Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 60
MORGVNBLAÐJÐ, ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 091100, SIMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Þorskeldið á Stöðvarfírði gengur vel
Þyngd þorsksins
hefur tvöfaldast
á fjórum mánuðum
TVEIR sjómenn á Stöðvarfirði hafa frá því í vor alið undirmálsþorsk
í tveimur sjókvíum við bæinn og hefur þetta eldi gengið vonum fram-
ar. Á síðustu fjórum mánuðum hefur þorskurinn í kvíunum tvöfald-
að þyngd sína og segir Björn Björnsson fiskifræðingur, sem fylgst
hefur með þessu eldi, að sá vöxtur sé mun betri en áíætlað hafði
verið. Birgir Albertsson sjómaður, annar þeirra sem annast eldið,
segir að þeir reikni rneð að slátra fyrstu þorskunum öðru hvoru
megin við áramótin. Á milli 2 og 3 tonn af þorski eru nú í kvíunum.
Greint var frá þessari tilrauna-
starfsemi þeirra Birgis og Ingi-
mars Jónssonar í Verinu, sérblaði
Morgunblaðsins um sjávarútveg, í
sumar. Þorskinn í kvíamar fengu
þeir frá dorgurum við bryggjuna
á Stöðvarfirði eða í róðrum hjá sér
Mús skemm-
ir messu-
skrúðann
Hvolsvelli.
SÁ ÓVENJULEGI og leiði
atburður átti sér stað í síð-
ustu viku að mús, sem komst
inn í skrúðhús Stórólfs-
hvolskirkju, eyðilagði þrjá
hökla.
Að sögn Guðrúnar Ægis-
dóttur sóknamefndarform-
anns hefur músin sennilega
komist inn um gat sem borað
var á vegg skrúðhússins til að
koma fyrir leiðslum inn í kirkj-
una. Músin nagaði alveg nýjan
hökul, sem vígja átti í mess-
unni á sunnudag. Þá skemmdi
hún einnig tvo aðra hökla, en
annar þeirra var einnig alveg
nýr og hafði aðeins verið not-
aður einu sinni.
„Sennilega verður hægt að
lagfæra þá tvo hökla, sem
skemmdust minna, en sá nýi
fjólublái er líklega ónýtur eða
verður ekki lagfærður nema
með miklum tilfæringum,"
sagði Guðrún og bætti við að
hún væri miður sín vegna at-
burðarins, en ný hökull kostar
um 40 þúsund krónur.
Það er mál manna að nú
sé óvenjumikill músagangur.
Troða mýsnar sér víða inn í
kuldanum, sem verið hefur
undanfarið og virðast þær
komast inn um smæstu rifur.
SÓK
DAGAR
TIL JÓLA
út í firðinum. Birgir segir að þó
byijunin lofi góðu sé framhaldið
óljóst. Þeir hafi fengið undirmáls-
þorskinn ódýrt og einnig hafi fóðr-
ið í hann fengist ódýrt, það er síld
sem var orðin of gömul í beitu og
ýmis afskurður sem ella hefði ver-
ið hent. Hann eigi eftir að reikna
út fjárhagshliðina á dæminu og
þar að auki hafi þeir lent í því
óhappi að saumspretta hafi komið
á aðra kvína þannig að helmingur
fiskanna sem þar var slapp út.
Bjöm Björnsson fiskifræðingur
segir að þetta sé eini staðurinn á
landinu sem þorskur sé ræktaður
í kvíum. „Þessi góði vöxtur á
þorskinum lofar góðu um fram-
haldið og gefur vísbendingar um
að hægt sé að rækta þorsk á þenn-
an hátt ódýrt,“ segir Bjöm.
