Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 39
seer agaMagaci .r HiroAauiaia4 GiaAja/jjQHQM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRÍÐJUDAGUR 1. DESÉMBER 1992
88
39
Fjögurra vetra hryssa undan Ljóma frá Björk sem John hyggst
byija að temja í vetur, myndarleg og hreyfingafalleg.
Són frá Hólum er að mati John Siigers besta ræktunarhryssan í
stóði hans en hún hefur hlotið 1. verðlaun. Nú fylgir henni af-
kvæmi Þjálfa.
væri hægt að slá einu sinni því
eftir fyrri slátt skrælnaði allt og
var ástandið víða það slæmt að
gefa varð hrossum og reyndar öðr-
um grasbítum hluta af sumrinu.
Sprettan byijar í apríl og í sæmi-
legu ári er gras að spretta jafnvel
út nóvember.
Arðbærir pulsuhestar
Eftir að hafa skoðað þá stóð-
hesta sem voru heimavið var farið
norður fyrir Álaborg þar sem þeir
Ljómi og Hagalín voru í tveimur
stórum hólfum á danska vísu með
hryssum. Á þessum stað er rekið
það sem kallað er „sommerland"
með stórri sundlaug og vatnsrenni-
brautum og margskonar leiktækj-
um þar sem íjölskyldur koma og
dvelja við leik. Einnig er rekin
þarna hestaleiga með 45 íslenskum
hestum. Er farin ákveðin rúta og
ganga hestamir þetta nánast sjálf-
krafa og allt á feti. Þegar fyrsti
hesturinn stöðvar staðnæmist öll
halarófan og þegar sá fyrsti fer
af stað fylgja hinir eftir eins og
um járnbrautarlest væri að ræða.
Sagði John að þama væri komið
hlutverk fyrir pulsuhestana eins og
Danirnir kalla truntumar. Sagðist
hann vita um fleiri hliðstæðar
hestaleigur og taldi hann þetta hið
besta mál. „Það er aldrei farið upp
af fetinu, þettá er allt óvant fólk,
mestmegnis krakkar, sem ekki vilja
fara hraðar og hestarnir fálla vel
inn í þetta, rölta í rólegheitum og
skila ágætum arði, hestar sem ann-
ars væm alls staðar til vandræða
og enginn vildi eiga,“ sagði John
ennfremur.
John temur öll hrossin sjálfur
sem koma út úr ræktuninni auk
þess sem hann tekur hross til tamn-
íngar og þjálfunar. Hann tekur
ekki mikið þátt í almennum mótum
en mætir með hross í kynbótadóm
og sýnir þau þá sjálfur. Þá er stór
hluti af starfi hans að járna fyrir
hesteigendur. Segist hann þó nær
eingöngu vera í íslenskum hrossum
og svolítið í minni hrossakynjum.
Telur hann best að eftirláta þeim
skólagengnu stóru hestana. Það er
langur vinnudagurinn hjá John
Siiger og unnið er eitthvað flesta
daga. Hann fer reglulega til íslands
bæði til að fylgjast með hvað er
að gerast í hrossaræktinni hér á
landi og einnig til að kaupa kyn-
bótahross. Sagðist hann leggja
áherslu á að endurnýja stóðhesta-
kostinn reglulega. „Það em tæp-
lega kynbætur í því að nota sama
stóðhestinn mörg ár í senn því við
verðum að gera ráð fyrir að fram
komi árlega nýir og betri stóðhest-
ar og vafasamt fyrir þá sem vilja
setja markið hátt að nota þá gömlu
of lengi,“ segir John Siiger.
BLUP-ið ekki fullkomið
Ekki var hægt að skilja svo við
þennan stóðhestakóng Danmerkur
að ekki fengist álit hans á BLUP-
inu.
„Ég held að það sé í lagi að
hafa BLUP-ið með til hliðsjónar í
ræktunarstarfinu. Það er ekki hægt
að setja allt sitt traust á það og
treysta því blint. Við höfum fylgst
með þvi í Danmörku hvemig
sprenging varð í nautgripa- og
svínarækt með tilkomu svona kyn-
bótamats á ræktunargripum.
Mjólkurframleiðslan nánast tvö-
faldaðist á tíu árum. Ég held að
óhætt sé að nota það í afkvæma-
dómum á mikið notuðum eldri stóð-
hestum sem hafa mikinn frjölda
afkvæma á bak við tölurnar líkt
og þið gerið á íslandi nú. BLUP-ið
er ekki fullkomið en sjálfsagt er
það besti kosturinn og sá eini fyrir
utan gamla kerfið ykkar sem völ
er á í dag. Veikleiki BLUP-sins er
sá að gera má ráð fyrir að léleg-
ustu afkvæmin komi ekki fram í
dómi og þar með gefur það ekki
fullkomlega rétta mynd af styrk-
leika kynbótagripsins en þessi veik-
leiki er enn meiri í gamla kerfinu,"
sagði John Siiger Hansen að end-
ingu.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
S tó rbo rsarve rð
Verð kr. 2.995,'
Stærðir: 36-41. Litur: Svartur.
Póstsendum samdægurs.
5% staðgreiðsluafsláttur.
v
Domus Medica, Egilsgötu 3, sími 18519 Kringlunni, Kringlunni 8-12, sími 689212 Toppskórinn, Veltusundi, sími 21212. J
Fræðslufundur hjá Fáki
um hrossatölvubanka
Jónas Kristjánsson sýnir hrossa-
tölvubanka á fræðslufundi Fáks
fimmtudaginn 3. desember kl.
20.30 í félagsheimili Fáks Víðdal.
Á fundinum varpar hann mynd-
um af tölvuskjá á sýningartjald.
Öllum hestamönnum heimill að-
gangur. Ókeypis fyrir félagsmenn
Fáks.
(Fréttatilkynning)
m
Gódan daginn!
Auglýsing um markaðsútboð samvinnuhlutabréfa
Útgefandi:
Nafnvirði hlutabréfa:
Gengi:
Sölutímabil:
Upplýsingar:
Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri.
50.000.000 krónur.
2,25.
L desember 1992 - 28. febrúar 1993.
Útboðslýsing liggur frammi hjá aðal-
söluaðilum og einnig í afgreiðslum
Búnaðarbankans, sparisjóðanna og
verðbréfafyrirtækja.
Umsjón með útboði:
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrirtæki
Kringlunni 5, 103 Reykajvík,
sími (91)689080.
Aðrir aðalsöluaðilar:
ééwKAUPÞ/NG
NORÐURLANDSHF
Kaupvangsstræti 4,
600 Akureyri
sími (96)24700.
VlB @
Verðbréfamarkaður
íslandsbanka hf.
Ármúla 13A, 108 Reykajvík,
sími (91)681530.
WHWBR£fAW8SKIPn
V/ SAMVINNUBANKANS
Suðurlandsbraut 18,
108 Reykjavík,
sími (91)688568.