Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 49
miklu, Sigurborg Fanney sem lést
1968 og Davíð Björgvin en hann
lést árið 1930 aðeins tólf ára gam-
all. Þau sem lifa bróður sinn eru
Páll Vilhjálmur, Ingibjörg, Ólöf Hall-
dóra, Daníel Baldvin og Vilborg.
Guðni ólst upp á sveitaheimili þar
sem efni voru ekki mikil. Frá blautu
bamsbeini þurfti hann að sinna
ýmsum störfum og vandist því fljótt
iðni og vinnusemi. Á stríðsárunum
fluttist hann í bæinn, stundaði fyrst
verkamannavinnu en gekk svo til
liðs við Lögregluna í Reykjavík.
Snemma tók hann að fást við húsa-
smíðar og var vel liðtækur við þær
löngu áður en hann nam þá iðn,
hafði meðal annars byggt æsku-
heimili mitt. Trésmíðanáminu lauk
hann síðan frá Iðnskólanum í
Reykjavík árið 1959. Eftir það starf-
aði hann við iðn sína, alveg þangað
til hann meiddist á handlegg, en þá
hóf hann störf sem húsvörður í
Vogaskóla og vann við það hátt í
áratug eða þar til hann komst á
eftirlaunaaldur. Hann var þó ekki
sestur í helgan stein því vinir og
vandamenn héldu áfram að leita til
hans ef eitthvað þurfti að byggja
og bæta. Hann lá þá ekki á liði sínu
við að rétta þeim hjálparhönd meðan
kraftar leyfðu.
Guðni hóf búskap í Kópavogi með
eiginkonu sinni, Svövu Guðjónsdótt-
ur, ættaðri úr Skagafirði. Mikil gleði
ríkti er þeim fæddist sonurinn Björg-
vin Þór. Einnig eignuðust þau annan
son en misstu hann aðeins þriggja
daga gamlan. BJörgvin Þór var því
einkabarn þeirra Guðna og Svövu
og ólst upp við mikið ástríki foreldra
sinna. í Kópavogi byggði Guðni, að
mestu leyti einn, einbýlishús á Mela-
heiði 19 sem varð heimili þeirra frá
og með árinu 1970.
Þar sem þau í fjölskyldu Guðna
voru aðeins þtjú og við mæðgur
bara tvær var sérlega mikið sam-
band á milli þessara tveggja fjöl-
skyldna. Ófáar eru þær ferðir um
landið sem við mæðgur fórum með
Guðna og fjölskyldu á sumrin þegar
við Björgvin vorum börn. Þegar ég
þurfti á pössun og næturgistingu
að halda var ég ævinlega velkomin
á Melaheiðina. Oft tóku þau mig líka
með þegar þau fóru á skíði og ég
fékk einnig að koma með þegar þau
fóru að spila félagsvist með Skag-
firðingafélaginu.
Eitt var það líka sem þessar tvær
íjölskyldur gerðu alltaf saman og
það var að halda jólin. Til skiptis
vorum við hjá þeim eða þau okkur
á aðfangadagskvöld og á jóladag á
hinum staðnum. Á jóladag var líka
oftast með okkur afasystir mín,
Guðrún María Teitsdóttir, en hún
lést nú í sumar. Það er sárt til þess
að hugsa að á jóiunum sem nú nálg-
ast verði hvorki Guðni né Gunna
með okkur. Áramótum eyddum við
venjulega einnig saman. Guðni var
þá vanur að skjóta upp flugeldum
og þegar við krakkarnir höfðum ald-
ur til máttum við líka. En alltaf var
Guðni viðstaddur til að við færum
okkur ekki að voða. Á' nýársdag var
svo nýársboð á Melaheiðinni. Þangað
voru öll systkini Guðna boðin ásamt
börnum sínum og var þessa dags
ætíp beðið með mestu óþreyju.
Árið 1988 fæddist svo lítill sólar-
geisli í lífi Guðna, sonarsonurinn
Guðni Teitur. Björgvin Þór og Ás-
dís, unnusta hans, bjuggu á Mela-
heiðinni þar til síðastliðið vor og því
gat Guðni fylgst náið með vexti og
þroska litla nafna síns. Og það var
FLUGLEIDIR
iiÉ'ffi umniii
•MORQUNBIABH) -ÞRIB3UÐAGDR 1. DESEMBER 199^------—-----------------------------------49
fátt sem Guðni afí vildi ekki gera
fyrir litla kútinn.
Guðni var alveg einstakt _ ljúf-
menni, rólegur og traustur. Ávallt
tók hann því sem að höndum bar
með jafnaðargeði. Hann var smiður
af Guðs náð og allt virtist leika í
höndunum á honum. Ef þurfti að
dytta að einhveiju var gott að leita
til hans því greiðasemi og hjálpfýsi
voru ríkir þættir í fari hans. Hann
var einnig mikill náttúruunnandi og
þegar hann var á ferðalögum keyrði
hann ævinlega rólega því hann vildi
geta virt landið sitt fyrir sér og not-
ið fegurðar þess.
Tónlist skipaði stóran sess í lífi
Guðna. Ungur lærði hann svolítið á
orgel og eignaðist slíkan grip sem
hann hafði mikla ánægju af að leika
á. Hann hafði einnig góða söngrödd
og tók mikinn þátt í kórastarfi,
lengst með Skagfirsku söngsveitinni
og nú síðast með Söngfélaginu
Drangey.
