Morgunblaðið - 12.12.1992, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ XAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
Svínakjöts-
framleiðendur
Geta sparað
með því að
kaupa fóðr-
ið í búðum
SVÍNABÆNDUR te^ja sig geta
sparað milljónir kr. í fóðurkostnað
á ári með því að kaupa heilhveiti
í lausu á sama hátt og bakarar í
stað hins hefðbundna byggs sem
þeir kaupa nú. Menn geta einnig
komist ódýrar frá fóðurkaupunum
með því að kaupa hveiti í 2 kg
pakkningum út úr stórmörkuðum
og gefið svínunum og dœmi eru
um að menn hafi gert það. Hveiti
og heOhveiti mun einnig vera
hægt að gefa alifuglum. Með þvi
að kaupa fóðrið út úr matvörubúð
sleppa bændur við að greiða fóð-
urskatt sem lagður er á innfluttar
fóðurvörur til þessara búgreina.
Gunnar Ásgeir Gunnarsson,
svínabóndi á Hýrumel í Borgar-
fírði, sagði í samtali við Morglin-
blaðið að hægt væri að skipta yfír
í hveiti eða heilhveiti hvenær sem
væri enda væri það betra fóður en
byggið. Hins vegar væru innflytj-
endur hræddir við að selja hveitið
til svínabænda því með því væru
menn að skjóta sér undan greiðslu
fóðurgjaldsins. Rúmlega 100% fóð-
urtollur er lagður á innflutt fóður
fyrir svín og alifugla. Meirihluti
hans er síðan endurgreiddur á ýms-
um stigum. Gunnar sagði að mönn-
um sviði sárt að sjá hveiti í 2 eða
5 kg pakkningum í Bónus á mun
lægra verði en þeir þurfa að greiða
fyrir svínafóðrið í lausu. Því væri
von að það freistaði einhverra
bænda. Hins vegar væri mikil vinna
að opna og losa pokana og erfítt
fyrir stærri frámleiðendur að eiga
við það.
Gunnar sagði að ef hann fengi
að kaupa heilhveiti í lausu á sama
verði og bakarar myndi það lækka
fóðurkostnaðinn á hans búi um 2,6
til 2,7 milljónir kr. á ári. Og ef
hann fengi að kaupa svínafóður-
blöndumar án allra fóðurtolla gæti
hann lækkað svínakjötsverðið frá
sér um þriðjung. Þá þyrftu menn
heldur ekki að óttast samkeppni við
innflutt svínakjöt.
Sendiráöið
í dag
Sendiherra Rússa segir sendiráðið
ekki lengur áróðurstæki heldur ut-
anríkismálastofnun 13
Hækkanir þarf_________________
Svínakjöt, kjúklingar og egg þurfa
að hækka um 10-11%, að áliti bú-
greinafélaganna 30
Brauöiö_______________________
Verðkönnun á brauði og kökum 32
Orgeliö vígt__________________
Orgel Hallgrímskirkju verður vígt
á sunnudag 38
Leiöari_______________________
Konungdæmi og breyttir tímar 38
Einar Oddur Kristjánsson um áhrif sölu Gyllis o g kaupanna á Val
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
Salan útskýrð
Á efri myndinni ræða þeir málin, Einar Oddur Kristjánsson og Guðmund-
ur Sigurðsson, varaformaður verkalýðsfélagsins Skjaldar á Flateyri. Á
neðri myndinni útskýrir Einar Oddur sjónarmið fyrirtækisins fyrir hrepps-
nefnd Flateyrar í gærkvöldi.
Skuldir Hjálms
lækka um 290
milljónir króna
Flateyri. Frá Þorsteini Briera, blaðamanni Morgnnblaðsins.
