Morgunblaðið - 12.12.1992, Page 32
32
• - MORGUNBLAÐIÐ IAUGARDAGUR l& ÐESRMBKR 1902
Yerðkönnun Neytendasamtakanna á
brauði og kökum
Þrefaldur mimur
a hæsta og lægsta
verði á kringlum
RUMLEGA þrefaldur munur reyndist vera á hæsta og lægsta verði
á hörðum kringlum þegar Neytendasamtökin gerðu verðkönnun í
bakaríum á dögunum. Kíló af kringlum kostaði 291 kr. þar sem þær
voru ódýrastar og 976 krónur þar sem þær voru dýrastar. Tiltekin
brauðkarfa kostaði 2.020 krónur
kr. þar sem hún var dýrust.
Könnunin var gerð í síðari hluta
nóvembermánaðar, áður en gengi
íslensku krónunnar var fellt. Hún
var gerð í samvinnu Neytendasam-
takanna og tíu aðildarfélaga þeirra.
Náði könnunin til fjórtán vöruteg-
unda í 22 bakan'um í öllum lands-
hlutum. í fréttatilkynningu frá
Neytendasamtökunum kemur fram
að viktuð hafi verið fimm stykki af
hverri vörutegund og út frá því
reiknað samanburðarverð miðað við
þyngd. Segja samtökin að einungis
þannig sé hægt að bera saman verð
á flestum þessara vara vegna þess
að þyngdin sé misjöfn.
Neytendasamtökin vekja á því
athygli að ýmis lítil bakarí á þröng-
um markaði komi vel út í könnun-
inni, á meðan sum bakarí með um-
fangsmeiri rekstur á stærri markaði
séu langt yfir meðalverði. Þá er
vakin athygli á því að í nokkum
bakaríum hafi þyngd vörunnar ekki
verið í samræmi við uppgefna
þar sem hún var ódýrust og 2.851
þyngd. í fréttatilkynningunni segir
að Borgarbakarí og Ódýri brauða-
og kökumarkaðurinn hafi komið
verst út úr viktun vörunnar. í báðum
tilvikum hafi þyngdin að meðaltali
náð 87% af tilgreindri þyngd. Þá
segja Neytendasamtökin að sam-
kvæmt reglugerð sé bakaríum skylt
að geta samanburðarverðs en ekk-
ert bakarí sem farið var í geri það.
Við úrvinnslu könnunarinnar var
tekið saman ákveðið magn af skorn-
um brauðum, smábrauðum og kök-
um í hveiju bakaríi og heildarverðið
borið saman. Sú tafla er birt hér
með sem tafla 1, ódýrasta bakaríið
er efst og það dýrasta neðst. Þar
sést að heildarverðið er á bilinu
2.020 til 2.851 kr. og er munurinn
41%. Lægsta verðið er hjá Bakaríinu
í Grindavík og Valgeirsbakarí í
Njarðvík er með næst lægsta verð-
ið. Hæsta verðið er í Sauðárkróks-
bakarí og það næst hæsta hjá Sveini
bakara í Reykjavík. Tekið er fram
Brauðkarfan
Tafla 1 Skorin Smá-
brauð brauð Kökur Alls
Bakaríið, Grindavík
yalgeirsbakarí, Njarðvík
Ódýri brauða- og kökumark. Rvík
Bemhöftsbakarí, Reykjavík
Kökuval, Hellu
Brauðval, Búðardal
Hverabakarí, Hveragerði
Brauðgerð KHB, Egilsstöðum
Kristjánsbakarí, Akureyri
Brauðgerð KASK, Höfn
Meðalverð
Nýja bakaríið, Keflavík
Másbakarí, Þorlákshöfn
Sigurjónsbakarí, Keflavík
Gamla bakaríið, ísafirði
Guðnabakarí, Selfossi
Brauðgerð Kf. Fram, Nesk.
Borgarbakarí, Reykjavík
Einarsbakarí, A'kureyri
Brauðgerð KEA, Akureyri
Brauðgerðarhús Stykkishólms
Sveinn bakari, Reykjavík
Sauðárkróksbakarí
LÆGSTA VERÐ:
HÆSTAVERÐ:
MISMUNUR:
743 421 856 2.020
907 460 783 2.150
770 599 888 2.257
761 478 1.030 2.269
841 564 1.040 2.445
902 563 983 2.448
809 581 1.098 2.488
944 ■ 607 946 2.497
902 526 1.078 2.506
926 616 970 2.512
2.541
872 646 1.023 2.541
928 563 1.080 2.571
977 599 1.029 2.605
820 666 1.125 2.611
847 624 1.153 2.624
983 567 1.080 2.630
1.010 599 1.038 2.647
938 634 1.167 2.739
946 595 1.211 2.752
1.107 683 976 2.766
1.080 726 1.158 2.964
992 746 1.112 2.851
743 421 783 2.020
1.107 747 1.211 2.964
49% 77% 55%* 47%
Skýringar:
Niðursneidd brauð: 600 g franskbrauð, 4 tegundir grófra brauða (600 g hvert),
250 g snittubrauð (ekki niðursneitt).
