Morgunblaðið - 12.12.1992, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
Vl'1-r f/!ií-.-ii i ,íj| 'i|. iíiai 'II A; >’ | ft.i ) rtfrft i.flVU iiiin —
Konungnr og drottning?
John Major, forsætisráðherra Bretlands, hefur lýst því yfír, að skilnaður I þau verði síðar meir krýnd konungur og drottning. Meirihluti þjóðarinnar
Karls Bretaprins og Díönu prinsessu, að borði og sæng, útiloki ekki að I telur hins vegar að Díana hafi fýrirgert rétti sínum til að verða drottning.
Skoðanakönnun í Bretlandi um samvistaslit ríkisarfahjónanna
Mikill meirihluti Breta vill
ekki Díönu sem drottningu
Lundúnum. Reuter.
Sex farast í
lestarslysi
Farþegalest á miklum hraða
ók á hóp verkamanna á járn-
brautarstöðinni í bænum Bad
Oldesloe á seint fimmtudags-
kvöld. Talsmaður þýska járn-
brautarfyrirtækisins sagði að
mennimir hefðu gengið út á
jámbrautarteinana til að und-
irbúa vakt sína, sem átti að hefj-
ast einni og hálfri klukkustund
síðar. Þeir hefðu greinilega ekki
gætt að sér og gáð hvort lest
væri að koma áður en þeir fóru
út á teinana og lestarstjórinn
ekki haft nein tök á því að hægja
ferðina. Lestin var á leið frá
Kaupmannahöfn til Hamborgar.
Krónuflot
varið
Sigbjom Johnsen, fjármála-
ráðherra Noregs, varði í gær þá
ákvörðun norsku ríkisstjórnar-
innar, að láta krónuna fljóta á
gjaldeyrismörkuðum. Hann
sagði smáríki vera mjög við-
kvæm fyrir uppnámi á mörkuð-
um en sagði ástands norsk efna-
hagslífs ekki hafa gefið tilefni
til spákaupmennsku af því tagi
sem átt hefði sér stað. Gengi
norsku krónunnar hefur fallið
um 6% frá því það var látið fljóta.
Hagfræðingar spá því að stjóm-
in muni brátt reyna að tengja
krónuna við evrópsku myntein-
inguna ECU á ný og segjast
hafa áhyggjur af því að sveiflur
á olíuverði muni hafa mikil áhrif
á gengi hennar meðan hún flýt-
ur.
Hart barist
við Sarajevo
Bosnískir Serbar lýstu því yfir
í gær að þeir réðu enn lögum
og lofum á hemaðarlega mikil-
vægri hæð norður af borginni
Sarajevo. Hart hefur verið barist
í kringum borgina undanfama
§óra daga og var uppi orðrómur
um að sveitir múslíma hefðu náð
hæðinni á sitt vald. Yfirmaður
Serbíuhers í Bosníu sagði hins
vegar að múslímum hefði ekki
tekist að komast nálægt hæðinni
og að víglínan væri óbreytt.
Rafmagn fór af borginni vegna
bardaganna í gær og einnig er
skortur á vatni.
Nýr forsætis-
ráðherra í
N-Kóreu
Yon Hyong-muk, forsætisráð-
herra Norður-Kóreu, var í gær
látinn hætta störfum og í staðinn
skipaður í embættið Kang Song-
san, sem var forsætisráðherra á
áranum 1984-1986. Engin skýr-
ing var gefin á því, af hverju
Yon var látin hætta. Suður-kór-
eskir fréttaskýrendur telja hins
vegar að skýringuna sé að finna
í því að Kim Jong-il, sonur Kim
il-Sungs forseta og væntanlegur
eftirmaður hans, vilji styrkja
valdastöðu sína.
Varað við að
tefja GATT
Jiirgen Möllemann, efnahags-
málaráðherra Þýskalands, sagði
í þýská þinginu gær að beijast
yrði gegn öllum tilraunum til að
tefja samkomulag í GATT-við-
ræðunum. Það mætti ekki leng-
ur stefna samkomulaginu í voða
að EB-ríkin gætu ekki komið sér
saman innbyrðis og þýska
stjórnin ætlaði sér að standa
gegn öllum tilraunum til að
draga viðræðumar á langinn
vegna tæknilegra atriða. Um-
mæli Möllemanns hafa verið
túlkuð sem viðvörun til Frakka,
sem era mjög óánægðir með
landbúnaðarkafla samkomu-
lagsins.
