Morgunblaðið - 12.12.1992, Side 42
Hafnarsjóður
Tekjur sjóðsins
áætlaðar 78 millj.
og gjöld 40 millj.
Höldum okkar striki varðandi framkvæmdir, segir formaður bæjarráðs tæpar 70
Skipin gerð klár
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Svo sem venja er á þessum árstíma er verkefna-
staða Slippstöðvarinnar þokkaleg, en margir útgerð-
armenn láta yfirfara skip sín fyrir jólahátíðina svo
þau verði tilbúin í slaginn eftir áramót. Skipin voru
því komin upp er ljósmyndari átti leið um slippinn
í vikunni.
Síðari umræða um fjárhagsáætlun
REKSTRARTEKJUR Hafnarsjóðs Akureyrar eru áætlaðar um
78,2 milljónir króna á næsta ári og rekstrargjöldin tæpar 40 millj-
ónir króna. Hagnaður án afskrifta er áætlaður tæpar 36 milljónir
króna. Ekki er búist við miklum framkvæmdum við hafnirnar á
komandi ári, enda ekki gert ráð fyrir rikisframlagi til Akureyrar
á því ári.
Guðmundur Sigurbjömsson
hafnarstjóri sagði að farið hefði
verið fram á að fá ógreitt ríkis-
framlag sem nemur nú rúmum 40
milljónum króna og er búist við
að um helmingur af upphæðinni
verði greiddur út á næsta ári eða
rúmlega 20 milljónir króna.
Helstu framkvæmdir sem áætl-
aðar eru á næsta ári eru við
Tangabryggju þar sem unnið hef-
ur verið á yfirstandandi ári og er
að sögn Guðmundar reiknað með
að lokið verði við að gera kant við
bryggjuna. Þá er einnig á dagskrá
vinna á svæðinu ofan bryggjunnar
þar sem útbúa á gámasvæði.
Tekjur sjóðsins eru áætlaðar
rúmlega 78 milljónir króna, bróð-
urparturinn kemur til vegna hafn-
artekna eða um 58,5 milljónir
króna, þá er áætlað að seld þjón-
usta nemi 9,6 milljónum króna og
leigutekjur verði tæpar 10 milljón-
ir.
Gert er ráð fyrir að rekstur
hafnarmannvirkja kosti um 13,5
milljónir og rekstur annarra eigna
um 5,4 milljónir króna og að
kostnaður við hafnarvörslu, skrif-
stofu og stjórnunarkostnaður nemi
tæplega 21 milljón króna.
------» ♦ ♦-------
Tekjur lækkað um 16 millj.
p / / ii • a • ->c nai;iiaut
rra aætlun vio fyrn umræou Rafveitu
Hagnaður
TEKJUR bæjarsjóðs Akureyrar hafa Iækkað um 16 milljónir króna
frá því sem gert var ráð fyrir við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar
í lok nóvember, en síðari umræða um áætlunina verður á þriðju-
dag. Búið er að fella út úr áætluninni rúmlega 250 miiyóna króna
tekjur vegna aðstöðugjalds, en það verður sem kunnugt er fellt
niður og í stað þess verður sveitarfélögum tryggur tekjustofn sem
nemur um 78% af álögðum aðstöðugjöldum. Það þýðir um 30
milljón króna lækkun á tekjum fyrir Akureyrarbæ, en við yfirlegu
bæjarfulltrúa hafa þar sem víða hefur verið kreist úr fé úr rekstri
tekist að koma tekjuminnkun úr 30 milijónum niður í 16 milljónir
króna.
Sigurður J. Sigurðsson formað-
ur bæjarráðs sagði að þrátt fyrir
minni tekjur en ráðgert hafði ver-
ið við fyrri umræðu um fjárhagsá-
Hinrik Sig-
fússon bóndi
sjötugur
ætlun verði minniháttar breyting-
ar gerðar á framkvæmdum á veg-
um bæjarins á næsta ári. Gengið
er út frá sömu forsendum og við
gerð þriggja ára áætlunar um
rekstur og framkvæmdir á vegum
bæjarins, þannig að reiknað er
með að svipað fjármagn verði til
ráðstöfunar til framkvæmda og
eignabreytinga og'við gerð áætl-
unarinnar í ágúst síðastliðnum.
„Við höfum farið í saumana á
rekstrinum og tekist að kreista
víða út fé, en það þýðir auðvitað
að fjármagn til rekstrar verður
eitthvað takmarkað. Það urðum
við að gera til að koma til móts
við þær breytingar sem gerðar
voru í kjölfar efnahagsráðstafana
ríkisstjómarinnar á dögunum, en
meginatriðið er það að við höldum
okkar striki varðandi þá áætlun
sem við höfum gert til þriggja
ára,“ sagði Sigurður.
Við síðari umræðu um fjárhags-
áætlun bæjarins er gert ráð fyrir
að tekjur verði 1394 milljónir, en
við fyrri umræðu var gert ráð fyr-
ir 1410 milljóna króna tekjum.
Rekstrargjöldin á næsta ári eru
áætluð 1036 milljónir króna.
