Morgunblaðið - 12.12.1992, Page 74

Morgunblaðið - 12.12.1992, Page 74
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992 ÚRSLIT Skíði Va 1 Gardena, Ítalíu: Brun karla 1. William Besse (Sviss)......1:59.49 2. Jan Einar Thorsen (Noregi)...2:00.06 3. Patrick Ortlieb (Austurríki).2:00.10 4. Urs Lehmann (Sviss)..........2:00.23 4. Leonahard Stock (Austurríki).2:00.23 6. Franz Heinzer (Sviss).......2:0041 7. Atle Skaardal (Noregi).......2:00.48 8. Helmut Höflehner (Austurríki) ....2:0060 9. Marc Girardelli (Lúxemborg)..2:00.74 10. Hannes Trinkl (Austurríki).2:00.77 Staðan í heildarstígakeppninni: 1. Jan Einar Thorsen (Noregi)......180 2. Franz Heinzer (Sviss)...........120 2. Hubert Strolz (Austurriki)......120 4. AlbertoTomba (Italíu)...........116 5. Kjetil-Andre Aamodt (Noregi)....113 Körfuknattleikur NBA-deildin: Leikir á fimmtudag: New York - Charlotte...........103:110 ■Eftir framlengingu. New Jersey - LA Clippers.......111:105 Dallas - Minnesota............. 88:111 Miami - San Antonio............ 91:101 UtahJazz-Washington............112: 96 Golden State - Milwaukee.......114:102 Sacramento - Indiana........... 99:106 ■ GEIR Sveinsson, handknatt- leiksmaður ársins, varð fyrir því ól- áni í fyrrakvöld, eftir að hafa tekið við viðurkenningu sinni í húsakynn- um ÍSÍ í Laugardal, að ekið var á bifreið hans. Geir bað Morgunblaðið að koma þeim skilaboðum á fram- færi að sá sem skemmdunum olli hefði samband við hann. H MARK Robins, miðherji Norwich, sem hefur skorað . tólf mörk, leikur á nýju á Old Trafford í dag, en Manchester United seldi hann á 800 þús. pund fyrir þetta keppnistímabil. ■ EFTIR að Robins var seldur hefur Man. Utd. notað yfir tvær millj. punda til að kaupa leikmenn til að skora fyrir liðið. Leikmenn eins og Eric Cantona og Dion Dublin. ■ KENNY Daglish, fyrrum fram- kvæmdastjóri Liverpool, mun stjóma liði sínu Blackburn gegn sínu gamla félagi á Anfieid Road. H ARSENAL og Glasgow Ran- gers hafa hug á að kaupa Warren Barton, vamarleikmann hjá Wimbledon, sem er metinn á tvær millj. punda. H DON Howe, þjálfari Chelsea, var fluttur á sjúkrahús í gær, eftir að hann fékk verk fyrir bijóstið. Þess má geta að hann fór í hjartaað- Serð 1988. I LIVERPOOL hefur mikinn hug á að kaupa Les Ferdinand, mið- heija QPR, sem er 26 ára og hefur skorað níu mörk í vetur. H NIGEL Winterburn mun leika á ný með Arsenal gegn Tottenham, eftir að hafa misst sjö leiki vegna meiðsla á hné. H DENNIS Bergkamp, miðheiji Ajax, getur ekki leikið með hol- lenska landsliðinu gegn Tyrkjum í Istanbúl á miðvikudaginn kemur. Hann er meiddur á fæti. H BAYERN Miinchen hefur sýnt áhuga á að kaupa Anthony Yeboah, miðheija Frankfurt. H THOMAS Berthold, sem hefur fengið fá tækifæri hjá Bayern, hefur hug á a'ð ganga til liðs við Stuttgart. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Tíkln Sýr tók á móti leikmönnum Vals er þeir komu á æfingu. Sævar Jóns- son klappar henni. Valsmenn fara snemma á fætur á föstudögum Morgunstund gefur gull í mund Meistaraflokkur Vals í knattspymu hefur tekið upp þá nýbreytni að æfa einu sinni í viku klukkan hálf sjö að morgni. Föstudagam- ir urðu fyrir valinu og í gærmorgun voru um tuttugu manns mættir á æfingu; þar af tveir gestir — Magni Blöndal Pétursson, sem lék með Val um árabil en þjálfar nú og leikur með Ægi í Þorlákshöfn og Amór Guðjohnsen, atvinnumað- ur, sem er á milli vita, en æfir með Valsmönnum á meðan. Það vom fáir á ferli í borginni er blaða- maður renndi að Hlíðarenda upp úr kl. sex í gærmorgun, til að komast að því hvort þetta væri virkilega satt, og alls enginn á íþrótta- svæði Vals. Fljótlega renndi þó bifreið í hlað og út stukku Kristinn Bjömsson þjálfari og tíkin hans, Sýr. Fljótlega komu þeir svo einn af öðr- um, knattspymukappamir, mis syfjulegir, en kl. hálf sjö voru þeir tilbúnir, og hlupu af stað út í myrkrið. Eftir góðan hring var farið inn á stranga lyftingaæfingu og einnig spiluð knatt- spyma. Síðan drifu menn sig í bað og snæddu saman morgunverð uppúr kl. átta, áður en hald- ið var út í daginn — í vinnu, skóla, heim í rúm að lesa fyrir próf, eins og einn sagði, eða hvað sem lá fyrir mönnum. „Við höfum þetta svona að minnsta kosti eitthvað fram í febrúar, einu sinni í viku,“ sagði Bjarni Sigurðsson, markvörð- ur og aðstoðarþjálfari liðsins, við Morgunblaðið í gærmorgun, en hann átti hugmyndina. Hann segir menn ánægða með tilbreytinguna, gott sé að vakna snemma og taka vel á, og menn eigi einu fríkvöldi meira á viku en ella. Sundmenn hafa haft þennan háttinn á um árabil; æft jafn- vel í 2-3 klukkutíma fyrir vinnu eða skóla á hveijum degi, við góðan orðstír, og aldrei er að vita nema fleiri eigi eftir að taka þetta upp. