Morgunblaðið - 12.12.1992, Page 49
MOhÓONBLAÐÍD LAÚÍáUÓA'G'ÚR 12. DfeSlsÍMBER 1992
Mikilvægi líkamsæfinga
JÓLAHÁTÍÐ er framundan, borð munu svigna undan kræsingum I ^ I
og margir munu borða talsvert meu-a af góðgætinu en þeir höfðu
ætlað sér. Þrátt fyrir góðan ásetning vi(ja, á þessari mestu matar-
hátið ársins, bætast við kíló á kroppinn. Það er reyndar gjarnan
réttlætt með fyrirheitum um að ná þeim af eftir hátíðamar, jafn-
vel með líkamsþjálfun ef allt annað bregst. Líkamsræktarstöðvar
em meira en tilbúnar til að veita bæði aðstöðu og aðstoð við átakið.
Góð líkamsþjálfun brennir kalorium og kemur línunum i lag.
Hafnarfj ar ðar kirkj a
Hafnarfjarðarkirkja
Jólavaka
við kertaljós
HIN árlega Jólavaka við kertaljós
verður haldin í Hafnarfjarð-
arkirkju 3. sunnudag í aðventu 13.
desember og hefst hún kl. 20.30.
Jólavakan er Hafnfírðingum svo
og öðrum sem hana sækja augljós
vottur um nánd og komu helgra jóla.
Líkt og áður verður vel til hennar
vandað. Guðmundur Ámi Stefáns-
son bæjarstjóri flytur ræðu kvölds-
ins. Tónlistarflytjendur verða þau
Hlín Erlendsdóttir fiðluleikari, Alda
Ingibergsdóttir söngkona, Bamakór
Hafnarfjarðarkirkju undir stjórn
Biynhildar Auðbjargardóttur og Kór
kirkjunnar sem flytja aðventu- og
jólatónlist. Stjórnandi tónlistarflutn-
ingsins er Helgi Bragason.
Við lok vökunnar verður kveikt á
kertum þeim sem viðstaddir hafa
fengið í hendur. Nokkur fermingar-
börn bera þá logann frá helgu altari
og svo berst hann manna á milli í
kirkjunni sem tákn um það að sú
friðar- og ljóssins hátíð sem fram-
undan er vill öllum lýsa, skapa sam-
kennd og vinarþel. Megi nú sem
fyrr fjölmargir eiga góða og upp-
byggilega stund á Jólavöku við
kertaljós í Hafnarfjarðarkirkju.
Gunnþór Ingason,
sóknarprestur.
-----♦ » -----
Jólajass í
Hafnarborg-
JASSTÓNLEIKAR í Hafnarborg
sunnudaginn 13. desember í til-
efni af 90 ára afmælis Sparisjóðs
Hafnarfjarðar.
Þar koma fram nokkrir af þekkt-
ustu jassleikurum landsins og má
þar nefna Guðmund Steingrímsson,
Carl Möller, Rúnar Georgsson, Þórð
Högnason, Björn Thoroddsen, Stein-
grím Guðmundsson, Agnar Már
Magnússon og Svein Eyþórsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 15 og er
ókeypis aðgangur. Allir eru vel-
komnir, gestir og gangandi, meðan
húsrúm leyfir.
Þegar fara á í líkamsþjálfun er
flölmargt sem hafa þarf hugfast
og mættu leikfimikennarar sem
gagnrýnt hafa þjálfun á heilsu-
ræktarstöðvum vera virkari við að
fræða almenning um tilgang hinna
margþættu þjálfunaræfinga, eins
og hvað beri að leggja áherslu á
og hvað beri að varast. Þar sem
slíkar upplýsingar hafa ekki legið
á lausu í samantekt verða hér tínd-
ir til ákveðnir þættir sem leitað
hefur verið svara við.
Grunnþættir líkamsþjálfunar
JL. Aerobics sem örvar starfsemi
hjarta og lungna. Til þess að æfing-
arnar skili árangri eru 20-30 mín-
útur af taktföstum, stöðugum, end-
urteknum æfingum, en með stútt-
um hvíldum, sagðar nauðsynlegar.
Þessar æfingar örva efnaskipti lík-
amans þannig að hann brennir
betur kaloríum, ekki aðeins á með-
an æfíngum stendur, heldur einnig
í marga klukkutíma á eftir.
2. Teygja á útlimum losar um
vöðva og eykur sveigjanleika: Slík-
ar æfingar á alltaf að gera bæði
fyrir og eftir aerobics-æfingar.
Ástæðan fyrir því er sú að stöðugt
hopp og stapp hefur tilhneigingu
til að stytta vöðva. Séu teygjuæf-
ingar ekki gerðar eftir aerobics-
æfingar er hætta á meiðslum eins
og sinabólgu og sprungu í sköfl-
ungi. Ráðlagt er að forðast hopp
þegar gerðar eru teygjuæfíngar.