SAMKVÆMT skoðanakönnun,
sem breska dagblaðið Daily
Mirror birti I gær, telur mikill
meirihluti Breta að Díana prins-
essa hafi fyrirgert rétti sínum
til að verða krýnd drottning
vegna skilnaðarins að borði og
sæng við Karl krónprins. Ýmis-
legt bendir til að vinsældir Dí-
önu á meðal almennings hafi
minnkað verulega frá því skiln-
aðurinn var kunngerður.
Blöð, sem hafa áram saman
verið á hennar bandi í umfjöllun-
inni um sambúðarerfiðleika ríkis-
arfahjónanna, hafa nú beint kast-
ljósinu að ímynd „heilagrar Díönu“
og velta nú fyrir sér hugsanlegum
skuggahliðum á persónuleika
hennar.
Ef marka má könnun Daily
Mirrorem 80% Breta þeirrar skoð-
unar að Díana geti ekki orðið
drottning og rúmur helmingur
þeirra telur ólíklegt að Karl krón-
prins geti tekið við ríkiserfðum og
orðið konungur. Flestir þeirratelja
að ríkisarfahjónin fái lögskilnað.
Skýrt hefur verið frá því að
Díana ætli ekki að vera viðstödd
brúðkaup Önnu prinsessu og Ti-
mothy Laurence í dag, laugardag,
Þá tilkynnti skrifstofa Clintons
um skipanir í þrjú háttsett embætti
til viðbótar og verða þau öll skipuð
konum.
Donna Shalala, rektor Wisconsin-
háskóla, verður heilbrigðisráðherra,
enda álíta margir að hún myndi
aðeins skyggja á brúðhjónin ef hún
mætti. Æsifréttablaðið Sun er þó
annarrar skoðunar og lýsti því
yfir á forsíðu að ákvörðun Díönu
væri lítilsvirðing við Önnu prins-
essu.
Daily Express velti hins vegar
fyrir sér spurningunni: „Er Díana
eins indæl og hún lítur út fyrir
að vera?“ Blaðið hefur eftir ónafn-
greindum „samstarfsmönnum“
prinsessunnar að hún eigi sínar
skuggahliðar og að hún sé „frek,
þijósk, gagntekin af sjálfri sér og
sjálfselsk“.
Æsifréttablöðin vora einnig
fljót að komast að þeirri niður-
stöðu að fjandskapur væri milli
ríkisarfahjónanna eftir að Karl fór
frá sameiginlegu aðsetri þeirra í
Lundúnum, Kensington-höll, á
fímmtudagskvöld til að gista yfír
nóttina hjá ömmu sinni, drottning-
armóðurinni. Blöðin töldu að krón-
prinsinn hefði flutt í skyndi úr
Kensington-höll, tæpum mánuði
áður en áformað var, en talsmaður
drottningar vísaði því algjörlega á
bug.
Tony Benn, þingmaður Verka-
mannaflokksins, hyggst notfæra
sér írafárið vegna skilnaðarins til
Laura Tyson, hagfræðiprófessor við
Kalifomíu-háskóla, verður formaður
Efnahagsráðgjafaráðs forsetans, og
Carol Browner, umhverfíssinni frá
Flórida, verður yfirmaður banda-
rísku umhverfismálastofnunarinnar.
að leggja fram framvarp um að
afnema konungdæmið og stofna
lýðveldi þar sem forseti tæki við
hlutverki drottningarinnar. Fram-
varpið verður lagt fyrir þingið á
mánudag og í því er kveðið á um
lávarðadeildin verði lögð niður,
auk þess sem tengsl ríkis og kirkju
verði rofín. Talið er óhugsandi að
framvarpið verði samþykkt.
Reuter
Spenna á Indlandi
P.V. Narasimha Rao forsætisráðherra Indlands sagðist í gær álíta að
átök hindúa og múslima vegna eyðileggingar mosku í bænum Ayodhya
sl. sunnudag væru að mestu að baki. Um 1.000 manns hafa beðið bana
í vikunni vegna átakanna. Þar af 190 í Bombay en myndin var tekin af
hermönnum á eftirlitsferð í borginni í gær. Spenna ríkti enn í Indlandi í
gær og var óttast að upp úr kynni að sjóða um helgina.
Bandaríkin
Robert Reich verður
vinnumálaráðherra
Little Rock. Reuter.
BILL Clinton, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, ætlar að tilnefna Rob-
ert Reich, hagfræðiprófessor við Harvard-háskóla, sem vinnumálaráð-
herra. Reich hefur verið helsti efnahagsráðgjafi Clintons jafnt fyrir
sem eftir kosningar.