Morgunblaðið - 12.12.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.12.1992, Blaðsíða 16
MORGUNBLÁÐÍÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992 ► HQsgögn Meðal annars eigin framleiðsla. ► Gluggarjaldaefni og hösgagnaáHlæði. ► Ljósabúnaður Úliljós og inniijos. Lítiö viö og gleöjiö augaö ! V Hönnun í hávegum... FAXAFENI 7 108 REYKJAVIK SIMI 91 687733 Svar til Hauks Helgasonar Enn í gamla farínu eftir Björn Bjarnason Þótt Samtök herstöðvaandstæð- inga hafi nú eftir hrun Sovétríkj- anna komist að þeirri niðurstöðu, að það beri að fara að öllu með gát, þegar rætt er um brottför vamarliðsins, er enn nokkur sam- hljómur í Evrópustefnu Alþýðu- bandalagsins nú og Sósíalista- flokksins fyrir 30 ámm. Hefur til dæmis þegar komið í ljós í at- kvæðagreiðslu, er tengist aðild ís- lands að evrópska efnahagssvæð- inu (EES), að þingflokkur Alþýðu- bandalagsins er einn og einangrað- ur í óskiptri andstöðu við EES. I nýrri bók, Liðsmenn Moskvu, er rifjað upp, að um mitt ár 1962 hafi Kjartan Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Sósíalistaflokksins, ritað bréf til allra formanna flokks- félaga og sagt, að mikilvægara væri en nokkru sinni fyrr að grípa til samfylkingar með vinstriöflum „til að hnekkja fyrirætlunum um að innlima Island í (Efnahags- bandalag Evrópu)“. Síðan segir Ámi Snævarr, sem ritar þennan kafla bókarinnar: „Óttinn við Evr- ópubandalagið, eins og það er kall- að nú, var orðinn afsökun (sósíal- ista) fýrir samstarfi við önnur stjómmálaöfl eins og fasisminn, bandaríska heimsvaldastefnan og endurhervætt Þýskaland á undan. Raunar var Þýskaland, fasisminn og Efnahagsbandalagið eitt og hið sama í áróðri sósíalista á þessum ámm en talað var um að „hramm- ur Stór-Þýskalands hins svonefnda Efnahagsbandalags Evrópu“ ógn- aði nú tilveru íslands." Hin tilvitnuðu orð, sem lýstu afstöðu ýmissa vinstrisinna fyrir 30 ámm, eiga erindi til okkar enn í dag. Jafnvel um þessar mundir heyram við þær röksemdir frá málsmetandi vinstri mönnum hér, að með þátttöku í evrópska efna- hagssvæðinu séum við ekki aðeins að ganga undir ok Evrópubanda- lagsins heldur undir „hramm Stór- Þýzkalands“. Lúðvík semur við EB Á árinu 1972 var undirritaður fríverslunarsamningur íslands og Evrópubandalagsins (EB). Alþingi' heimilaði síðan fullgildingu hans 1973. Þá sat ríkisstjórn undir for- sæti Ólafs Jóhannessonar, Fram- sóknarflokki, þar sem Lúðvík Jós- epsson, Alþýðubandalagi, var við- skiptaráðherra. Gerðist þetta að- eins tveimur árum eftir að Alþýðu- bandalagsmenn höfðu í stjórnar- andstöðu greitt atkvæði gegn aðild íslands að Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA) og framsókn- armenn höfðu setið hjá við þá at- kvæðagreiðslu. Töldu ýmsir, að þessir flokkar myndu jafnvel beita sér fyrir úr- sögn íslands úr EFTA, ef þeir kæmust til valda. Þeir gerðu það alls ekki heldur gengu þvert á móti lengra til samstarfs um frí- verslun með samningnum við EB. Þegar Lúðvík Jósepsson flutti framsögu fyrir tillögunni um stað- festingu Alþingis á fríverslunar- samningnum við EB, sagði hann meðal annars: „Hér er vissulega um þýðingarmikið mál fyrir okkur íslendinga að ræða. Við þurfum að tryggja okkur sem fijálsasta viðskiptaaðstöðu við lönd hins nýja og stækkaða EBE (Efnahags- bandalags Evrópu). Við eigum mikil viðskipti við þessi lönd og hljótum eðli málsins samkvæmt að eiga áfram mikil viðskipti við þau.“ Þegar umræður á Alþingi um þetta mál em lesnar, sést, að ýms- ir töldu, að með þessari samnings- gerð væru Alþýðubandalagsmenn að ijúfa einangrun sína í afstöð- unni til Evrópusamstarfs í við- skiptamálum, en um þau snýst EES-samningurinn. Var greinilega litið á afstöðu Lúðvíks svipuðum augum og menn gerðu síðar, þegar Alþýðubandalagið gerðist aðili að ríkisstjóm 1978 án þess að setja skilyrði um brottför varnarliðsins. Þá hvarf flokkurinn frá einu helsta stefnumáli sínu í utanríkismálum. Á meðan Alþýðubandalagið átti aðild að ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar 1988-1991 og grunnurinn var lagður að EES- samningnum, stóð flokkurinn ekki í vegi fyrir þátttöku íslands í samn- ingaviðræðunum við EES. Þá virt- ust að minnsta kosti ráðherrar Alþýðubandalagsins átta sig á því, að þátttaka í EES var og er ekki annað en eðlilegt framhald að að- ildinni að EFTA og samningnum við EB, sem Lúðvík Jósepsson stóð að 1972. Nú er Alþýðubandalagið hins vegar í stjórnarandstöðu og þrátt fyrir allt talið um nýja stefnu, nýja starfshætti og nýja leiðtoga Alþýðubandalagsins standa þing- menn flokksins í svipuðum sporum og Kjartan Ólafsson fyrir 30 árum, þegar kemur að lokaafgreiðslu EES á Alþingi. Teg: 313 Svart leður og rússkinn St. 36- 41 Kr.1.990 Teg: 263 Svart leður St.36 - 41 GRIPU TÆKIFÆRIÐ - JÓLATIIBGD Á HERRA- OG DÖMUSKÓM Á EINSTÖKU VERÐI! Þetta er sýnishorn of þeim skóm sem við bjóðum ó tilboösverði Lítið við! Teg: 1760 Svart leður og russkinn St. 40- 45 Kr. 2.990, s^ndum Teg: 1018 Svart leður St. 3641. Kr« 1.990 Laugavegi 1 1 - Sími: 21675
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.