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sævar Jónsson, Jóh S. Helgason og Arnór Guðjohnsen fá sér morgunmat (mynd fyrir ofan) eftir æfmguna í gærmorgun. A myndinni til hliðar má m.a. sjá Magna Blöndal Pétursson, Bjama Sigurðsson og Berg- þór Magnússon á æfingu. GETRAUNASPA MORGUNBLAÐSINS SKOTFIMI 50. /7= vika VJT" ^0= 1 X 2 Aston Villa - Nott. Forest 1 2 Ipswích - Man. City 1 Leeds - Sheff. Wedn. 1 2 Man. Utd. - Norwich 1 X 2 QPR - C. Palace 1 Sheff. Utd. - Everton 1 2 Southampton - Coventry 1 Tottenham - Arsenal 1 X 2 Wimbledon - Oldham 1 Notts County - Cambridge 1 Peterborough - Portsmouth 1 Sunderiand - Brentford 1 Swindon - Tranmere 1 2 Niu fyrstu leikiroir á seölinum eru úr ensku úrvalsdeildinni og þrír síðustu úr 1. deild. Giskað er á 144 raða opin seðil, sem kostar 1.440 krónur. Tveir leikir eru þrítryggðir, fjórir tvítryggðir og sjö þar af leiðandi fastir- með einu merki. Ríkissjónvarpið verður með beina útsendingu í dag frá viðureign Manchester United og Norwich á Old Trafford í Manchester. Forréttindi Skotfélags Kópavogs Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi bréf frá Carli J. Eiríkssyni, skotmanni, vegna íslandsmótsins í riffílskotfimi. „Ég vissi ekkert um þetta ís- landsmót í riffílskotfími 7. nóvem- ber fyrr en það var auglýst 27. október, þ.e. með aðeins ellefu daga fyrirvara. í mörg ár hafa íslands- mót í skotfimi ætíð verið auglýst með minnst tveggja mánaða fyrir- vara eins og skylt er að gera skv. mótareglum ÍSI. Ég hafði ekkert æft síðan í júlí og var alveg kominn úr þjálfun og 11 dagar eru alltof stuttur tími til að þjálfa sig upp. Skotfélag Kópavogs hafði fengið að vita um þetta felumót löngu áður. Sú vitneskja var ekki látin spyijast út, hvorki til skotíþróttafé- laga né til einsatklinga. Ekki einu sinni til félags míns, UMFA, sem hafði þó skráð mig til keppni síðast- liðið vor á íslandsmóti í þessari grein! Ef það verður framtíðin hjá Skot- sambandi íslands að íslandsmót séu felld niður að vori eins og nú er orðið að venju og þau síðan haldin nærri fyrirvaralaust mörgum mán- uðum seinna, þá er ekki hægt að keppa á jafnréttisgrundvelli. Sér- staklega þegar aðeins útvaldir menn fá að vita löngu áður hvenær mótin verða haldin. Eins og flestir vita gekk mér ilia í Barcelona í 33 stiga hitanum, en sú stigatala sem ég náði þar hefði þó nægt mér til sigurs á íslandsmót- inu 7. nóvember. Vonandi eru nú Skotmenn Arsins ánægðir sem kepptu á íslandsmótinu og gátu æft sig fyrir þetta felumót í marga mánuði." SKIÐI / HEIMSBIKARINN Besseskaut Heinzer ref fyrirrass WILLIAM Bessefrá Sviss skaut landa sínum, Franz Heinzer, ref fyrir rass á fyrsta brunmóti vetrarins sem fram fór í Val Gardena á Ítalíu i gær. Norðmaðurinn Jan Einar Thorsen varð annar og ólymp- íumeistarinn, Patrick Ortlieb frá Austurríki, þriðji. Besse, sem er 24 ára, var rúm- lega hálfri sekúndu á undan Thorsen, sem nú er í efsta sæti stigakeppninnar. Ortlieb var aðeins 0.04 sek. á eftir Thorsen en heims- bikarhafinn í bruni, Franz Heinzer, sem hefur unnið brunið í Val Gard- ena síðustu tvö árin, var rúmlega sekúndu á eftir Besse. „Ég get ekki útskýrt hvers vegna mér gekk svona vel. Að vinna með svona miklum yfírburðum þýðir að ég hef hreinlega flogið niður braut- ina,“ sagði Besse, sem setti nýtt brautarmet í Saslonch-brunbraut- inni. „Að vinna keppni sem þessa er eins og draumur,“ sagði sigur- vegarinn. „Ég var mun meira taugaóstyrk- ur en ég hefði kosið. Ég gerði smá mistök á „camel-pallinum“ í miðri brautinni og það kostaði mig sigur- inn,“ sagði Norðmaðurinn Thorsen og bætti við að hann væri í mjög góðri æfingu og þessi árangur hjálpaði sér til að vinna bug á taugaspennunni. Keppt verður aftur í bruni karla á sama stað í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.