Smábrauð: 4 rúnnstykki (50 g hvert), 4 gróf rúnnstykki (60 g hvert), 4 ham-
borgarabrauð (55 g hvert), 4 pylsubrauð (40 g hvert), 4 mjúkar kringlur (50
g hver).
Kökur: Vínarterta, jólakaka, marmarakaka (400 g hver), vínarbrauð og snúðar
(2 stk. af hvoru).
Samþykktum Is-
landsbanka breytt
ÍSLANDSBANKI hf. hefur boðað
til hluthafafundar á mánudag þar
sem á dagskrá er að breyta sam-
þykktum félagsins þannig að eng-
inn hluthafi geti farið með meira
en 20% í félaginu. Er þetta gert
í samræmi við lög um viðskipta-
banka.
Að sögn Vals Valssonar banka-
stjóra íslandsbanka er í lögum um
viðskiptabanka ákvæði um að enginn
einn hluthafi megi fara með meira
en 20% atkvæða í hlutafélagi um
banka.
„Þegar stofnað var til íslandsbanka
og eignarhaldsfélög [Alþýðubanka, Iðn-
aðarbanka og Verslunarbanka] voru
mynduð, voru samþykkt viðbótarlög
við bankalögin, sem heimiluðu það, að
ef banki eða eignarhaldsfélag ættu í
hlut mættu þau fara með meira en 20%
hlut. Nú er verið að leggja niður tvö
eignarhaldsfélög og breyta verkefnum
þess þriðja og þar með eru brostnar
forsendur fyrir þessu viðbótarákvæði
og aftur þarf að taka upp gömlu regi-
una. Hér er því einfaldlega verið að
laga samþykktir íslandsbanka að við-
skiptabankalögum miðað við breyttar
aðstæður," sagði Valur Vaisson.
Tafla2 Samanburðarverð (verð pr. kíló) & & £ / / / / / / / / / / fe / / / / ,/ Marmarakaka
REYKJAVÍK
Borgarbakarí Ódýri brauða- 220 395 307-318 603 690 512 629 800 646 587 636
og kökumarkaðurinn 176 316 223-255 603 690 512 629 640 516 470 508
Bemhöftsbakarí 174 424 150-252 526 384 443 482 532 630 529 776
Sveinn bakari VESTURLAND 273 387 230-489 783 776 520 585 878 654 709 777
Brauðgerðarhús 4
Stykkishólms 184 507 282-414 729 729 673 474 690 909 612 546 537
Brauðval, Búðardal VESTFIRÐIR 292 428 175-262 600 550 418 444 740 925 493 633 697
Gamla bakaríið, Ísafírði NORÐURLAND 213 476 147-276 745 732 456 722 625 976 831 553 708
Sauðárkróksbakarí 273 596 222-280 854 800 560 720 729 622 788 617 626
Brauðgerð KEA 212 641 672-679 611 524 466 666 688 667 624 682 991
Einarsbakarí, Akureyri Kristjánsbakarí, 254 611 236-296 783 585 625 500 600 627 747 754
Akureyri AUSTURLAND 247 429 267-273 727 449 474 468 471 539 453 710 793
Brauðgerð KHB, Egilsstöðum 228 381 254-302 611 547 519 781 571 571 601 444 624
Brauðgerð Kf. Fram, Neskaupstað 227 484 239-306 720 692 419 604 500 486 919 541 565
Brauðgerð KASK, Höfn SUÐURLAND 217 377 209-298 667 556 519 667 642 553 521 630 649
Kökuval, Hellu 175 436 222-238 607 544 442 528 650 825 690 584 613
Guðnabakarí, Seifossi Hverabakarí, 207 330 239-250 705 623 431 633 685 875 825 536 837
Hveragerði 185 200-224 689 608 423 459 654 694 750 666 643
Másbakarí, Þorlákshöfn SUÐURNES 200 538 251-268 545 655 393 415 720 783 656 712 643
Bakaríið, Grindavík 152 171-227 450 365 421 386 446 500 444 485 582
Nýja bakaríið, Keflavík 213 460 199-280 683 609 568 543 756 895 589 667 667
Siguijónsbakarí, Keflavík Valgeirsbakarí, 212 458 260-320 690 696 464 405 636 721 663 619 624
Njarðvík 173 508 211-354 512 575 339 429 382 291 486 457 526
LÆGSTA VERÐ 152 316 147 450 365 339 386 382 291 444 444 508
HÆSTAVERÐ 292 641 414 854 800 673 781 878 976 919 747 991
MISMUNUR 92% 103% 182% 90% 119% 99% 102% 130% 235% 107% 68% 95%
að fjögur bakarí höfðu ekki allar
vörutegundir á boðstólum og var
þá stuðst við meðalverð annarra
bakara.
