Morgunblaðið - 08.11.1992, Síða 16
flBDAŒIWHTI
TI
16
iiuoaí
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1992
Atvinnulíf í Höfnum
STEFIMR
ÍÓEEM
eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur
ATVINNUÁSTAND á Suðurnesjum hefur verið mikið í
umræðu manna á meðal að undanförnu. Þótt víða sé at-
vinnuleysi hefur það óvíða verið eins ógnandi og þar, né
heldur varað eins lengi. Fiskveiðikvóti hefur eins og kunn-
ugt er verið seldur til annarra staða á landinu svo fisk-
vinnslan hefur goldið þar mikið afhroð. Einnig hefur varn-
arliðið dregið saman seglin í framkvæmdum sínum, svo
verktakar hafa orðið að segja upp starfsfólki. Nú er rætt
um sértækar aðgerðir í atvinnumálum Suðurnesjamanna,
en allt er í óvissu um þau mál ennþá. Allt þetta kom upp
í hugann þegar blaðamaður Morgunblaðsins ók um þessar
slóðir fyrir skömmu er hann heimnsótti Björgvin Lúthers-
son oddvita í Höfnum. Þar var áður fjölmenn byggð og
útræði mikið frá stórskipum allt fram til síðustu aldamóta
en nú er þar fremur fátt fólk og umhverfi þess er þannig
að helst mætti halda að tíminn hafi gleymt því.
Bjðrgvin Lúthersson býr þó í
^nýlegu og glæsilegu húsi
ásamt konu sinni, Boggu
Sigfúsdóttur. Auk þess að vera odd-
viti í Höfnum, eins og fyrr sagði,
er hann símstöðvarstjóri í Keflavík.
Björgvin sagði að menn hylltust
gjaman til að tala um Suðurnesin
sem eina heild. í því sambandi væri
ástæða til að vekja athygli á að
Hafnahreppur hefði ekki orðið eins
illa úti í atvinnulegu tilliti og t.d.
Keflavík. Hins vegar hefðu Hafnir
orðið fyrir tilfínnanlegu tjóni þegar
brann þar frystihús fyrir þremur
mánuðum. „Þar voru nokkuð margir
menn í vinnu og húsið verður ekki
endurreist í þeirri mynd sem það
var,“ sagði Björgvin. „Hér hefur
ekki verið nærri eins mikið atvinnu-
leysi og víða annars staðar hér um
slóðir. En nú virðist stefna í óefni.
Hér voru margir bátar gerðir út og
margir lögðu hér upp afla, en þeir
hinir sömu hurfu á braut eftir að
við réðum mann til starfa við höfn-
ina svo menn þurftu að greiða hafn-
argjöld."
Stutt á fengsæl mið
„Sveitarstjórnin í Hafnahreppi
hefur á pijónunum að kaupa frysti-
húsið sem brann, byggja það upp
og leigja smábátaeigendum aðstöðu
þar. Við erum þannig að reyna að
byggja upp atvinnu hér, það er nauð-
synlegt í ljósi þess mikla samdráttar
sem er í samfélaginu. Þessir bátar
sem hafa verið hér eru með svokall-
að krókaleyfi, þá mega þeir sækja
sjóinn á ákveðnum tímum á ári. Hér
er sérstaklega stutt á fengsæl mið,
það tekur um tuttugu mínútur að
sigla héðan á móti þremur og allt
að fjórum tímum, sé siglt frá Kefla-
vík eða Vogum. Það þyrfti hins veg-
„En ýmislegt
má þó gera“,
segir Björgvin
Lúthersson
oddviti