Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992 Bilun í farþegaþotu suður af landinu Flugmeimirnir sýndu mikla hæfni - segja farþegamir, sem héldu ró sinni þrátt fyrir óþægilega reynslu Keflavík. FARÞEGAÞOTA af Airbus- gerð frá bandaríska flugfélag- inu Delta Airlines varð að lenda á einum hreyfli á Keflavíkur- flugvelli vegna vélarbilunar að- faranótt sunnudags. Þotan var á leiðinni frá New York til Búdapest í Ungveijalandi með 128 farþega auk 10 manna áhafnar. Almannavamir voru í viðbragðsstöðu og sömuleiðis slökkviliðið. Hvasst var þegar vélin lenti og fór vindhraðinn upp í 40 hnúta í mestu hviðun- um. Vindurinn stóð beint á brautina og gekk lendingin áfallalaust. Onnur vél frá sama flugfélagi kom síðar um daginn með viðgerðarmenn og flutti hún farþegana á ákvörðunar- stað. Bilunin reyndist ekki eins alvarleg og í fyrstu var talið og eftir að viðgerð hafði farið fram var hægt að fljúga vélinni aftur til Bandaríkjanna á sunnu- dagskvöldið. Þegar flugmenn Airbus-vél- arinnar tilkynntu um vélarbil- unina um kl. 4 var hún stödd um 300 sjómflur suður af landinu og 45 mínútum síðar höfðu þeir lent heilu og höldnu á Keflavíkurflug- velli. Okkur brá óneitanlega Farþegamir virtust taka raun- um sínum og óvæntri heimsókn til íslands með mikilli stillingu. „Okkur brá óneitanlega þegar til- Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Marie Hegedús til vinstri og bræðumir Richard og Henrik Bán- házi. kynnt var að við yrðum að lenda á íslandi vegna vélarbilunar, en flugmennimir sýndu mikla hæfni við að lenda vélinni og við fundum ekki annað en að um eðlilega lendingu væri að ræða. Ég held að það hafi verið vinstri hreyfíll- inn sem var bilaður, en ég er ekki viss,“ sagði dr. G. Kovacs, sem er Ungveiji en búsettur í Bandaríkjunum. Hann sagðist vera á leið í stutt frí til síns gamla föðurlands ásamt bandarískri eig- inkonu sinni. „Það er lítið hægt að gera ann- að en taka lífinu með ró þegar menn lenda í aðstæðum sem þess- um. Okkur var vitaskuld órótt, Dr. G. Kovacs ásamt eiginkonu sinni. Bandarísku Airbus-vélarnar frá Delta Airlines á Keflavíkurflug- velli. Nær er vélin sem bilaði, en fjær er vélin sem kom til að flytja farþegana áfram til Ung- verjalands. en þetta fór allt saman vel, sem betur fer,“ sögðu bræðumir Ric- hard og Henrik Bánházi. Þeir sögðust vera frá Ungveijalandi og vera að koma úr stuttu ferða- lagi til Bandaríkjanna. „Þegar við lögðum af stað frá New York átti ég ekki von á því að lenda á íslandi. Við höfum fengið ákaf- lega góðar viðtökur hér og allir vilja allt fyrir okkur gera, en ég verð samt þeirri stundu fegnust þegar ég get haldið ferðinni áfram,“ sagði Marie Hegedús, sem sagðist vera ungversk og væri að koma frá því að heim- sækja ættingja í Bandaríkjunum. - BB 1 f "p1 A 1 - mm ■ H 1 | ll wr \ V J 1 LÍ) 5 i) A n ▲ Grindarefni 34 x 70 mm ▲ Spónaparket lakkað ▲ Baóvog Digital ▲ Sími ▲ Stormjárn ▲ Kópal Glitra 10 lítrar Verö áöur Tilboð m@ 105 94 m2@ 1.475 1.294 3.036 2.459 3.490 2.827 851 725 6.093 5.118 ▲ Hörpuskin 4 lítrar ▲ Útiljósasería ▲ Litaðar Ijósaperur ▲ Fjöltengi ▲ Útikerti ▲ Gasgrill Verö áöur Tilboð 2.581 2.168 2.450 1.985 75 59 271' 230 220 178 16.879 13.840 VERSLANIR SKIPTIBORÐ 41000 BYKÖ GRÆNT NÚMER 9 9 6 4 1 0 AJHmT HAFNARFIRÐI S . 5 4 4 1 1 BREIDDINNI S . 6 4 19 19 HRINGBRAUT S . 6 2 9 4 0 0 Óbeinar reyk- ingar aukalík- ur á lungna- krabbameini ÞORSTEINN Blöndal, yfírlækn- ir á Heilsuverndarstöðinni í Reykjavík, vísar algjörleg á bug þeirri staðhæfíngu Nicholas Far- rell, blaðamanns á The Spectat- or, að ekki sé marktækt sam- band á milli óbeinna reykinga og krabbameins. Sagt er frá skoðun FarreU á forsíðu sunnu- dagsblaðs Morgunblaðsins. Aðspurður sagði Þorsteinn að samanburður á niðurstöðum 10-12 bestu kannana á tengslum óbeinna reykinga og lungnakrabbameins hefði leitt í ljós að óbeinar reyking- ur ykju áhættuna á þess konar krabbameini um 40%. Til saman- burðar væri áhætta sjálfs reykinga- mannsins fímmtán til tuttuguföld á við þann sem ekki andaði að sér tóbaksreyk eða 2000%. Þorsteinn bætti við að það styrkti niðurstöð- umar að skammta- og verkunar- samband væri á milli fjölda tjöru- agna í loftinu og aukinnar áhættu, þ.e því fleiri tjöruagnir sem væru í loftinu því meiri væru líkurnar á því að fólk fengi krabbamein. Þorsteinn sagðist ekki hafa heyrt getið um könnun sem Farrell segir að sýni fram á að óbeinar reyking- ar dragi úr bronkítis. Hann sagði hins vegar að fullyrðiiigin væri hin mesta vitleysa. Sennilega hefðu skrif um skaðsemi reykinga farið svo í taugarnar á blaðamanninum að hann hefði ekki staðist /nátið að skrifa grein þegar hann hefði fundið könnun sem gæti gefíð til kynna aðra niðurstöðu. í samtalinu við Þorstein kom fram að 4-5 krabbameinstilfelli eru á ári hveiju rakin til óbeinna reyk- inga á íslandi. Almennt verða 25% krabbameinstilfella rakin til reyk- inga en þess má t.d. geta að 1-2% krabbameinstilfella eru rakin til áfengisneyslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.