Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 1
120 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
275. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rússneska fuiltrúaþingið kemur saman
Hætta afturhalds-
öfl við atlöguna
gegn Borís Jeltsín?
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
Fulltrúaþing Rússlands, sem fer með æðsta löggjafarvald sam-
kvæmt stjórnarskránni, kemur saman í Moskvu í dag. Enn er óljóst
hvort eitthvað verður úr málamiðlun sem talið var um hríð að náðst
hefði milli ríkisstjórnar Jeltsíns og Borgarasambandsins, öflugustu
fylkingar afturhaldsafla í landinu. Helsti talsmaður sambandsins
segir það ekki markmiðið að grafa undan forsetanum eða stjórn
hans heldur að stefnunni verði breytt.
Reuter
íbúar í borginni Srebrenica í austurhluta Bosníu-Herzegóvínu veifa í kveðjuskyni til starfsmanna Sam-
einuðu þjóðanna sem færðu fólkinu matvæli og önnur neyðargögn um helgina. Skortur er á helstu
nauðsynjum í borginni. Srebrenica er að mestu byggð múslimum og hefur í sex mánuði verið umsetin
af herliði Serba sem hindraði lengi alla birgðaflutninga þangað.
Mannréttindanefnd SÞ fjallar um stríðsglæpi Serba
Múslimar í Bosníu sagð-
irí„
Genf, Sarajevo, Bel|jra<
Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna (SÞ) ræddi í gær drög
að ályktun um stríðsglæpi í Bosníu-Herzegovínu, sem fulltrúar Tyrk-
lands og Bandarikjanna lögðu fram, þar sem Serbar eru sagðir
helstu sökudólgarnir. Þar er þvi ennfremur lýst yfir að múslimar í
Bosníu séu „i reynd í útrýmingarhættu" og aðildarríki nefndarinnar
eru beðin að svara því hvort þjóðarmorð hafi þegar átt sér stað.
Námsmenn í Belgrad tilnefndu á sunnudag Milan Panic, forsætisráð-
herra Júgóslavíu, sem frambjóðanda í forsetakosningum í Serbíu
20. desember og er búist við að hann bjóði sig fram gegn þjóðernis-
sinnanum Slobodan Milosevic, forseta Serbíu, sem er sakaður um
að eiga mesta sök á bardögunum í Bosníu.
útrýmingarhættu ‘4
i, Jcddah. Reuter.
Jeltsín hvatti um helgina til þess
að umbótasinnar, sem eru klofnir í
marga hópa og lítt skipulagðir,
sameinuðust í einum flokki og hét
honum stuðningi. Hann sagði
kommúnismann dauðann og graf-
inn, mesta hættan stafaði nú af
hvers kyns fasistaöflum. Aftur-
haldsmenn á fulltrúaþinginu, sem
eru ýmist tryggir kommúnisma eða
æstir þjóðernissinnar og starfa oft
Bandarísk herferð
gegn norskum vörum
Efasemdir
innan raða
Greenpeace
New York. Frá Huga Ólafssyni, fréttarit-
ara Morgunbtaðsins.
NORSKA sendiráðinu í Washing-
ton hafa borist nokkur hundruð
mótmælabréf eftir að tvenn
bandarísk umhverfismálasamtök
hvöttu fók til að sniðganga
norskar vörur og fyrirtæki
vegna fyrirhugaðra hrefnuveiða.
Blaðafulltrúi sendiráðsins, Tore
Tanum, segir að Ijóst sé að sam-
tökin hafi veitt miklum fjármun-
um í herferðina gegn Norðmönn-
um, en á hinn bóginn hafi mörg
önnur samtök, þar á meðal
Greenpeace, lýst yfir efasemdum
um gildi slikra aðgerða.
Herferðin hófst með heilsíðuaug-
lýsingu í stórblaðinu The New York
Times 18. nóvember. Tanum segir
að erfitt sé að finna sambærileg
dæmi þar sem hvatt er til jafnrót-
tækra aðgerða gegn nokkurri þjóð
með jafnáberandi hætti í flölmiðl-
um, en of snemmt sé að segja til
um hvort herferðin fái hljómgrunn
hjá almenningi. Til dæmis var fólk
sérstaklega hvatt til að sigla ekki
með skemmtiferðaskipum í eigu
Norðmanna, en ekki væri víst að
róttækir dýraverndunarsinnar væru
stór hluti af viðskiptavinum þeirra.
Blare Palese, yfirmaður fjöl-
miðladeildar Greenpeace í Banda-
ríkjunum, sagði að samtökin hefðu
ekki lagt nafn sitt við herferðina
gegn norskum vörum enn sem kom-
ið er. Slíkar herferðir bæru oft tak-
markaðan árangur, þar sem erfitt
væri fyrir neytendur að átta sig á
hvaðan vörur eins og fiskur og olía
væru upprunnar. Hún sagði að her-
ferðin gegn íslendingum á sínum
tíma hefði þó verið árangursrík og
útilokaði ekki slíkar aðgerðir í fram-
tíðinni, þó að Greenpeace stæði utan
við aðgerðirnar gegn norskum vör-
um og fyrirtækjum nú.
saman gegn Jeltsín, vilja bola hon-
um frá. Að undanförnu hafa þeir
einkum beint spjótum sínum gegn
Jegor Gajdar forsætisráðherra sem
hafnar því að taka á ný upp miðstýr-
ingu og vill hraða markaðsvæðingu.
I viðtali bandaríska tímaritsins
Newsweek við Arkadí Volskí, leið-
toga Borgarasambandsins, segist
hann óttast að álit Jeltsíns og ann-
arra stjórnenda meðal almennings
fari forgörðum ef þeir haldi áfram
á sömu braut. Hins vegar sé það
alls ekki markmiðið að grafa undan
Jeltsín, aðeins fá hann til að breyta
um stefnu.
