Morgunblaðið - 12.12.1992, Side 35

Morgunblaðið - 12.12.1992, Side 35
gQUÍ HMtfMHBau :St 5ÍUDAUHAÚUAJ UiUAJáHUÚHOM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12: DKSEMBER 1992 35 Ráðherrafundur Fríverslunarbandalags Evrópu Viðbótarbókun verði lögð fyrir þjóðþingin Genf. Frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. RAÐHERRAR Fríverslunar- bandalags Evrópu (EFTA) sam- þykktu á fundi sínum í Genf í gær að leggja það til við Evrópu- bandalagið (EB) á embættis- mannafundi á þríðjudag að tæknilegum atriðum EES-samn- ingsins verði breytt vegna þess að Sviss verður ekki aðili en eng- ar efnisbreytingar verði gerðar á honum. Tillaga að viðbótarbók- un við samninginn sem innihaldi þessar breytingar verði tilbúin snemma í janúar 1993, þannig að unnt vérði að samþykkja hana á ráðstefnu stjórnarerindreka EB og EFTA sem haldin verði strax á eftir. í fréttatilkynningu íslenska utan- ríkisráðuneytisins segir að lagasér- fræðingar EFTA-ríkjanna hafí komist að þeirri niðurstöðu að ein- ungis þurfi að gera fáeinar tækni- legar breytingar á EES-samningn- um með viðbótarbókun sem verði staðfest sérstaklega af þjóðþingum samningsaðila. Sá kostur er talinn fólginn í því að strika ekki nafn Sviss út úr samningnum sjálfum að þá geti Svisslendingar síðar meir gengið í EES án mikils um- stangs. Ráðherramir leggja einnig til að þróunarsjóðurinn sem EFTA-ríkin greiða í til stuðnings fátækum ríkj- um Evrópubandalagsins verði skor- inn niður um þá upphæð sem Sviss átti að leggja af mörkum, en það var rúmur fjórðungur sjóðsins. Framkvæmdastjóm EB hefur lýst því yfír að hún sé samþykk þessari skipan mála en Spánveijar hafa sett sig upp á móti henni. Auk þeirra stendur til að Portúgalir og Grikkir njóti framlaga úr sjóðnum. Hannes Hafstein, aðalsamninga- maður íslands í EES-viðræðunum, segir að enn eigi eftir að fínna lausn á þessu, en deilur um sjóðinn eru helst taldar geta tafíð fyrir gildis- töku EES-samningsins. Ráðherrarnir samþykktu enn- fremur að eftirlitsstofnun EFTA með EES yrði í Brussel en EES- dómstóllinn yrði í Genf. „Það þykir ekki taka því að breyta ákvörðun- inni um hann,“ sagði Kjartan Jó- hannsson, sendiherra og fastafull- trúi íslands hjá EFTA. „Öll EFTA- ríkin í EES nema ísland munu ganga í EB innan fárra ára og dómstóllinn mún að sjálfsögðu 'breytast við það,“ sagði Kjartan. Glaðir ráðherrar Pertti Salolainen, utanrík:"-viðskiptaráðherra Finnlands, og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráði. -a slá á létta strengi á ráðherrafundi ríkja Fríverslunarbandalags Evrópu í Genf í gær. Á fundinum var ákveðið að leggja það til við Evrópubandalagið að gera engar breytingar á EES-samn- ingnum, þótt Svisslendingar verði ekki aðilar að honum. í staðinn verði tæknilegum atriðum samningsins breytt með viðbótarbókun. Yfirlýsing EFTA-ráðherranna Mikilvægt að stað- festa EES án tafar Í yfírlýsingu ráðherra EFTA-ríkjanna segir að áfram skuii stefnt að því að samningurinn um hið Evrópska efnahagssvæði taki gildi eins skjótt og unnt er á fyrri hluta ársins 1993. Það sé þess vegna afar mikilvægt að ljúka án tafar staðfestingu samningsins. Kafli sá í yfírlýsingunni sem fjall- ar um EES-samninginn hljóðar svo: „Á fundinum gaf svissneski ráð- herrann Jean-Pascal Delamuraz yfirlýsingu um úrslit þjóðarat- kvæðagreiðslunnar í Sviss hinn 6. desember sl. Þar voru greidd at- kvæði um samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og