3. Vöðvastæling/styrkingarþjálf-
un (leikfimiæfingar, tækjaæfíngar)
styrkja ákveðna líkamshluta og
byggja upp vöðva og styrk. Fólk
verður grennra, fötin sitja betur og
minni hætta er á meiðslum.
Líkamsþjálfun við hæfi
persónuleikans
Nauðsynlegt er að velja þjálfun
sem hentar skapgerð og lífsháttum
hvers og eins. Hún þarf að felast
í þjálfum lítið notaðra vöðva, bruna
á kaloríum, eflingu jafnvægis og
krafts og að gera fólk sátt við sjálft
sig.
Metnaðargjamt framkvæmda-
fólk í streitumiklum störfum og
með einkalífíð á fullri ferð ætti
ekki að gleyma adrenalíninu (það
eykur virkni hjarta, blóðþrýsting
og blóðstreymi til vöðva), sem að
jafnað er við suðupunkt hjá þeim.
Fyrir þá sem eru í þessum hópi
getur reynst heppilegt að halda sig
við ákveðnar keppnisíþróttir eins
og tennis eða borðtennis. Þeim
reynist oft auðveldara að slaka á
í sundi eða jóga eftir gott svitabað.
Það er raunar eins og keppnisíþótt-
ir hafi verið fundnar upp fyrir þetta
fólk. Þjálfun og keppni virðist orka
sem hvati til að ná fyrirfram
ákveðnum árangri. Þessu fólki er
þó bent á að halda aftur af sér og
halla sér að sundi, hlaupi, skokki
eða slíkum greinum, nema það sé
I toppformi. Það hljómar e.t.v. þver-
sagnarkennt en þetta orkumikla
framkvæmdafólk getur prýðilega
slakað á með því að iðka æfingar
eins og austurlenskar þjálfunar-
hreyfíngar og jóga og aðrar slíkar
sem leggja áherslu á þjálfun ein-
beitingar, jafnvægi, sveigjanleika
og skarpa hugsun.
Rólyndu fólki með lífíð í föstum
farvegi er bent á að ef líf þess og
starf þarf á uppörvun að halda er
kjörið að koma sér inn í virkan
tómstundahóp til dð „peppa upp“
orkuna. Þetta fólk nær bestum
árangri í hópi með öðrum, hvort
sem um er að ræða gönguferðir
eða skokk,, eða að vera undir hand-
leiðslu leiðbeinanda í jassballett,
aerobics, eða við æfingar sem hæfa
líkamsástandi hans. Fólki með
þessa skapgerð er bent á að leita
leiða til örvunar og fínna sér eitt-
hvað nýtt viðfangsefni sem það
hefur ekki tekist á við áður, eins
og starfa fyrir líknarfélög eða
koma sér í hópæfingar í blaki, fara
í skylmingar, eða til að drífa sjálft
sig áfram. Jafnvel þó það ákveði
að halda ekki áfram í þessum æf-
ingum virka allar breytingar mjög
örvandi,
Hr. eða fr. félagsvera, sem hefur
þörf fyrir endurvakningu í einkalíf-
inu um leið og línunum er kippt í
lag, er bent á að bjóða „ástinni
sinni“ með sér til þátttöku t.d. í
borðtennissveit: Ef félagsveran er
ekki á föstu er bara að ganga inn
í tækjasal heilsuræktarstöðvar og
gefa sig á tal við næsta mann.
Þannig verður ekki komist hjá því
að eignast vin eða kunningja. Ann-
ar möguleiki eru að sjálfsögðu skól-
ar sem bjóða upp á alls konar dans-
námskeið. Dansinn býður upp á
vægar aerobics-æfingar og er
þægileg leið til að kynnast fólki.
Hin skapandi listræna manngerð
lætur sér oft nægja letistóla-æfing-
ar og hefur ofnæmi fyrir dægur-
lagatónlist. Ef viðkomandi sækir
eftir værð og friði frá fyrirferðar-
miklum börnum, samstarfsmönn-
um eða hávaða borgarlífsins er
ekki úr vegi að reyna jóga vegna
hugleiðsluþáttarins. Það gæti líka
komið viðkomandi í samband við
undirmeðvitundina sem e.t.v. gæti
aukið sköpunarmáttinn. Ef um er
að ræða manngerð sem fyrr vill
detta dauð niður en að láta sig í
aeróbics-æfingum í annarra aug-
sýn, er ráðlegt að fá sér þrekhjól
eða litla fjaðradýnu (trampolín)
sem bæði gæti verið skemmtileg
þjálfun og ekki of hörð fyrir liðina.
Þannig væri hægt að gera allt í
senn; æfa sóló, heima og í einrúmi.
Ef aftur á móti vinnan er unnin
heima ætti heimsókn í heilsurækt-
arstöð að vera hápunktur dagsins.
Velja skal stað sem býður upp á
fjölbreytilegar æfingar og leiðbein-
endur sem sýna skjólstæðingum
sínum áhuga og lætur þá finna að
áhugi er fyrir árangri hjá þeim.
