Morgunblaðið - 12.12.1992, Side 31

Morgunblaðið - 12.12.1992, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAyGARDAGUR 12. DESEMBER 1992 31 Sameinaðir verktakar um atvlnnuuppbyggingu á Suðurnesjum Samþykkja 300 millj. framlag ÍA en gegn stofnun sérstaks sjóðs STJÓRN Sameinaðra verktaka hefur ályktað að hún sé því samþykk að íslenskir aðalverktakar hafi samstarf við aðila á Suðumesjum, til atvinnuuppbyggingar á svæðinu, en stjórnin hafnar því að stofnaður verði sérstakur sjóður eða fjárfestingafélag og telur eðlilegra að fs- lenskir aðalverktakar komi að málinu með beinni þátttoku. Jafnframt telur stjórnin að taka beri tillit til hagsmuna þeirra starfsmanna Aðal- verktaka sem misst hafa atvinnu sína að undanförnu. í ályktun stjómarinnar um þetta efni segir m.a.: „Sameinaðir verktak- ar hf. eru sem einn þriggja sameig- enda íslenskra aðalverktaka fyrir sitt leyti samþykkir því að íslenskir aðalverktakar lýsi sig reiðubúna til samstarfs við aðra aðila á Suðurnesj- um, svo sem fyrirtæki, sveitarfélög og stéttarfélög, og aðra hugsanlega áhugaaðila, um skipulega úttekt á þeim möguleikum sem fyrir hendi kunna að vera til uppbyggingar arð- bærs atvinnurekstrar á Suðurnesjum er skapað geti þar nýt atvinnutæki- færi, enda verði í þeim efnum m.a. litið til atvinnuhagsmuna þeirra starfsmanna íslenskra aðalverktaka og undirverktaka þeirra sem nú hafa misst atvinnu." Síðan segir: „Ef athuganir benda til þess að um geti verið að ræða arðsama fjárfestingarkosti eru Sam- einaðir verktakar hf. fyrir sitt leyti reiðubúnir að standa að því að Is- lenskir aðalverktakar leggi fram fé í formi hlutafjár eða annars eigin fjár í viðkomandi atvinnufyrirtækj- um, samanlagt allt að kr. 300.000.000,00.“ Stjómin segir að Sameinaðir verktakar hf. muni styðja þær breytingar í sameignarfélags- samningi fyrir íslenska aðalverktaka sem taldar verða nauðsynlegar í þessu skyni. Loks segir: „Sameinaðir verktakar hf. telja eðlilegra og affarasælla að hugsanlega þátttaka íslenskra aðal- verktaka í atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum eigi sér stað með beinni og milliliðalausri þátttöku íslenskra aðalverktaka í viðkomandi fyrirtækj- um, fremur en í gegnum sérstakan sjóð eða fjárfestingarfélag." AMERÍSK RÚM VELDU AÐEINS ÞAÐ BESTA MEST SELDU RÚMDÝNURNAR í U.S.A. _ _ Opið laugardag frá 10-18 ]V /í ^ 08 sunnudag frá 13-17 iVX dl CU y húsgagnaverslun Langholtsvegi 111. Sími 680 690 ru sumor tölur betri en uörar ? Tilviljun ræður öllu um hvaða tölur koma upp í lottóútdrætti hverju sinni. Fólk hefur misjafna trú ó einstökum tölum og eru margvíslegar aðferðir notaðar við val talna. Þa5 er gaman að skoða hve oft hver lottótala hefur komið upp og hver veit nema einhver talnaspekingurinn geti fundið hinar einu sönnu lukkutölur. Taflan, hér a& neðan, sýnir hve oft hver tala hefur komiS upp frá 10. september 1988 - (þegar Bónustalan bættist í hópinn)- til 5. desember 1992. HÉR ERU ÞÆR ALLAR MEÐTÖLU M LOTTÓTÖLUR ■ BÓNUSTALA j'JÚ í'á ‘ÍVÖFálDLlS l.VRMjlGUti!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.