Morgunblaðið - 12.12.1992, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
Eitt atriði úr myndinni Miðjarðarhafið.
Regnboginn sýnir mynd-
ina Miðjarðarhafið
Barnastúkan Björk 65 ára
REGNBOGINN frumsýnir mánu-
daginn 14. desember sýna fyrstu
jólamynd fyrir þessi jól. Um er
að ræða ítölsku 'Oskarsverðlauna-
myndina „Mediterraneo“ eða Mið-
jarðarhafið — það er draumur að
vera með dáta, eins og hún heitir
á íslensku.
Kvikmyndin fékk Óskarsverðlaun
sem besta erlenda myndin í ár.
Myndin gerist árið 1941 þegar seinni
heimsstyijöldin stendur sem hæst.
Myndin segir frá átta ítölskum her-
mönnum sem sendir eru til lítillar
grískrar eyju þar sem þeir eiga að
koma upp fjarskiptabúnaði til að
fylgjast með skipaferðum banda-
manna. Eyjan sjálf virðist mannlaus
við fyrstu sýn. Margt fer á annan
veg en ætlað er. Herflutningaskipið
sem flutti hermennina er sprengt í
loft upp sömu nóttina. ítölsku her-
mennimir eru orðnir ‘strandaglópar
og sambandslausir við umheiminn.
Hermennirnir gleyma stað og stund
og aðlagast lifnaðarháttum hinna
grísku íbúa.
BARNASTÚKAN Björk nr. 94
hafði í nóvember starfað í 65 ár.
Á þeim tíma hefur margt breyst
en alltaf hefur stúkan haft fund-
arstörf og afmælishátíð að vetr-
inum. Hún var stofnuð 19. nóv.
1927 og var fyrsti gæslumaður
hennar Stefán Jónsson skólastjóri
og æðsti templar Guðrún Möller.
Stofnfélagar voru 38. Er nú að-
eins einn þeirra, Bjarni Svein-
björnsson, búsettur í Stykkis-
hólmi. Hann var heiðursgestur
afmælisfagnaðarins sem haldinn
var 30. nóv. sl.
Þá voru, eftir að Stefán flutti
burt-, sr. Árelíus Níelsson um skeið
og frú Sesselja Konráðsdóttir gæslu-
menn til ársms 1951 að Árni Helga-
son tók við því starfí og hefir haldið
því síðan. Þess er sjálfsagt að geta
að stúkan hefir verið í ágætum
tengslum við skólann frá upphafi og
ráðamenn hans og kennarar hafa
sýnt starfinu skilning og stutt að
ráðum og dáð.
Dagskrá hátíðarinnar var þannig
að gæslumaðurinn minntist liðinna
ára og sagði frá helstu atriðum í
starfinu og þá ekki síst sumarstarf-
inu um mörg ár, þ.e. ferðalaga sem
farin voru á ýmsa staði, bæði í Snæ-
fellsnesi, Dalasýslu og Borgarfirði
og þurfti þá stundum 3 langferða-
bíla til að flytja farþegana og voru
sunnudagar valdir til ferðanna. Þær
tókust alltaf svo vel að enginn.
Lúðvíg Halldórsson skólastjóri
flutti stúkunni ámaðaróskir og
minntist einmitt að Ferðafélag ís-
lands á um þessar mundir 65 ára
afmæli, sem leiðbeinandi ferðafólki
um landið og kvað hann starf stúk-
unnar einnig leiðbeiningarstarf til
betra og fegurra mannlífs.
7. bekkur Grunnskólans undir
stjóm kennara síns var með fróðleg
og skemmtileg atriði og vel af hendi
leyst. Gunnar Svanlaugsson, yfir-
kennari, stjórnaði svo fagnaðinum
til loka hans. Þeir Daði Þór Einars-
son tónlistarskólastjóri og Hafsteinn
Sigurðsson tónlistarkennari léku
fyrir íjörugum dansi en þeir em
þekktir sem „Haukar í homi“ á
skemmtisamkomum. Þetta var
framlag þeirra til þessa góða fagn-
aðar. Eldri félagar sáu um veiting-
amar með hjálp kennara og 7. bekkj-
ar.
Bæjarstjóri Ólafur Sverrisson
flutti árnaðaróskir og kveðjur bæj-
arfélagsins.
- Arni.
Auðugust
núlifandi Islendinga?
Guðrún Bjamadóttir,
fyrrverandi fyrirsœta.
„ Vinsœlar fyrírsætur eru á gríðarlega
háum launum þegar best lcetur, þó að
vissulega séu miklar sveiflur í tekjum
þeirra. Kunnugir segja að þœr hlaupi
á milljónatugum, en til þess að gefa
lesendum einhverja hugmynd eru 50
milljón króna árstekjur ekki mjög
fjarri lagi, og það hefur lítið breyst
síðustu áratugi... Guðrún er afmörg-
um talin auðugust núlifandi íslend-
inga, enda á hún meðal annars glæsi-
íbúðir í mörgum afhelstu stórborgum
heimsins... “
Bókin íslenskir auðmenn segir á vand-
aðan og umfram allt skemmtilegan
hátt frá alls konar fólki með ólíkan
bakgrunn og úr margvíslegum atvinnu-
greinum. Bókin er í senn lærdómsrík
fyrir bjartsýnt fólk og skemmtileg
aflestrar fyrir alla þá sem vilja fræðast
um það hvernig í ósköpunum er hægt
að verða ríkur á íslandi!
íslenskir
auðmenn
- verulega
auðug bók!
í 3. sœti á
metsölulista
Pressunnar
- góð bók
um jólin!
BORGARKRINGLAN
ER KGMIN I JÓLABÚNING
Hjd okkur verður hlýtt og notalegt um jólin
,.,og mikið um dýrðir
Opið verður
alla daga Í
vikunnar \
í desember! j
Mánud. - funmtud. ki. 10.00 - 18.30. |
Föstudagakl. 10.00 -19.00. j
Laugardaga kl. 10.00 -18.00. j
Sunnudaga kl. 13.00 - 17.00. *
ndur og stórmerki.
Kórsöngur ómar og klassískir tónar
fylla hlýja sali sem baðaðir eru í jólaljósum.
Það er engu líkara en jólasveinamir
hafi gert Borgarkringluna að heimili sínu
fyrir þessi jól. Þar eru einnig tugir sérverslana,
sneisafullar af varningi og góðum gjöfum
ásamt fjölda góðra veitingastaða.
Afslöppuð jólastemmning.
. Opið kl. 10.00 - 18.00.
Kl. 14.00. Jólasveinninn mætir á staðinn og kætir börnin.
Kl. 14.00. Mosfellskórinn syngur nokkur lög.
Kl. 15.00. J ólakvintett: Fimm manna blásturssveit.
Kl. 16.00. Nemendasýning Iistförðunarskóla Línu Rutar
og tískusýning frá Kokkteil og Plexiglas.
Siiniuidagiir 13. Opið kl. 1.3.00 - 17.00.
Kl. 12.00. Veitingastaðir opnaðir.
Leikið verður á flygil Borgarkringlunnar.
Kl. 14.00. Jólatréskemmtun bama. Jólasveinninn birtist
og dansað verður í kringum jólatréð.
Kl. 15.00. Klassískur dúett: Leikið verður á víólu og píanó.
V E R I Ð VELKOM I N