Morgunblaðið - 19.12.1992, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 19.12.1992, Blaðsíða 61
SGGI ÍJUHMHBMU .Öf HUOACUIAÍ)IJAJ QIQAJaMUOHOM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992 ÍÞRÓTTAHREYFINGIN Forsetaembættinu fært málverk að gjöf Hinn, 8. desember sl. gengu full- trúar ÍSÍ, Glímusambandsins og Ólympíunefndar íslands á fund Vigdísar Finnbogadóttur forseta ís- lands og afhentu að gjöf málverk eftir Gunnar Karlsson listmálara. Málverkið er af Bændaglímunni á Bessastöðum 1828 og er gefið_ í minningu upphafs skólaíþrótta á ís- landi. „Grímur Thomsen orti mörg- um árum síðar magnað kvæði sem ber heitið „Bændaglíman", þar sem hann lýsir á snilldarlegan hátt sjálfri glímunni, frammistöðu einstakra glímumanna og stemmningunni í kring. Þorsteinn Einarsson fyrrverandi íþróttafulltrúi var í hópi þeirra sem heimsóttu forsetann og flutti hann fróðlega og greinargóða frásögn af glímunni á fyrri tíð og þýðingu henn- ar og annarra íþrótta fyrir skólapilt- ana í Bessastaðaskóla, segir í frétta- tilkynningu af þessu tilefni. Myndin sýnir Ellert B. Schram afhenda forseta íslands gjöfina en t.v. er Jóhannes Jónasson úr stjórn Glímusambandsins. Forseti ís- lands þakkaði fallega og sögulega gjöf sem mundi komið fyrir á viðeigandi stað á forsetasetrinu. Bækur: SVARTUR TANGÓ - darraðardans hefndarinnar ÍSAFOLD hefur gefið út bókina „Svartur tangó“ eftir frönsku skáldkonuna Régine Deforges. Er þetta fjórða bókin um „Stúlkuna á bláa hjólinu“. Sögusvið þriggja fyrstu bók- anna er stríðshijáð Evrópa. Þótt stríðinu sé lokið er langt frá því að friður og sættir hafi komist á. Upplausn ríkir hvar- vetna. í Þýskalandi reyna þeir sem lifðu af vistina í fangabúð- um nasista að tína saman fjöl- skyldubrotin við ömurlegar að- stæður. í Frakklandi fer fram blóðugt uppgjör gagnvart svik- urum, bandarískir hermenn eru á hverju strái og matar- skortur leiðir af sér svarta- markaðsbrask. „Svartur tangó“ hefst þegar réttarhöldin í Niirnberg standa sem hæst. Lea er send þangað á vegum franska Rauða krossins og hittir þar á ný elskhuga sinn, hinn dularfulla Francois, og vin- konu sína, gyðingastúlkuna Söru, sem hafði mátt þola þvílíkar kval- ir og niðurlægingu í Ravensbrúck fangabúðunum að hún gat aldrei beðið þess bætur; hún var eyðilögð á sál og líkama. Orð nasistaveið- arans Símonar Wiesenthal um Réginc Deforgcs Svartur tangó á bUi Hfoíinu fQJ*;- 1Q47 P6 Svartur tangó er nafnið á fjórðu bókinni um Stúlkuna á bláa hjólinu þar sem darraðardans hefndarinnar er stiginn að loknu stríði. réttlæti í stað hefndar náðu ekki hjarta hennar, þar komst ekkert annað að en hefnd: „Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“. Eftir að hafa hlýtt á sögu hennar ákveður Francois að hjálpa henni að leita Auglýsing frá hefnda, en Leu skortir styrk svo hún flýr til Parísar. Atburðir þar verða þó til þess að hún fyllist hefndarþorsta og ákveður að hjálpa vinum sínum að leita uppi þýsku böðlana. Leitin ber þau til Argentínu