„Reynslan frá Noregi er svipuð,
þar er þorskur ræktaður á þennan
hátt, þ.e. undirmálsfískur, er
veiddur og settur í kvíar. Tilraunir
þeirra með seiðaeldi hafa ekki gef-
ið góða raun því seiðin úr slíku
eldi þykja of dýr í framleiðslu.“
Hátíðin nálgast
Morgunblaðið/Júlíus
Nú er jólamánuðurinn hafínn og þá hefst líka undirbúningur hátíðarinn-
ar með kökubakstri, jólagjafakaupum og skreytingum. Elías Andri,
þriggja ára, lét ekki sitt eftir liggja í piparkökubakstrinum og setti
að sjálfsögðu upp viðeigandi höfuðfat.
Kvóti Hagræð-
ingarsjóðs
Tilboðin
streymdu
inn í gær
TILBOÐ í hluta af kvóta Ha-
græðingarsjóðs streymdu inn í
g^ær, en tilboðsfrestur rann út
um miðjan dag. 30% af kvóta
sjóðsins eru nú boðin til sölu eða
liðlega þijú þúsund þorskigildi
og er sjóðurinn skuldbundinn til
að taka tilboðum í helming þess
kvóta sem nú er boðinn til sölu.
Að sögn Hinriks Greipssonar hjá
Hagræðingarsjóði verður allur
kvótinn seldur ef viðunandi tilboð
fást. Það sem nú er boðið til sölu
eru tæp 1.627 tonn af þorski, 515
tonn af ýsu, 757 tonn afufsa, 1.078
tonn af karfa, 282 tonn af grálúðu
og 127 tonn af skarkola.
Hinrik sagði að niðurstaða tilboð-
anna liggi ekki fyrir fyrr en í dag,
en þau verða tekin fyrir á fundi
stjórnar sjóðsins seinnipartinn.
Húsbréf
Avöxtunar-
krafa lækkar
ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa
lækkaði á föstudag um 0,05 pró-
sentustig úr 7,90% í 7,85% hjá
flestum verðbréfafyrirtækjunum.
Ávöxtunarkrafan er farin að
lækka aftur eftir að hafa verið á
stöðugri uppleið undanfarna mánuði.
Fjöldi fólks sem leitar hjálpar vegna fátæktar hefur margfaldast
Hjálparstofnanir gefa matar-
miða og kirkjan grípur inn í
FJÖLDI þeirra sem leita til hjálparstofnana vegna fátæktar hefur
margfaldast að undanförnu. Yfirleitt hefur talsvert verið um hjálpar-
beiðnir fyrir jólin, en á síðustu mánuðum hefur fólk komið í æ
meira mæli og telja talsmenn hjálparstofnana að straumurinn eigi
eftir að þyngjast. Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, segir fyrir-
hugað að opna athvarf fyrir atvinnulausa í einu til tveimur safnaðar-
heimilum í höfuðborginni og að í sumum söfnuðum sé nú rætt um
hvernig nota megi líknarsjóði til að hjálpa fátæku fólki, til dæmis
með matargjöfum.
Biskupinn segir að henta myndi
að hafa opið hús í safnaðarheimili
Dómkirkjunnar. Hvað landsbyggð-
ina varði hafi hann skrifað próföst-
um og beðið þá að athuga hvað
hægt sé að gera. Viðræður kirkjunn-
ar við fulltrúa ASÍ og VSÍ leiddu til
þessa. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson
segir nú í athugun að hafa athvarf
í öðru safnaðarheimili í Reykjavík.
„Þarna gæti fólk sem svona er kom-
ið fyrir hist,“ segir hann, „og þarna
yrði hæfur starfskraftur til að veita
ráðgjöf og upplýsingar og reyna að
finna einhveijar lausnir. Jafnframt
hefur verið rætt að mynda vinnu-
hópa, bæði í sjálfboðastarfí og fyrir
atvinnurekendur að leita til vegna
ýmiskonar verkefna. Við vonumst
til að þessu megi koma á fót upp
úr áramótum."
