Morgunblaðið - 19.12.1992, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
Morgunblaðið/Kristinn
Jólin nálgast
Litlu jólin hafa verið haldin um allt land undanfarna daga í skólum
og leikskólum. Mikil stemmning var leikskólanum Lækjarborg í gær
þegar jólasveinninn kom í heimsókn. Elstu börnin höfðu einnig æft
helgileik, sem þau sýndu yngri bömunum áður en jólasveinninn
sýndi sig þeim til óblandinnar ánægju.
Óveður á öllu austanverðu landinu í gær
Næsta áhlaupi spáð
suðvestanlands í nótt
ÓVEÐUR geisaði á öllu austanverðu landinu í gær. Tékkneskum
ríkisborgara var bjargað úr bíl sem hafði lent útaf vegi í Berufirði
í fyrrinótt, og almannavamanefnd á Vopnafirði mæltist til þess i
gærmorgun að fólk færi ekki út úr húsum meðan óveðrið gengi yfir.
1 gær voru 7-10 vindstig og mikil úrkoma á öllu austanverðu land-
inu, allt frá Skagafirði í norðri til Vestmannaeyja í suðri, samkvæmt
upplýsingum frá veðurstofu. Gert var ráð fyrir að veðrið lægði að
mestu í nótt, og væri orðið gott í dag. Næsta áhlaupi er spáð suð-
vestanlands, með roki og rigningu í nótt.
Var með nóg af hangikjöti
og sígarettum
Djúpivognr.
Leitað var að tékkneskum ríkis-
borgara sem var á leið frá Stöðvar-
firði til Reykjavikur i fyrrinótt, og
hafði áformað að gista á Djúpa-
vogi. Maðurinn lagði af stað um
kvöldið, en er ekkert hafði spurst
til hans seint i fyrrinótt voru kallað-
ar út björgunarsveitir frá Breiðdals-
vík og Djúpavogi. Björgunarsveitin
Eining á Djúpavogi fann manninn
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00
HeimiW: Veðurelofa íslands
(Byggt á veöurapé kl. 16.1Sigœr)
m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hlti veöur Akureyri +7 snjókoma Reykjavík 47 léttskýjaö
Bergen 8 rigning
Helsinki 3 hálfskýjað
Kaupmannahöfn 8 þokumóða
Narssarssuaq 1 alskýjað
Nuuk 0 skafrenningur
Osló 5 rigning og súld
Stokkhólmur 5 alskýjað
Þórshöfn 6 (shaglél
Algarve 15 skýjað
Amsterdam 9 skýjað
Barcelona 14 léttskýjað
Berlin 2 þokumóða
Chicago Feneyjar +3 alskýjað vantar
Frankfurt 0 þokumóða
Glasgow 5 alskýjað
Hamborg 5 þokumóða
London 10 rigning
LosAngeles 11 léttskýjað
Lúxemborg 0 þoka
Madrid 7 þokumóða
Malaga 14 skýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Montreal +2 léttskýjað
NewYork 6 hoiðskírt
Orlando 17 skýjað
París Madelra 10 skýjað vantar
Róm 16 heiðsklrt
Vín 0 alskýjað
Washington 5 skýjað
Wlnnipeg +16 snjókoma
þar sem bíll hans hafði lent útaf
veginum innan við Berufjarðará.
Maðurinn hafði haldið kyrru fyrir
í bílnum uns hjálpin barst, enda
hafði hann nóg af hangikjöti og
sígarettum meðferðis, að eigin
sögn.
G.B.
Lögreglubíll fauk útaf
í Fáskrúðsfirði
Fáskrúðsfjör ður.
Er lögreglan á Fáskrúðsfírði var
á leið til Berufjarðar til að aðstoða
við leitina að tékkanum, vildi ekki
betur til en að lögreglubíllinn missti
dekk af tveimur felgum. Óhappið
varð fyrir botni Fáskrúðsfjarðar,
og þegar verið var að tjakka bílinn
upp vildi ekki betur til en að hann
fauk útaf veginum. Mjög slæmt
veður og mikil snjókoma var á Fá-
skrúðsfirði í gær, og aðstoðaði
björgunarsveitin fólk við að komast
til síns heima.
Albert
Mestallt ófært frá Klaustri
til Eyjafjarðar
í gær var fært í nágrenni Reykja-
víkur og með suðurströndinni að
Kirkjubæjarklaustri, samkvæmt
upplýsingum frá Vegagerð ríkisins.
Þar austanaf og allt norður til Eyja-
fjarðar var meira og minna ófært
milli byggðarlaga. Þá var ekki
ferðaveður á norðurleið, þótt hægt
hafi verið að komast um Oxnadals-
heiði. Á hádegi var hætt að reyna
að halda Holtavörðuheiðinni opinni,
en nokkrir bílar munu hafa komist
hana í gær. í Eyjafirði var ófært
milli Akureyrar, Dalvíkur og Ólafs-
fjarðar.
Á norðanverðum Vestfjörðum
var Botnsheiði opnuð í gær og fært
milli ísafjarðar og Súgandafjarðar.
Einnig var fært um Steingríms-
íjarðarheiði og Djúp, en Breiðadals-
heiði var ófær. Á sunnanverðum
Vestíjörðum var fært um Barða-
strönd og á Bíldudal. í dag hyggj-
ást vegagérðarmenn moka eftir
áætlun föstudagsins, ef veður leyfir.
