Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 55
seet HaaMagaa .1 huoa(iuiqih<í öiöáhöhúöhöm
■ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR'T.“DESEMBER T992
55
Þingmenn eru drepnir i óhugnanlegum sprengjuárásum. Þegar hinn
grunaði er dreginn fyrir rétt, springur dómarinn. Sprengjusérf ræðingur
frá FBI er fenginn til starfa. Hvar á hann að byrja...?
Aðalhlutverk: Pierce Brosnan (Lawnmower Man), Ron Silver (Silkwood)
Ben Cross (Chariots of Fire). Leikstjóri: Christian Duguay. Framleiðandi:
Suzanne Todd (Lethal Weapon 2, Die Hard 2).
TRYLLIRIHÆSTA GÆDAFLOKKIFYRIR ÞÁSEMÞORA...
Sýnd í A-sal kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
ÞRIÐJU-
DAGS-
TILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 350
Á ALLAR MYNDIR.
TILBOÐÁ
POPPKORNI
OG COCA COLA
TÁLBEITAN
Sýnd í B-sal
kl. 5,7,9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
EITRAÐAIVY
I á lií!
Sýnd i C-sal kl. 5,7, 9
og 11. Bönnuð i. 14 ára.
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNIMAR í REYKiAVÍK:
Alls þurfti að vista 25
manns í fangageymslunum
um helgina. Það telst þó til
tíðinda að einungis 4 einstak-
linga þurfti að vista þar á
laugardag og aðfaranótt
sunnudags. Er ekki ólíklegt
að Bindindisdagur fjölskyld-
unnar, sem var á laugardag,
hafi haft þar sitt að segja,
en venjulega eru fanga-
geymslurnar fullnýttar á
þessum tíma.
Enginn ætlar sér að lenda
í umferðaróhappi. Samt sem
áður var tiikynnt um 35
árekstra og 6 umferðarslys
um helgina í fæstum tilvikum
var gatnakerfmu eða að-
stæðum um að kenna. A
fostudagsmorgun var ekið
aftan á bifreið á Kringlumýr-
arbraut. Flytja þurfti öku-
mann á slysadeild vegna bak-
meiðsla. Þá var bifreið ekið
út af Vesturlandsvegi á Kjal-
amesi. Bifreiðin endaði ofan
í skurði og skemmdist mikið.
Tvö börn voru í bifreiðinni
ásamt ökumanni og voru þau
öll í öryggisbeltum. Þau voru
flutt á slysadeild til öryggis,
en meiðslin eru talin óveru-
leg. Á laugardagskvöld féll
kona út úr bifreið í Skólabrú.
Talið er að hún hafí axla-
brotnað og hlotið einhver
bakmeiðsli. Skömmu eftir
miðnætti var bifreið ekið
áleiðis í veg fyrir aðra á
Sæbraut við Miklubraut. Til
að reyna að koma í veg fyrir
árekstur beygði ökumaður
undan, en við það lenti bif-
reið hans á ljósastaur.
Skömmu síðar ók annar öku-
maður þar á kyrrstæða bif-
reið, en athygli hans var öll
við fýrra óhappið.
Alls eru 15 ökumenn grun-
aðir um ölvun við akstur um
helgina. Þar af höfðu þrír
lent I umferðaróhöppum áður
en til þeirra náðist. í einu
tilvikanna slasaðist ökumað-
urinn. í einu sá vegfarandi
stúlku, sem hann taldi
drukkna, setjast upp í bifreið
við Unufell og aka af stað.
Á leið sinni út af bifreiða-
stæðinu ók hún m.a. utan í
aðra bifreið. Lögreglan fann
bifreiðina skömmu síðar.
Innbrot og þjófnaðir voru
22. Stolið var örbylgjuofni
og veiðidóti úr geymslu fjöl-
býlishúss við Þórufell, radar-
varara og vasaljósi úr bifreið
við Frostaskjói, reiðhjólum
frá húsum við Austurberg,
Reynimel og Rekagranda,
fatnaði frá húsi við Sólheima,
útvarpi úr bifreið við Sól-
heima, peningum og
greiðslukorti úr bíl við Faxa-
fen, veski úr bíl við Bíóborg-
ina, vínflösku úr húsi við
Sogaveg, fánum í húsi við
Borgartún og borvélum frá
húsi við Baughús. Auk þessa
var brotist inn í þijá staði
aðra, en ekki var að sjá að
nokkru hafði veirð stolið. Það
verður aldrei of brýnt fyrir
fólki að skilja ekki verðmæti
eftir í bifreiðum sínum.
Lögreglan handótk þtjá
menn efst á Laugavegi að-
faranótt föstudags. Þeir voru
allir grunaðir um að hafa
neytt fíkniefna. í bíl þeirra
fundust tvö bílútvarpstæki,
Yashica ljósmyndavél og
teinahjólkoppar, sem þeir
gátu ekki gert grein fýrir.
Þeir voru allir vistaðir í
fangageymslum lögreglunn-
ar.
Á laugardagsmorgun var
tilkynnt um þjófnað á fjórum
fánum frá fyritæki við Borg-
artún. Fánamir, sem eru
auglýsingar, voru allir við
hún þegar þeim var stolið.
Lögreglumennirnir gátu rak-
ið spor þjófanna í snjónum
að tilteknu húsi á Teigunum.