„SKULDIR Hjálms voru 440 miiyónir en lækka um 290 miiyónir
með því að selja togarann Gylli og kaupa i staðinn línubátinn Val,
auk þess sem meðaltími á lánum okkar lengdist úr 6,8 árum í tæp
13 ár vegna þess að hagstætt lán hvflir á Val. Þá þarf ekki að
segja upp starfsfólki í fiskvinnslu og um 12 manns verða á Val en
15 manns eru á Gylli,“ segir Einar Oddur Kristjánsson fram-
kvæmdasfjóri Hjálms hf. á Flateyri.
Hreppsnefndin á Flateyri hélt
aukafund um málið í gærkvöldi
þar sem Einar Oddur kynnti á lok-
uðum fundi sjónarmið Hjálms
varðandi söluna á togaranum. í lok
fundarins ákvað hreppsnefndin að
fela oddvitanum og sveitarstjóran-
um á Flateyri að kanna hvort aðr-
ir útgerðarmenn á staðnum vildu
ganga inn í samning Birtings hf.
í Neskaupstað og á Seyðisfírði um
kaup á Gylli. Hreppsnéfndin heldur
síðan annan fund á mánudag þar
sem ákvörðun verður tekin um
hvort sveitarfélagið fellur frá for-
kaupsrétti, en hún hefur 30 daga
frest til þess. Hins vegar eru eng-
ar líkur á að aðrir útgerðaraðilar
á Flateyri hafi bolmagn til að
ganga inn í samninginn.
Samningurinn um sölu á Gylli
var undirritaður 5. desember og
kveður á um að Birtingur kaupi
Gylli ásamt 1.838 tonna aflakvóta
í þorskígildum en Hjálmur hf. fær
í staðinn línubátinn Val SU og 802
tonna kvóta í þorskígildum.
Hjálmur hf. ætlar að hefja kú-
fiskvinnslu í næsta mánuði sem
Einar Oddur er sannfærður um að
muni ganga. Hann segir að 15-20
manns fái vinnu við kúfiskvinnsl-
una en kúfiskurinn verður seldur
lifandi til Hollands og Frakklands.
Einar Oddur heldur ekki að því
verði breytt að helmingur af línu-
afla sé utan kvóta frá nóvember
til febrúar. Um þá skoðun Krist-
jáns Jóhannessonar, sveitarstjóra
á Flateyri, að tekjur sveitarfélags-
ins minnki, segir Einar Oddur að
aðalatriðið sé hvort fyrirtækin
borgi sín gjöld. Flateyrarhreppur
hafí til dæmis tapað 8-12 milljón-
um undanfarin ár vegna þess að
fyrirtæki á Flateyri, sem hafi verið
að keppa við Hjálm, hafi ekki greitt
sín gjöld.
Kristján Erlingsson, fjármála-
stjóri Hjálms, segir að 28 smábát-
ar hafi landað samtals 270 tonna
afla hjá Hjálmi í sumar. „Við stefn-
um að því að enn- fleiri smábátar
landi hjá okkur næsta sumar.
Hjálmur veitir þeim ýmsa þjón-
ustu, til dæmis ókeypis ís og lönd-
un allan sólarhringinn. Þá þurfa
smábátasjómennimir ekki að
greiða nema 1.000 krónur á mán-
uði í húsaleigu hér,“ segir hann.
Rekstur á Grundartanga með
7 5% afköstum frá áramótum
Niðurstöðu eigenda Jámblendiverksmiðjunnar ekki að vænta fyrr en á næsta ári
Jámblendiverksmiðjan á Grundartanga verður rekin með 75%
afköstum frá áramótum, nema eigendur taki ákvörðun um annað.
Endanlegrar niðurstöðu um hvort hlutafé verði aukið til að tryggja
framhald reksturs er ekki að vænta fyrr en eftir áramót. Því er
líklegt að enn komi til kasta ríkisstjórnarinnar á næstu dögum
vegna 50 miiyóna greiðslu sem verksmiðjan þarf að skila í desem-
ber.
