Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 25
MORQUtyBLAÐIÐ I>K1ÐJUDAGUK j. DKSK.MBBK 1992
2S
Bræðurnir Ormsson hafa verið til húsa á fjórum stöðum í Reykjavík frá upphafi. Fyrsta húsnæðið var
á Óðinsgötu 25, árið 1936 flutti fyrirtækið á Vesturgötu 3 og árið 1966 var starfsemin flutt í Lágmúla
9, sem þá var nýbygging. Þar var starfsemin rekin þar til vaxandi umsvif og aukin verslun kallaði á
stærra húsnæði og fyrir 2 árum árum flutti hluti fyrirtækisins í Lágmúla 8, sem sést á myndinni hér
fyrir ofan. Þar er verslun, skrifstofur og verkstæði fyrir heimilistæki, en Bosch-verkstæði og verslun
fyrirtækisins er áfram rekið i Lágmúla 9.
1923. í þeirri deild eru einnig ýmis
smátæki frá öðrum framleiðendum
líkt og Tefal. í röntgendeild er
hægt að fá öll rafknúin lækninga-
og rannsóknatæki og einnig selur
fyrirtækið alla Bosch varahluti í
bíla og skip. Líkt og í heimilistækja-
deild byggist handverkfæradeildin
aðallega á vörum frá AEG en þar
eru einnig ýmsar vörur frá öðrum
framleiðendum. í tæknideild er
fyrst og fremst boðið upp á raf-
lagnaefni og búnað fyrir veitustofn-
anir. Fyrirtækið selur, setur upp
og veitir alla þjónustu í sambandi
við lyftur og rúllustiga. Fyrir 5
árum hóf fyrirtækið einnig sölu og
þjónustu á þungavinnuvélum frá
O&K en vegna mikils samdráttar í
byggingariðnaðinum eru umsvif nú
minni bæði í lyftum og vinnuvélum.
Auk þessa er fyrirtækið umboðs-
aðili fyrir Becks bjór á íslandi og
þegar best lét var markaðshlut-
deildin 24,7% af þeim bjór sem seld-
ur var hjá ÁTVR. En eftir útboð
hjá ÁTVR var tekin sú ákvörðun
að velja ætti ódýrari bjór fyrir neyt-
endur. Þrátt fyrir að Becks hafði
öðlast þessar vinsældir hefur hann
eftir útboðið einungis verið seldur
í 3 útibúum ÁTVR.
Ólíkar stoðir treysta
reksturinn
Aðspurðir um hvemig gengi að
reka fyrirtæki með svo mörgum
deildum sögðu þeir feðgar að það
væri að mörgu leyti erfitt en kost-
imir væru þó fleiri þar sem deildirn-
ar bættu hverja aðra upp. Því hefði
fyrirtækið ekki annað í hyggju en
að halda þessu rekstrarfyrirkomu-
lagi áfram. Ef erfíðir tímar væru
t.d. í byggingariðnaði þá gæti sala
heimilstækja bætt það upp. „Fyrir-
tækið fór t.d. í gegn um mjög erf-
itt tímabil þegar AEG í Þýskalandi
komst nærri gjaldþroti áður en
Daimler Benz keypti AEG. Ef
Bræðurnir Ormsson hefðu ekki
jafnframt verið í annarri starfsemi
en sölu á vömm frá AEG á þeim
tíma þá er ekki víst að við værum
að halda upp á 70 ára starfsaf-
mæli fyrirtækisins nú.“
Eiríkur og Karl segjast hafa
fundið fyrir samdrætti í umsvifum
fyrirtækisins á þessu ári líkt og
önnur fyrirtæki hér á landi. „í þess-
um samdrætti hefur fyrirtækið hins
vegar haldið sinni markaðshlutdeild
í heimilistækjaverslun og sam-
kvæmt innflutningstölum er sam-
dráttur fyrirtækisins minni en al-
mennt virðist vera. Við finnum sér-
staklega fyrir samdrætti í þeim
deildum sem tengjast byggingar-
iðnaðinum, t.d. í lyftum og vinnu-
vélum. Á móti kemur hins vegar
að sala í bílavarahlutum eykst þar
sem bílaviðgerðir virðast orðnar al-
mennari."
Öflug heildsala í kjölfar
umboðsmannanets um allt land
Vegna hinnar fjölbreyttu starf-
semi fyrirtækisins er erfitt að skil-
greina hana nákvæmlega. Bræð-
urnir Ormsson eru allt í senn heild-
sala, smásala og þjónustufyrirtæki.
Vegna lyftusmíða fyrirtækisins
mætti einnig kalla það iðnfyrir-
tæki. Aðspurðir um hvort fyrirtæk-
ið hefði ekki fundið fyrir samdrætti
i heildsölu líkt og verið hefði al-
mennt undanfarin ár sögðu Karl
og Eiríkur að svo væri ekki.
„Heildsala fyrirtækisins nær til
heimilistækja, raflagnaefna og bif-
reiðavarahluta. Skiptist veltan nán-
ast til helminga á milli heildsölunn-
ar og smásölunnar. Á undanförnum
4-5 árum hefur heildsalan farið
vaxandi og viljum við skýra þann
vöxt fyrst og fremst með því um-
boðsmannaneti sem við höfum um
allt land. Mikil áhersla hefur verið
lögð á að þjóna umboðsmönnunum
vel, reglulega eru þeir heimsóttir
og upplýsingum komið til þeirra.
Fyrirtækið var einnig með þeim
fyrstu sem tóku upp á því að greiða
sjálft flutningskostnað vöru, þannig
að vörur frá okkur eiga að fást á
sama verði um allt land,“ sögðu
þeir Karl Eiríksson og Eiríkur
Karlsson.
í tilefni af 70 ára afmæli fyrir-
tækisins verða ýmis tilboð í gangi
þessa viku og í dag verða léttar
veitingar á boðstólum, fyrir alla sem
í búðimar koma.
ÁHB
0GINNKAUPA-
STJÓRAR!
JÓLASKRAUT
JÓLAPAPPÍR
JÓLAVÖRUR
í ÖRVALI
m:
EFNAVER h.f.
ÞJÓNUSTU- OG HEILDVERSLUN
RÉTTARHÁLSI2 SÍMI91-67 69 39
VZterkurog
Ll hagkvæmur
auglýsingamiðill!
lkr.100 spr
Herrapeysur, bolir,
barnajakkar,
herrabuxur, barnabuxur,
kvenpeysur,
dömubuxur, barnapeysur,
inniskór,
barnaskór, herrabindi,
dömuskyrtur,
og barnahúf ur.
FAÍNAÐUR, SKOR
si>renghl*gileg« werði:
I jólaSPRENGjÁI I ulboðSSPRENGJa
Jólakúlur 6 í pk___kr.170,-
Eldhúsóhöld________kr.99,-
Barnabuxur........... kr.500,1
Sængur verasett..... kr.999,a
Handklæði..........kr.l 65,'
Leðurkvenskór.... kr. 1000,-
Peysur.................. kr.200,'
Bolir................kr.200,1
Trimmgallar.......... kr.400,'
Gallabuxur............ kr.995,'
Gallajakkar__________kr.500,-
Hælaskór............ kr.500,'
OP|NN VIRKA DAGA
FRA KL. 12.00 TIL 18.00
LAMGARDAGA
FRA KL. 10.00 TIL 14.00
SPRENGIMARKAÐURINN,
SNORRABRAUT 56,2. HÆÐ.
SÍMI 16132.