Morgunblaðið - 12.12.1992, Blaðsíða 14
M1292
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
OPIÐ
TIL KL.
18.00
Laugavegi
Eftirfarandi opnunartími í desember
Laugardagurinn 12. des. 10—18
Sunnudagurinn 13. des. 13—17
Laugardagurinn 19. des. 10—22
Sunnudagurinn 20. des. 13—17
Þorláksmessa 23. des. 9—23
AÖfangadagur 24. des. 9—12
Gamlársdagur 31.des. 9—12
ALLSKYNS UPPÁKOMUR
Kl. 13"! 8. Jólasveinar í hestakerru gefa börnum mandarínur
ásamt fleiri jólasveinum sem bregða á leik um allan
Laugaveg og Bankastræti.
Lúðrasveit Verkalýðsins leikur.
Skólakór Mosfellsbæjar syngur.
Sjö manna blásturssveit frá Lúðrasveit Reykjavíkur.
Jólaglögg á nokkrum stöSum til styrktar
„BÖRNIN HEIM".
Sunnudaginn 13. des.
kl. 13-17
Barnakór Austurbæjarskóla syngur.
Barnakór Æfingadeildar Kennaraháskólans syngur
Besta gluggaútstillingin
Keppnin um bestu jólagluggaútstillinguna heldur áfram við Laugaveg,
Bankastræti og Kvosina.
Veljió fallegasta gluggann skráiS nafn verslunarinnar á þar til gerð eyðublöð
sem fást í öllum verslunum, skilist síðan í einhverja verslun.
Drætti hefur verið frestað til laugard. 19. des. '92 en þá verður dregiS í beinni
útsendingu hjá Bylgjunni. Glæsilegir vinningar kr. 10.000,- úttektir í eftirtöldum
verslunum:
Veiöima&urinn, Hafnarstræti 5.
Sigurboginn snyrtivöruversiun, Laugavegi 80.
Flex sérverslun - gjafavara, Laugavegi 61.
Ragnar, herraföt, Laugavegi 61.
Sparta, íþróttavörur, Laugavegi 49.
Englabörn, barnaföt, Bankastræti 10.
Axel Ó, skór, Laugavegi 11.
Gull og Silfur, Laugavegi 35.
Gubsteinn Eyjólfs, herraföt, Laugavegi 34.
Guölaugur A. Magnússon, Laugavegi 22A.
Gilbert úrsmiöur, Laugavegi 62.
London Dömudeild, Austurstræti 14.
Herragar&urinn, Mi&bæjarmarka&num.
Kogga, leirsmi&ur, Vesturgötu 5.
Blóm og Ávextir, Hafnarstræti 4.
FRÍTT í BÍLASTÆÐI
Muniö nýja bílhýsiS við
Hverfisgötu gegnt
ÞjóSleikhúsinu. Upplagt
aSprófa þaS núna.
FRITT INN í
DESEMBER,
LAUGA-
VEGURINN ER
KOMINN í
JÓLABÚNINGINN
ALLIR í JÓLASKAPI
Á LAUGAVEGINUM
NÚ ER OPIÐ A SUNNUDOGUM TIL JOLA FRA KL.13-17.
Við Laugaveg og Bankastræti eru um 200 verslanir, veitinga- og kaffihús i tugafali.
Veriðvdkonmáliiii^egim
- notalega og langa islenska vershinargötu
BÓKMENNTA-
LEGT VANMAT
eftir Kolbrúnu
Bergþórsdóttur
A sínum tíma var stofnað til ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna
með það fyrir augum að tilnefna
þau verk sem bera þættu af öðrum
og verðlauna síðan hið besta þeirra.
Nú munu flestir sammála um að
ætíð hafi tekist vel þegar að verð-
launaúthlutun kom. Tilnefningar
hafa hins vegar einatt orkað tví-
mælis og nokkur dæmi finnast þar
sem áberandi góð verk voru sett
utan garðs meðan önnur sem ekki
standast samanburð voru teymd inn
um dyr. Hér er látið nægja að nefna
tvö dæmi. Fyrir ári sendi Gyrðir
Elíasson frá sér besta prósaverk
sitt og áður hafði Þorsteinn frá
Hamri gefí út frábæra ljóðabók.
Framhjá þessum bókum var gengið.
Góðu hejlli voru ný afbragðsverk
þessara höfunda tilnefnd nú.
í ár gerðist það að þau þrjú
prósaverk sem hjóta að teljast í
hópi bestu verka ársins hljóta ekki
náð fyrir augum dómnefndar. Svo
góð eru þessi verk að það hefði
ekki átt að koma neinum bók-
menntaunnanda á óvart að sjá þau
öll tilnefnd. Það hefíð reyndar ekki
heldur vakið furðu þótt einhverju
þeirra hefði verið liafnað því val
dómnefndar takmarkast við fímm
bækur. En þegar þessi þijú verk
eru öll sett út í kuldann þá vekur
það þvílíka undrun að ekki er annað
mögulegt en að mótmæla.