Og nú er Guðni, minn ástkæri
frændi, horfinn frá okkur. Hann
skilur eftir sig stórt skarð í fjölskyld-
unni sem ekki verður fyllt. Áfram
mun hann þó lifa í hugum okkar og
hjörtum. Við mæðgur viljum þakka
honum hjartanlega fyrir allt og biðj-
um honum Guðs blessunar. Elsku
Svava, Björgvin Þór, Ásdís og Guðni
Teitur, ykkur sendum við innilegustu
samúðarkveðjur. Megi Guð styrkja
ykkur í ykkar miklu sorg.
Magnea.
Erfítt er að mæta því og sætta
sig við þegar skyndilega kemur upp
að náinn samferðarmaður sé hald-
inn þeim sjúkdómi að ekkert annað
sé framundan en að kveðja þennan
heim og það innan skamms tíma.
Þannig var það með Guðna bróð-
ur minn. Sjálfur mætti hann áfall-
inu með sinni alkunnu ró og æðru-
leysi og kvartaði ekki í okkar eyru.
Hann hlýtur þó að hafa átt erfítt
tímabil og fundið sárt til þess að
þurfa að skilja við elskulega íjöl-
skyldu sem hann bar ávallt fýrir
bijósti og lagði sig fram um að
styðja sem best á allan hátt. Það
var öllum sárt að sjá hinn dugm-
ikla mann þurfa að láta undan hin-
um skæða sjúkdómi og missa þrótt-
inn dag frá degi.
Við systkinin ólumst upp saman
í leik og starfí og þrátt fyrir erfíða
lífsbaráttu vorum við glöð og ham-
ingjusöm og eftir að við fluttumst
frá æskuheimilinu og leiðir skildu
þá komum við ásamt fjölskyldum
okkar oft saman á góðum stundum.
Við leiðarlok þakkar öldruð móð-
ir og við systkinin Guðna samfýlgd-
ina. Hann var góður sonur og bróð-
ir, hann var traustur og hjálpsamur
og hann var sterkur hlekkur í ijöl-
skylduhópnum. Guðs blessun fylgi
honum í nýju umhverfi og blessun
fylgi þér kæra mágkona og fjöl-
skyldu þinni.
Páll V. Daníelsson.
+
Útför
RAGNARS JÓNSSONAR
fv. skrifstofustjóra,
Brautariandi 9,
fer fram fré Bústaöakirkju föstudaginn 4. desember kl. 13.30.
Kristfn Einarsdóttir,
Þorgerður Ragnarsdóttir, Gísli Heimisson,
Jón Ragnarsson, Gyða Halldórsdóttir,
Brynhildur Anna Ragnarsdóttir, Ólafur Bjarnason,
Einar Ragnarsson, Gerður Pálsdóttir.
t
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir,
BRYNJÓLFUR JÓNSSON
frá Broddadalsá,
verður jarðsunginn frá Áskirkju miðvikudaginn 2. desember kl.
15.00.
Guðbjörg Jónsdóttir,
Svava Brynjólfsdóttir, Kristinn Guðjónsson,
Viggó Brynjólfsson, Ardís Arelíusdóttir,
Kristjana Brynjólfsdóttir, Gunnar Sæmundsson.
+
Sambýlismaður minn, faðir okkar og afi,
KRISTINN KARLSSON
múrari,
Reykási 41,
Reykjavík,
verður jarðsunginn fré Árbæjarkirkju miðvikudaginn 2. des. kl.
13.30.
Kristbjörg Haraldsdóttir,
börn og barnabörn.
+ Eiginkona mín, MÁLFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 3. desem- ber kl. 10.30. Pálmi Guðmundsson.
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR, Stóru-Borg, Grímsneshreppi. Svanlaug Auðunsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
+ Innilegt þakklaeti fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, AXELS ÞORKELSSONAR, Unufelli 31, Reykjavik. Sérstakt þakklæti til starfsfólks deildar 11-E, Landspítalanum fyrir frábæra umönnun og alúð. Jóhanna Axelsdóttir, Kristján Ingimundarson, Axel Axelsson, Eva Pétursdóttir, Valdimar Axelsson, Anna Ágústsdóttir, Tryggvi Axelsson, Ingibjörg Baldursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Elskulegur sonur minn, bróðir okkar, unnusti og móðurbróðir, INDRIÐI EINARSSON, sem lést á Möltu 21. nóvember sl., verður jarðsunginn frá Ás- kirkju fimmtudaginn 3. desember kl. 15.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Minningarsjóð Félags einstæðra foreldra, Hring- braut 116, sími 11822. Stella Jóhannsdóttir, Arndís Einarsdóttir, Arna Guðlaug Einarsdóttir, Auður Albertsdóttir, Einar M. Vilhjálmsson.
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við andlát og útför INGIBJARGAR VIGFÚSDÓTTUR, Laufásvegi 43. Halldór Vigfússon og aðrir vandamenn.
+ Þökkum innilega auðsýndan vinarhug og samúð við andlát og útför KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR frá Káranesi f Kjós. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hafnarbúða. Börn, tengdabörn og barnabörn.
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, JÓNS BJÖRNSSONAR loftskeytamanns, Strandgötu 37, Akureyri. Áslaug Jónsdóttir, Björn Jóhann Jónsson, Halldóra Steindórsdóttir, Sævar Ingi Jónsson, Elín Gunnarsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Rósa Friðriksdóttir, Ólafur Halldórsson, Atli Örn Jónsson, Arnfríður Eva Jónsdóttir, Jón Már Jónsson, Unnur Elín Guðmundsdóttir og barnabörn.
Lokað Vegna jarðarfarar ANDRÉSAR PÉTURSSONAR verða skrifstofur og birgðageymslur SÍF lokaðar í dag, þriðjudaginn 1. desember, frá kl. 12 á hádegi.