Morgunblaðið - 12.12.1992, Page 13
Se<U MUHMMciIiQ .21 MUDACIflAOlJAJ GIG/ul.Í/JIOMOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUH 12. ÐESEMBER 1992
burðir landbúnaðar í Norður-Amer-
íku eru slíkir að samkeppnisstaða
Evrópu mun bíða mikla ímekki ef
þeir gera það ekki fljótlega upp við
sig hvort þeir ætli að mæta þeirri
áskorun sem í honum flest eða ein-
angra sig með því að loka sig af
með sín vandkvæði.
Mismunandi þróun stórmarkaðs-
svæða, hvort sínu megin við Atl-
antshafið, getur skapað mikla
spennu. Úr þeirri spennu verður
ekki dregið nema að gagnkvæm
viðskipti verði örvuð með öllum
hugsanlegum ráðum. íslendingar
eiga að leggja sitt létta lóð á voga-
skál gegn einangrun frá Ameríku.
í því efni eiga þeir sérdeilis sam-
eiginlega hagsmuni ásamt írum,
Bretum, Norðmönnum, Spánveij-
um, Portúgölum og fleirum, sem
mega óttast togkraft til austurs
innan Evrópubandalagsins. Þróun-
in í Norður-Ameríku mun þrýsta á
Evrópu að flýta samruna Vestur-
Evrópu, sem aftur mun auka þrýst-
ing og spennu innan álfunnar milli
Vestur-Evrópu og Austur-Evrópu.
íslendingar eru í miðju þessa
spennusvæðis og þurfa að fylgjast
vel með framvindu mála.
Nú erum við að gera samning
um EES. Það er nauðsynlegt af
okkar hálfu að taka sem mestan
þátt í fjölþjóðlegu samstarfí til þess
að þjálfast og þroskast. En við eig-
um ekki að ganga inn í EES eins
og inn í eilífðina. Þvert á móti eig-
um við að hafa í huga að sá samn-
ingur er tímabundinn og uppsegj-
anlegur.
Við eigum að aðlaga okkur að
stórmarkaði Evrópu eins mikið og
við getum til að afla reynslu og
þekkingar, en hafa jafnframt í
huga að segja EES-samningunum
upp ef það er hagkvæmt vegna
þróunarinnar í Norður-Ameríku.
Það hugsar enginn betur um okkar
hagsmuni en við sjálfir.
Höfundur er stjórnarformaður
íslenska útvarpsfélagsins hf.
Sendiherra Rússlands á íslandi
Sendiráðið hefur breyst
úr áróðurstæki í venju-
lega utanríkismálastofnun
HÉR fer á eftir grein, sem sendi-
herra Rússlands á íslandi, Iouri
A. Rechetov, skrifaði fyrir
fréttabréf rúsnesku utanrík-
isþjónustunnar um reynslu sína
af því að taka við starfi sendi-
herra hér á landi. Morgunblaðið
birtir greinina með leyfi sendi-
heirans:
ísland er eitt fámennasta ríki
vealdar miðað við íbúafjölda á
hvern ferkílómetra. En ef við met-
um orðstír landsins eftir eiginleik-
um þess, getur ísland með sanni
talist stórveldi. Árið 930 var á ís-
landi stofnað fyrsta þjóðþing sið-
menningarinnar. Öldum saman
hefur þjóðin verið læs og á ísland
flesta rithöfunda og stórmeistara
í skák miðað við fjölda íbúa.
Efnahagur landsins hefur náð
miklum framförum og lífskjör al-
mennings eru með þeim bestu í
heiminum. Þess vegna er gaman
að vinna á íslandi, en það þarf að
læra að „skynja“ landið, en það
er ekki auðvelt.
Veðurfarið getur verið umhleyp-
ingasamt og tungumálið erfitt, en
það hefur haldist óbreytt í þúsund
ár. Sem betur fer eru nú komnir
til starfa í sendiráðinu ungirdipló-
matar sem tala góða íslensku, en
það náttúrlega opnar þeim leið að
hjartarótum íslendinga. Ég er
sannfærður um það að starf í
smáu landi er mjög þroskandi fyr-
ir ungan diplómat og gerir hann
að fjölhæfum sérfræðingi. Með
fullri virðingu sem ég ber fyrir
þeim sem starfa í höfuðborgum
stórveldanna eða í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna, má segja að
þeir geti starfað þar allt sitt llf í
þeirri trú að þar sé nafli alheims-
ins. Rithöfundurinn G. Fish hrós-
aði einu sinni Svíum í bók sinni
fyrir það að þeir framleiddu vöru-
bíla með þriðja öxlinum sem hægt
væri að lyfta upp. Hann þekkti
nefnilega aðeins til Skandinavíu
og gerði .sér ekki grein fýrir því
að á hinn bóginn eru slíkri vörubíl-
ar framleiddir allstaðar á Vestur-
löndum.
Diplómatar á íslandi þurfa ekki
aðeins að átta sig á ástandinu í
landinu, se er engan veginn ein-
faldara í samanburði við það sem
gerist í stærri löndum. Þeir þurfa
líka að fýlgjast með atburðarás í
fyrrverandi nýlenduríki, Dan-
mörku, sem og á Norðurlöndum,
en einnig hjá stórum nágranna-
löndum eins og Bretlandi og vissu-
lega í Bandaríkjunum.
Starfsmenn í sendiráðinu eru
mjög fáir og þeir hafa ekki efni á
því að sérhæfa sig á aðeins einu
sviði eins og t.d. utan- eða innan-
ríkismálum. Hver og einn þeirra
hlýtur til að mynda að sinna efna-
hagsmálum ...