Það er almennt álit bókmennta-
manna að þijár skáldsögur beri af
öðrum þetta árið og séu bestu verk
höfunda sinna. Aðeins ein þessara
skáldsagna hlaut náð fyrir augum
dómnefndar. Bækur Einars Kára-
sonar og Vigdísar Grímsdóttur virð-
ast ekki hafa vakið neinn fögnuð á
þeim bæ. Það sama á við um endur-
minningabók Thors Vilhjálmssonar
sem er afburðavel skrifuð. Bækur
þessara höfunda hafa hlotið lof
gagnrýnenda. Þær hafa einnig náð
athygli lesenda og raðað sér á met-
sölulista, eins og var reyndar við-
búið.
Það læðist að manni sú hugsun
hvort velgengni höfundanna eigi
einhvern þátt í því fálæti sem dóm-
nefndin sýnir verkum þeirra. Getur
verið að henni þyki þessum höfund-
um hafa verið hossað nóg síðustu
ár af almenningi og gagnrýnend-
um? Hafí dómnefndin hunsað bæk-
ur höfundanna á þeim forsendum
Kolbrún Bergþórsdóttir
„ Aðalatriðið er að þrír
af þekktustu rithöfund-
um okkar sendu frá sér
verk sem eru með því
glæsilegra sem þeir
hafa gert. Það var
gengið framhjá öllum
verkunum.“
þá er mat hennar allfjarri tilgangi
verðlaunanna. Ef dómnefndin hefur
hins vegar ekki séð ofsjónum yfír
velgengni höfundanna telur hún
greinilega að í þessum verkum finn-
ist ekki sá tilþrifamikli skáldskapur
sem réttlæti tilnefningu. Og það er
í meira lagi hæpið bókmenntamat.
Það er óháett að fullyrða að dóm-
nefndin hefði getað valið hvaða
fímm bækur sem er úr flokki fagur-
bókmennta sem komu út þetta ár,
en hefði aldrei fundið fimm bækur
sem allar eru jafngóðar eða betri
en þær þijár sem hér hafa verið
nefndar.
Aðalatriðið.er að þrír af þekkt-
ustu rithöfundum okkar sendu frá
sér verk sem eru með því glæsi-
legra sem þeir hafa gert. Það var
gengið framhjá öllum verkunum.
Ekki eitt þeirra hlaut náð fyrir aug-
um dómnefndar. Bókmenntaunn-
endur hljóta að furða sig á þeim
úrslitum og harma að svo fór.
Höfundur er bókmenntagagn-
rýnandi á Pressunni.
Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs
Stefnir í 70% álögur
á hvern bensínlítra
Verðlækkun hérlendis ekki tímabær
HEIMSMARKAÐSVERÐ á olíu
hefur farið lækkandi að undan-
förnu. Tonnið af súperbensíni
hefur lækkað úr um 187 dollur-
um í um 177 dollara tonnið. Krist-
inn Björnsson forstjóri Skeljungs
segir að ekki sé fyllilega tíma-
bært að lækka verð á olíu og
bensíni hérlendis, þar sem tölu-
verðar sveiflur séu enn á olíu-
verði og á gengi dollara. Hann
segir að opinberar álögur á
hvern bensínlítra stefni í að
verða yfir 70% af verðinu.
„Þetta er má segja hefðbundin
desemberlækkun að sumu leyti. Ef
litið er á tólf mánaða tímabii, frá
janúar til janúar, er olíuverð mjög
oft lægst um þetta leyti árs,“ sagði
Kristinn.
„Það er hins vegar alveg rétt
verðið hefur farið lækkandi og er
orðið býsna lágt núna. Við verðum
hins vegar að vega olíuverðslækk-
unina upp á móti dollamum, því
allir okkar samningar eru í dollur-
um. Gengishækkun dollars vegur
því upp á móti olíuverðslækkun-
inni. Ef við sjáum lækkun sem við
teljum vera varanlega þá breytist
verðið hér,“ sagði Kristinn.
Hann sagði að beint gengistap
olíufélaganna vegna gengisbreyt-
ingarinnar 23. nóvember sl. skipti
milljónum króna. „Ég stend við það
sem ég hef áður sagt, að ef við
erum að horfa upp á viðvarandi
lækkun núna munu íslenskir neyt-
endur njóta hennar."
Kristinn sagði að hátt bensínverð
hérlendis skýrðist af opinberum
álögum, en þær næmu 67,8% af
hveijum bensínlítra. Innkaupsverð
væri 17,5%. Síðan stæði til að
hækka bensíngjald um tvær krónur
innan skamms. Það legðist ofan á
bensínverð auk virðisaukaskatts og
næmu þá opinberar álögur af þess-
ari vöru yfír 70%.