Morgunblaðið - 12.12.1992, Side 72
72
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
Þú áttar þig á því, Didda
mín, að milli okkar er öllu
Iokið...
HÖGNI HREKKVtSI
„ BKKI ÞlTT BESTA VEBlc.'
BREF TIL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Hugar þú nægilega
vel að eignum þínum?
Frá Amþórí Ingólfssyni:
SEM vonlegt er snýst umræða
manna, um þessar mundir, um
ástandið í þjóðfélaginu. Það út af
fyrir sig er ekkert merkilegt, sú
umræða er alltaf í gangi enda það
umræðuefni sígilt og nútíminn á
hveijum tíma alltaf verstur.
0g ef nútíminn er verstur,
hvaða afleiðingar getur ástandið,
sem ríkir hveiju sinni, haft í för
með sér?
Umræðan í dag snýst um þreng-
ingar, skort á atvinnu, skort á
peningum, jafnvel örvæntingu
vegna afkomumöguleika. Sé
ástandið með þessum hætti fer
ekki hjá því að það hafi afleiðing-
ar í för með sér. Þær eru, eða
geta verið, margvíslegar og því
miður er ekki fráleitt að tengja
aukningu afbrota þeim afleiðing-
um.
Nú er svartasta skammdegið
yfirstandandi og í skjóli þess
myrkurs er e.t.v. ýmislegt aðhafst
sem ekki gerist í eins miklu mæli
um bjarta sumarnóttina. Innbrot
og þjófnaðir ýmiskonar eru því
miður algengt fyrirbæri í öllum
þjóðfélögum, slíkt verður aldrei
hægt að uppræta. Lögregla reynir
að koma í veg fyrir afbrot og koma
lögum yfír þá sem slíka iðju
stunda. Ekki er nokkur von til
þess að lögregla nái að koma hönd-
um yfír öll slík tilvik og að sjálf-
sögðu aukast ekki líkur á því þar
sem niðurskurði er ótæpilega beitt
þegar um er að ræða fjárveitingar
til löggæslumála. Það hlýtur svo
að vera að löggæsla breytist og
beri keim af því íjármagni sem
hún hefur handa á milli.
Eins og áður segir reynir lög-
regla að koma í veg fyrir afbrot
og einnig að upplýsa þau sem
framin hafa verið. Það er sjálf-
sagður hlutur, enda á borgarinn
heimtingu á því.
Einn er þó sá þáttur í þessum
málum sem ekki má gleymast en
gleymist því miður of oft en það
er geta hins almenna borgara til
að hafa áhrif á þróun þessara
mála, a.m.k. að einhverju leyti.
Hugar hinn almenni borgari
nægilega vel vakandi fyrir því
sem er að gerast hjá nágrannan-
um? Er hugsanlegt að óvandaðir
menn geti farið inn á mannlaus
heimili án þess að nágranninn
'athugi hvað er að gerast. Sam-
vinna nágranna í þessum efnum
er afar mikilvæg og eykur örygg-
ið stórlega.
Jólamánuðurinn er mikill versl-
unarmánuður hjá öllum en því
miður er það svo að hann er
mörgum dýrari en vera þyrfti.
Fólk fer í verslanir gerir innkaup,
losar sig við varninginn í bílinn
sinn, sem lagt hefur verið á góðan
stað, en það gleymir að læsa bíln-
um og veitir þar með óvönduðum
mönnum greiðan aðgang að því
sem í bílnum er og tapar þar með
verðmætum. Það getur því verið
afdrifaríkt að gleyma að læsa
bílnum en að læsa honum, þegar
hann er yfirgefinn, ætti að vera
jafnsjálfsagt og að opna dyr hans
áður en farið er úr honum.
ARNÞÓR INGÓLFSSON,
yfirlögregluþjónn Reykjavík.
HEILRÆÐI
Umjól ogára-
mót eru
fjölsklyldu-
tengslin meiri
og sterkari en
jafnan á öðr-
um árstíma.