Helstu framkvæmdir sem farið
verður í á næsta ári em við íjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri, við
framhaldsskólana í bænum, þá er
gert ráð fyrir að hefja fram-
kvæmdir vegna endurbóta við
Björk, Mývatnssveit.
HINRIK Sigfússon, bóndi í
Hraunteigi í Vogahverfi, átti
sjötugsafmæli 26. nóvember
síðastliðinn.
Hinrik fæddist í Vogum 26.
nóvember árið 1922. Foreldrar
hans vom Sigfús Hallgrímsson,
bóndi í Vogum, og Sólveig Stef-
ánsdóttir frá Öndólfsstöðum í
Reykjadal. Hinrik hefur stundað
búskap í Vogum um áratugaskeið,
ennfremur vömbflaakstur um
langan tíma. Eiginkona hans er
Sigríður Guðmundsdóttir frá
Berafírði í Suður-Múlasýslu. Þau
eiga fjögur uppkomin börn.
Á afmælisdaginn bauð Hinrik
Mývetningum svo og frændum og
vinum til veglegs fagnaðar á heim-
ili sínu. Þar var veitt af mikilli
rausn og myndarskap. Alls mættu
um 100 manns. Áttu viðstaddir
þar ánægjulega stund. Barst Hin-
riki fjöldi gjafa svo og blóm. Síð-
ast var sungið svo sem venja er
hér við slík tækifæri.
Kristján
Morgunblaðið/Rúnar Þór
sundlaug og eins er stefnt að því
að taka í notkun sýningarsal í
Grófargili, þar sem verið er að
reisa miðstöð menningar og lista
í bænum. Þá em í gangi fram-
kvæmdir við nýja slökkvistöð við
Árstíg. „Við höfum reynt að haga
málum þannig að koma fram-
kvæmdum sem fyrst af stað þann-
ig að í leiðinni skapist atvinna, en
það á meðal annars við um sýning-
arsalinn og fleiri verkefni," sagði
Sigurður.
Umræðum um fjárhagsáætlun
verður nú lokið fyrir áramót, en
síðustu ár hefur vinna við fjár-
hagsáætlun staðið yfir í janúar.
„Það er út af fyrir sig gott að ljúka
þessu fyrir áramótin, við það skap-
ast betra svigrúm til undirbúnings
fyrir verklegar framkvæmdir og
þess er að vænta að þær fari þá
fyrr af staði en verið hefur,“ sagði
Sigurður.
Tískusýning og
snyrtivörur
Á vegum snyrtistofunnar Betri
líðan í Kaupangi var efnt til
kaffisamsætis í Blómaskálan-
um Vín fyrir skömmu. Tilefnið
var að kynna nýjar snyrtivömr
sem snyrtistofan selur á Norð-
urland. Efnt var til tískusýning-
ar frá þremur verslunum á
Akureyri og þá fengu gestir
að sjá förðun. Á þriðja hundrað
manns mætti á kynninguna. Á
myndinni em frá vinstri Dögg
Stefánsdóttir, Helga Jónsdóttir
og Bryndís Jóhannesdóttir, eig-
andi snyrtistofunnar.
milljónir
GERT er ráð fyrir að hagnaður
Rafveitu Akureyrar verði um
68,2 milljónir króna á næsta ári.
Rekstrartekjur veitunnar eru
áætlaðar rúmar 377 milljónir
króna, en þar af eru reiknað með
tæplega 360 milljóna króna tekj-
um vegna raforkusölu. Rafveita
Akureyrar kaupir raforku á næsta
ári fyrir um 252 milljónir króna,
þá er gert ráð fyrir að rekstur
aðveitu og dreifíkerfís kosti tæpar
33 milljónir króna og skrifstofu-
og stjómunarkostnaður verði um
27,6 milljónir króna.
I áætlun um eignabreytingar
Rafveitu Akureyrar kemur fram,
að þegar búið er að bæta við 4,5
milljóna króna stofngjöldum hefur
veitan til ráðstöfunar um 72,7
milljónir króna.
Aætlað er að viðbætur við bæ-
jarkerfíð kosti um 55,8 milljónir,
götuljós 3,5 milljónir, bygginga-
og lóðaframkvæmdir verði upp á
4 milljónir króna og kostnaður við
bifreiðar og tæki verði um 2 millj-
ónir auk þess sem tölvukerfí kosti
um 2,5 milljónir.
------» ♦ ♦-----
■ SPORTVÖR UDEILD Vöru-
húss KEA og Skátabúðin í
Reykjavík hófu nýlega samstarf
og gefst Norðlendingum nú kostur
á að kaupa vömr frá Skátabúðinni
í Vöruhúsinu. Allur vinsælasti
búnaðurinn verður til sölu í Vöra-
húsinu og þá verður reynt að verða
við sérstökum óskum viðskipta-
vina. Á síðustu árum hefur Skáta-
búðin aflað sér reynslu í sölu á
útilífsvörum, fatnaði og útbúnaði
ýmis konar, og er þess vænst að
samstarfið verði til að þeirri
reynslu verði miðlað til viðskipta-
vina á Norðurlandi.
(Úr fréttatilkynningu)