Borgarasambandið starfar í
Æðsta ráðinu, minna þingi sem sit-
ur allt árið. Helstu fylkingar á full-
trúaþinginu eru fjórar. Stærst er
Rússnesk eining, með um 350 full-
trúa, samtök gamalla kommúnista
og þjóðrembumanna, en miklir
flokkadrættir eru í hreyfíngunni.
Lýðræðisleg miðja hefur um 200
fulltrúa bak við sig og er Alexand-
er Rútskoj varaforseti einn þeirra.
Hann er harður gagnrýnandi stefnu
Jeltsíns. Hópurinn Skapandi öfl er
sagður boða jafnaðarstefnu, fulltrú-
ar eru um 150 og loks er Umbóta-
sambandið sem hefur um 100 full-
trúa og styður með vissu Jeltsín.
Stjómlagadómstóll kvað í gær
upp dóm í máli sem höfðað var til
að úrskurða um lögmæti banns við
starfsemi kommúnistaflokksins en
niðurstaða dómsins er svo óljós áð
jafnt stuðningsmenn sem andstæð-
ingar kommúnista hrósa sigri.
Sjá einnig frétt á bls. 29.
Stjómarerindrekar í Genf sögðu
að ályktunardrög Bandaríkjamanna
og Tyrkja yrðu líklega samþykkt á
fundi mannréttindanefndarinnar í
dag. Fari svo verður það í fyrsta
sinn sem nefndin kveður upp úr um
að Serbar eigi fyrst og fremst sök-
ina á stríðsglæpum í Bosníu.
Mannréttindanefndin ræddi einn-
ig skýrslu frá Tadeusz Mazowiecki,
fyrrverandi forsætisráðherra Pól-
lands, sem stjórnaði rannsókn á
stríðsglæpunum í Bosníu. Þar em
Serbar sakaðir um ijöldamorð á
múslimum, nauðganir og pyntingar.
Mazowiecki tekur sem dæmi „þjóð-
ernishreinsanir“ í múslimska bæn-
um Kozarac sem Serbar náðu á sitt
vald eftir mannskæðar stórskota-
árásir. „Fjöldahandtökur áttu sér
stað og fangamir voru fluttir í burtu
á vörubílum og í rútum. Fjölmargir
íbúanna, sem vora um 15.000, vora
umsvifalaust teknir af lífi, hugsan-
lega um 5.000 manns, samkvæmt
frásögnum nokkurra vitna,“ segir
í skýrslunni. Mazowiecki tekur fram
að Serbar hafi einnig verið flæmdir
úr heimkynnum sínum og teknir
af lífí á yfirráðasvæðum múslima
og Króata þótt það sé mun fátíðara.
Utanríkisráðherrar 47 ríkja ísl-
ama koma saman í Jeddah i Saudi-
Arabíu í dag til að knýja á Samein-
uðu þjóðirnar um að beita hervaldi
gegn Serbum. Þeir vilja einnig að
banni samtakanna við sölu á vopn-
um til fyrrverandi lýðvelda Júgó-
slavíu verði breytt þannig að það
nái ekki til múslima í Bosníu.
Námsmenn í Belgrad afhentu á
sunnudag kjömefnd vegna forseta-
kosninganna i Serbíu 20. desember
lista með undirskriftum 10.000
manna sem mæltu með því að Milan
Panie yrði í framboði. Ekki er enn
ljóst hvort Panic býður sig fram,
en samkvæmt skoðanakönnunum
nýtur hann mun meiri vinsælda í
Serbíu en Slobodan Milosevic. Vest-
rænir stjórnarerindrekar í Belgrad
sögðu að kosningarnar myndu
skipta sköpum fyrir framtíð Serbíu
og ef Panic byði sig fram og færi
með sigur af hólmi ykjust mjög lík-
urnar á því að unnt yrði að binda
enda á stríðið í Bosníu.
Harðir bardagar geisuðu enn í
mið- og norðurhluta Bosníu í gær
þrátt fyrir vopnahlé sem tók gildi
í fyrrinótt.
Sænskir nýnasistar minnast herkonungsins Karls XII
Lögregla handtók
32 slagsmálaseggi
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunbladsins.
RÚMLEGA 900 lögreglumenn voru kvaddir til þess
að koma í veg fyrir uppþot og átök milli sænskra
öfgahópa í Stokkhólmi í gærkvöldi, á fæðingardegi
Karls XII Svíakonungs, en hann er dýrlingur í
augum sænskra nýnasista. 32 voru handteknir, all-
ir úr röðum stjórnleysingja, en ekki kom til veru-
legra átaka.
Áður höfðu menn óttást að til mikilla slagsmála
kynni að koma er nýnasistar legðu blómsveig að styttu
Karls XII í miðborginni. Rúmlega 600 lögreglumönnum,
sem búnir voru til að takast á við óeirðaseggi, tókst
að koma í veg fyrir átök í Lundi með því að stía fylk-
ingum stuðningsmanna og andstæðinga kynþáttafor-
dóma í sundur. Þar tóku danskir nýnasistar og jafnvel
þýskir þátt í aðgerðum sænskra skoðanabræðra sinna.
Til átaka kom milli fylkinga vinstri og hægri öfga-
manna í Stokkhólmi á sunnudagskvöld en lögregla bjóst
við enn meiri látum í gærkvöldi. Svo virðist sem viðbún-
aður lögreglunnar hafí orðið til þess að halda ólátum Lögreglumenn handsama óróasegg í Stokk-
í lágmarki. hólmi í gærkvöldi.
Reuter