Því er það
gott ráð að
fjölskyldan
öll gefi sér
tima til að
fara saman
yfir það, sem
helst þarf að
varast og
hvernig
bregðast
skuli við hinu
óvænta.
RAUÐI
KROSS
ÍSLANDS
Víkverji skrifar
Alllengi hefur fjármálaráðu-
neytið auglýst í sjónvarpi
verðtryggð ríkisskuldabréf. Ein
tegund auglýsingarinnar er þann-
ig orðuð að Víkveiji hefur lengi
velt fyrir sér, hvað vaki fyrir ráðu-
neytinu. Það hvetur fólk, sem vill
spara til þess að „eyða“ í sparnað.
Nú er það væntanlega svo, að
í vitund fólks eru þessar tvær
sagnir „að eyða“ og „að spara“
með gagnstæða merkingu. í orða-
bók Menningarsjóðs segir að sögn-
in að eyða þýði að koma í lóg,
gera að engu, nota illa á meðan
orðabókin skýrir sögnina að spara
með því „eyða litlu“. Með öðrum
orðum það virðist ákaflega erfítt
að nota þessar sagnir í sömu
andrá.
Engu að síður gerir ríkissjóður
þetta í áðumefndri auglýsingu.
Hann hvetur fólk til þess að kaupa
spariskírteini ríkissjóðs með
orðunum „eyddu í spamað“.
Kannski læðist það að áhorfandan-
um með notkun slíks orðalags, að
kaup á spariskírteinum ríkissjóðs
jafngildi eyðslu eða eins og orða-
bókin þýðir sögnina „koma í lóg,
gera að engu, sóa“.
Væntanlega er þetta ekki það,
sem auglýsandinn vill að áhorf-
andinn trúi. Því er hér um mis-
notkun á sögninni að eyða að
ræða, sem getur leitt til þess að
hún verði eyðilögð í munni fólks,
rétt eins og sögnin að græða var
á sínum tíma gerð ákaflegá nei-
kvæð, svo að ekki sé meira sagt.
xxx
Nú má búast við því að jólainn-
kaup fólks fari af stað af
fullum krafti, því að nýtt korta-
tímabil er hafíð hjá flestum fyrir-
tækjum. Þannig var vinkona Vík-
veija stödd í Hagkaupi á fímmtu-
dagskvöld og þar var örtröð af
fólki. Annað slagið kom rödd v
hljómkerfí verzlunarinnar sem til-
kynnti að fæm innkaup umfram
ákveðna upphæð, myndi verzlunin
gefa fólki kost á raðgreiðslum til
þriggja eða fjögurra mánaða. Bar-
áttan um hylli fólks virðist sem
sagt hafín og gylliboðin þegar
komin á loft. Vonandi sér fólk þó
í gegnum þetta, því að ávallt kem-
ur að skuldadögunum og fyrstu
mánuðir næsta árs, sem nú er
skammt undan, eru jafnframt
gjalddagar fasteignaskatta, svo
að menn verða að gá að sér.
xxx
*
Alitlu línuriti, sem daglega birt-
ist í Morgunblaðinu, og birt
er í „Peningamarkaðinum" má sjá
hreyfíngar á verði eldsneytis af
ýmsum tegundum. Þar kemur m.a.
fram að frá því um miðjan október-
mánuð hefur bensínverð verið á
stöðugri niðurleið og þá einkum
blýlaust bensín. Verð á blýlausu
bensíni hefur lækkað mest frá
miðjum nóvember eða úr rúmum
200 dollurum tonnið í um 180
dollara nú 9. desember. Nú er að
fylgjast með hvenær þessi verð-
breyting fer að hafa áhrif á ís-
landi. Vonandi verður þess ekki
langt að bíða, en eins og kunnugt
er hækkaði bensín nýlega bæði
vegna gengisbreytingarinnar á
dögunum og eins vegna aukinna
skatta á bensínsölu.