Flugsamgöngur austur
í ólestri í gær
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugleiðum gekk flugumferð
hálfbrösulega í gær. Þijár vélar
fóru á Akureyri fyrri part dags og
þijú flug til viðbótar voru ráðgerð.
Þá fór vél til ísafjarðar, en vélin
til Sauðárkróks kl. 12.30 varð að
snúa við. Dimm él skullu á við og
við, og festust bæði Akureyrar- og
ísafjarðarvélar inni um hríð vegna
þess.
Ófært var til Vestmannaeyja,
Hafnar, Egilsstaða og Húsavíkur,
en gert var ráð fyrir að tækist að
fljúga til Patreksfjarðar, Þingeyrar
og Isafjarðar. Athuga átti með flug
á Austfirði með kvöldinu. Miklar
tafir hafa orðið á flugi í dag, og
flestallar vélar fullar.
Hjá íslandsflugi fengust þær
upplýsingar að flogið hefði verið á
Bíldudal og Flateyri samkvæmt
áætlun í gærmorgun, en farþegar
til Siglufjarðar voru fluttir með
rútu frá Sauðárkróki. Ófært var til
Vestmannaeyja og flugi til Norð-
fjarðar var aflýst í gær, en gert ráð
fyrir aukaflugi í dag. Þá var ráð-
gert að fljúga á Rif auk leiguflugs
til Akureyrar og á Sauðárkrók.
Samkvæmt upplýsingum frá Bif-
reiðastöð íslands var ferð til Hafnar
í Hornafirði aflýst i gærmorgun,
auk þess sem Akureyrarbílar lentu
í slæmri færð um Holtavörðuheiði.
Rafmagnsleysi á Austurlandi
Samkvæmt upplýsingum frá
Rafmagnsveitum ríkisins fór raf-
magn af línum um Suðursveit,
Mýrar og Öræfasveit í fyrrinótt og
gærmorgun. Rafmagni var komið á
um hádegi í gær í Suðursveit, en
búist var við að takast myndi að
gera við línurnar í Suðursveit og á
Mýrum í gær. Línan í Öræfasveit
fór ú'taf staurum á löngum kafla á
Breiðamerkursandi, en vonir stóðu
til að viðgerð tækist sem fyrst.
Þá sló rafmagni út á Djúpavogi
í þrígang í gærmorgun, en var kom-
ið á aftur að mestu. Einnig var
rafmagnslaust í hluta Berufjarðar
og í Álftafirði og Hamarsfirði, þótt
ekki væri talið að bilanimar væru
alvarlegs eðlis. Rafmagn fór af
Dalatanga í gærmorgun, en þar er
varaaflstöð.
í gærmorgun rofnaði útvarps-
samband á Vopnafirði, og mikið
álag var á símkerfínu víða á Aust-
fjörðum í gær.
Jólaöl fferjast ef það
er ekki geymt í kæli
SÉ JÓLAÖL, sem keypt er á plast-
brúsum, ekki geymt í kæli heldur
það áfram að geijast og þarf þá
að tappa af því lofti ella gefur
tappinn, eða brúsinn sjálfur, eftir
og ölið flæðir. Leópold Sveinsson
markaðsstjóri Ölgerðar Egils
Skallagrímssonar staðfesti i sam-
tali við Morgunblaðið að fyrir
kæmi að kvartanir bærust yfir
þessu fyrir hver jól. Hann sagði
að til að vara fólk við þessu hefði
ölgerðin fylgt eftir merkingum á
umbúðum og við sölustaði með
auglýsingum í utvarpi þar sem
áréttað væri að ölið væri kælivara
og til þess ætlast að það væri
geymt í ísskáp.
Skýringuna á geijuninni sagði
Leópold þá að jólaöl væri ógeril-
sneytt. Ölið væri ekki gerilsneytt því
við það tapaði það hinu sérstæða
bragði sínu, sem væri það sem kaup-
endur væru að sækjast eftir. Hann
kvaðst telja að merkingarnar og aug-
iýsingarnar kæmust vel til skila enda
hópur kaupendanna frekar þröngur,
oftast keypti sama fólkið jólaöl ár
eftir ár og þekkti því meðferð þess
og vissi að annað hvort væri að
geyma ölið í kæli þann skamma tíma
sem það þyldi geymslu eða hleypa
af því lofti. Þó væri algengt fyrir jól
að 1-2 kvartanir bærust frá fólki sem
orðið hefði fyrir óþægindum vegna
þess að brúsi sem ekki hafi verið
hafður í kæli hafi gefið sig.
-------------
Engar vaxta-
breytingar
ENGAR vaxtabreytingar verða
hjá bönkunum á mánudag, næsta
vaxtabreytingadag. Víxilforvext-
ir eru nú lægstir í Landsbanka
og hjá Búnaðarbanka, eða 11,5%,
en eru 11,6% hjá Sparisjóðunum.
Hæstir eru þeir hins vegar hjá
Íslandsbanka, 13,6%.
í algengustu vaxtaflokkum
skuldabréfa bankanna, samkvæmt
upplýsingum Seðlabanka íslands,
bjóða Landsbanki og Búnaðarbanki
lægstu vexti óverðtryggðra bréfa,
eða 12,25%.