Á Grundartanga var gerð úttekt
á ijórum framtíðarmöguleikum
verksmiðjunnar og í fyrradag var
iðnaðarráðuneyti gerð grein fyrir
þeim. Fulltrúar ráðuneytisins
sögðu nýlega mál verksmiðjunnar
í biðstöðu þar sem þessa greinar-
gerð vantaði, en þótt hún sé feng-
in er enn nokkuð langt í niður-
stöðu eigenda um framhaldið. Er-
lendir eigendur, Elkem og Sumi-
tomo, telja mikilvægt hversu hag-
stæðir samningar náist við Lands-
virkjun um raforkukaup.
Jón Sigurðsson framkvæmda-
stjóri Jámblendiverksmiðjunnar
segir viðræður við Landsvirkjun
halda áfram í næstu viku. En ljóst
sé að afstaða Elkem skýrist ekki
fyrr en í janúar þegar gengið verð-
ur frá rekstraráætlun norska fyrir-
tækisins. „Okkar rekstraráætlun
byggist á þeirra,“ segir Jón, „við
höfum þurft að gefa okkur for-
sendur vegna rekstursins á
Grundartanga eftir áramótin."
Verksmiðjan hefur að jafnaði
afkastað 80% hámarksgetu á
þessu ári. En síðan í september-
byrjun hefur hún verið rekin með
tæplega helmings afköstum, með
öðrum ofninum. Frá áramótum er
aftur ætlunin að nota báða ofnana
og framleiða 75% þess kísiljáms
sem hægt væri með hámarksaf-
köstum. Þetta magn, rösklega 50
þúsund tonn á árinu, miðast við
afskipunarrétt Grundartangaverk-
smiðjunnar samkvæmt markaðs-
samningum við Elkem, afi sögn
ILUÐU
SINFONIU
Menning/Listir
► Ný íslensk skáldverk
kynnt Laufey Helgadóttir
skrifar frá París. Bókagagn-
rýnl og -fréttir.
Tók fyrir borð milli
Eyja og Þrídranga
31 ÁRS gamlan filippeyskan sjó-
mann tók fyrir borð á Nincop,
þýsku leiguskipi Samskipa, í gær-
morgun þegar það var mitt á milli
Þrídranga og Eyja. Hann er talinn
af.
Tilkynning barst Landhelgisgæsl-
unni um að maður hefði fallið fyrir
borð klukkan 8.16 í gærmorgun og
hófst þá þegar leit. Auk Nincop tóku
þátt í leitinni Dettifoss, þyrla Land-
helgisgæslunnar, lóðsbáturinn í Eyj-
um, björgunarbátur frá Björgunarfé-
lagi Vestmannaeyja og 6-8 vélbátar
úr Eyjum.
Leitinni var hætt kl. 11.30 og var
maðurinn þá talinn af.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Jóns Sigurðssonar. Hlutdeild verk-
smiðjunnar í heildarsölu Elkem er
um 18%. Ætlunin er að halda þess-
um dampi fram að sumarleyfum
og hafa þá annan ofninn í gangi
fram á haust.
Þessi áform gætu breyst með
ákvörðun eigenda. Aðrar leiðir en
75% afköst sem skoðaðar voru af
stjómendum á Grundartanga fyrir
iðnaðarráðuneytið eru: Lokun
verksmiðjunnar, framleiðsla með
einum ofni, eða á fullum afköstum
ef samningar tækjust um sölu á
viðbótarmagni kísiljárns.
Fimm teknir
fyrir neyslu
á fíkniefnum
og innbrot
Fíkniefnalögreglan og
rannsóknarlögreglan í
Hafnarfirði handtóku í gær
fimm menn í húsi í Hafnar-
firði, vegna gruns um fíkni-
efnaneyslu og innbrot.
Við leit á staðnum fannst
smávægilegt magn fíkniefna,
áhöld, sem talin eru tengjast
innbrotum, og eitthvert þýfí.
Þremur mannanna var sleppt
að loknum yfirheyrslum, en
mál tveggja var fengið Rann-
sóknarlögreglu ríkisins til
meðferðar.