þar sem nasistar hafa leitað skjóls undir fölskum nöfn- um með hjálp stjórnar Peronista. Hætturnar leynast víða, nas- istarnir hafa engu að tapa og Lea og vinir hennar lenda í ýmsum raunum í leit sinni að hefnd sem er þeim nauðsyn til að öðlast sál- arró. Régine Deforges hefur einstakt lag á að ná til tilfinninga lesenda sinna. Bókin er, eins og hinar fyrri, listileg blanda af hryllingi stríðsins og unaði ástarinnar, krydduð með hugleiðingum um eðli hefndar, réttlætis og ástar. Bækurnar um „Stúlkuna á bláa hjólinu" hafa notið fádæma vin- sælda um allan heim. Á það ekki síst við um ísland, þar sem þær hafa verið prentaðar aftur og aft- ur og sjálfsagt minnast margir höfundarins, skáldkonunnar Rég- ine Deforges, sem kom hingað til lands fyrir nokkrum árum og árit- aði þá hundruð bóka fyrir þakk- láta lesendur sína. Allar iólabœkurnar I Jk I OP/Ð TIL Gjafavörur - Jólavörur | | ^ L LJr KL- 22 Smáhlutir ískóinn AUSTURSTRÆTI S. 14527 ÖLL KVÖLD SUyuK HERRASKOR Einnig til í hálfum númerum og yfirvídd. Þýsk gæðavara. SKÓSALAN, Laugavegi 1, sími 91 -16584. Auglýsing Sölumaður í jólaskapi býður nytsamar gjafir á Kolaportsverði. Síðasta Kolaports- helgin á árinu - Jólagjafír langt undir búðarverði Nú eru aðeins tveir Kolaportsdagar til jóla því þetta er síðasta helgin sem markaðstorgið er opið á þessu ári. Verslunartími í Kolaportinu verður óbreyttur þessa helgi, opið laugardag kl. 10-16 og sunnudag kl. 11-17. Búast má við miklum gestafjölda því áberandi aukning hefúr verið á að fólk kaupi jólagjafirnar í Kolaportinu til að fá meira fyrir peningana. Yfir 300 seljendur um helgina Þessa helgi verða meira en 150 seljendur hvorn dag og vöruúr- valið óvenju glæsilegt. Það hefur verið áberandi nú í desember að verið er að bjóða glænýja vöru langt undir venjulegu búðarverði og fólk virðist svo sannarlega kunna að meta slíka kjarabót. Þá má ekki gleyma vaxandi úr- vali matvæla í Kolaportinu og þar er nú að finna margt hefð- bundið jólasælgæti og jólagóð- gæti eins og síld og Þorláksmess- uskötu frá Fáskrúðsfirði, laufa- brauð og hangikjöt að norðan, og jafnvel ijúpur, en þær eru að vísu afhentar utan Kolaportsins vegna reglugerða heilbrigðiseft- irlits. Er líf eftir jólin? Kolaportið byrjar aftur eftir jól- afrí helgina 9.-10. janúar og verður þá sem fyrr opið bæði laugardaga og sunnudaga. Unn- ið hefur verið ötulega að ýmsum skemmtilegum nýjungum í rekstri Kolaportsins á næsta ári og eiga margar þeirra áreiðan- lega eftir að vekja mikla at- hygli. Fyrstu helgina í janúar byijar bókamarkaður, sem verð- ur stærri en nokkru sinni fyrr. Af ýmsum nýjungum má nefna kynningardaga sveitarfélaga, tölvudaga, Færeyjadaga, neyt- endadag, byggingadaga og vor- daga, en einnig verða endurtekn- ir ýmsir „þemadagar“, sem vakið hafa mikla athygli í starfsemi Kolaportsins. NYJAR BÆKUR áíuUticela liöjiutda: Theresa Charles Barbara Cartland Erik Nerloe SK(JGGSJ^ BOKABUD OUVERS STEINS SF.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.