Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992 19 Jólabóka- fréttir SETBERG Af erlendum ævisögum má efna: Rassinn á Sámi frænda, lífsreynslusögu Richard Hilly- ards, Bandaríkjamanns sem gegndi lengi stöðu fréttamanns í hemum á Keflavíkurflugvelli og er giftur íslenskri konu. Jón Daníelsson þýddi. Blái engillinn segir frá lífshlaupi Marlene Di- etrich leikkonu. Höfundur er Donald Spoto, Hanna Bachman þýðir. Og Símon Wiesenthal er höfundur að bókinni, Réttlæti ekki hefnd, í þýðingu Ásgeirs Ingólfssonar. Skjaldborg gefur út líka tvær stórar handbækur. Flóra íslands og Norður-Evrópu nær yfir allar jurtir sem finnast norðan Alpa- fjalla, nema grös. Og Náttúru- læknir heimilanna er alfræðileg- ur vegvísir til sjálfsbjargar með náttúmlegum úrræðum. Báðar bækumar em þýddar og stað- færðar. Islenskar skáldsögur em tvær. í bók Þráins Bertelssonar, Sigla himinfley, er sögusviðið Vest- mannaeyjar. En Birgitta H. Hall- dórsdóttir sendir frá sér nýju sperinubókina, Dætur regnbog- ans. Af mörgum, þýddum skáld- sögum má nefna Steiktir grænir tómatar eftir Fannie Flag, sem samnefnd kvikmynd byggir á, og Jóhanna G. Erlingsson þýðir. Og' fjórða og síðasta bindið af höfuð- verki danska rithöfundarins Martins Andersen Nexö um Pella sigursæla, nefnist Dögun, í þýð- ingu Gissurs Ó. Erlingssonar. Skjaldborg gefur út sjö nýjar, íslenskar barnabækur. Bók Helga Jónssonar, Rebbi fjallaref- ur, sem gerist í villtri náttúm íslands, sögð frá sjónarhóli refs- ins, er bók fyrir allan atdur; Rob- ert Schmidt myndskreytir. Onnur bók úr náttúm íslands, Ponni og fuglarnir, gerist i æðavarpinu og er meira fyrir yngri lesendur. Höfundur er Atli Vigfússon frá Laxamýri, 'Hólmfríður Bjartm- arsdóttir myndskreytir. Smygl- arahellirinn eftir Kristján Jóns- son; Stríðnisstelpa eftir Heiðdísi Norðfjörð og Tveir krakkar og kisa eftir Jón Dan em bækur fyrir unga lesendur. Unglingabók Helga Jónssonar, Myrkur í maí, er sjálfstætt framhald af bókinni Nótt í borginni. Af þýddum barnabókum verða fyrst fyrir 2 bækur: Bók bam- anna um dýrin og Bók bamanna um fjölskyldur dýranna, Gissur Ó. Erlingsson þýðir bækumar sem eru vel myndskreyttar. Ævintýri H.C.Andersen er ný útgáfa af ævintýmnum, sem tékkneska konan Lisbeth Zwerg- en velur og myndskreytir og hlaut H.C. Andersen verðlaunin fyrir myndskreytinguna. Sjötta bókin um Fríðu framhleypnu og Fyrstu athuganir Berts, fram- hald af Dagbók Berts, em báðar i þýðingu Jóns Daníelssonar. í hópi sígildra bamabóka era nýj- ar, myndskreyttar útgáfur af Stikilsberja-Finnur eftir Mark Twain og Leynigarðurinn (eldri útgáfan bar heitið Töfragarður- innjeftir Frances Hodgeson Bur- nett. BJARTUR Zombi og Engill meðal áhorfenda Bókaútgáfan Bjartur gefur út 3 bækur að þessu sinni. Zombi er þriðja ljóðabók Sigfúsar Bjartmarssonar. í ljóðabálknum stillir Sigfús sér upp á móti goð- sögninni um Zombi. Engill meðal áhorfenda eftir Þorvald Þor- steinsson er safn 50 stuttra smá- sagna, þar sem höfundur snýr upp á lögmál leiksviðs, sögusviðs og veruleika. Leikur hlæjandi láns er fyrsta skáldsaga hinnar