Morgunblaðið - 12.12.1992, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
57
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
Níu milljóna tap og
mikill samdráttur
í sölu veiðileyfa
Stóraukin eftirspurn erlendra
veiðimanna eftir Norðurá
TAP Stangaveiðifélags Reykjavíkur var rúmar 9 milljónir króna
á síðasta starfsári samkvæmt skýrslu framkvæmdastjórans, Jóns
Gunnars Borgþórssonar. Þetta kom fram á aðalfundi SVTR sem
haldinn var nýlega. Sagði Jón Gunnar að ljóst væri að komið væri
að þeim tímamótum sem spáð hefði verið síðutsu árin, að verðlag,
framboð og eftirspurn færu ekki lengur saman og spiluðu þar sam-
an ýmsir þættir, m.a. efnahagsástandið í þjóðfélaginu og minni veiði
i ám síðustu sumur, eða þar til í sumar sem leið. Hins vegar væri
staða eigin fjár SVFR jákvæð upp á rúmar 48 milljónir og því væri
staðan enn sterk og þrátt fyrir þrengingarnar síðasta ár virtust
horfur með sölu á veiðileyfum fyrir næsta sumar hafa batnað nokkuð.
Veiðileyfi í Norðurá, dýrustu á
SVFR, verða boðin á 15 prósent
lægra verði fyrir komandi vertíð
heldur en var síðasta sumar. Aðeins
68% af útsöluverðmæti árinnar
seldist á liðnu sumri á móti 92%
sumarið 1991. Jón Gunnar Bald-
vinsson fráfarandi formaður SVFR
sagði á aðalfundinum að hinar batn-
andi horfur væru að sjá í stóraukn-
um fyrirspumum og pöntunum í
Norðurá frá erlendum veiðimönnum
sem vildu veiða á dýrasta tímanum
í júlí, en það var einmitt tíminn sem
nýttist hvað verst síðasta sumar.
FYam kom einnig á fundinum að
aðeins þijú veiðisvæði SVFR seld-
ust upp á sumrinu, Elliðaárnar,
Brynjudalsá í Hvalfirði og Alviðru-
veiðar í Soginu. Sókn í flest hinna
22 veiðisvæða félagsins minnkaði
hins vegar.
Formannaskipti urðu í félaginu.
Friðrik Þ. Stefánsson tók við for-
mgnnsku af Jóni Gunnari Baldvins-
syni sem setið hafði sem formaður
í 6 ár. Friðrik hefur verið varafor-
maður síðustu árin. Fjórir aðilar
gáfu kost á sér í þrjú laus sæti í
aðalstjórn. Kristján Guðjónsson,
Ólafur Haukur Ólafsson, Þórólfur
Halldórsson og Einar Sigfússon.
Þeir fyrstnefndu voru kjörnir, en
mikið jafnræði var í kosningunni
og skildu fá atkvæði frambjóðend-
ur.
------».-------
■ AÐVENTUKAFFMLAÐ-
BORÐ í Úlfaldnnum, Ármúla
17a, verður haldið sunnudaginn 13.
desember kl. 14-17. Séra Sigurð-
ur Hauksson talar, klassískur gít-
arleikur og Eva Kolbrún og tví-
buramir syngja.
V^terkurog
kD hagkvæmur
auglýsingamiöill!
fjtatgmMiiftlfr
Metsölublaó á hverjum degi!
SKI-DOO '93
VELSLEÐARNIR
ERU MÆTTIR
TIL LEIKS!
SÝNING
UM ÞESSA
HELGI!
50 ÁRA afmæli brautryðjenda í vélsleðum eru afurðirnar glæsilegri
en nokkru sinni fyrr. Ski-doo vélsleðarnir eru hlaðnir nýjungum
þannig að hliðstæður finnast ekki. Þú verður að sjá Ski-doo og falla
fyrir eftirtektarverðustu véisleðunum. Góð verð, hagstæðir
greiðsluskilmálar, kynningarmyndbönd, vertu velkomin í sýningarsal
okkar. Opið alla helgina.
Umboðsaðilar: Bílaval hf., Strandgötu 53, Akureyri,
Bílasalan Fell, Egilsstöðum, Bflaverkst. Nonni, Bolungarvík
G'SU JÓNSSONHF
BHdshöfði 14
Sími686644