Breytingarnar í okkar landi hafa
stórlega breytt forsendum veru
okkar erlendis. Sendiráð okkar
sem hingað til hafa verið framverð-
ir þess að koma á framfæri hug-
myndafræðilegri kenningu, eru nú
orðnar venjulegar utanríkismála-
stofnanir. Pólitískt og diplómatískt
starf sem slíkt er áfram efst á
baugi hjá okkur í sendiráðinu, en
undir núverandi kringumstæðum
er megn áhersla lögð á aðstoð af
hálfu móttökuríkisins við efna-
hagsumbætur heima fyrir. í ára-
raðir hefur okkar land verið einn
helsti viðskiptaaðili íslands með
því að selja hingað olíu, timbur og
bifreiðar, en kaupa á móti fisk og
ullarvörur. Nú gerum við allt sem
í okkar valdi stendur til að styrkja
viðskipti milli landanna sem farið
hafa minnkandi en þetta hafa sem
sagt verið hefðbundnar viðskipta-
leiðir milli landanna.
Nú á dögum er stóri munurinn
sá að til sögunnar eru komnir nýir
aðilar, en það eru aðallega einka-
fýrirtæki og sjálfstæðir athafna-
menn. Við teljum það skyldu okkar
að aðstoða þessa aðila. •
Algjör nýjung er, að nú erum
við farin að nýta okkur tækniþekk-
ingu íslendinga. Það mun meðal
annars leiða til þess að við getum
nýtt heita hverf á Kamstjaka og
leiða þaðan leiðslur til
Petropavlovsk og heija þar ný-
tískulega framleiðslu, fryst og
fremst á sviði útgerðar og fisk-
vinnslu ...
Rússland hefur alltaf haft góð
Iouri A. Rechetov.
menningartengsl við íslendinga.
Með hugsanlega erfíðleika fyrir
augum, m.a. í viðskiptum milli
landanna, reynum við eftir megni
að gera stórátak á menningarsvið-
inu og finna fjármögnunarleiðir til
þess ...
Þó svo að við séum sendiráð
Rússlands þá aðstoðum við samt
samtök og stofnanir frá fyrrver-
andi Sovétlýðveldunum við að
koma á tengslum við íslendinga
og ennfremur veitum við ríkisborg-
urum þeirra aðstoð og hjálp. Það
var til dæmis ánægjulegt að heyra
þakklætisorð í garð sendiráðs okk-
ar, af hálfu sjómanna frá Eystra-
saltslöndum, sem leituðu aðstoðar
okkar er þeir lentu í vandræðum
hér.
Ef við lítum á heildina, miðað
við erfiðar aðstæður og fjárskort,
þá gerum við allt sem í okkar valdi
stendur til að vernda og styrkja
orðstír Rússneska sambandsríkis-
ins.
Þorgeir Ibsen
Hreint
og beint
HREINT OG JSEItyT
LJOÐ OG LJOÐLIKI
Hér ýtir nýr Ijóðahöfundur úr vör með
Ijóðabók, sem hann kallar Hreint og
beint. Þar eru farnar troðnar slóðir í
hefðbundnum stíl, en nýstárlegum þó
um sumt. Höfundur á það til að víkja af
alfaraleið í Ijóðum sínum, einkum í þeim
Ijóðum sem hann nefnir ljóðlíki en ekki
ljóð. En ljóðlíki hans eru þó allrar athygli
verð og standa vel fyrir sínu. Þar ber
kvæðið Minning greinilega hæst -
ljóðlíki eins og höfundur nefnir það - um
Stein Steinarr, um atvik úr lífi hans sem
er á fárra vitorði, atvik sem aldrei hefur
verið lýst áður eða frásögn um það á
þrykk komist.
UTLARSÖGUR
áZíieSlSUSl. PdU
Litlar sögur eru safn sextán sagna um
fólk og fyrirbæri og óvenjulegar hliðar
hversdagsleikans. Meðal annarra koma
við sögu Þórunn Sveinsdóttir fyrir-
myndarhúsmóðir, Herjólfur skósmiður,
Jóhanna af Örk, unglingurinn Gunnar og
ég. Farið er á tónleika á gulum Renault,
í leikhús, fylgst með kosningadegi, hlýtt
á söng fiskanna og horft á húsið málað
svart.
Höfundurinn Sverrir Páll hefur áður
gefið út ljóðabókina Þú og heima og þýtt
bækumar Kæri herra Guð, þetta er hún
Anna og Önnubók. Litlarsögur em fyrstu
frumsamdar sögur hans sem dregnar eru
upp úr skúffu og koma fyrir augu
manna.
m
VÍKINGS
LÆiqiMnvi
NIÐJATAL GUÐRÍOAR EYJÓLFSOOTTUfi
OQ BJARNAHALLDÓRSSONAR
HREPPSTJÓRA Á VlKINGSLÆK
PÉTUR
ZOPHONÍASSON
VIKINGSLÆKJARÆTT VI
Pétt4/i, fiofhUo+UciMo+t
í þessu sjötta bindi Víkingslœkjarœttar er
2. hluti h-liðar ættarinnar, niðjar Stefáns
Bjarnasonar. Þar sem ákveðið var að
rekja niðja hans fram á þetta ár, en miða
ekki eins og í fjómm fyrstu bindunum
við þau mörk, er æviskeið Péturs
Zophoníassonar setti verkinu, verður að
skipta niðjum Stefáns Bjarnasonar í
nokkur bindi, slíkur sem vöxtur ættar-
innar hefur verið. Rúmur helmingur
þessa bindis em myndir.
Allsherjarnafnaskrá bíður lokabindis
útgáfunnar.
SKUGGSUÁ
SKUGGSJÁ
BÓKABÚO OLIVERS STEINS SF.