í töflu 2 er birt samanburðar-
verð, það er að segja verð á kíló, á
tólf vörutegundum og er bakaríun-
um þar raðað eftir landshlutum.
Fram kemur að þar sem minnsti
munur er á hæsta og lægsta verði
einstakra vörutegunda milli bakaría
munar 68% en það er á jólakökum.
í flestum tilvikum er þessi munur
rúmlega tvöfaldur en fer mest í
235%, eða liðlega þrefaldan mun, á
hörðum kringium. ,
í könnun Verðlagsstofnunar sést
að mjög mismunandi er hvernig
bakarar verðleggja skurð á brauði.
í sumum tilvikum er skurðurinn
innifalinn í brauðverðinu, margir
taka 10-12 krónur fyrir að skera
brauðið en það kostar 19 krónur
hjá þeim sem mest tekur.
Eitt atriði úr myndinni Aleinn heima 2 sem Sambióin sýna.
Metaðsóknarmyndin Aleinn
heima 2 sýnd í Sambíóunum
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi fréttatilkynning
frá'Sambíóunum:
„Kvikmyndin „Home Alone 2 —
Lost in New York“ eða Aleinn
heima 2, hefur sýnt það á þeim fáu
dögum sem hún hefur verið sýnd
erlendis að hún virðist ætla að
verða vinsælasta gamanmynd sög-
unnar. Eftir 10 daga í Bandaríkjun-
um var hún búin að taka inn um
75 milljónir dollara og eftir þriðju
sýningarhelgina var talan komin
upp í rúmlega 90 milljónir dollara.
Fyrri myndin sagði frá ævintýr-
um Devins McCalIister, þar sem
hann glímdi við frekar ólánsama
innbrotsþjófa á heimili sínu, eftir
að hann var skilinn eftir heima
fyrir slysni. Nú er hann mættur
aftur og leikvöllurinn er stórborgin
New York. „Blautu bófamir" eru
mættir aftur og ekki eru móttök-
umar blíðari en í fyrra skiptið og
voru þó fantalegar. Kevin McCal-
lister, Harry og Marv etja kappi í
gamanmyndinni „Home Alone 2 in
New York“, sem er aðaljólamynd
Sambíóanna í ár.
Fjölskylda Kevins ætlar í jólafrí
og er stefnan tekin á Flórída. Kev-
in er ekki sáttur við það, enda snjó-
létt á ströndinni. Einnig finnast fá
jólatré í skógi pálmatijáa. En hann
á ekki um neitt að velja, þó hugur-
inn standi frekar til vistar í Nýju
Jórvík, borg tækifæranna. Eins og
í fyrra skiptið, þá hringir vekjara-
klukkan heldur seint á heimili
McAllister-fjölskyldunnar og því
þarf að hendast á flugvöllinn með
hraði. í óðagotinu fer það úrskeiðis
að öll fjölskyldan kemst með naum-
indum í flugvélina sem stefnir til
Flórída, en Kevin villist í flugvél
sem er á leið til New York. Og
þannig hefst sagan eins og öll
ævintýri gera.
Macaulay Culkin sem leikur Kev-
in og er aðeins 11 ára gamall, fékk
sextíu og þijár milljónir króna fyr-
ir leik sinn í Aleinn heima og ekki
voru fjárhæðirnar neitt minni sem
hann fékk fyrir Aleinn heima 2,
Culkin rakaði inn þrjú hundruð og
fimmtán milljónum króna og setti
það sem skilyrði að hann fengi
aðalhlutverk í spennumyndinni
„The Good Son“ sem nú er í fram-
leiðslu. Gengist var við öllum þess-
um kröfum og gott betur, því Culk-
in fékk því líka framgengt að bróð-
ir hans fengi hlutverk í Aleinn
heima 2.
Sigurganga myndarinnar Aleinn
heima 2 er ekki bundin við Banda-
ríkin heldur hefur hún slegið í gegn
alls staðar þar sem hún hefur ver-
ið tekin til sýninga. Á Spáni fékk
hún til dæmis tvöfalda aðsókn á
við fyrri myndina og setti met í
aðsókn í Suður-Afríku.