kínversk-bandarísku Amytan í þýðingu Rúnars Helga Vignis- sonar. Bókin var tilnefnd til bandarísku bókmenntaverðlaun- anna The National Book Award. Frá Leikfélagi Reykjavíkur Æfingar á Blóðbræðrum Leikfélag Reykjavíkur hóf í lið- inni viku æfingar á söngleiknum Blóðbræðrum eftir Willy Russell. Frumsýning er fyrirhuguð á Stóra sviði Borgarleikhússins í janúar- lok. í fréttatilkynningu segir að Willy Russell sé leikhúsgestum að góðu kunnur, en verk hans um Sigrúnu Ástrósu og Ritu hafa notið hylli bæði á leiksviði og hvíta tjaldinu. Russell skrifaði verkið upphaflega sem sam- starfsverkefni fyrir leikhóp unglinga, en fullvann söngleikinn fyrir Evéry- man-leikhúsið í Liverpool, þar sem flest verka hans hafa gengið í gegn- um eldskírn. Blóðbræður vom fmmsýndir þar 1983. Sú sviðssetning var færð upp í London og hlaut þá margvfslega viðurkenningu. Hún var sett þar upp að nýju 1988 og er enn í fullum gangi á fimmta ári. Leikfélag Akureyrar setti söngleikinn á svið árið 1986. Blóðbræður er líkt og flest verk Russells sótt í heim Liverpool. Líkt og Bítlarnir og Liverpool-skáldin svo- nefndu, er Russell uppmna sínum trúr og verk hans bera sterkan svip af samfélagi heimaborgar hans. Þjóð- félagsleg vitund, jarðbundnar persón- ur og trúverðugar, kímni í bland við háð; öll þessi einkenni má finna í verkum hans. Blóðbræður em í bland ærslaleikur og stórdrama. Þar segir frá ungri móður sem stendur uppi ófrísk með stóran barnahóp. Þegar hún fæðir tvíbura gefur hún annan frá sér og synir hennar alast þannig upp við Frá æfingu á Blóðbræðrum. gjörólíkár aðstæður. Örlög valda því að leiðir þeirra liggja saman á ný og verkið lýsir vináttu þeirra frá æsku til fullorðinsára. Þá era leikir að baki og alvaran tekur við. Úr þessu efni hefur Russell samið skemmtilegan og hrífandi söngleik. Þórarinn Eldjárn þýðir bundið og laust mál. Halldór E. Laxness sviðset- ur verið. Jón Ólafsson stýrir hljóm- sveit og Jón Þórarinsson hannar leik- mynd. Stefanía Adólfsdóttir hannar búninga. Alls taka 14 leikarar þátt í sýningunni í ijölda hlutverka. Þar vegur þyngst hlutverk móðurinnar, sem Ragnheiður Elfa Amardóttir leikur og syngur. Tvíburana leika Magnús Jónsson og Felix Bergsson. Vinkonu bræðranna frá bamæsku leikur Sigrún Waage. Við bjóðum þér vinsælasta mynda- sögublað á Islandi, Andrés Önd, á aðeins 195 krónur hvert blað - sent heim til þín. Hálfsmánaðarlega berst einhver óvæntur glaðningur með blaðinu. Ef þú tekur tilboðinu færðu vandaða safnmóppu undir blöðin að gjöf. Andrés Önd hefur aldrei verið skemmtilegri og meira spennandi en einmitt núna. Myndasögurnar um hrakfallabálkinn Andrés og hina óborganlegu félaga hans höfða nú til mun breiðari aldurshóps en áður. Allir finna eitthvað við sitt hæfi í þessu vinsælasta myndasögublaði allra tíma! Þess vegna er Andrés lesinn aftur og aftur - og er alltaf jafn skemmtilegur! Tryggðu þér að Andrés Önd komi heim til þín í hverri viku - og að þú fáir safnmöppuna ókeypis! HRINGDU STRAX í DAG í ÁSKRIFTARSÍMANN: 91 -688300*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.