var samningn- um hafnað. Mun Sviss því ekki taka þátt í EES-samstarfínu. Hinir ráðherrarnir kváðust harma þessi úrslit, þótt þeir virtu þá ákvörðun sem svissneska þjóðin og kantónurnar hefðu tekið á lýð- ræðislegan hátt. Þeir ítrekuðu þann einarða ásetning að samningurinn taki gildi eins skjótt og unnt er á fyrri hluta ársins 1993. Það sé þess vegna afar mikilvægt að ljúka án tafar staðfestingu samningsins. Þeir óskuðu eftir að athugun hæfist þegar í stað á því hvaða tæknilegar breytingar þurfi að gera á samningnum. Tillaga að viðbótar- bókun við samninginn, sem inni- haldi þessar breytingar verði tilbúin snemma í janúar 1993, þannig að- unnt verði að samþykkja hana á ráðstefnu stjómarerindreka sem haldin verði strax á eftir. Ráðherrarnir lýstu einnig ánægju sinni með hversu undirbúningi hefði miðað við að koma á fót ásamt með Evrópubandalaginu hinum sameig- inlegu EES-stofnunum þar meðal hinni sameiginlegu þingmanna- nefnd EES og sameiginlegu ráð- gjafarnefndinni og staðfestu að einnig þessar stofnanir myndu vera tilbúnar til þess að takast á við verkefni sín. Þeir áréttuðu þá skoðun sína að útvíkkuðu efnahagssamstarfi yrðu að fylgja framfarir í samstarfi á sviði félagsmála. Slíkt samstarf yrði að efla og ráðherrarnir lögðu áherslu á að aðilar vinnumarkaðar- ins í EB og EFTA-ríkjum hefðu þar miklu hlutverki að gegna." Liechtenstein Forðast smáríkið vandræði Sviss? Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. NEIKVÆÐ viðbrögð *við úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Sviss um aðild að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) gætu stuðlað að því að íbúar Liechtenstein samþykki aðild að EES um helg- ina. Algjört ráðaleysi virðist ríkja í Sviss og íbúar Liechtenstein, sem eru 29.386 talsins, gætu viljað forðast það. Leiðtogar smáríkisins reiknuðu með að Svisslendingar myndu samþykkja aðild að EES og hvöttu þjóð sína til að fara að ráði þeirra fyrir síðustu helgi. Þeir hafa nú breytt um tón og segja að Liechtenstein sé best borgið í EES með eða án Sviss. Þeir benda á ráðþrot Svisslend- inga og spár um svarta framtíð þeirra orðum sínum til stuðnings. Hans-Adam II fursti hefur lát- ið liggja að því að Liechtenstein sæki fyrr eða seinna um aðild að EB. Margir álíta að EES sé bara biðstofa fyrir bandalagið og eru því á móti. Lúxus á lágmarksverbi Herbergi meö baöi, síma, útvarpi, sjónvarpi og smábar. Upphituö útisundlaug — jarögufubaö — heitir pottar — nuddstofa — hárgreiöslu og snyrtistofa — ljósalampar. Fjölskyldufólk — einstaklingar Látiö okkur um amstriö og uppvaskiö. Njótiö samveru meö fjölskyldu og vinum. Samfelld skemmti- og hátíbardagskrá alla dagana frá 22 .des. - 3. jan. Gestgjafi hinn landskunni Siguröur Guömundsson Upplýsingar og pantanir í síma 98-34700 - fax 98-34775 HÓTEL CSX HVERAGERÐI * Pr. mann á dag í tvíbýli. Aukagjald fyrir einbýli kr. 1.000 á dag. **■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■* PIERROT Hönnun Afro e Tobio Scorpa ARIETTA Hönnun: Tobio Scorpo MISS SISSI Hönnun Philippe Strock PAO COROLLE Hönnun: M. Thun Hönnun: E. Didone WALL Honnun Kmg, Mirondo, Arnoldi FRISBI Hðnnun AvhJle (ovliglioni Mikið úrval af rúmteppum og púðum frá Pantanir óskast sóttar Verslun okkar ALESSI í Kringlunni opin um helgirva Borgartúni 29, simi 620640. V OPIÐ í DAG KL. 11.00 - 18.00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.