - Dcl+, 62. Kb3 - Dc2+,
63. Kb4 - De4+, 64. Kc3 -
Dc6+, 65. Kb3 - Dd5+, 66. Kc3
- Dc5+, 67. Kb2 - Db4+, 68.
Ka2
og samið var um jafntefli.
Fischer tefldi fremur sjaldséð af-
brigði gegn sikileyjarvörn Spassk-
ís í elleftu einvígisskákinni. Með
peðsfóm í sjöunda leik kom hann
Spasskí strax á óvart og sýndi í
áframhaldinu allar sínar bestu
hliðar. Hann tefldi mjög hvasst
og eftir að Spasskí varð fótaskort-
ur í ellefta leik átti hann í miklum
erfíðleikum. Með því að gefa
skiptamun í nítjánda leik virtist
Spasskí öðlast mótspil með bisku-
paparið og öflugt frípeð en Fisc-
her hafði séð lengra. Hann lét
riddara af hendi og náði í staðinn
öðmm biskup Spasskís nokkmm
leiiq'um síðar. Úrvinnslan var
hnökralaus og eftir ijömtíu og
einn leik gafst Spasskí upp.
Ellefta einvígisskákin:
Hvítt: Bobby Fischer
Svart: Borís Spasski
Sikileyjarvörn
I. e4 - c5, 2. Rf3 - Rc6, 3.
Bb5 — g6, 4. Bxc6 — bxc6, 5.
0-0 - Bg7, 6. Hel - e5, 7. b4!
Til þessa hafa liðstjómendur
hvíta liðsaflans látið sér nægja
að leika 7. c3 í því skyni að opna
miðborðið með 8. d4. Fischer hef-
ur aðrar hugmyndir og fómar
peði í því skyni að flýta fyrir liðs-
skipan og öðlast yfírráð yfír mið-
borðinu.
7. — cxb4, 8. a3 — c5
Svartur er í úlfakreppu eftir 8
— bxa3, 9. Bxa3 — Re7, 10.
Bd6! En einnig kom til greina að
gefa peðið strax til baka með 8
- Re7.
9. axb4 — cxb4, 10. d4! — exd4,
II. Bb2 - d6?
Svarta staðan er þegar orðin
mjög varhugaverð og síðasti leik-
ur svarts er líklega of hægfara.
11. — Rf6 var e.t.v. betri kostur.
12. Rxd4 - Dd7, Rd2 - Bb7,
14. Rc4 - Rh6
Ef svörtum tekst að ljúka liðs-
skipan með því að hrókera í næsta
leik hefur hann ekkert að óttast
en það er hvítur sem á leik.
15. Rf5!
Mjög sterkur leikur. Við fyrstu
sýn virðist 15. — Rxd6+ — Dxd6,
16. Rf5! vænlegt hjá hvítum en
eftir 16. — Dxdl, 17. Rxg7n---
Kf8, 18. Haxdl - Hg8 hefur
svartur ekkert að óttast.
15. - Bxb2, 16. Rcxd6+ - Kf8,
17. Rxh6 - f6?
Hér missir Spasskí af einu
vöminni. Best var 17. — Bxal.
Eftir 18. Dxal — Dxd6, 19.
Dxh8+ — Ke7 á svartur mögu-
leika á að sleppa lifandi frá hildar-
leiknum. Nú gefur Fischer engin
grið og teflir áframhaldið af gríð-
arlegum krafti.
18. Rdf7! - Dxdl, 19. Haxdl -
Ke7, 20. Rxh8 - Hxh8
Spasskí hefur líklega haft þessa
stöðu í huga þegar hann lék 17.
— f6. Þótt hann sé skiptamun
undir þá gefur frípeðið á a-línunni
og biskupaparið möguleika til
björgunar, auk þess sem hvíti
riddarinn virðist illa staðsettur úti
á kanti. Með næsta leik breytir
Fischer því mati snarlega og leik-
ur riddara í annað skiptið í skák-
inni í opinn dauðann á f5-reitnum!
