Morgunblaðið - 12.12.1992, Blaðsíða 55
\?f)
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
55
sismann. Við höfum sett upp
rstaka deild til að afla upplýsinga
i nýnasista og fylgist hún sér-
iklega með tengslum milli hreyf-
ja í ýmsum löndum. Þau eru
ssulega fyrir hendi. Ameríski nas-
aflokkurinn og aðrir hópar í
mdaríkjunum prenta til dæmis
ai fyrir þýska og austurríska
oðanabræður. Efni sem ekki
agist prentað í Þýskalandi er
sgt að prenta í Bandaríkjunum.
ð höfum ekki fundið nein bein
igsl þessara nýju hreyfinga við
mlu nasistana, hvorki skipulags-
í né peningaleg. Hér kemur einn-
til greina kynslóðabilið. Það er
ergi meira bil staðfest milli kyn-
>ða en einmitt í Þýskalandi og
ísturríki."
Öfgahóparnir í Evrópu beina
jótum sínu helst að innflytjendum
í Suður-Evrópu og þriðja heimin-
1. Skyldi gyðingahaturs verða
)a vart í dag?
„Hvenær sem útlendingahatur
mur upp, og það er til í mörgum
idum, beinist það einnig gegn
'ðingum. Þetta sést berlega í
ídum fyrrum Júgóslavíu, Gyðing-
verða ævinlega fyrstu fórn-
lömbin. Þess vegna eigum við að
ijast gegn útlendingahatri, hvar
m það kemur upp.“
var farið með hana inn í baðher-
bergi, þar sem hún átti að fara í
sturtubað. Vörðurinn leiddi síðan
aðra konu inn til hennar, illræmd-
ustu og grimmustu eftirlitskonu
kvennafangabúðanna í Birkenau,
Maríu Mandl frá Austurríki. Hún
hafði líka verið dæmd til dauða.
Konurnar tvær stóð naktar undir
sturtunum, en hvorug leit á hina.
Skyndilega gekk María Mandl til
hinnar og sagði þessa einu setn-
ingu: „Geturðu fyrirgefið mér?“
Pólska konan, sem var síðar náð-
uð, lýsir viðbrögðum sínum á þessa
leið: „Við vorum tvær naktar konur
og biðum þess að deyja. Ég vissi
að allar þær manneskjur, sem Mar-
ía Mandl hafði farið ilia með, heyrðu
ekki til mín. Þess vegna sagði ég:
„Já.“
Wiesenthal þekkir þessa tvo
möguleika. Og enn í dag er hann
ekki viss um, hvort sá kosturinn
sem hann valdi, var sá rétti. Svo
óviss hefur hann verið í sinni sök,
að í bók sinni „Sólblóm" bætti hann
við kafla með spurningum, þar sem
fólk sem hann telur öðrum mark-
tækara á sviði siðgæðis, er beðið
að lýsa skoðun sinni á því, hvort
hann hafi gert rétt. Umræðan, sem
hófst í kjölfarið í Frakklandi og í
mörgum öðrum löndum og fýllti
vikum saman heilar síður í merk-
ustu dagblöðunum, leiddi ekki neitt
ákveðið í ljós. Wiesenthal er nú
sjálfur þeirrar skoðunar, að hann
hafi fundið svarið í bréfí frá norskri
bóndakonu: „Þú áttir að segja hon-
um að hann ætti að biðja Guð um
fýrirgefningu. Og Guð hefði fyrir-
gefíð honum.“
DeLonghi
eru
ál-
Dó Longhi aufustraujámin
fislétt oa falleg. Fást meö
eöa stáisóla. Og þú notar þau
með eöa án gufu. Gufuskot og
stillanlegt gufumagn.
Verft fró kr. 3.790,- stgr.
/FD nix
GUFUSTRAUJÁRN
Ný útvarpsstöð í
loftið á Suðureyri
Suðureyri. v
UTSENDINGAR hófust 1. des-
ember sl. hjá nýrri útvarpsstöð á
Suðureyri. Nafn stöðvarinnar er
Á-rás og sendir hún út á FM 103,0.
Það eru nokkrir ungir Súgfírðing-
ar sem standa að rekstri stöðvarinn-
ar sem sendir út frá 7 til 24 alla
virka daga og allan sólarhringinn um
helgar.
Sendibúnaður stöðvarinnar er
leigður frá Pósti og síma en húsnæði
undir stöðina var fengið að láni hjá
Freyju hf.
Að sögn Jóns Gestssonar, eins
forsvarsmanna Á-rásarhópsins,
kviknaði hugmyndin um rekstur út-
varpsstöðvarinnar nú á haustdögum,
og hefur síðan verið unnið á fullu.
Öll vinna við rekstur stöðvarinnar
er og verður unnin í sjálfboðavinnu.
Dagskrárefnið er af ýmsu tagi, þótt
tónlistin komi til með að skipa stóran
sess.
Ýmsir bæjarbúar hafa tekið að sér
dagskrárgerð sem verður af ýmsu
tagi, þá verða auglýsingar og fréttir
af gangi mála hér og annars staðar
tíundaðar á meðan Á-rásin verður í
loftinu.
Ætlunin er að senda út allan des-
embermánuð. Kostnaði vegna leigu
á útsendingarbúnaði á að ná inn með
Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson
Hluti af A-rásarhópnum f.v. Einar Ómarsson, Jón Arnar Gestsson,
Elías Guðmundsson og Ómar Elvarsson.
auglýsingatekjum. Að sögn Jóns
hafa undirtektir eigenda fyrirtækja
og verslana, bæði á Suðureyri og
ísafírði, verið mjög jákvæðar hvað
varðar auglýsingar á Á-rásinni og
eru þeir því bjartsýnir á að endar
náist saman fjárhagslega.
Útsendingar Á-rásarinnar nást á
öllu stór-Súgandafjarðarsvæðinu.
- Sturla Páll.
Þeir eru allir í fremstu röð.
Þeir hafa allir kynnst atvinnumennsku með erlendum stórfélögum.
Þeir hafa alUr fengið sinn skammt afmeðbyr og mótlœti lífsins.
í samtölum sínum við Heimi Karlsson segja þeir Atli Eðvaldsson,
Pétur Guðmundsson og Sigurður Sveinsson frá lífi sínu innan vallar og
utan, allt frá barnæsku til dagsins í dag. Þeir greina frá mörgu sem aldrei
fyrr hefur komið fram í dagsljósið og eru ófeimnir við að segja skoðanir
sínar á málefnum sem varða bæði íþróttahreyfinguna og þjóðfélags-
umræðuna.
iraur er óskabók íþróttaunnandans um þessi jól!
HÁTUNI 4A SÍMI (91)24420