Mikilvægi likamsþjálfunar
Líkamsþjálfun er jafn mikilvæg
og svefn og góð næring fyrir þann
sem vill njóta góðrar heilsu. Þjálf-
unin eykur hæfni og bætir útlit.
Menn verða að sjálfsögðu að þekkja
eigin takmörk en þeir þættir sem
greint hefur verið frá hér að ofan,
eins og styrkur, sveigjaleiki og út-
hald, hjálpa til við að takast á við
hin daglegu störf og gott betur.
Næringin ein og sér bætir ekki
árangurinn en hún hjálpar til að
ná árangri.
Vísindamenn hafa ekki komið
sér saman um það hvenær litlar
líkamsæfingar eru of litlar eða
hvenær miklar æfirigar eru of mikl-
ar. Sumir hafa haldið því fram að
20 mín. æfíngar þrisvar í viku
nægi til að viðhalda hjarta- og
æðakerfinu. Aðrir halda því aftur
á móti fram að orkan eða sá fjöldi
af kaloríum sem brennt er í æfing-
um sem ná til alls lfkamans sé lyk-
illinn að heilbrigðu hjarta og um
leið betri heilsu. Slíkar æfingar eru
aerobics, sund, skíðaganga, hrað-
ganga, skokk, hjólreiðar og þróttir
eins og fótbolti o.fl.
Æfingar styrkja hjarta- og
æðakerfi
Þar sem leikfimi og aerobics eru
ofarlega á lista heilsubætanndi
æfinga fyrir hjarta- og æðakerfið,
er rétt að lýsa í hveiju þær felast.
Því er lýst í bókinni „Understand-
ing Nutrition". Þar segir að reglu-
legar æfingar hafi áhrif á æðakerf-
ið þar með talin hjarta-, æða- og
lungnastarfsemi og auki rauðu
blóðkomin svo blóðið geti flutt
meira súrefni. Hjartavöðvar verða
styrkari og stærri og hjartahólfin
tæmast betur við hvert slag hjart-
ans. Þetta gerir færri slög nauðsyn-
leg og púlsslögum fækkar. Vöðvar
sem þenja út og draga lungun sam-
an vaxa að styrk og úthaldi sem
gerir öndun árangursríkari og fær
blóðið til að flæða auðveldlega um
æðar líkamanns.
Skortur á góðri loftræstingu
á líkamsræktarstöðvum
En til að þessum árangri verði
náð með leikfimi og aerobics-
æfingum á heilsuræktarstöðvum
hér þarf nægjanlegt súrefni þar.
Þessar heilsuræktarstöðvar eru
margar hveijar í gluggalausum
kjöllurum, oft illa loftræstum.
Stundum er jafnvel lokað fyrir loft-
ræstingu vegna þess að talið er
nauðsynlegra að framkalla svita
en draga inn ferskt loft.
Um mikilvægi súrefnisflutninga
hjartans til lungna og vöðva segir
í ofangreindri bók: Þeim mun þjálf-
aðri og hæfari sem vöðvamir eru,
þeim mun meira súrefni draga þeir
til sín úr blóðinu. Súrefnið er feng-
ið frá lungunum og þeir sem hafa
þjálfaðri vöðva draga til sín meira
súrefni úr loftinu en þeir sem hafa
slakari vöðva. Æðakerfið og blóð-
rásin svara kröfum vöðvana um
súrefni, þeir sjá síðan um að taka
við súrefninu, sem er nauðsynlegt
til brennslu á orkuríkri fæðu (kalor-
íum), og skila síðan koltvísýringi
til baka.
M.Þorv.
Kópavogskirkja
Kópavogskirkja 30 ára
í TILEFNI af 30 ára vígsluafmæli Kópavogskirkju verður sunnudag-
inn 13. desember kl. 14 sameiginleg guðsþjónusta Digranes- og
Kársnessafnaða. Séra Jónas Gíslason, vígslubiskup, predikar og sókn-
arprestar þjóna fyrir altari.
Karlakór Reykjavíkur syngur veitingar í boði safnaðarins í Fé-
nokkur lög í lok guðsþjónustunnar. lagsheimili Kópavogs að lokinni
Kirkjugestum er boðið að þiggja guðsþjónustu.
Karlmenn athugið
íioruK* - herraskór komnir aftur
Einstaklega vandaðir og þægilegir úr mjúku leðri
Teg: Bristol
Stærðir: 40V2-45V2
Sóli: Slitsóli
Verð: 8.900,-
Rolando
40V2-45V2
Leðursóli
8.900,-
Houston
4OV2-45V2
Leðursóli
9.400,-
Póstsendum, sími 16584
Minnum á ókeypis bílaæði í bíiageymslu gegnt Þjóðleikhúsinu
Opið laugard. 10-18
sunnud. 13-17
SKOSALAN
Laugavegi 1 (gegnt Skólavörðustíg).