21. Rf5! - gxf5, 22. exf5 - Be5
Svartur missir annan biskupinn
í öllum tilfellum. Eftir 22. — Kf7,
kæmi 23. Hd7+ og 22. — Kf8
yrði svarað með 23. Hd8+ —
Kg7, 24. Hd7+.
23. f4 - Hc8, 24. fxe5 - Hxc2,
25. e6!
Framsæknið e-peð hvíts ræður
úrslitum. Nú er peðið á g2 frið-
helgt því eftir 25. — Hxg2+, 26.
Kfl hótar hvítur 27. Hd7+.
25. - Bc6, 26. Hcl!
Taflmennska Fischers er óað-
fínnanleg. Nú þvingar hann fram
uppskipti á hrókum og 26. — Be4
myndi engu bjarga eftir 27. Hxc2
— Bxc2, 28. Hal. Spasskí teflir
vörnina mjög vel og leitar ýtrustu
færa en að þessu sinni án árang-
urs.
26. - Hxcl, 27. Hxcl - Kd6,
28. Hdl+! - Ke5, 29. e7 - a5!
Hvítur getur nú unnið biskup-
inn með 30. e8D — Bxe8, 31.
Hel+ - Kd4, 32. Hxe8. Það yrði
honum hins vegar ekki til hags-
bóta því eftir 32. — b3 er hvíti
kóngurinn of langt í burtu frá
peðunum og hvítur verður að
sætta sig við jafntefli.
30. Hcl! - Bd7, 31. Hc5+ -
Kd4, 32. Hxa5 - b3, 33. Ha7 -
Be8, 34. Hb7 - Kc3, 35. Kf2 -
b2, 36. Ke3! - Bf7, 37. g4 -
Kc2, 38. Kd4 - blD, 39. Hxbl
— Kxbl, 40. Kc5 - Kc2, 41. Kd6
Spasskí gafst upp. Uppgjöfín
þarfnast kannski skýringa því
svartur er manni yfír í augnablik-
inu en peð hvíts á kóngsvængs
ráða úrslitum. Framhaldið gæti
t.d. orðið 41. - Kd3, 42. Kd7 -
Ke4, 43. e8D — Bxe8, 44. Kxe8
— h5, 45. gxh5 — Kxf5, 46. h4!
og h-peð svarts verður að drottn-
ingu.
Þær Magnea íris Jónsdóttir og Rut Magnúsdóttir söfnuðu til hjálpar-
starfs Rauða krossins í Sómalíu 1.725 kr. á hlutaveltu sem þær héldu.
Þessar dömur efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Sómalíuhjálp Rauða
krossins og söfnuðu 2.500 kr. Þær heita: Lísa Njálsdóttir, Vaka
Halldórsdóttir og Helga Kristjánsdóttir.
LJósm. Sigr. Bachmann
HJONAEAND. 15. ágúst sl. voru
gefín saman í Háteigskirkju af sr.
Pálma Matthíassyni Hrefna Bach-
mann og Ólafur Þór Vilhjálmsson.
Heimili þeirra er í Bandaríkjunum.
LJósm. Sigr. Bachmann
HJÓNABAND. 11. ágúst sl. voru
gefín saman í Bessastaðakirkju af
sr. Braga Friðrikssyni Hlíf Stein-
grímsdóttir og Eyjólfur A. Krist-
jánsson. Heimili þeirra er á Ásbraut
7, Kópavogi.
Ljósmyndast. Nærmynd.
HJÓNABAND. 25. júlí sl. voru
gefín saman í Bústaðakirkju af sr.
Pálma Matthíassyni Alda Hauks-
dóttir og Vignir Diego. Heimili
þeirra er í Stórholti 25, Rvík.
MYND, Hafnarfirði.
HJÓNABAND. 29. ágúst sl. voru
gefin saman í Áskirkju af sr. Árna
Bergi Sigurbjörnssyni Ragnar Þor-
geirsson og Guðríður Aðalsteins-
dóttir. Þau eru til heimilis í Borgar-
nesi.