Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 57
seei aaaMaaaa .1 aupAauiauw aiOAjanuoaoM MORGUNBÍAÐÍÐÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992 í)ð 57 Rökræða eða úrskurður Frá Birni S. Stefánssyni: Fræðimenn álykta með rökum. Þeim er skylt að bregðast við rök- studdri gagnrýni með rökum og viðurkenna hana, ef ástæða er til. Það gerist oft með þögninni. Niðurstaða frjórrar umræðu fræðimanna getur vel orðið önnur en uppháfsmaðurinn ætlaði. Þegar Gaukur Jörundsson, nú umboðsmaður Alþingis, varði doktorsrit sitt um eignarréttará- Undanþága í skatta- lögum Frá Eggert E. Laxdal: Vegna greinar í DV, þar sem haft er eftir Steinþóri Haraldsdótt- ur hjá Ríkisskattstjóra, að engin undanþága sé í skattalögum vegna styrkja, heiðurslauna eða gjafa, vil ég leyfa mér að benda á eftir- farandi. í bókinni „Lögbókin þín“ eftir Björn Þ. Guðmundsson, segir á bls. 455, neðarlega í dálki til hægri. „Ékki telst til tekna (liður d) verðlaun og heiðurslaun o.s.frv.“ Gjafír teljast heldur ekki til baka, nema þær teljist kaup- auki. EGGERT E. LAXDAL, Ásvallagötu 33, Reykjavík. kvæði stjómarskrárinnar, var Þór Vilhjálmsson, þá prófessor, nú æðsti dómari, andmælandi. And- mælandi benti á, að veijandi hefði vanrækt að reifa mikilsvert atriði um forsendur raka sinna. Ég hlýddi á og spurði sjálfan mig, af hveiju þeir hefðu ekki talað saman um þetta meðan ritið var í undir- búningi. Veijandi hlaut að viður- kenna vanrækslu sína. Dómari anzar engri gagnrýni eftir úrskurð sinn. Starfsmaður stjómarráðsins sker úr fyrir hönd ráðherra síns og lætur ekki uppi skoðun nema ráðherra sýnist. Utanríkisráðherra hefur ekki kynnt Alþingi álit eigin þjóðréttar- fræðings, Guðmundar Éiríksson- ar, á þjóðréttarhlið EES-samn- ingsins. Fjórir lögfræðingar — dómari, stjómarráðsstarfsmaður og tveir prófessorar í lögfræði — sömdu fyrir utanríkisráðherra álit um stjómarskrána og EES-samning- inn (Morgunblaðið 8. júlí). Hér í blaðinu hafa birzt andmæli tveggja prófessora í lögfræði við áliti ijórmenninganna, Lúðvíks Ingvarssonar 25. og 26. ágúst og Bjöms Þ. Guðmundssonar, pró- fessors í stjórnarfarsrétti, 1. sept- ember. Prófessoramir, sem áttu þátt í málinu í upphafí og lúta skyldum fræðimennsku, hafa nú haft góðan tíma til að athuga andmælin. BJÖRN S. STEFÁNSSON Vesturvallagötu 5, Rvík I i I ! f f VELVAKANDI TÝNDAR LÆÐUR Systurnar Snotra og Tása em týndar, Snotra síðan 6. október en Tása síðan 6. nóvember. Þær eru átta mánaða gamlar, brönd- óttar og hvítar (myndin er af Tásu en Snotra er örlítið dekkri og loðnari). Þær týndust í Graf- arvoginum, báðar eru med hál- sól og eymamerktar. Allar upp- lýsingar um ferðir þeirra eru vel þegpar í síma 682117 og 681260. HJÓL Blátt drengjahjól, fjallahjól af tegundinni Hardrock, hvarf úr geymslu á Ránargötu 10 laugardaginn 14. nóvember eða aðfaranótt sunnudagsins 15. nóvember. Framdekk með hvítri rönd og aftara svart. Vinsam- legast hringið í síma 24879 ef hjólið hefur sést einhvers stað- ar. HÚFA Kvenhúfa, pijónuð með skinnhring og trefli, fannst fyr- ir nokkru neðarlega á Hverfís- götu. Upplýsingar í síma 22632. STEINGRÍMUR ÞARFAÐTAKA SIGÁ Magnús Jörundsson: Steingrímur Hermannsson er sonur Hermanns Jónassonar, fyrrverandi ráðherra, en Stein- grímur hefur túlkað hlutina allt öðruvísi en faðir hans gerði. Ef hann ætlar enn að skipta um kjördæmi þá held ég að hann sé kominn langt frá stefnumál- um föður síns. Ég held að hann ætti að fara að athuga sinn g'ang. Ef hann ætlar að fara að úthluta sínum sjónarmiðum þyrfti hann að