Séra Jakob Hjálmarsson Dóm-
kirkjuprestur segir presta fá sífellt
fleiri hjálparbeiðnir frá fólki. Hann
telur brýnt að samstarf takist með
kirkjunni og hjálparstofnunum.
Hjálparstofnun kirkjunnar ætti að
hans mati að sinna stærri verkefnum
og söfnuðir annast sóknarbörn í
skammtímavanda. Rætt sé um
breytta notkun líknarsjóða og hvort
hægt væri að aðstoða fólk með
matargjöfum eða innkaupakörfum.
Þannig yrði best tryggt að pening-
arnir kæmu að gagni. Jakob segir
að á hveijum degi komi að minnsta
kosti ein manneskja í kirkjuna til
að leita aðstoðar vegna fátæktar.
Jónas Þórisson framkvæmdastjóri
Hjálparstofnunar kirkjunnar segir
að um 150% aukning hafí orðið milli
ára í hjálparbeiðnum til stofnunar-
innar. Fyrstu ellefu mánuði síðasta
árs hafí 30 manns leitað aðstoðar
en á þessu ári sé talan komin nærri
90 þó að erfiðasti mánuðurinn sé
eftir. Jónas segir að alls konar fólk
komi vegna peningavandræða, en
mest sé um menn sem dottið hafi
út úr venjulegu mynstri, verið í af-
brotum, farið í meðferð vegna áfeng-
is eða lyfja eða ekki fengið vinnu
vegna örorku. Hann segist ekki
verða mikið var við fólk sem hafi
nýlega misst vinnu, það reyni vænt-
anlega að bjarga sér með öllum ráð-
um áður en það leiti eftir neyðar-
hjálp. Jónas telur ástæður aukning-
arinnar vera versnandi afkomu og
viðbrögð kerfisins við óskum eftir
hjálp.
Mæðrastyrksnefnd veitti 460
manns aðstoð fyrir jólin í fyrra og
þangað hafa að undanfömu komið
mun fleiri en fyrir ári. Rauði kross-
inn hjálpaði næstum 300 manns fyr-
ir síðustu jól og segir Hólmfríður
Gísladóttir allt benda til að talan
verði mun hærri nú. í haust hafi
fólki sem kemur og segist ekki hafa
fyrir mat fjölgað jafnt og þétt. Hjálp-
ræðisherinn kom um 300 manns til
aðstoðar í fyrra og segir Anna Ósk-
arsson að þangað hafí fólk verið að
koma á liðnum mánuðum og hún
hafi að undanfömu þurft að neita
mörgum um aðstoð. Anna býst við
enn fleirum í desember.
Rauði krossinn hefur þjálpað um
hundrað manns á þessu ári og segir
Hólmfríður Gísladóttir að fyrir örfá-
um árum hafi venjulega þurft að
aðstoða 5-10 manns árlega. Hún
segir talsvert um beiðnir frá fólki
sem ekki fær atvinnuleysisbætur,
eins og verktökum og undirverktök-
um, fólki sem farið hafí í áfengis-
meðferð og fólki sem duga ekki
bætur til nauðþurfta.
Hólmfríður segir að rætt hafí ver-
ið að endurtaka bráðlega sameigin-
lega jólasöfnun hjálparstofnana,
svipað því sem efnt var til í fyrra.
Fyrirhugað er að gefa út 5.000
króna matarmiða sem nota má í stór-
verslunum. I fyrra var upphæðin
10.000 krónur en ákveðið hafí verið
að lækka hana nú og hafa nafn fólks
á miðunum til að sporna gegn hugs-
anlegri misnotkun þeirra.
» ♦ ♦---------
FN flýgnr til
Grænlands
FLUGFÉLAG Norðurlands hef-
ur gert samning við Grænlands-
flug um að fljúga fyrir félagið
áætlunarflug til febrúarloka.
Flogið verður milli Keflavíkur og
Kúlusúk á Grænlandi. Fyrsta flugið
verður á þriðjudag í næstu viku.
Sjá nánar bls. 37.