REGNBOGINN SIMI: 19000
Efnahagsaðgerðum mótmælt
MORGUNBLAÐINU hafa borizt ályktanir ýmissa félaga
og samtaka, þar sem efnahagsaðgerðum ríkissljórnarinnar
er mótmælt. Kaupmáttarskerðingu og skattahækkunum á
almenning er andmælt og stéttarfélög segja tekjiyöfnunar-
sjónarmið vanta í aðgerðirnar.
Stjórn Bandalags háskóla- hluta til samneyzlunnar."
menntaðra ríkisstarfsmanna
mótmælir gengisfellingu og
segir hana leið, sem hvorki
hafi verið talin leysa vanda
sjávarútvegsins né efnahags-
vanda þjóðarinnar í heild.
„Launamenn sem miðað hafa
kjarasamninga við fastgeng-
isstefnu, eiga nú rétt á end-
urskoðun samninga, enda
mun gengislækkunin valda
algerlega óþörfum verð-
hækkunum innanlands," seg-
ir BHMR. Stjórn samtakanna
mótmælir jafnframt stofnun
Þróunarsjóðs sjávarútvegsins
og segir brýnt að „endur-
skoða skattkerfí fyrirtækja
þannig að þau skili eðlilegum
BHMR mótmælir auknum
sköttum á almenning og
skerðingu barnabóta og
vaxtabóta. „Hætt er við að
einmitt þarna sé í verulegu
mæli vegið að sama þjóðfé-
lagshópnum, þ.e. ungu fólki
með börn sem er að koma
sér upp sinni fyrstu íbúð á
hávaxtakjörum. BHMR telur
að fremur hefði átt að leggja
auknar skattbyrðar á há-
tekjuhópa og fjármagnseig-
endur,“ segir í ályktun
BHMR.
Stöðugleikinn í hættu
Stjóm og fulltrúaráð
Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar ályktar að stöð-
ugleikinn sé nú í hættu og
krafa verkalýðshreyfingar-
innar um tekjujöfnun hafi
verið að engu höfð. „Þess í
stað er sköttum létt af fyrir-
tækjum, jafnt þeim sem bet-
ur standa og hinum verr
stöddu, og þeir fjármunir
tíndir upp úr vösum launa-
fólks,“ segir í ályktuninni.
Eins og grimmt
hríðarkófið
Borgarmálahópur
Kvennalistans mótmælir „að-
för ríkisstjómarinnar að af-
komu fjölskyldna í landinu".
í ályktun hópsins seglr:
„Jólagjöf ríkisstjómarinnar
er eins og grimmt hríðarkóf-
ið. Enn eiga fjölskyldur, sér-
staklega fjölskyldur með ung
börn, að taka á sig slæma
stöðu atvinnuveganna. Sveit-
arfélögum er með skerðingu
tekna gert ókleift að veita
þá þjónustu sem þau hafa
hingað til veitt íbúum sinum,
hvað þá að þau geti mætt
vaxandi þörf fyrir þjónustu.
Þessum skammsýnu neyðar-
lausnum hljótum við Kvenna-
listakonur að hafna.“
Þjóðarsátt ekki lengur
fyrir hendi
Trúnaðarmannanáms-
stefna Starfsmannafélags
ríkisstofnana ályktar: „Ef
einhver þjóðarsátt hefur ver-
ið gerð sl. vor er hún augljós-
lega ekki fyrir hendi lengur.
Forsenda þess að gengið var
að miðlunartillögu sáttasemj-
ara var m.a. að gengi ís-
lenzku krónunnar væri stöð-
ugt á samningstímanum ella
væri samningurinn uppsegj-
anlegur með eins mánaðar
fyrirvara.“ Einnig segir í
ályktuninni: „Starfsmanna-
félag ríkisstofnana hefur
margoft bent á aðrar færar
leiðir til lausnar á efnahags-
vandartum, t.d. með vaxta-
lækkun sem kemur sjávarút-
veginum sérstaklega til góða
sem og heimilunum í landinu
og einnig að leggja beri á
fjármagnsskatt."
16.000 kr. dýrara að hita
meðalhús á
landsbyggðinni
„Bæjarráð Ólafsvíkur
mótmælir harðlega þeirri
mismunun eftir búsetu sem
nýboðaðar efnahagsaðgerðir
ríkisstjórnarinnar hafa í för
með sér,“ segir í ályktun
bæjarráðsins. „14% virðis-
aukaskattur á húshitun þýðir
16.000 króna hækkun á hit-
unarkostnaði meðalhúss á
starfssvæði Rarik, á sama
tíma og hitunarkostnaður á
sambærilegt hús'í Reykjavík
hækkar um 5.000 krónur.“
Afmælis-
tónleikar
á Akranesi
AFMÆLISTÓNLEIKAR í
tilefni af 50 ára afmæli
Akraneskaupstaðar verða
haldnir miðvikudaginn 2.
desember kl. 20.30 í sal
Tónlistarskólans á Akra-
nesi.
Flytjendur verða Ólafur
Flosason, óbó, Sigurður
Bragason, bariton, og Timot-
hy Knappett, píanó. Á efnis-
skrá verða m.a. Songs of
Travel eftir Vaughan Will-
iams, Pastorale eftir Per
Nörgaard og Tvær fantasíur
eftir Carl Nielsen.
fStftrpmMaMft
Metsölublad á hverjum degi!