fara að taka sig á og snúa sér að málum mál- anna, sem sagt efnahagsmál- um. Steingrímur Hermannsson er búinn að vera í ríkisstjórnum síðan 1971 án þess að sýna hæfni á því sviði. Ég vil ráð- leggja honum að lesa ævisögu föður síns, þar gæti hann lært ýmislegt. ÚR Úr fannst við Laugarlæk 27. nóvember. Upplýsingar í síma 38073. SVUNTA Brún drapplituð svunta fauk af barnavagni í Skipholti fyrir skömmu. Vinsamlegast hringið í síma 24600 ef hún hefur fund- ist. POKI Plastpoki tapaðist á milli Kringlu og Skaftahlíðar föstu- daginn 27. nóvember kl. 15.30. Pokinn inniheldur nýkeyta bamaskó og vettlinga. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 678214. LEIÐRÉTTING við grein í Lesbók í Kjalnesinga sögu er nefndur Kolfiðr eða Kolfínnr í elzta varð- veitta handritinu, AM 471, 4to, frá síðari hluta 15. aldar, en Kolviðr í AM 164h, fol., handriti Bjamar Jónssonar á Skarðsá frá 17. öld. Það handrit mun hafa sjálfstætt gildi gagnvart AM 471,4to (sjá Isl. fornr. XIV, xix). Kolfíður þessi (Kolfinnur, Kolvið- ur) var samkvæmt sögunni (16. kap.) felldur í bardaga neðan við Öxnaskarð (nú Hellisskarð), sem er rétt fyrir ofan Kolviðarhól. Sam- kvæmt munnmælum á 19. öld var Kolfiður heygður í Kolviðarhóli (sjá Kristian Kálund: Historisk-topogra- fisk Beskrivelse af Island I (1877), 67-68). Kolfiður er ekki sagður hafa búið á Kolviðarhóli í sögunni, eins og sagt er í grein minni í Les- bók Morgunblaðsins 28. f. m., held- ur á Vatni (þ.e. Elliðavatni). í Kjalnesinga sögu virðast mörg nöfn persónanna sótt í bæjanöfn og önnur örnefni (Esja á Esju- bergi, Tindur á Tindsstöðum, And- ríður heygður í Andríðsey o.s.frv.), og kann nafnið Kolfíður (-viður) að vera sótt í ömefnið Kolviðarhóll, þótt þess sé ekki getið í sögunni. Þórhallur Vilmundarson VZterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! Vmning laugand Wj jvi stölur aginn p; 28. nóv. 1992| (lO)^§j@ 2) \9) j V1NNINGAR fjOldi I V1NNINGSHAFA UPPHÆÐÁHVERN VINNINGSHAFA 1. 5at5 L 2 3.264.596 éi. 4af 5* SF 9 76.829 > 3. 4af5 161 7.408 > 4. 3al5 I 6.400 434 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 11.190.941 kr. upPLYStNGAnslusv««91 -681511 lukkulIna991002 Tölvunámskeið Excel 4.0 fyrir Windows og Macintosh, 14 klst. Word 2.0 fyrir Windows og Macintosh, 14 klst. Windows 3.1, 8 klst. PC grunnnámskeið, 16 klst. Innifaldar eru nýjar íslenskar bækur. Tölvuskóli Reykiavíkur BBaaéaa Hi Borgartúni 28, sími 91-687590 I SULNASAL Jólakrdsir, skemmtiatriði, tónlist og dans. Laugard. 12. og 19. desember. Nú endurtökum við jólaskemmtunina í SÚLNASAL með glæsilegu jólahlaðborði með norrænum og nú amerískum jólaréttum, skemmtun og dansleik, sannkölluð jólastemming. Að sjálfsögðu er hið heimsfræga Beaiyolais Nouveau á boðstólum og á Sögulegu afmælisverði kr. 1992. SKEMMTIATRIÐI: Söngvaramir Bergþór Pálsson ogEgiII ólafsson koma fram í fyrsta sinn í dúett og syngja sig inn í hjörtu gestanna með léttum sígildum lögum. Jónas Dagbjartsson og Jónas Þórir leika á fiðlu og ffygil. Og Björgyin Halldórsson með hljómsveit leika fyrir dansi til kl 3. 00. Verð aðeins 2. 500, - kr. . ^ íála, JÓLATILBOÐ A&B Á STURTUKLEFUM capri 30.348,- Botn fyrír CAPRI 15.660,- AZUR sturtuklefi m/öryggisgleri, botni, hitastýrbu MORA blöndunartceki, sturtustöng og haus, alltákr. 49.490. IBIZA sturtuklefi meb botni, blöndunartceki, sturtustöng og haus, allt á kr.33.055. Rabgreibslur allt upp í 18 mánubi. Fyrsta greiösla í febrúar '93. BYGGINGAVÖRUR SKEIFUNNI 11 SÍMI 681570.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.